Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981
27
Hátíð Samhygðar í Háskólabíói:
Gerum
jörðina
mennska
eftir Ingibjörgu
G. Guðmundsdóttur
Sunnudaginn 4. október hélt
Samhygð hátíð í Háskólabíói fyrir
fullu húsi og var þessi hátíð liður í
kynningarstarfi Samhygðar. Gest-
ir á hátíðinni voru meðal annarra
upphafsmaður Samhygðar, Silo,
stofnandi Samhygðar á íslandi,
Pétur Guðjónsson, og fleiri Sam-
hygðarfélagar frá ýmsum löndum,
en þessir félagar eru í kynningar-
ferð um heiminn. Ferðin hófst á
Spáni 27. september og héðan fer
hópurinn ásamt fjölda íslendinga
til Kaupmannahafnar til þess að
hressa upp á vini okkar Dani.
Til hátíðarinnar í Háskólabíói
var efnt af fólki úr Samhygðar-
hópnum á Reykjavíkursvæðinu og
af landsbyggðinni og var yfir-
skrift hennar „Gerum jörðina
mennska".
Fjöldi ræðumanna kom fram á
hátíðinni og fluttu leiðbeinendur í
Samhygð á ísladi fyrstu þrjár
ræðurnar.
Tilgangur Samhygðar
Fyrst talaði Ingibjorg G. Guð-
mundsdóttir um það hvað Sam-
hygð væri og tilgang starfsins og
sagði þá m.a. að Samhygð væri ný
leið tii að gera þá grundvallar-
breytingu sem lífsnauðsynlega
þyrfti að gera og að Samhygð væri
fyrir alla þá sem fyndu hjá sér
löngun og þörf til að verða betri
menn í betri heimi fyrir alla.
Þá talaði Július Kr. Valdi-
marsson um það að gera jörðina
mennska og sagði: „I innsta eðli
okkar allra býr hinn mennski
maður, búinn meiri kærleika,
krafti og gleði en okkur órar fyrir.
Frá þessu innsta eðli okkar kemur
einnig þráin eftir því að tengjast
öðrum, þráin eftir því að lífið
verði ávallt betra og betra. En til
þess að svo geti orðið þarf góð
skilyrði, til þess þarf jörðin að
vera góður gróðurreitur fyrir
manneskjuna, þess vegna ætlum
við að gera jörðina mennska."
Aí frjálsum vilja
Fyrsti eriendi gesturinn sem
talaði var Ishak Binudin. auglýs-
ingateiknari frá Filippseyjum.
Hann hélt kraftmikla ræðu og tal-
aði um að það ríkti mikil kreppa í
heiminum, bæði hjá einstakling-
um og þjóðfélögum. Ástæðurnar
fyrir þessu ástandi sagði hann
vera þær að allt hefði brugðist eða
væri að bregðast á öllum sviðum
og eina leiðin út úr þessari kreppu
væri að einstaklingurinn og um-
hverfi hans hefðu reynslu af gjör-
breytingu á lífsstefnu. Hann sagði
einnig að Samhygð hefði ekki
áhuga á að sannfæra neinn um
neitt heldur einungis því að gefa
fólki tækifæri til að fá vitneskju
um tillögur Samhygðar svo hver
og einn gæti af frjálsum vilja
ákveðið hvort þessi Ieið hentaði
honum eða ekki.
Að breyta um stefnu
Salvatore Puledda, efnaverk-
fræðingur frá Róm, talaði næst og
ræddi ítarlega um heimskreppuna
í dag. Hann sagði að nú væri svo
komið að öll heimsmenningin
stefndi í voða, en ekki bara einstök
samfélög eða menningarheildir.
Líkti hann þessu ástandi við skip
sem stefndi á sker, og sagði að það
væri tilgangslaust að reyna sífellt
að finna einhvern sökudólg, eða að
tala um hversu maturinn um borð
væri góður þegar það eina sem
hægt væri að gera til að forða
skipinu frá strandi væri að breyta
um stefnu.
Ilvað er eðlilegt?
Nicole Myers, skrifstofumaður
frá San Francisco, fékk áheyrend-
ur til að hlæja mikið þegar hún
lýsti þeim ógöngum sem samskipti
venjulegra hjóna gætu lent í ef
byggt væri á fölskum grunni og
tilfinningar og gjörðir færu ekki
saman. Hún lagði einnig áherslu á
það að hugtakið „eðlilegt" væri nú
í höndum algerlega óábyrgs fólks,
sem reyndi að telja öðrum trú um
að það væri eðlilegt að vera ham-
ingjusamur bara endrum og eins,
Frá samsætinu á Þingvöllum
að það væri eðlilegt að finna til
einangrunar og að starfa einungis
fyrir sjálfan sig og lagði hún til að
í framtíðinni yrði þetta hugtak
tekið úr höndum þessa óábyrga
fólks og notað með þeirri virðingu
fyrir manninum sem því sæmdi og
tengt eðli lífsins.
Göfugt vrkefni
B. Aiyappa, vélaverkfræðingur
frá Bombay á Indlandi, talaði um
mikilvægi hagnýtrar trúar í dag-
legu lífi og gerði greinarmun á
slíkri trú, ofsatrú og barnalegri
trú. Hann sagði að það væri hag-
kvæmt að gera hlutina af trú og
sannfæringu og að Samhygð byði
upp á aðferð til að byggja upp
þessa hagkvæmu trú. Hann sagði
einnig að fólk talaði mikið um að
það hefði trú á hinu og þessu en
gjörðir þess sýndu greinilega að
svo væri ekki í reynd. Sem dæmi
tók hann heimaland sitt Indland
sem enn hefði ekki komist út úr
erfiðleikum sínum vegna þess að
fólkið hefði ekki trú á sjálfu sér.
Að endingu skoraði Aiyappa á há-
tíðargesti að taka að sér það göf-
uga verkefni að bjarga móður jörð
frá tortímingu.
t>örf fyrir breytingu
Daniel Zuckerbrot, háskóla-
nemi frá Torontó, Kanada, út-
skýrði nákvæmlega þá aðferð sem
þarf til þess að gjörbreyta lífs-
stefnunni. Hann sagði að til þess
að stefnubreyting gæti orðið
þyrfti fólk að finna þörf fyrir að
breyta lífi sínu, vilja það og hafa
trú á að það væri mögulegt. Hann
sagði að ef fólk fyndi ekki til þess-
arar þarfar eða hefði ekki vilja til
þess að breyta gæti Samhygð ekki
gert neitt fyrir það. Hins vegar
gæti Samhygð hjálpað þó fólk
hefði ekki trúna ef það fyndi þörf-
ina og hefði viljann. Það eru
margir mótfallnir hugtökunum
trú og gjörbreyting, hafa ímugust
á þeim, sagði Daniel, en þar sem í
Samhygð eru ekki tækifærissinn-
ar viljum við ekki hverfa frá þess-
um hugtökum vegna þess að þeir
sem hafa eitthvað á móti þeim eru
einmitt þeir sem skortir trú og
vilja ekki breyta lífstefnu sinni.
Að lokum bað hann fólk um að líta
í kringum sig og sjá þörfina á
breytingu, sjálfra sín vegna og
annarra.
Framtíðin er okkar
Pétur Guðjónsson, höfundur
„Bókarinnar um hamigjuna" gaf
einfalt dæmi um það hvernig þessi
lífsstefnubreyting, sem um er tal-
að, myndi hafa áhrif í daglegu lífi
hins venjulega manns og sagði
m.a. að þótt ytri aðstæður breytt-
ust ekkert þá hefði þessi tiltekni
maður gjörbreytt sjálfum sér og
öllu umhverfi sínu, fjölskyldu,
vinnustað, vinum, nágrönnum og
félagasamtökum, sem hann væri
þátttakandi í. Þannig stuðlaði
hann að því að allt sem í kringum
hann væri stefndi í jákvæða átt.
Pétur nefndi einnig að það væri
ekkert sem væri æðra lífinu en líf-
ið sjálft og þess vegna mótmæltr
Samhygð öllum gjörðum er skaða
mannlífið. Hann sagði að Sam-
hygð afneitaði hvers kyns líkam-
legu ofbeldi, efnahagslegu mis-
rétti, trúarbragðaofsóknum, kyn-
þáttamismunun og öllum lífsmáta
sem liti á manninn sem hlut. Pét-
ur sagði að lokum: „Vegna þess að
fjöldi fólks út um allan heim vinn-
ur skipulega að því að byggja upp
betri heim er hægt að staðhæfa að
framtíðin sé björt og að hún sé
okkar.
Eitthvað nýtt ok
stóríenglegt
Silo, stofnandi Samhygðar,
hreif hátíðargesti með einfaldri en
sterkri tölu sinni þar sem hann
lagði áherslu á að fólk sættist;
sættist við fortíð sína, við sína
nánustu og aðra, og í lokin fór
hann með hátíðargestum í reynslu
af því að gjörbreyta lífsstefnunni,
þarna á þessari stundu. Síðan bað
hann alla að fara strax heim og
kyssa maka sinn, börp sín, föður,
móður og systkini, að faðma vin
sinn og óvin og segja við allt þetta
fólk með opnu hjarta: „Eitthvað
nýtt og stórfenglegt gerðist hjá
mér í dag“, og skýra svo frá því
hvernig þetta fór allt fram svo það
megi líka færa öðrum þennan
boðskap.
Mjög góður andi ríkti í lok há-
tíðarinnar og voru fjölmargir
snortnir, margir féllust í faðma og
sögðu að til að viðhalda þessari
góðu tilfinningu langaði þá til að
taka þátt í hópstarfi Samhygðar.
Það var augljóst að fjölmargir
höfðu farið að ráði Silo og tekið til
við sættirnar.
Um kvöldið var síðan samsæti á
Þingvöllum. Þar ríkti mikil gleði,
sungið var og hlegið og skálað í
vatni. Þátttakendur í samsætinu
voru um 170 Samhygðarfélagar,
vinir þeirra og fjölskyldur.
Erlendu gestirnir munu halda
áfram ferð sinni um Evrópu og
fara síðan alla leið til Asíu. Næsti
áfangastaður er Kaupmannahöfn.
Þangað munu einnig fara margir
íslenskir Samhygðarfélagar til
þess að sættast við Dani og taka
þátt í hátíð þeirra 11. okt. sem
einnig er haldin undir kjörorðinu
„Gerum jörðina mennska".
Samvizkufangavika Amnesty International 1981:
Reynt að fá rúmlega 4000
samvizkufanga leysta úr haldi
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International hafa tilkynnt
að i árlegri samviskufangaviku
11.—18. október yrði að þessu
sinni vakin sérstök athygli á bar-
áttu fyrir því að fá leysta úr haldi
rösklega fjögur þúsund sam-
viskufanga viða um heim.
Samkvæmt nýrri skýrslu sem
samtökin birtu í dag er talið að
samviskufangar séu í nær helm-
ingi 154 ríkja Sameinuðu þjóð-
anna — fólk sem hefur verið fang-
elsað vegna skoðana sinna eða
uppruna og hefur hvorki beitt
ofbeldi né hvatt til þess.
I skýrslunni er lögð áhersla á að
sennilega hafi Amnesty upplýs-
ingar um aðeins lítið brot sam-
viskufanga í heiminum. Fyrir
hvern samviskufanga sem sam-
tökin kunni skil á sé fjöldi ann-
arra sem lítið sé vitað um í yfir-
fullum fangelsum, vinnubúðum og
á afskekktum eyjum um allan
heim.
Þá segir að fáar ríkisstjórnir
viðurkenni opinskátt að þær fang-
elsi þegna sína í trássi við alþjóða-
reglur. Samt er það svo að frels-
issvipting samviskufanga er brot
á Mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna og annarra sam-
þykkta þeirra.
í skýrslunni er bent á að sumar
ríkisstjórnir reyni að breyta túlk-
un á þessum alþjóðasamþykktum
þegar þær fangelsa þá sem ekki
fara að vilja þeirra. Sumar stjórn-
ir halda því til dæmis fram að
tjáningarfrelsið feli ekki í sér rétt
til þess að boða kommúnisma, en
aðrar banna áróður gegn komm-
únisma. Ennfremur eru stjórnir
sem segjast ekki fangelsa fólk
vegna skoðana þess, enda þótt
refsivert teljist í löggjöf þeirra að
láta í ljós skoðanir sem brjóta í
bága við ríkjandi skoðanir.
í lögum Amnesty International
segir að samviskufangar séu þeir
sem eru fangelsaðir, hafðir í haldi
eða beittir þvingunum vegna
ÞANN 1. október hófst vetrar-
áa'tlun Sérleyfisbíla Selfoss hf.
og mun hún gilda til 15. mai
næsta vor. Akveðið var að bæta
við tveimur ferðum á dag milli
Selfoss, Hveragerðis og Reykja-
víkur. Þannig verða fimm ferðir
stjórnmála- eða trúarskoðana
sinna, kynþáttar eða kynferðis,
litarháttar eða tungu, að" því til-
skildu að þeir hafi hvorki beitt
ofbeldi né hvatt til þess.
I samviskufangaviku Amnesty
1981 verða rakin mál nokkurra
fanga. Örlög þeirra endurspegla
örlög þúsunda annarra samvisku-
fanga. Þeirra á meðal er tékknesk-
á dag frá Keykjavik og að auki
kvöldferð á sunnudögum, og jafn
margar til haka.
Brottfarartímar frá Stokkseyri
og Eyrarbakka verða því óbreyttir
árið um kring og sömuleiðis ferðir
þangað.
ur baráttumaður fyrir mannrétt-
indum sem afplánar nú 5 ára
fangelsisdóm; verkalýðsleiðtogi í
Uruguay sem herdómstóll dæmdi í
8 ára fangelsi; fjórir ungir menn í
Kamerún sem hafa verið í fanga-
búðum í rúmlega fjögur ár og
hvorki verið ákærðir né leiddir
fyrir rétt; og fyrrum biskup
rómversk-kaþólsku kirkjunnar í
Shanghai á níræðisaldri, í haldi
síðan 1955.
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International hafa það
markmið að fá alla samviskufanga
leysta úr haldi, vinna að málum
allra gleymdra fanga og reyna að
sjá svo um að mál þeirra verði
skráð og gleymist ekki síðan.
Formaður Islandsdeildar Amn-
esty International er Hrafn
Bragason borgardómari.
Vetraráætlun um Grímsnes og
Biskupstungur eru með sama sniði
og undanfarna vetur eða á þriðju-
dögum, miðvikudögum, laugardög-
um og sunnudögum.
Aukin þjónusta Sérleyfisbíla Selfoss hf.