Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981
AWACS-salan:
Reagan vant-
ar 19 atkvæði
Washington, 9. október. AP.
EF ATKVÆÐI væru greidd nú
í bandarísku öldungadeildinni
um heimild til handa Reagan
forseta að selja Saudi-Aröhum
hinar umtöluðu AWACS-
flugvélar myndi hann enn
skorta nítján atkvæði til að
málið næði fram að ganga, að
því er AP-fréttastofan segir í
dag.
Reagan ræddi við Thad
Fjórir forsetar
— Reagan Bandarikjaforseti og þrír fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna hittust í Hvita húsinu i
Washington í gær, áður en fyrrum forsetarnir héldu til Kairó til að vera við útför Sadats Egypta-
landsforseta. A myndinni eru frá vinstri: Gerald Ford, Richard Nixon, Nancy Reagan, Rosalynn
Carter, Ronald Reagan og Jimmy Carter. Símamynd AP.
Nóbelsverðlaun veitt
fyrir heilarannsóknir
Stokkholmi. 9. október. AP.
TVEIR Bandarikjamenn og einn
Svíi skipta með sér Nóbelsverð-
laununum i læknisfræði i ár,
fyrir rannsóknir á heilanum og
starfsemi hans.
Roger W. Sperry, prófessor í
sállíffræði við California Institute
of Technology, hlaut helming
verðlaunanna fyrir uppgötvanir
varðandi heilabúin tvö. Hann hef-
ur sýnt fram á að vinstri helming-
ur heilans starfar líkt og tölva og
stjórnar taugakerfinu, en hægri
helmingurinn sé honum að mörgu
leyti fullkomnari við að túlka
hugmyndir og tónlist. Hægri
helmingur heilans var lengi talinn
„sofandi eftirbátur vinstri helm-
ingsins," sagði í fréttatilkynningu
Nóbelsnefndarinnar í Stokkhólmi.
Arafat fær aðeins „tak-
markaða aðstoð“ í Kína
PekinK. Tókýó. 9. október. AP.
YASSIR Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínu, hefur dregizt
á að skiija byssurnar sínar eftir á
flugveilinum í Tókýó, þegar hann
kemur þangað á mánudaginn i
þriggja daga heimsókn. Þykir
þetta tíðindum sæta, þvi að Ara-
fat skilur byssur yfirieitt aidrei
við sig eins og alkunnugt er. Jap-
anska lögreglan hefur fullvissað
Arafat um að öryggisvarzla Jap-
ana sé svo öflug, að honum muni
engín hætta búin.
Deng Xiaoping, æðsti maður
Kína, tók á móti Arafat í Peking í
dag, með hinum mestu fagnaðar-
látum og fór um hann og störf
hans í þágu Palestínumanna lof-
samlegum orðum. Hins vegar
sagði Deng að Kínverjar gætu
ekki aðstoðað PLO nema að
„takmörkuðu leyti" og yrðu Pal-
estínumenn að treysta á eigin
dugnað og aðstoð frá öðrum Ar-
abaríkjum. Kínverjar hafa stutt
PLO í tíu ár og veitt þeim póli-
tíska, diplómatíska og hernaðar-
lega hjálp, m.a. þjálfað skæruliða í
Kína. Ekkert slíkt er á dagskrá nú
að því er fréttastofa PLO sagði í
dag. Arafat kom hins vegar til
Kína til að leita eftir hernaðar-
legri aðstoð, en vegna efna-
hagsvanda sem steðjar nú að
Kínverjum í æ ríkari mæli hafa
þeir orðið að neita ýmsum vina-
þjóðum sínum um aðstoð upp á
síðkastið, en boðið fram vináttu
sína óskerta.
Kínverjar eiga og í nokkrum
brösum þessa daga, þar sem þeir
studdu og friðarfrumkvæði Sadats
Egyptalandsforseta og hafa harm-
að fráfall hans opinberlega. Hafa
þeir því orðið að sýna mikla gætni
í orðum, bæði við fulltrúa Egypta
og síðan að styggja ekki Arafat.
Eins og áður kom fram fer Ara-
fat til Japans á mánudag. Gyð-
ingar sem eru búsettir þar í landi
hafa mótmælt komu hans mjög
harðlega.
David H. Hubel, prófessor við
Harvard-háskóla, og samstarfs-
maður hans, Torsten N. Wiesel,
prófessor, munu skipta með sér
helmingi verðlaunanna fyrir
rannsóknir á starfsemi og túlkun
augnakerfisins. Rannsóknir þeirra
hafa komið fjölda ungbarna með
augnsjúkdóma til góða.
„0, nei,“ sagði Torsten Wiesel,
þegar honum var tilkynnt um
verðlaunin, „ég var hræddur um
að þetta myndi gerast. Kannski að
ég ætti að fara í felur.“ Nóbels-
verðlaunahafar hafa oft kvartað
yfir athyglinni sem beinist að
þeim vegna verðlaunanna og
margir hafa sagt að hún tefði þá
verulega frá störfum.
Þetta er áttunda árið í röð sem
Bandaríkjamaður hlýtur verð-
launin í læknisfræði. Greint verð-
ur frá hver hlýtur verðlaunin í
hagfræði í næstu viku og friðar-
verðlaunahafinn verður nefndur
14. október. Síðar verður greint
frá verðlaunahöfum í eðlisfræði,
efnafræði og bókmenntum.
Veður
víða um heim
Akureyri 0 snjóól
Amsterdam 15 rigning
Aþena 32 bjart
Barcelona 20 sk. é s. klst.
Berlin 17 heiöskírt
Briissel vantar
Chícago 14 skýjað
Denpasar 31 skýjaó
Dublin 15 rigníng
Feneyjar 21 heióskírt
Frankfurt 17 skýjað
Færeyjar vantar
Genl 19 skýjaó
Helsinki 14 heióskírt
Hong Kong 25 heiðskírt
Jerúsalem 31 heióskírt
Jóhannesarborg 23 heióskírt
Kairó 32 heióskírt
Kaupmannahöfn 13 rigning
Las Palmas 23 skýjaó
Lissabon 26 heióskírt
London 17 skýjaó
Los Angeles 26 heióskírt
Madrid 27 heiðskírt
Malaga 26 aiskýjaó
Mallorka 28 skýjaó
Mexíkóborg vantar
Miami 31 skýjaó
Moskva 15 skýjaó
New York 16 heíóskfrt
Nýja Delhí 34 heióskírt
Osló vantar
París 18 rigning
Perth vantar
Reykjavík 2 skýjaó
Ríó de Janeiro 32 rigning
Rómaborg 29 heióskírt
San Francisco 18 heióskírt
Stokkhólmur 9 rigning
Sydney vantar
Tel Aviv 30 heióskírt
Tókýó 24 rigning
Vancouver 12 skýjaó
Vínarborg 20 heióskírt
Cochran öldungadeildarþing-
mann í dag, sem hefur verið
andsnúinn sölunni og að þeim
viðræðum loknum lýsti þing-
maðurinn því yfir að hann teldi
að rétt væri að hún færi fram
samkvæmt hugmyndum forset-
ans.
AP segir að fimmtíu og sjö
myndu greiða atkvæði gegn söl-
unni, en þrjátíu og einn myndi
vera með forsetanum. Reagan
þarf að hafa 50 atkvæði til að
salan komist í gegnum deildina.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem AP hefur aflað sér eru 22
öldungadeildarþingmenn ein-
dregið fylgjandi sölunni, sem
myndi gefa Bandaríkjamönnum
8,5 milljarða dollara í aðra
hönd, níu hallast að því að
styðja málið, fimmtíu eru ein-
dregið á móti og níu svona mitt
á milli. Aðrir tólf eru óákveðnir
og þarf Reagan nú að afla sér
stuðnings þeirra óákveðnu og
sjö til viðbótar.
Ferðir um
Svalbarða
NORSK yfirvöld hafa sam-
þykkt skipulagðar ferðir ferða-
mannahópa til Svalbarða frá
og með næsta sumri. Fjögurra
og ellefu daga gönguferðir um
eyjuna verða skipulagðar fyrir
átta manns i senn.
Strangar reglur munu gilda í
ferðunum. Ekki má týna blóm
eða fleygja rusli. Þátttakendur
verða að taka tryggingu sem
myndi greiða fyrir þyrluaðstoð
ef með þarf og þeir mega ekki
vera yngri en 18 ára.
Tvær stórar þýskar ferða-
skrifstofur og ein hollensk hafa
gert samninga við norsk yfir-
völd. Bandaríkjamenn, Ástralir
og Japanir hafa einnig lýst
áhuga á ferðunum. Selt verður í
ferðirnar á venjulegan hátt í
Noregi.
PLO-forvígismaður
sprengdur í loft upp
RómaborK. 9. október. AP.
EINN helzti áhrifamaður Freis-
issamtaka Palestinumanna, Abu
Sharar, lézt í sprengingu í hót-
elherbergi f Rómaborg i dag.
Sharar var yfirmaður upplýs-
ingarmiðstöðvar PLO og félagi i
miðnefnd samtakanna. Sprengj-
unni virðist hafa verið komið
fyrir undir rúmi Sharars. Menn,
sem ekki sögðu til sin, en kváðust
félagar í A1 Assifa-byltingarráð-
inu, sem er klofningshópur undir
forystu Abu Nidal, hringdu til
fréttastofa og kváðust bera
ábyrgð á sprengingunni.
I fyrstu hafði verið talið að
Sharar hefði verið að fikta við
sprengju og atburðurinn hefði
verið slys. Fulltrúar AI Assifa
sögðu, að Sharar hefði verið tek-
inn af lífi vegna þess, að hann
hefði svikið hinn rétta málstað og
snúizt gegn vopnaðri baráttu sam-
takanna.
Sharar var í Rómaborg að sitja
ráðstefnu palestínskra rithöfunda,
blaðamanna og menntamanna.
Hann var um fertugt, bjó í Beirut
og var kvæntur og þriggja barna
faðir.
Sharar var í miklum metum hjá
hófsamari öflum innan PLO.
Til heiðurs
Leifi heppna
HVÍTA húsið í Washington sendi frá sér eftirfarandi yfir-
lýsingu Ronaid Reagans Bandarikjaforseta 7. október í til-
efni dags Leifs Eiríkssonar:
„Norrænar sögur, sem hafa
lifað gegnum aldirnar, segja frá
ferðum víkingsins Leifs Eiríks-
sonar yfir Norður-Atlantshafið.
Hann var vogaðri en margur
annar norrænn ævintýramaður
og kann að hafa komið fyrstur
Evrópumanna til þessarar
heimsálfu. Til eru norrænar
frásagnir af timbri og villtum
vínberjum sem hann kom með til
Grænlands frá Norður-Ameríku
fjórum öldum áður en Columbus
steig hér á land.
Leifur Eiríksson var land-
könnuður framar öllu öðru og
hann er tákn um tiiraunir
mannkynsins til að troða ófarn-
ar slóðir, takast á við náttúruna
og vinna bug á hræðslunni við
hið óþekkta.
Með því að heiðra hann og
norrænu þjóðirnar, sem hafa
gefið hinum vestræna heimi svo
mikið, heiðrum við einnig landa-
fundinn mikla.
Til heiðurs hugrekki Leifs Ei-
ríkssonar og víkinganna, sem
fetuðu í fótspor hans, samþykkti
bandaríska þingið 2. september
1964 að veita forsetanum umboð
til að kalla 9. október Dag Leifs
Eiríkssonar ár hvert.
Þess vegna lýsi ég, Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseti, því
hér yfir, að föstudagurinn 9.
október 1981 skal vera Dagur
Leifs Eiríkssonar. Ég fel full-
trúum stjórnvalda að draga
bandaríska fánann að húni á öll-
um stjórnarbyggingum þennan
dag.
I
Ég heimila bandarísku þjóð-
inni að heiðra minningu Leifs
Eiríkssonar þennan dag með við-
eigandi hátíðahöldum um allt
land.
Undirritað í votta
viðurvist 6. október 1981.
Ronald Reagan.“