Morgunblaðið - 10.10.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981
21
Kristniboðshátíð
Kjalamesprófasts-
dæmis um helgina
- Fyrsta embættisverk herra Pétnrs Sigurbjörnssonar
Á MORGUN kl. 8.30 hefst hátíð Kjalarnesprófastsdæmis í tilefni af
1000 ára kristniboði landsins. Hátiðarhöldin hefjast að Esjubergi á
Kjalarnesi, en þar er talið að fyrsta islenska kirkjan hafi risið. Á
hátíðinni koma við sögu fulltrúar fjögurra kirkjufélaga. þjóðkirkj-
unnar, aðventista, hvitasunnumanna og kaþólskra. Hátiðinni lýkur
síðan laust eftir kl. 18.00 er æskufólk dregur niður fánann að Esju-
bergi.
Hátíðarsamkomur í tilefni 1000
ára kristniboðs hafa verið haldnar
víða um land í sumar og verið fjöl-
sóttar. I Kjalarnesprófastsdæmi
sem er annað stærsta prófasts-
dæmi landsins hefjast hátíðar-
höldin sem fyrr segir kl. 8.30.
Laust eftir 9.00 hefst síðan hér-
aðsfundur að Hlégarði í Mos-
fellssveit og stendur hann til há-
degis. Hátíðarsamkoma í íþrótta-
húsinu að Varmá á Mosfellssveit
er síðan á dagskrá kl. 13.30.
Kirkjukórar úr prófastdæminu
koma saman til samsöngs og að
honum loknum hefst hátíðarguðs-
þjónusta. Prófastur Sr. Bjarni
Friðriksson flytur ávarp og hug-
leiðingu flytja frú Þórhildur Ólafs
Sigurlinnadóttir cand.theol. og
séra Gunnar Kristjánsson sókn-
arprestur á Reynivöllum. Sr. Birg-
ir Ásgeirsson, prestur á Mosfelli
þjónar fyrir altari. Hátíðarguðs-
þjónustunni lýkur síðan á því að
herra Pétur Sigurbjörnsson, bisk-
up íslands, flytur ávarp og bless-
unarorð. Verður það fyrsta opin-
bera verk hans sem biskup Is-
lands.
Að loknu kaffihléi skiptir hóp-
urinn sér síðan á ýmsa staði í
sveitinni og nágrenni til guðsþjón-
ustuhalds. Messur verða á Mos-
felli, Lágafelli, Reykjalundi, Hlað-
gerðarkoti, Víðinesi og Arnar-
holti.
Hátíðarhöldunum lýkur síðan
sem fyrr segir laust eftir kl. 18.00.
Innartlandsflug Arnarflugs:
Aldrei komið til
tals að hætta því
segir Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
„ÞAÐ ER tilhæfulaust með öllu,“
sagði Gunnar Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs. i samtali
við Mbl., er hann var inntur eftir
því hvort Arnarflug hefði 1 hyggju
að losa sig út úr innanlandsfluginu
vegna lélegrar afkomu í því, og til
stæði að afhenda litlu landsbyggða
flugfélögunum leiðirnar.
„Þótt innanlandsflugið hafi ekki
skilað hagnaði í fyrra og geri það
fyrirsjáanlega ekki í ár, hefur það
aldrei komið til greina af okkar
hálfu, að draga okkur út úr því.
Markmið okkar er hins vegar að vera
með hallalaust innanlandsflug áður
en mjög langt um líður," sagði
Gunnar Þorvaldsson ennfremur.
„Annars er allt á réttri leið hjá
okkur í innanlandsfluginu," sagði
Gunnar Þorvaldsson, framkvæmda-
stjóri Arnarflugs, að síðustu.
Hluti þeirra sem eiga verk á sýningunni í kjallara Norræna hússins, frá vinstri: Edda Jónsdóttir, Jón
Reykdal, Sigrún Eldjárn, Ingiberg Magnússon, Sigrid Valtingojer, Ragnheiður Jónsdóttir, Jenný E.
Guðmundsdóttir, Lísa K. Guðjónsdóttir, Valgerður Bergsdóttir, bórður Hall og Björg Þorsteinsdóttir.
Á veggnum fyrir aftan þau er myndröð eftir Ragnheiði Jónsdóttur. (Mynd. MW. Emíiia.)
Félagið íslensk
sýnir í Norræna
Um 100 verk eftir 16 listamenn
í DAG, laugardaginn 10. októ-
ber. kl. 15 opnar félagið íslensk
grafík sýningu i sýningarsal
Norræna hússins. Að þessu
sinni sýna 16 listamenn verk
sín. unnin með margvislegum
grafíkaðferðum, samtals um
100 myndir.
í félaginu íslensk grafík eru
nú rúmlega 30 meðlimir og er
félagið 12 ára gamalt. Fyrir
tveim árum var haldin sýning á
vegum félagsins í Norræna hús-
inu, og hefur sú sýning verið á
ferðalagi um Norðurlönd frá
þeim tíma og mun verða um
sinn, eða til 1. júní 1982.
Félagið hefur einnig haldið
tvær sýningar í Bandaríkjunum
á síðastliðnum tveim árum,
ásamt sýningum í Vestur-
Þýskalandi og í Svíþjóð. Að auki
hafa verið haldnar sýningar inn-
anlands, á Neskaupstað, Egils-
stöðum, Akranesi, Blönduósi og
Sauðárkróki. í samtali við Ingi-
berg Magnússon, formann fé-
lagsins, kom einnig fram að
fyrirhugað er að senda sýningu
til Vestur-Þýskalands í vetur og
má búast við að hluti verkanna í
Norræna húsinu fari með á þá
sýningu.
Eins og áður segir sýna 16
grafík
húsinu
listamenn verk sín, 15 eru fé-
lagsmenn en í félaginu eru um 30
meðlimir og auk þeirra sýnir
japaninn Kazuya Tachibana,
sem dvalið hefur hér á landi að
undanförnu, 5 myndir sínar.
Boðið upp á tónleika
Föstudaginn 16. október munu
Manuela Wiesler og Snorri
Snorrason leika nokkur verk á
flautu og gítar fyrir sýningar-
gesti og fimmtudaginn 22. októ-
ber mun Einar Jóhannesson
koma í sýningarsalinn ásamt
blásarakvintett.
Daglegur opnunartími er frá
14—22, og lokadagur er 25.
október.
Alþjóðlegur
kirkjudagur
fatlaðra
„Nýbyggðar kirkjubyggingar oft óhentugar
fyrir fatlað fólk“segir JónDalbú Hróbjartsson
SRJNNUDAGINN 11. október, er alþjóðlegur kirkjudag-
ur fatlaðra. í fjölmörgum kirkjum verða haldnar gurtsþjónust-
ur með þátttöku fatlaðs fólks. bá hefur einnig verið ákveðið að
fjársöfnun fari fram í styrktarsjóð fatlaðra, og fer söfnunin
fram við kirkjudyr. Snemma á þessu ári setti biskup á laggirn-
ar nefnd á vegum þjóðkirkjunnar til undirbúnings dagsins. í
nefndinni eru Kristín Sverrisdóttir sérkennari og Sigurður
Björnsson menntaskólanemi auk formannsins en hann er Jón
Dalhú Ilróbjartsson, sóknarprestur i Laugarnessókn. Við
hringdum í Jón og spurðum hann fyrst hvort fatlaðir ættu
greiðan aðgang að kirkjum landsins.
„Því miður er mörgu ábóta-
vant í þeim efnum. Kirkju-
byggingar eru oft þannig úr
garði gerðar að erfitt er fyrir
fatlaða, sér í langi fólk í hjóla-
stólum að sækja messur,
kirkjutröppur eru oft lítt að-
gengilegar og þrengsli innan
kirkjunnar sjálfrar. Þetta á við
bæði um eldri kirkjur og einnig
margar nýbyggðar. Þá eru erf-
iðleikar fyrir bæði blinda og
heyrnarskerta, og mætti kirkj-
an koma mun betur til móts við
sérþarfir þessara hópa fólks."
— Heldurðu að það megi bú-
ast við einhverjum breytingum
á næstunni?
„Það vona ég, við í nefndinni
höfum haldið marga fundi nú
að undanförnu og héldum m.a.
fund með forstöðumönnum
hinna ýmsu stofnana fyrir fatl-
að fólk og starfsfólk kirkjunn-
ar sl. þriðjudagskvöld í húsi
Sjálfsbjargar. Á fundinum töl-
uðu m.a. Árni Pálsson, sókn-
arprestur í Kópavogi, Páll Sig-
urðsson, ráðuneytisstjóri,
Kristín Sverrisdóttir, sérkenn-
ari og Rafn Benediktsson,
formaður Sjálfsbjargar. Á
fundinum fór fram mjög at-
hyglisverð umræða og bindur
nefndin vonir við að ýmsar
framkvæmdir komi í kjölfar
hennar."
— Hvað verður síðan gert í
kirkjunum?
„Haldnar verða guðsþjónust-
ur með þátttöku fatlaðra víða
um land. í Laugarneskirkju
mun t.d. fötluð kona flytja
ávarp og annast ritningarlest-
ur. Þá mun fjöldi fólks í hjól-
astólum koma til messu og
safnað í Styrktarsjóð fatlaðra
við kirkjudyrnar. í sjóðinn hef-
ur nú þegar verið safnað 4.000
krónum, og við vonumst að lok-
um til þess að sem flestir mæti
í kirkjuna, fatlaðir sem ófatl-
aðir, því í kirkjunni eiga allir
að vera jafnir."
5.500 útlend-
ingar í septem-
bermánuði
í SEPTEMBER komu 5.526 er-
lendir ferðamenn til landsins og
höfðu i lok mánaðarins þá komið
63.844 á árinu. Sömu mánuði í
fyrra kom 58.471 útlendingur til
landsins.
Bandaríkjamenn komu flestir í
september, 1.802, Bretar voru 684,
Vestur-Þjóðverjar 495, Danir 447,
Svíar 443, Norðmenn 282, Frakkar
277, Svisslendingar 239 og Finnar
133. Aðrir ferðamenn voru af 43
þjóðernum.
6.219 komu
með skemmti-
ferðaskipum
MEÐ 16 skemmtiferðaskip-
um komu 6.219 erlendir
ferðamenn til íslands í
sumar. Flestir þeirra voru
Vestur-Þjóðverjar, 4.353
talsins og næstflestir voru
Bandaríkjamenn, 636.
Frakkar voru 390, Svíar
321, Bretar 130, Hollend-
ingar 111, Austurríkismenn
75 og Belgar 53, en aðrir
ferðamenn voru af 25 þjóð-
ernum.