Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 1
44 SIÐUR
206. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Vestur-Þýskaland:
Fimmta tilræðið
á þremur vikum
Bonn. 16. sept. AP.
BANDARISKIR hermenn fundu í dag tvær heimatilbúnar tíma-
sprengjur fyrir utan herflugvöll bandariska hersins í Rhein-Main og
er þetta fimmta tilræðið við Bandarikjamenn í Vestur-Þýskalandi á
þremur vikum. Hryðjuverkasamtökin Rauðu herdeildirnar hafa nú
sagst bera ábyrgð á banatilræðinu við yfirmann bandariska hersins í
Evrópu sl. þriðjudag.
Sprengjurnar fundust á járn-
brautarteinum um einn km frá
Rhein-Main-járnbrautarstöðinni
en um hana fara að jafnaði margir
bandarískir hermenn. Sprengj-
urnar voru gerðar óvirkar og
töfðust lestarferðir í hálftíma
meðan á því stóð.
Dagblaði í Frankfurt barst í dag
bréf frá félögum í Rauðu herdeild-
unum þar sem þeir sögðust bera
ábyrgð á banatilræðinu við Fred-
erick J. Kroesen, yfirmann banda-
ríska hersins í Evrópu, sl. þriðju-
Vill vera
dæmd lífs
Caracas. Vonczucla.
16. soptomhor. AP.
L/EKNIR. sem lifði flugslys af
í Venezuela fyrir nokkru en
var talinn af og jarðaður,
stendur nú i stappi við yfir-
völd um að fá dánarvottorðið
da'mt ógilt. Þetta hefur valdið
miklum úlfaþyt með þjóðinni
og umræður hafa hafist i
daghliiðum um málið.
Dómari verður að fella úr-
skurð um að læknirinn, sem er
26 ára gömul kona, Raiza Ruiz
að nafni, sé á lífi. Ef það
verður ekki gert, getur hún
ekki lögum samkvæmt stundað
læknisstörf, keypt sér hús eða
gift sig.
Fimm undirtyllur í ríkis-
bákninu hafa misst vinnuna
vegna þessa máls. Meðal þeirra
er læknir sem sagði leifar
lamadýrs leifar konunnar. Luis
Herrera, forseti Venezuela, var
meðal þeirra sem sendu krans í
jarðarförina.
Sérfræðingar
merkja staðinn
lögreglunnar
þar sem tvær
sprengjur fundust i gær á járn-
brautarteinum við herflugvöll
handariska hersins.
AP-símamynd.
dag, en þá var sovéskri sprengi-
kúlu skotið á bíl hans. Kroesen og
kona hans særðust lítillega í
árásinni. í bréfinu var lýst yfir
stríði gegn „miðstöðvum,
herstöðvum og áætlunum bandar-
ísku hernaðarvélarinnar".
Eins og fyrr segir er þetta í
fimmta sinn á þremur vikum sem
gerð er árás á Bandaríkjamenn í
Vestur-Þýskalandi en sú alvar-
legasta var 31. ágúst sl. þegar
sprengjur sprungu fyrir utan höf-
uðstöðvar bandaríska flughersins
í Ramstein með þeim afleiðingum,
að 20 manns slösuðust. Leiðtogar
stærstu stjórnmálaflokkanna í
Vestur-Þýskalandi hafa brugðist
mjög ókvæða við þessum atburð-
um og hvatt til aukinnar leitar að
félögum Rauðu herdeildanna eða
Baader-Meinhof-hópsins öðru
nafni.
FRAM sigraði írska liðið Dundalk i Evrópu-
keppni hikarmeistara á Laugardalsvellinum i
gær. Fram skoraði tvö mörk gegn einu marki
Iranna. Guðmundur Torfason skoraði fyrra
mark Fram er hann stökk hærra en írsku
varnarmennirnir og skallaði knöttinn af krafti
í netið, en eins og sést á myndinni var
Guðmundur nánast umkringdur af markverði
Iranna og varnarmönnum. í Birmingham i
Englandi áttu Valsmenn við ofurefli að etja er
liðið ma-tti ensku meisturunum Aston Villa.
Úrslit leiksins urðu 5:0 fyrir Aston Villa. í
kvöld leikur þriðja íslcnska liðið í Evrópu-
keppninni, en nýbakaðir tslandsmeistarar Vik-
ings ma'ta þá Bordeaux frá Frakklandi á
Laugardalsvellinum.
Sjá nánar á íþróttasíðum.
Ljósm. Kristján Einarsson.
Söguleg þáttaskil í
breskum stjónunálum
Frjálslyndir og jafnaðarmenn gera kosningabandalag
Llandudno. Wales. 16. sopt. AP.
NÝTT afl í breskum stjórnmálum leit i dag dagsins ljós, þegar
Frjálslyndi flokkurinn samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða
á landsþingi sínu að gera kosningabandalag við jafnaðarmannaflokkinn
nýja. Þessi sögulega samþykkt getur hugsanlega bundið enda á 60 ára
ofurvald stóru flokkanna tveggja, íhaldsflokksins og Verkamanna-
flokksins, i bresku stjórnmálalifi.
Þrátt fyrir nokkrar efasemdir
sumra í Frjálslynda flokknum,
einkum þingmanna hans, var
ákvörðunin um samstarfið sam-
Varað við blóðugu
uppgjöri í Póllandi
„Allt gert til að hindra valdatöku Samstöðu“
Varsjá, 16. seDt. AP.
STJÓRNMALANEFND pólska kommúnistaflokksins lét í dag frá sér
fara hörðustu árás sina á Samstöðu þar sem varað var við þvi, að til
blóðugra átaka gæti komið i landinu og þvi heitið, að einskis yrði látið
ófreistað til að koma i veg fyrir valdatöku Samstöðu. Þessi yfirlýsing
kom nokkrum stundum eftir, að Jacek Kuron, leiðtogi pólskra
andófsmanna, skoraði á kommúnistaflokkinn, sem hann kallaði
„lamaðan", að mynda „þjóðlegt endurreisnarráð“ með kaþólsku
kirkjunni og Samstöðu.
í yfirlýsingu kommúnista-
flokksins sagði, að Samstaða hefði
á sínu fyrsta landsþingi í síðustu
viku haldið út á braut „pólitískrar
andstöðu við stjórnvöld" og að
fyrir henni vekti að breyta stjórn-
arháttum í landinu. Samstaða var
sökuð um að styðja samtök and-
kommúnista og gagnbyltingar-
manna eins og KOR, Varnarsam-
tök verkamanna, og sagt, að
áskorun þingsins á verkamenn í
öðrum Austur-Evrópuríkjum væri
„brjálæðisleg ögrun“. „Þetta jafn-
gildir því, að hvatt væri til beinna
átaka, sem hefðu blóðsúthellingar
í för með sér,“ sagði í yfirlýsing-
unni.
Jacek Kuron sagði í áskorun
sinni á pólska kommúnistaflokk-
inn, að umrætt „endurreisnarráð"
ætti að fara með stjórn landsins
þar til efnt yrði til frjálsra
kosninga. Hann sagði ennfremur,
að ef í odda skærist kæmi í ljós, að
kommúnistaflokkurinn væri
„einskis megnugur og lamaður"
nema fyrir utanaðkomandi hjálp.
í fréttum frá Strasbourg í
Frakklandi segir, að pólska
stjórnin hafi farið fram á það við
Efnahagsbandalagið, að það veitti
Pólverjum enn frekari matvæla-
aðstoð, eða sem nemur 1,2 milljón-
um tonna að þessu sinni. Þetta er
í þriðja sinn, sem Pólverjar biðj-
ast slíkrar aðstoðar og mun hún
verða rædd á fundi embætt-
ismanna EBE í kvöld.
þykkt með 1600 atkv. gegn aðeins
112. „Fyrir hálfu ári hefði enginn
trúað því, að þetta væri hægt,“
sagði William Rodgers himinlif-
andi, en hann var einn fjögurra
frammámanna Verkamannaflokks-
ins, sem stofnuðu Jafnaðarmanna-
flokkinn 26. mars sl. „Nú er kominn
fram nýr flokkur, kosningabanda-
lag, sem stefnir að og getur gert sér
góðar vonir um að mynda næstu
ríkisstjórn í Bretlandi," bætti hann
við.
David Steel, formaður Frjáls-
lynda flokksins, sem aðeins hefur á
að skipa 11 mönnum á breska
þinginu, var í sjöunda himni yfir
þingsamþykktinni. „Það, sem hér er
um að ræða, er samkomulag um að
rjúfa vítahring stéttaþjóðfélagsins,
binda enda á miðstýringu ríkis-
valdsins og breyta kjördæmaskip-
aninni," sagði hann.
Sex fulltrúar frjálslyndra og jafn
margir frá jafnaðarmönnum vinna
nú að samstarfssáttmála flokkanna
en samkvæmt honum er fyrirhugað,
að frjálslyndir bjóði ekki fram í
þeim kjördæmum þar sem jafnað-
armenn eru taldir sigurstranglegri.
Flokkarnir eru sammála í efna-
hagsmálum, um aðild Breta að
Efnahagsbandalaginu og um að
breyta kjördæmaskipaninni og taka
upp hlutfallskosningar. Þá greinir
hins vegar á um kjarnorkuvarnir,
menntamál og önnur atriði.
Samkvæmt skoðanakönnunum
mun kosningabandalag frjáls-
lyndra og jafnaðarmanna fá 41%
atkvæða, ef nú væri kosið, Verka-
mannaflokkurinn 31% og íhalds-
flokkurinn 25%. Síðasti forsætis-
ráðherra Frjálslynda flokksins var
David Lloyd-George, 1916-1922, en
flokkurinn var ráðandi afl í bresk-
um stjórnmálum á Viktoríutíman-
um og dögum Játvarðs konungs.
Súdanir skjóta
niður libýska
sprengjuflugvél
SÚDANSKA fréttastofan
skýrði frá því í dag. að skæru-
liðar frá Chad og súdanskir
hermenn hefðu skotið niður
líbýska sprengjuflugvél í gær.
Ef rétt reynist er hér um að
ræða fyrstu beinu hernaðar-
átökin milli Súdana og Líbýu-
manna.
Hermt er, að líbýska
sprengjuflugvélin hafi verið
skotin niður eftir að hún hafði
flogið yfir súdanska bæinn Al-
Geneina og bæinn Adre í Chad
og að báðir flugmennirnir hafi
farist. Líbýumenn hófu hernað-
aríhlutun í Chad í desember sl.
og hafa þar nú 12.000—15.000
hermenn.
Súdanir eru í varnarbanda-
lagi með Egyptum og bæði ríkin
hafa margoft varað við veru
Líbýumanna, sem njóta stuðn-
ings Sovétríkjanna, í Chad og
hótað að bregðast skjótt við ef
Líbýumenn sýndu þeim yfir
gang.