Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981 39 Jaffitefli Belga og íslendinga „VIÐ ÞURFUM ekki að vera smeykir við seinni leikinn, við sýndum það að ef leikið er af skynsemi ug krafti er ástœðu- laust að óttast belgiska liðið. Við þurfum ekki að skammast okkar fyrir úrslitin, Belgia er stórþjóð á knattspyrnusviðinu, og við hefðum með heppni getað unnið leikinn. Ég vil engu spá um framhaldið, en ljóst er að við höfum ekkert að óttast,“ sagði Jóhannes Atlason, þjálf- ari islenska landsliðsins í knatt- spyrnu, skipaðs 16—18 ára unglingum, i samtali i gœr, en þá mætti liðið belgiska landslið- inu í forkeppni Evrópukeppn- innar. Jafntcfli varð, 2—2, eftir að staðan i hálfleik hafði verið 0-0. íslenska liðið lék gegn strekk- ingsvindi í fyrri hálfleik, sem var slakur hjá báðum liðum. Belgarnir meira með knöttinn, en Island fékk samt besta færið, Halldór Áskelsson. En mark varð ekki uppskeran. ísland skoraði síðan á fyrstu mínútum síðari hálfleiks, Valdemar Stef- ánsson með góðu skoti utan úr teig. Síðan fékk íslenska liðið tvö ákjósanleg færi, sem ekki nýtt- ust áður en belgíska liðið svaraði frísklega fyrir sig með tveimur mörkum á jafn mörgum mínút- um um miðjan hálfleikinn. ís- lenska liðið beygði sig þó ekki, sótti í sig veðrið og Kristinn Jónsson stakk sér inn fyrir vörn Belga og jafnaði. íslenska liðið var þannig skip- að: Stefán Arnarson KR, Þor- steinn Þorsteinsson Fram, Kristján Jónsson Þrótti, Gísli Hjálmarsson Fylki, Steinn Guð- jónsson Fram, Valdemar Stef- ánsson Fram, Kristinn Jónsson Fram, Sverrir Pétursson Þrótti, Ingvar Guðmundsson ÍBK, Björn Rafnsson Snæfelli og Halldór Áskelsson Fram. Jón H. Garðarsson FH og Einar Björnsson Fram komu inn á sem varamenn. —gg. • Staðið við hina risavöxnu KA-tertu sem m.a. var boðið upp á i kaffisamsætinu um helgina. Frá vinstri: Kristján Valdemarsson, gjaldkeri KA, þá vallarnefndin, Hermann Sigtryggsson, Stefán Gunn- laugsson og Gunnar Jóhannesson. Siðan koma Haukur Torfason, starfsmaður á KA-svæðinu, Jón Arnþórsson, formaður og Stefán Árnason, ritari. Ljósm. 8h. Best lét ekki sjá sig ÞAÐ BIÐU margir spenntir eítir knattspyrnusnillingnum George Best i gærkvöldi. En bið þeirra bar engan árangur, flugvélin frá Glasgow lenti, en enginn George Best var um borð! I fyrstu var talið að kappinn hefði misst al flugvélinni, en siðan kom allt annað á daginn. Halldór Einars- son, stjórnarmaður knattspyrnu- deildar Vals, sagði eftirfarandi í viðtaii við Mbl.: „Það koma tveir aðilar hér mjög við sögu auk George Best. Annar 'heitir Bill McMurdo og er umboðs- maður Best, hinn er náungi að nafni Gabriel, en hann er bæði framkvæmdastjóri og þjálfari San Jose Earthquakes. Það gerðist klukkan 11.00 í morgun (gærmorg- un), að ég hringdi í McMurdo, svona rétt til að athuga hvort allt væri ekki í stakasta lagi, enda hafði verið samið um öll smáatriði við þann mann. Hann reyndist þá ekki vera í Glasgow, né heldur Valur tapaöi VALUR tapaði síðari leik sinum gegn Crystal Palace í Evrópu- keppni bikarhafa i körfuknatt- leik í gærkvöldi. Lokatölur urðu 114—81 fyrir Palace, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 43—40 fyrir liðið. Valsmenn léku vel framan af og höfðu þá for- ystu, en lentu siðan i villuvand- ræðum, auk þess sem þreyta fór að segja til sín. Best, þeir voru báðir sagðir í Bel- fast. Hins vegar lágu þau skilaboð fyrir að Best kæmi ekki til leiks- ins. Þessu vildi ég auðvitað ekki una, sérstaklega þar sem engar skýr- ingar voru gefnar. Eg reyndi síðan eftir mörgum leiðum að ná sam- bandi við þessa menn, talaði við bróður George Best, pabba hans, Malcolm Brody, þann sem ritaði ævisögu Best og sannast sagna var þetta orðinn hálfgerður spæjara- reyfari. Loksins náði ég í Gabriel og þá fékk ég harla líklega skýr- ingu. Faðir hans lá þá í sjúkdómi í Norður-írlandi og þar sem Gabriel vildi vera hjá honum um hríð, varð Best að vera eftir og sjá um San Jose-liðið sem þarna er í keppnisferðalagi. Tók Gabriel sér- YFIRLEITT keppast iþróttafé- lög við að komast upp á milli deilda en á þessu eru þó undan- tekningar. í leik i 5. deild norsku knattspyrnunnar fyrir nokkru gerðist það, að leikmaður fékk gult spjald íyrir að skora ekki, en dómara leiksins blöskraði áhugaleysi leikmanna er mark andstæðingsins nálgaðist. Þannig var, að tvö lið frá Bodö áttust við og hvorki gekk né rak staklega fram, að Best þyrfti að koma stráknunum snemma í rúm- ið!! Nú er ég ekkert nema samúðin í garð Gabriel og föður hans, en þetta er forkastanleg skýring á fjarveru Best. Þetta eru auðvitað vinnubrögð fyrir neðan allar hell- ur og ef þetta væri allt skriflegt, en ekki munnlegt, myndum -við fara í mál við þessa kappa." Svo mörg voru þau orð. Það er því ljóst, að George Best verður ekki meðal leikmanna Vals í dag eins og talað hafði verið um og reiknað með. Er það skarð fyrir skildi, en breytir þó ekki þeirri staðreynd, að Cosmos eru komnir og mæta Val klukkan 14.00 í dag. Þess má geta, að forsala hefst í Laugardalnum klukkan 10.00. -gg- hjá sóknarmönnunum og er seinni hálfleikurinn var hálfnaður án þess að mark væri skorað, kallaði dómarinn á fyrirliðana og benti þeim á, að það væri ekki í ánda íþróttarinnar að reyna ekki að skora. í lok leiksins gerðist það síðan að leikmaður annars liðsins renndi knettinum, greinilega með vilja, framhjá opnu markinu. Þá var dómaranum nóg boðið og áminnti hann leikmanninn. Gult spjald fyrir að skora ekki mark Glæsilegur grasvöllur KA-manna fullgerður „ALDREI hefur mér fundist grænn litur jafn fallegur og á blettinum okkar hér fyrir norðan í sumar,“ sagði Jón Arnþórsson, formaður Knattspyrnufélags Ak- ureyrar, m.a. i kaffisamsæti sem Vallarnefnd félagsins boðaði til um helgina. Tilefnið var það, að „græni bletturinn“, hinn nýi glæsilegi grasvöllur þeirra KÁ- manna á athafnasvæði þeirra við Lundarskóla á Akureyri er nú fuligerður. Til stóð að vígja völl- inn með knattspyrnukappieik nú i haust en ekki gat af því orðið vegna lélegs tíðarfars undanfar- ið. en að sögn Stefán Gunnlaugs- sonar. sem sæti á i vallarnefnd, mun það verða gert næsta vor. Vinna á KA-svæðinu hófst árið 1975 og var malarvöllur félagsins tekinn í notkun tveimur árum síð- ar, 1977. Sama ár var hafist handa á grasveliinum, og unnið við jarð- vegsskipti árin 1979 og '80. Jarð- vegslagnir í nýja vellinum eru u.þ.b. 1500 metrar, búið er að keyra í hann um 900 bílum af möl, um 150 bílum af mold og álíka magni af sandi. Jarðvegsvinnu lauk í júlí í sumar og höfðu þá verið unnar nálægt 5000 vinnu- stundir í sjálfboðavinnu, þar af 700 á þessu sumri. í lok júlí hófst þökulagningin og lauk aðalhrinunni þann 20. ágúst, en lokahönd var lögð á verkið 20. september. Heildarfjöldi fermetra grassvæðis er liðlega 16000 og er þá kantur á milli nýja vallarins og malarvallarins meðtalinn. Vinnu- stundafjöldi sjálfboðaliða í þess- um síðasta áfanga var um 2300 stundir, en heildarfjöldi sjálfboða- liða á skrá félagsins er 200 manns „og eru þá allir taldir frá 6 ára til sextugs", segir í greinargerð frá Vallarnefndinni. Heildarkostn- aður við grasvöllinn er nú orðinn um 1100 þúsund nýkrónur fram- reiknað, en sjálfboðaliðsvinna sumarsins er metin á 100 þúsund krónur. Það sem framundan er fyrir veturinn er að setja upp varanlega girðingu vestan við vellina. Hún á að vera tveggja metra há og um 225 metrar að lengd. Þetta er fyrsti áfangi af um 900 metra girðingu sem koma á í framtíðinni í kringum svæðið. Vallarnefnd KA skipa Stefán Gunnlaugsson, Gunnar Jóhannesson og Hermann Sigtryggsson. Haustlaukar, ýmsargerðir 30% afsláttur Grænar plöntur í pottum 30% afsláttur Nú er hver að verða síðastur að setja niður haustlaukana. Komið við í Blómavali. Opið alla daga til kl. 21.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.