Morgunblaðið - 09.09.1981, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1981
Myndbönd í bíl-
um Austurleiðar
í júlímánuði bættust tveir
myndarlegir lan»íferðabílar í
flota Austurleiðar hf. Báðir eru
þessir bílar af Mercedes Benz-
gerð. Annar tekur 41 farþega og
hefur verið notaður í hinar vin-
sælu Fjallabaksferðir, en hinn er
60 farþejía með 250 hestafla vél.
Báðir eru þessir bílar búnir
sjónvarpstækjum og myndsegul-
bandi, svo að þegar útsýni er
takmarkað er fyrir hendi að sýna
og útskýra landslagið, sem ferðast
er um af myndsegulbandi. —
Yfirbyggingarnar á þessi veglegu
farartæki eru smíðaðar í Belgíu,
en settar á grindurnar hér heima.
— Hinum daglegu ferðum í Þórs-
mörk er lokið á þessu sumri og svo
er og um Fjallabaksferðirnar, en
það færist í aukana að íslendingar
nota sér þessar ódýru og áhyggju-
lausu óbyggðaferðir, þar sem
traustir menn eru við stýrið.
Sérleyfi Austurleiðar hf. 'í
Hvolsvelli er eitt það lengsta á
landinu, nær allt til Egilsstaða og
niður á firðina þar eystra. —
Austurleiðarmenn kappkosta að
hafa góða bíla á sérleyfum sínum
og fylgjast vel með í þeim efnum.
Og til nýjunga í langferðabílum
má það teljast að í nýja Horna-
fjarðarbílnum er sjálfskipting.
Nýju langferðabílar Austurleiðar
I.jósm. SÍKurrtur BrrKssun.
Hátíðarguðsþjónusta
í Kvennabrekkukirkju
Búðardal.
A undanförnum árum hefur
farið fram gagnger viðgerð á
kirkjunni að Kvennabrekku í
Dölum. en hún hafði látið mjög á
sjá.
Hún hefur nú verið klædd og
einangruð að utan og innan og öll
færð í besta stand. Nú er þessari
viðgerð lokið, og verður tímamót-
anna minnst með hátíðarguðs-
þjónustu í kirkjunni sunnudaginn
13. september klukkan 14.
Prófasturinn séra Ingiberg J.
Hannesson predikar, en sóknar-
presturinn, séra Friðrik J. Hjart-
ar, þjónar fyrir altari. Gísli Þor-
steinsson syngur einsöng.
Að guðsþjónustunni lokinni
verður kaffidrykkja fyrir kirkju-
gesti.
— Kristjana.
Verið er að reisa í ólafsvík þrjú timburhús. klædd með múrsteini að utan og á þaki. Þau eru danskrar
gerðar og kosta fullbúin 620 þús. krónur með öllum innréttingum, teppum og öðru slíku. Mikið af þvi,
sem byggt hefur verið að undanförnu á ólafsvík, hefur einmitt verið svona tilbúin hús af ýmsum
gerðum og kemur það kannski helst til af þvi að það sparar tima að reisa þess konar hús, auk þess sem
erfitt er að fá smiði.
Efnahagsörðugleikar í Nígeríu:
Gætu haft áhrif á
skreiðarútflutning
þó þess gæti ekki enn, segja úfflytjendur
NÍGERÍA stendur nú frammi
fyrir alvarlegum fjárhagslegum
vanda vegna minnkandi oliusölu
og gæti það haft áhrif á innflutn-
ing til landsins. Að sögn ís-
lenzkra fiskútflytjenda, sem flutt
hafa skreið og þurrkaða hausa ti)
Nígeriu að undanförnu. hefur
ekki gætt neins samdráttar enn
sem komið er, en slíkt gæti þó
komið til ef um áframhaldandi
fjárhagsvandræði yrði að ræða
þar i landi.
Vandi Nígeríumanna stafar af
því að þeir hafa selt olíu sína á 40
dollara tunnuna, sem er nokkuð
hærra en hjá öðrum olíuútflytj-
endum. Hafa þeir gert ráð fyrir
því í fjárlögum sínum að fram-
leiða og selja um 2 milljónir tunna
á dag á þessu verði, en nú er
framleiðslan komin niður í 700.000
tunnur á dag og verðið hefur verið
lækkað niður í 36 dollara og er
tapið reiknað á 3,5 milljarða
dollara. Olíutekjur Nígeríu nema
um 93% af gjaldeyristekjum
þeirra eftir að hefðbundinn út-
flutningur hefur að mestu lagst
niður. Því standa Nígeríumenn
frammi fyrir því að þurfa að
draga úr ríkisútgjöldum og gæti
það haft áhrif á innflutning til
landsins, eða að taka erlend lán til
að jafna mismuninn.
Vegna þessa hafi blaðið sam-
band við nokkra aðila, sem flutt
hafa skreið og þurrkaða hausa til
Nígeríu. Að sögn Árna Þórs hjá
íslenzku umboðssölunni hefur
þetta ástand ekki haft áhrif á
útflutning fyrirtækisins og reikn-
aði hann með því að ástandið þar
syðra lagaðist nú með lækkuðu
olíuverði. Sagði hann að nú væri
framundan útskipun á 20 til 30
þúsund pökkum af skreið og ein-
hverju magni að hausum á vegum
Islenzku umboðssölunnar og því
væri ekki um samdrátt hjá henni
að ræða.
Magnús Friðgeirsson hjá sjáv-
arafurðadeild Sambandsins sagði,
að þar sem olía væri aðalútflutn-
ingur Nígeríu væri það vissulega
alvarlegt mál, að samdráttur hefði
orðið og yrði svo til frambúðar
gæti það haft í för með sér
samdrátt í innflutningi til lands-
ins, en slíkra áhrifa væri ekki
farið að gæta enn. Sagði hann að
fyrir 5 árum hefðu olíutekjur
Nígeríu numið 96% af þjóðartekj-
um landsins og 1978 hefði vöru-
skiptajöfnuður landsins verið
óhagstæður, en hins vegar hag-
stæður um 8 milljarða dollara
1979 og væri það nær 13-faldur
útflutningur íslands. Árið í fyrra
hefði einnig verið hagstætt' svo
það gæti verið að þeir ættu væna
sjóði til að fleyta sér yfir erfiðleik-
1100-2200 kr. í benzín
að aka hringveginn
Benzínkostnaður ökumanns
á venjulegum fólksbíl. sem eyð-
ir um 10 litrum benzíns á
hverja 100 kílómctra hringinn í
kringum landið. en það eru
liðlega 1400 kílómetrar, er um
1100 krónur eftir síðustu hækk-
un á benzínverði. Fyrir hækkun
kostaði það sama ökumann um
960 krónur. Benzínlitrinn
hækkaði eins og skýrt hefur
verið frá í fréttum Mbl., úr 6,85
krónum hver lítri i 7,85 krónur.
Eyði bíllinn hins vegar 15
lítrum benzíns á hverja 100
kílómetra, er kostnaðurinn eftir
hækkun um 1650 krónur, en var
fyrir hana um 1440 krónur.
Ef bíllinn er svo mjög eyðslu-
frekur og eyðir um 20 lítrum
benzíns á 100 kílómetra, er
kostnaðurinn eftir hækkun um
2200 krónur, en var fyrir hana
um 1900 krónur.
Hyggist menn bregða sér til
Þingvalla og til baka, kostar það
á bíl, sem eyðir um 10 lítrum
benzíns á hverja 100 kílómetra,
eftir hækkun um 86 krónur, en
kostaði fyrir hækkunina um 75
krónur.
Eyði bíllinn á þessari leið um
15 lítrum, kostar það eftir hækk-
un um 130 krónur, en kostaði
fyrir hana um 113 krónur. Ef
bíllinn eyðir um 20 lítrum á
hverja 100 kílómetra, kostar það
viðkomandi í benzínkostnaði um
175 krónur eftir hækkun, en
kostaði um 150 krónur áður.
Það kostar um 710 krónur að
aka frá Reykjavík til Akureyrar
og til baka á bíl, sem eyðir um 10
lítrum benzíns á hverja 100
kílómetra, eftir hækkun, en það
kostaði áður um 615 krónur.
Eyði bíllinn á þessari leið um
15 lítrum benzíns á hverja 100
kílómetra, kostar það eftir
hækkun um 1060 krónur, en fyrir
hana um 925 krónur.
Eyði bíllinn á þessari leið um
20 lítrum, þá er benzínkostnað-
urinn eftir hækkun um 1415
krónur, en var fyrir hana um
1230 krónur.
Stuldurinn frá
Bílaleigu Akureyrar:
Málið enn
óupplýst
Þjófnaðarmálið á Akureyri, þeg-
ar stolið var tæplega 140.000
krónum frá Bílalcigu Ákureyrar,
cr enn óupplýst, samkvæmt upp-
lýsingum scm Morgunblaðið fékk
hjá Daníel Snorrasyni, rannsókn-
arjögreglumanni á Akureyri.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Daníel, að enn hefði ekkert
það komið fram, sem bent gæti á
þann eða þá sem að verki hafa
verið. Sagði Daníel að enginn
hefði verið hnepptur í gæsluvarð-
hald vegna þessa máls, en stöðugt
væri unnið að rannsókn þess.
40% afsláttur í 4 daga. Notið þetta einstæða
tækifæri til að gleöja yngstu kynslóðina.
Aðeins þessa viku.
Leikfangaver,
Klapparstíg 40, sími 12631.