Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981
3ja herb. íbúö óskast
Viö leitum aö góöri 3ja herb. íbúö í Reykjavík fyrir
mjög traustan kaupanda. Meö hraöa og mikla
útborgun. íbúöin þarf ekki aö losna næstu mánuöi.
ignaval ° 29277
TIL SÖLU VIÐ ENGJASEL
5 herb. nýleg íbúð á 1. hæð (117 fm). Góð bílageymsla. Videokerfi.
4ra herb. íbúðarhæð í smíöum (120 fm) í Kópavogi. Sér inngangur,
sér hiti.
4ra herb. íbúð á 3. hæð Viö Tjarnarbraut, Hafnarf.
Einbýlishús 255 fm viö Markarflöt.
Einbýlishús á Stórageröissvæöinu.
Raðhús við Laugalæk 3x60 fm.
Aðalfasteignasalan — s. 28888.
Doktor í
læknisfrædi
ÍSLENZKUR læknir, Guðjón S.
JóhannesKon. lauk doktorsprófi við
háskólann i Lundi 3. júni sl.
Doktorsrit hans nefnist „EEG and
cerebral hlood flow in ornanic
dementia and alcoholism.'*
Guðjón er fæddur 17. maí 1936.
Foreldrar hans eru Jóhannes Stef-
ánsson og Unnur Guðjónsdóttir
Kleifum í Gilsfirði.
Hann lauk embættisprófi frá
læknadeild Háskóla Islands 1963 og
síðar sérnámi i geölækningum og
klíniskri taugalífeðlisfræði. Guðjón
starfar nú við Taugasjúkdómadeild
Landspítalans.
EINBÝLIS- OG PARHÚS
KAUPENDUR — TÆKIFÆRI
Höfum til sölu fyrir Einhamar sf. nokkur einbýlis- og parhús meö
bílskúrum við Kögursel í Breiðholti. Húsin eru steinsteypt einingahús á
tveimur hæöum. Þau afhendast fullbúin meö frágenginni lóð og
bílastæöum. Áætlaöur afhendingartími fyrstu húsanna er í apríl 1982.
Einbýlishúsin eru 161 fm aö stærö. Staögreiösluverö þeirra er kr.
1.225.725. Parhúsin eru 133,5 fm aö stærö. Staögreiösluverö þeirra er
kr. 966.596.
H. *.VO.
-{>*
-i>®
CIO
10 »
Kostir verðtryggingar
1) Greiöslubyrgöi þín verður jöfn yfir
allt lánstímabiliö.
2) Þú færö lánað allt aö 50% af
söluverði hjá byggingaraðila og
losnar þar með viö hlaup á milli
banka og lánastofnanna.
3) Þú nýtur skattalegs hagræöis
vegna þess aö greiddir vextir og
veröbætur eru frádráttarbærar til
skatts.
Kostir fullbúins húsnæðis
1) Þú losnar við strit og áhyggjur
húsbyggjandans.
2) Þú losnar við óvissuþætti verö-
bólgu á meðan á byggingu stendur.
3) Þú flytur beint inn í fullfrágengið
glæsilegt húsnæöi eftir skamman
tíma.
4) Þú flytur beint inn í fullfrágengiö
húsnæöi án þess aö þurfa aö leigja
í millitíðinni.
5) Þú losnar viö alla vinnu viö hús-
byggingu og lóöarframkvæmdir.
Mögulegir greiðsluskilamálar:
Útborgun 50—70% á 8—12 mán. Eftirstöðvar til 5—7 ára, verðtr. skv.
lánskjaravísitölu með 2,5% vöxtum, eða við athugum tillögur þínar með
greiðsluskilmála.
Fasteignamarkaöur
Fjárfesdngarfélagsins hf
SKÓLAVÖRÐUSTlG 11 SÍMI 28466
(HÚS SRARISJÓÐS REYKJAVlKUR)
Lögfræðingur: Pétur Þór Sigurösson
„Tíu eða ellefu
vindstig og allt
á fleygiferðu
Þcssa dagana liggur I Reykjavikurhöfn stór seglskúta. Gedanía. frá
Gdansk í Póllandi. sem hefur lagt að baki firnalanga siglingu. frá
Gdansk til Svalbarða <>g þaðan hingað til lands. Alls um sjöþúsund og
þrjúhundruð sjómilur. Áhöfnin á þessum glæsta farkosti telur sex
menn og skipstjóri i ferðinni er Wojchiech Wirezbicki, en hann er
rafmagnsverkfræðingur að mennt og starfar við orkustofnun í
heimaiandi sínu. en siglingar eru helsta áhugamál hans. Blaðamaður
og ljósmyndari Morgunblaðsins ræddu við Wirezbicki um borð i
skútunni sl. mánudag.
Þessi skúta er 40 tonn og
tuttugu og hálfur metri og var
byggð árið 1975 sérstaklega til þess
að freista þess að komast Norð
vesturleiðina margfrægu yfir í
Kyrrahaf. Hún er að mestu úr stáli
og sérlega styrkt til að þola sigling-
ar á heimskautasvæðum. Venju-
legur seglabúnaður okkar er u.þ.b.
200 fermetrar, en við bestu aðstæð-
ur er hægt að nýta allt að 400
fermetra. Við erum með hundrað
hestafla hjálparvél sem við notum
yfirleitt aldrei nema innan hafna.
Þar með er tæknilegum útlistunum
lokið," bætti Wierzbicki við bros-
andi og bauð gestum undir þiljur.
Þegar þangað kom voru skoðaðar
hinar mörgu en smáu vistarverur
skipsins, þar sem alls er unnt að
hýsa 15 manns. Að lokum tylltum
við okkur niður í matsal skútunnar
og fengum að smakka dálitið brot
af pólskum veruleika, þ.e. pólskt
súkkulaði, pólskan bjór og pólskar
alþýðusígarettur, sem heita „Sport"
og eru vondar, en ku hins vegar
vera ódýrar. Loks settu Morgun-
blaðsmenn sig í norrænar sæfara-
stellingar og hlýddu á ferðasögu
skipstjórans.
íþróttir og vísindi
„Þessi skúta er í eigu skipasmíða-
stöðvarinnar frægu í Gdansk þar
sem hin örlagaríku verkföll hófust
á dögunum. Meðlimir í siglinga-
klúbbi stöðvarinnar leigja hana
síðan til ýmissa ferða. í þessu
tilfelli var ekki aðeins um skemmti-
siglingu að ræða, heldur fluttum við
hóp vísindamanna til pólsku rann-
Rætt við skip-
stjóra á pólskri
skútu í
Reykjavíkurhöfn
sóknarstöðvarinnar á Svalbarða og
var gripið til þess ráðs vegna þess
að ekki voru fyrir hendi fjármunir
til að standa straum af kostnaði við
ferð vélskips þangað norður.
Við lögðum af stað frá Póllandi
18. júlí og eftir 19 daga siglingu
komum við til Hornsund, þar sem
pólska rannsóknarstöðin er. Þar
eru aðstæður slæmar fyrir seglbáta
og eftir fjögurra daga dvöl þar, við
sýnatöku og fjallgöngur, lögðum við
aftur af stað, þ.e. áhöfnin, og
hugðumst reyna að setja met í
siglingum á norðlægum slóðum.
Fyrst urðum við að bíða í viku í
Longyearbyen, sem er hinn eigin-
legi norski höfuðstaður á Sval-
barða. Það var mikill ís sem
hamlaði för okkar. Síðan lögðum
við enn frá landi og stefndum
norður með Vestur-Spitzbergen og
komumst með umtalsverðum erfið-
ismunum allt norður á 80 gráður og
40 mínútur norður, sem er met,
hvað seglbáta áhrærir."
Wierzbicki skipstjóri gerir nú
stutt hlé á frásögninni og býður
meira súkkulaði og sígarettur frá
heimalandi sínu með afsakandi
Akranes - Akranes
Til sölu er 4ra herb. endaíbúö á fyrstu hæö í
fjölbýlishúsi. íbúðinni fylgir þvottaherbergi á hæöinni
og 20 fm geymsla í kjallara.
íbúöin er til afhendingar strax.
Uppl. eru veittar alla daga frá 10—16 í síma 93-2017.
Mosfellssveit
Höfum til sölu 261 fm iðnaðarhúsnæði viö Urðarholt.
Húsiö er laust nú þegar. Mjög vandaö hús á góöum
staö.
28444 Húseignir og Skip
Til sölu í Njarðvíkum
Af sérstökum ástæöum höfum viö til sölu íbúð á
fyrstu hæö í tvíbýlishúsi í Njarðvík. íbúöin er u.þ.b. 97
fm, 3 svefnherbergi, stofa, eldhús, búr, baö og
þvottahús. Umhverfis húsiö er stór lóö. íbúðin er í
mjög góöu ásigkomulagi og húsið er vel staðsett.
Verötilboö óskast.
Lögmannsstofan Klapparstíg 27,
Viðar Már Matthíasson ftr.
Guðný Höskuldsdóttir ftr.
Sími 18960 — 27060.