Morgunblaðið - 10.10.1981, Side 10

Morgunblaðið - 10.10.1981, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981 í tilefni þingsetningar Akvarðanir í jóla- leyfi eins og í fyrra? Ríkisstjórninni var legið á hálsi fyrir það síðastliðið vor, að á þingtimanum hefði næsta lítið áunnist á Alþingi, þing- menn færu í sumarleyfi með næsta fá- tæklega afrekaskrá. Dr. Gunnar Thor- oddsen svaraði þessari gagnrýni með því • að rekja tölur um afgreidd stjórnar- frumvörp á þinginu og þótti málafjöldinn sér hagstæður. Fljótlega hætti ráðherr- ann þó að ræða um starf þingmanna eins og aðrir ræða um afrek íþróttamanna í kappleik, enda talið, að það hæfði lítt virðingu Alþingis. Staðreynd er, að gæði laganna skipta meiru en magnið. Lög eru mjög misjöfn að efni, sum, og þá oftast þau, sem mest er hampað í fjöl- miðlum, eru fremur efnisrýr eða þeim er ekki fylgt í framkvæmd. Á síðari árum hafa fá lög fengið meiri auglýsingu en svonefnd Olafslög. Síðan þau voru sett hafa ríkisstjórnir gripið til ýmissa ráða til að fara í kringum ákvæði þeirra. Ný- lega taidi forsætisráðherra það mikla framför, að einhvern tíma á fyrstu dögum þess þings, sem nú er að hefjast, ætlaði ríkisstjórnin að leggja fram fjárfestingar- og lánsfjáráætlun. I Ólafslögum segir, að þá áætlun eigi að leggja fram strax í þing- byrjun eins og fjárlagafrumvarpið og þjóðhagsáætlun. Stundum sýnist raunar skorta á það hjá þingmönnum, þegar þeir fá stjórnarfrumvörp í hendur, að þeir spyrji sig, hvort nauðsynlegt sé að setja lög um viðkomandi efni. Er málum til dæmis þannig komið, að grásleppu- hrognaframleiðendur, eins og grásleppu- karlar eru nefndir við hátíðleg tækifæri, geti ekki reist kæligeymslu yfir hrognin nema að undangenginni lagasetningu? Úr því fæst líklega skorið í vetur. Stundum iáta þingmenn sér lynda að samþykkja lög, sem í raun veita embætt- ismönnum og þar með ráðherrum nær ótakmarkaða heimild á einhverju ákveðnu sviði. Því er þá haldið á loft af ýmsum, að heimildarlögin séu sett til að þóknast embættismannavaldinu. Að mínu áliti er hér um misskilning að ræða, ég held, að meirihluti embættismanna kjósi, að ákvæði laga séu sem skýrust og ótvírætt komi fram, hvað fyrir löggjafanum vakir. Það er engum til góðs, að á mikilvægum sviðum ríki óvissa og tækifæri gefist til pólitískrar greiðasemi eða geðþótta- ákvarðana. Engum er verr við slíkt en heiðvirðum og traustum embættis- mönnum og þeir finnast víða sem betur fer. Ekki er algilt, að þingmenn skjóti sér undan vanda með því að veita stjórnvöld- um óljósa heimild í lögum. Umræðurnar um lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar um raforkuver síðastliðið vor sýndu, að þing- menn geta barið í borðið og neitað ríkis- stjórninni um opna heimild. Lögin um raforkuver, sem samþykkt voru 25. maí 1981, eru lítið annað en nafnið tómt, því að meðal stuðningsmanna ríkisstjórnar- innar tókst ekki að samræma sjónarmiðin í orkumálum. Hvar á að virkja næst? I lögunum er þessari brýnu spurningu alls ekki svarað. Til að orkumálin fari ekki meira úr böndum en orðið er, þurfa þing- menn að ákveða það fyrir áramót, hver á að verða framkvæmdaröðin, hvort Blanda kemur á undan Sultartanga, eða Fljóts- dalur hafi forgang. Um þetta leyti í fyrra var því spáð, að samhliða fjárlagaafgreiðslunni myndi koma fram, hver væri efnahagsstefna rík- isstjórnarinnar. Sú spá reyndist auðvitað röng eins og flest annað skynsamlegt, sem menn dirfast að láta í ljós um stjórnmála- þróunina. Ríkisstjórnin hafði alls ekki fyrir því að ræða efnahagsstefnuna við þingmenn, eins og menn muna var hún mótuð í jólaleyfinu og tilkynnt á gaml- ársdag. — Ertu með mér eða á móti mér? spurði forsætisráðherra stuðningsmenn sína og samdi um Gervasoni við Guðrúnu Helgadóttir. — Ég vil þessa stjórn meðan önnur liggur ekki á borðinu, var svarið, og þannig náði efnahagsstefnan fram. Verð- bólgan hefur lækkað, enda var kaupið skorið niður um 7% 1. mars. Þá kaup- lækkun boðuðu ráðherrar Alþýðubanda- lagsins í greinum í Þjóðviljanum sumarið 1980, á meðan vinnuveitendur og launþeg- ar sömdu um kauphækkanir. Nú standa kjarasamningar fyrir dyrum, en enginn ráðherranna hefur sagt, að nauðsynlegt sé að skerða visitölubætur á laun. Hvað á markmiðið að vera í viðureigninni við verðbólguna á næsta ári? Jú, samkvæmt stjórnarsáttmálanum á verðbólgan að hjaðna á árinu 1982 niður í það, sem hún er í nágrannalöndunum. Hvað þarf þá að lækka launin mikið 1. mars næstkom- andi? Eða stendur það ekki til, af því að þá eru sveitarstjórnakosningar á næsta íeiti? Vilja talsmenn samninga í gildi kannski ganga í gegnum þær kosningar, án þess að nokkrir samningar hafi tekist? — minnugir þess, að þeir unnu kosn- ingarnar 1978 meðal annars á slagorðinu, að kjörseðillinn væri vopn í kjarabarátt- unni og börðust með því gegn aðgerðum þá, sem svipaði til aðgerðanna 1. mars 1981. (Kaupmátturinn hefur rýrnað um 10% síðan 1978, segir hagdeild ASÍ.) Það er vissara að fjalla um efnahags- málin í spurnarformi heldur en spá nokkru um framvindu þeirra. I sumar fékk borgarráð ekki umboð frá borgar- stjórn til að taka ákvarðanir um meiri- háttar mál í sumarleyfi borgarfulltrúa. Ef til vill kemur til þess rétt fyrir jólin, að meirihluti þingmanna vill ekki fara í jóla- leyfi af ótta við, að efnahagsstefnan verði mótuð á gamlársdag eða ákvörðun tekin með bráðabirgðalögum um framkvæmda- röð í virkjanamálum. Athyglinni verður þó að beina að öðrum málum en virkjanamálum og efnahags- málum strax á fyrstu dögum þingsins. At- vinnumálin verða í brennidepli. Hvað ætl- ar ríkisstjórnin að gera í atvinnumálum á Raufarhöfn?, munu þingmenn spyrja. Fleiri staðir verða nefndir í sömu andrá, þótt forráðamenn á þeim flestum kjósi annað en þurfa að leita á náðir stjórn- vaida, einkum vegna þess að þá er engu líkara en þeir stígi út í botnlaust fen og fái ekki annað en illt umtal, á meðan þeir sökkva upp fyrir haus. Umtalið fer auðvit- að eftir því, hvernig að málum er staðið. Um leið og þingmenn ræða vandann í iðn- aðardeild SÍS á Akureyri, væri ekki úr vegi, að þeir færu fram á skýrslu um fjár- streymi úr opinberum sjóðum til frysti- húsa á vegum sjávarafurðadeildar SIS og bæru saman við fyrirgreiðslu til frysti- húsa á vegum Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna. Um leið og fylgt verður eftir ákvörðunum Alþingis um beinar greiðslur til bænda, þarf að líta á fleiri þætti í stöðu atvinnuveganna úti á landi. Er það í anda byggðastefnu, að ákvarðanir í atvinnu- málum allt umhverfis landið eru meira og minna að færast til Reykjavíkur? Hvernig væri að taka þennan þátt til athugunar um leið og þingmenn íhuga dreifingu rík- isstofnana út um landsbyggðina? Vandi byggðanna verður þá fyrst minnkaður til mikilla muna, þegar var- anlegir vegir verða komnir um land allt og af stórhug er staðið að framkvæmdum á sviði orkufreks iðnaðar. Þingmenn verða að hindra aðför iðnaðarráðherra að stóriðju og rétta af stöðu landsins út á við eftir átök ráðherrans við Alusuisse, sem meðal annars var stofnað til í því skyni að sverta öflug stóriðjufyrirtæki í augum landsmanna og sverta þjóðina í augum erlendra stóriðjufyrirtækja. Umræðurnar um húsnæðismál hljóta að hafa dregið að sér athygli þingmanna. Nauðsynlegt er, að þeir láti þau mál til sín taka, ekki til að flækja þau enn frekar heldur til þess að veita þeirri stefnu and- spyrnu, sem miðar að því að svipta ein- staklinga réttinum til eignar á íbúðum sínum. Þessi stefna er boðuð af þeim, sem fara með fjárveitingarvaldið í húsnæð- ismálum, félagsmálaráðherra og trúnað- armönnum hans. Hún er einnig boðuð af þeim, sem fara með valdið í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur, og heitir þar leigunámsstefnan. Alþingismenn geta stöðvað þessa þróun og verða að gera það og þeir geta einnig breytt lögunum um leiguhúsnæði á þann veg, að þau hætti að verða steinn í vegi leigusala og leigutaka. Fleiri þætti félagsmálalöggjafarinnar er nauðsynlegt að ræða og skýra. Fróðlegt væri að fá skýrslu um atriði eins og þetta: Hvað líður framkvæmdinni á félagsmála- pökkum ríkisstjórnarinnar? Hvað hefur framkvæmdin kostað? Hvernig er hún lið- in af launþegum og atvinnurekendum? Enn veit enginn hver er stefna ríkis- stjórnarinnar í flugmálum. Er hún með eða á móti Flugleiðum? Hver verður næsti leikur ríkisstjórnarinnar í valdataflinu, sem hún hefur efnt til innan Flugleiða? Miðar hann að því að herða tökin á fyrir- tækinu með afarkostum eða skapa því skilyrði til að takast á við vandann af eigin rammleik? Fjárlagafrumvarpið er óþekkt stærð þegar þetta er ritað. Hins vegar hefur heyrst, að við gerð þess hafi í fyrsta sinn um langt árabil verið gengið þannig til verks, að ekki ríki samkomulag um fjár- veitingar til Háskóla íslands. Sérstök samstarfsnefnd hefur átt að tryggja, að fjárveitingar til Háskólans væru þannig, að allir gætu sæmilega við unað. í sumar mun það hins vegar hafa gerst, að fjár- málaráðuneytið neitaði að standa að slíku samkomulagi. Er fjármálaráðherra að reyna að slá sér upp á þessu? Hjá hverj- um? Er þetta afleiðing af því að róttækl- ingar töpuðu í stúdentaráðskosningum í vor? Því miður leita spurningar í þessum dúr fyrst á hugann, þegar slíkar fréttir berast. Auðvitað er þó nauðsynlegt að ræða málefni háskólans með öðrum hætti. Það er ekki forsvaranlegt að draga þar úr starfsemi nema með skipulegum aðgerð- um og fullu samkomulagi allra aðila. Um skólamálin þurfa að verða svipaðar um- ræður og um húsnæðismálin, svo að mönnum sé ljóst, hver er hinn raunveru- legi ágreiningur milli stjórnmálaflokk- anna. Á fjárfestingar- og lánsfjáráætlun mun gert ráð fyrir fjáröflun vegna smíði nýrr- ar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Það er til marks um stjórnleysi, hvernig að þessu máli hefur verið staðið af hálfu nú- verandi ríkisstjórnar, meira að segja greiddu samflokksmenn utanríkisráð- herra atkvæði gegn honum á þingi, þegar hann vildi geta staðið við orð sín gagnvart ríkisstjórn Bandaríkjanna. Kommúnistar munu hafa fallist á fjárútvegun til flug- stöðvarinnar með vísan til þess, að sam- kvæmt stjórnarsáttmálanum geti þeir engu að síður komið í veg fyrir, að fram- kvæmdir hefjist. Á sama tíma og komm- únistum er liðið að koma í veg fyrir þessa framkvæmd, sem yrði öllum landsmönn- um að beinum notum, er kappsamlega unnið að frágangi vegna smíði nýrra flugskýla yfir orrustuþotur á Keflavikur- flugvelli og hraðað undirbúningi undir gerð nýrra eldsneytisgeyma fyrir varnar- liðið. Þessar framkvæmdir eru nauðsyn- legar vegna öryggis þjóðarinnar ekki síð- ur en flugstöðin en þær snerta íslensku þjóðina þó beint minna en flugstöðin. Fiugstöðvarmálið er raunar hrópandi dæmi um þá furðulegu stöðu, sem mynd- ast á Alþingi undir þessari ríkisstjórn. Það sýnir, að með virðingu Alþingis að leiðarljósi geta menn leikið þar miklu meira en hugmyndaflugið megnar að spanna. Björn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.