Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981
11
Wierzbicki skipstjóri.
Heimskautafararnir um borð i farkosti sínum.
I.jósm. Mbl. ÓI.K.M.
bros á vör um leið og hann kveikir í
einni Winston. Eins og góðum
blaðamönnum sæmir höfðum við
rétt aðeins dreypt á bjórnum og því
ástæðulaust að bjóða meira af þeim
góðgerðum.
„Eftir þetta,“ hefur kafteinninn
mál að nýju,„ sigldum við suður á
milli stærstu eyjanna í klasanum
og var þetta í fjórða sinn sem það
heur tekist á seglskipi. Þetta úthald
tók alls eina viku.
Þegar við sigldum þarna norður
eftir komum við á slóðir Andreés,
sem hugðist fljúga í loftbelg yfir
Norðurpólinn rétt fyrir aldamótin,
en mistókst og fundust lík hans og
félaga hans á Hvíteyju norður af
Svalbarða árið 1930“
Stormur út af íslandi
„Það tók okkur niu daga að sigla
frá Svalbarða til íslands og lentum
við í miklum ís á leiðinni til Jan
Mayen og hrepptum síðan storm í
tvo sólarhringa á hafinu milli
íslands og Grænlands. Það voru
þetta tíu eða ellefu vindstig og allt
á fleygiferð. Það lygndi loks aðfara-
nótt sunnudags og þá komumst við
hingað til Reykjavíkur. Við neydd-
umst hins vegar til að hætta við að
fara til Angmagsalik á Grænlandi,
þar eð ferðin hefur tekið nokkru
lengri tíma en áætlað var í upphafi
og ég verð að mæta til vinnu
minnar í byrjun október.
Ætlunin er að vera hér a.m.k.
nokkra daga til að gefa áhöfninni
tækifæri til að skoða sig um hér.
Sjálfur hef ég komið hingað áður og
kann ákaflega vel við mig hér. Við
munum koma við í Vestmannaeyj-
um á leið okkar heim og einnig gera
stuttan stans á Orkneyjum."
Eins og fram kom í máli Wierz-
bicki skipstjóra var skútan upphaf-
lega smíðuð til að fara Norðvestur-
leiðina. Aðspurður sagði hann að
hann hefði verið með í þeirri ferð,
en ekki hefði fengist leyfi til að fara
þá leið, vegna ótta kanadískra
yfirvalda um afdrif sæfaranna. Því
hefði verið snúið við hjá
Cornwalliseyju og haldið suður með
austurströnd Ameríku og gegnum
Panamaskurðinn og allt til
Suðurskautslandsins og loks aftur
til Gdansk eftir sextán mánaða
úthald. Sýndi skipstjóri okkur
dálítið kver, skreytt mörgum lit-
myndum, sem hann hafði ritað un
þessa miklu heimsreisu.
Nokkuð hafði slegið að okkur
innisetumönnum þar sem við spjöll-
uðum við heimskautafarann fyrir
opnum lúkarsdyrum í Reykjavíkur-
höfn, en kannski hefðum við bara
kunnað vel við norðannæðinginn
hefðum við verið nýkomnir úr
íshafssiglingu. Að minnsta kosti
var ekki að sjá að Wojciech Wierz-
bicki rafmagnsverkfræðingur og
pólsiglari léti hann nokkuð á sig fá.
SIB.
Garðastræti 45
Símar 22911—19255.
Jón Arason, lögmaður
málflutnings- og fasteignasala.
Kríuhólar topphæð
Um 100 fm 4ra herb. íbúö. Bílskúr.
Vönduö eign meö tvennum svölum.
Vesturbær 5—6 herb.
Björt og skemmtilega innréttuö íbúö um
140 fm.
Kópavogur 3ja herb.
um 97 fm íbúö á haaö, 2 svefnherb.
Keflavík tvíbýli
2ja herb. íbúö í tvíbýlishúsi. Laus
fijótlega.
Einstaklingsíbúðir
viö Skipholt og í Vesturbæ.
Parhús — Seltjarnarnes
Gott parhús á 3 hæöum. Bílskúr. 5—6
svefnherb. Möguleiki á 2ja herb. íbúö í
kjallara.
Hverageröi —
í smíðum
Raöhús á einni hæö um 110 fm auk
bílskúrs í nýju hverfi. Selt tilb. undir
tréverk og málningu. Teikning á skrif-
stofu vorri.
Þingvellir -
sumarbústaður
Til sölu nýbyggöur um 50 fm sumarbú-
staöur, t Nesjalandi viö Þingvallavatn.
M.a. hringsvalir, arin og W.C. og fleira
Skemmtileg eign. Nánari uppl. á skrif-
stofu vorri.
Jón Arason lögmaöur.
Málflutnings- og fasteignasala,
heimasími sölustjóra, Margrét 45809.
Friðþjófur hleypur á eftir,
kallar í, leitar að og f innur fólk,
sem þú þarft á aö halda,
-undireins!
Friðþjófur, eða dpSOOO, er lítið senditæki frá Philips sem er ætlað
til notkunar þar sem menn eru mikið á feröinni en þurfa samt að
vera í stöðugu sambandi. Hægt er að senda skilaboð með
hljóðmerkjum, tölum eða munnlega.
Dp6000 sendistöOvar eru t.d. í notkun
á fjölmörgum sjúkrahúsum og
heilsugæslustöðvum hár á landi.
Kerfið samanstendur af stjórnborði,
senditæki, loftneti og friöþjófum, en
stærð þess, umfang og styrkleiki
ákvarðast af aðstæðum hverju sinni.
Leltiö upplýslnga h]á sölumönnum okkar
heimilistæki hf.
Tæknideild Sætúni 8 sími 24000
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480
BALLETTSKÓLI
EDDU
SCHEVING
SKÚLAGÖTU 34
Kennsla hefst í byrjun október. Innritun og upplýs-
ingar í síma 76350 kl. 2—5 eftir hádegi.
Framhaldsnemendur hafiö samband viö skólann sem
fyrst
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
000
Gott kjöt
Gott verð
Nýtt hvalkjöt 27,00 per. kg.
Söltuð rúllupylsa 24,50 per. kg.
Reykt rúllupylsa 28,50 per. kg.
Saltkjötið góða Saltaö folaldakjöt 38,50 per. kg.
(nýja kjötið) Reykt folaldakjöt 22,00 per. kg.
(nýja kjötið) 29,00 per. kg.
Folaldahakk (nýja kjötið) Hangikjötsframpartar, 33,00 per. kg.
nýreyktir Úrbeinaðir hangikjöts- 36,40 per. kg.
frampartar 69,00 per. kg.
Kjúklingar 55,70 per. kg.
Kjúklingar 10 stk. íkassa 49,50 p6f. kQ.
Kindahakk 29,50 per. kg.
Saltkjötshakk 39,50 per. kg.
Svínahakk 59,00 per. kg.
Nautahakk 55,00 per. kg.
Lambahakk 39,50 per. kg.
Nauta hamborgari 4,70 per stk.