Morgunblaðið - 22.10.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
5
Rannsóknin á Tass-fréttinni:
Agarkov ókominn
úr sumarleyfi er
hófst 9. ágúst sl.
SOVESKA sendiráðið hefur ekki enn
lokið rannsókn þeirri, sem það hóf um
miðjan ágúst síðastliðinn, á þeirri full-
yrðingu Hauks Más llaraldssonar,
formanns „íslensku friðarnefndarinn-
ar“, og hlaðafulltrúa Alþyöusamhands
Islands, að fyrir tilstuðlan Alexander
Agarkovs, yfirmanns Novosti á íslandi,
hafi verið farið með rangt mál í l’rövdu
og Isvestíu 12. og 13. ágúst síðastlið-
inn.
Morgunblaðið hefur oftar en einu
sinni snúið sér til Viktor Trofimovs,
hlaðafulltrúa sovéska sendiráðsins í
Reykjavík, og spurt hann frétta af
þeirri rannsókn, sem hann á sínum
tíma sagði, að sendiráðið myndi
framkvæma á fullyrðingum Hauks
Más Haraldssonar. Síðast skýrði
Morgunblaðið lesendum sínum frá
gangi málsins 4. september síðastlið-
inn, en þá sagði Trofimov, að liklega
fengjust engar frekari fréttir af
málinu, fyrr en eftir 20. september,
en um þær mundir væri von á Alex-
ander Agarkov úr sumarfríi sínu frá
Moskvu. Þegar blaðið sneri sér til
Trofimovs í gær, sagði hann, að Ag-
arkov væri enn í fríi. En áður hefur
komið fram, að héðan fór Agarkov í
sumarleyfi 9. ágúst.
Þess má geta, að Haukur Már
Haraldsson er starfsmaður við blað-
ið Fréttir frá Sovétríkjunum, sem
María Þorsteinsdóttir gefur út hér á
landi í samvinnu við Novosti á Is-
landi. Segir í Fréttum frá Sovétríkj-
unum, að María Þorsteinsdóttir sé
ritstjóri og ábyrgðarmaður blaðsins
í samvinnu við Alexander Agarkov.
Haukur Már Haraldsson sér um út-
lit blaðsins Fréttir frá Sovétríkjun-
um.
Aðalfundur RKI á Akureyri
DAGANA 23. til 25. þ.m. verður aðal-
fundur Kauða kross Islands haldinn á
Akureyri og verður hann fertugasti að-
alfundur KKÍ. Að undanlornu hafa að-
alfundir KKI verið haldnir annaö
hvert ár, en formannafundir hafa verið
haldnir milli aðalfunda.
Helstu viðfangsefni Akureyrar-
fundarins, auk venjulegra aðalfund-
arstarfa, verða: Staða RKI, fræðsla,
útbreiðsla. Um þetta flytja fram-
söguerindi þau Friðrik Guðni Þór-
leifsson kennari og Hólmfríður
Gísladóttir deildarstjóri.
Aðalfundurinn, haldinn að
Möðruvöllum, húsakynnum M.A.,
verður settur kl. 18.00 á föstudag af
stjórnarformanni RKÍ, Ólafi Mixa
lækni. Þá mun forseti bæjarstjórnar
Akureyrar, Sigurjón Jóhannesson,
flytja ávarp. Að því loknu hefjast
aðalfundarstörf.
Fundir verða allan laugardaginn
fram til kl. 19.00. Daginn eftir verð-
ur fundinum fram haldið til hádeg-
is.
Einar Markússon á fyrstu
Háskólatónleikum vetrarins
Á MORGUN, röstudaginn 23. októ-
her, verða fyrstu Há-skólatónleikar
vetrarins í Norrama húsinu. Tónleik-
arnir hefjast kl. 12.30. Þar leikur Ein
ar Markússon píanóleikari verk eftir
Samuel Ball, Joseph lloffmann, l,eo-
pold Godowsky, Fréderie ('hopin og
Hallgrím llelgason.
Því er það nýmæli tekið upp að
halda Háskólatónleika í hádeginu á
föstudögum að tónleikarnir hafa
yfirleitt verið lítið sóttir af kennur-
um og nemendum í háskólanum.
Með þessari tíma- og staðsetningu
er reynt aö gera nemendum og
kennurum skólans sem þægilegast
að sækja Háskólatónleikana, en
öllum er heimill aðgangur. Ætlun-
in er að tónleikarnir standi ekki
lengur en í hálfa klukkustund að
jafnaði.
Einar Markússon, sem fram
kemur á fyrstu tónleikunum, er
fa-ddur 1922. Hann nam píanóleik í
Tónlistarskólanum í Reykjavík og
síðan í Los Angeles 1943—46. Um
ríflega tveggja áratuga skeið var
Einar starfandi tónlistarmaður
erlendis, einkum i Ameríku, þ. á m.
lengi í Hollywood. Undanfarin ár
hefur hann kennt við Tónlistar-
skóla Árnessýslu.
fKEINIWOOD
Túrbó Hi-Fi
Ný háþróuð
tækninýjung
NEWHISPEED
SIGMA DRIVE magnarakerfið er tækninýjung frá KENWOOD
þar sem hátalaraleiðslumar em nú í fyrsta sinn hluti af magnaranum.
Ný áður óþekkt aðferð til stjómunar á starfsemi hátalaranna og tryggja
lágmarksbjögun í hljómtækjunum.
Tækmfræðingar og starfsmenn KENWOOD hafa ávallt verið í
fararbroddi með tækninýjungar í hljómtækjum, kynnt og þróað fram-
farir í þeim efnum eins og: Dynamic Damping Factor, DC Direct-
Coupling, High-Speed, Zero switching og Non Magnetic.
Það nýjasta í þróun hljómtækja er SIGMA DRIVE, nákvæm
samtenging magnara við hvem hátalara með fjómm leiðslum, tækni-
nýjung sem gerir kleift að hafa eftirlit með og stjóma nákvæmlega
tonblæ hátalaranna og heildarbjögun.
BJÖGUNARTÖLUR ERU TÓMT BULL...
Þegar aðrir magnaraframleiðendur gefa upp afburða bjögunar-
tölur eins og 0.005%, er mikið sagt að þeir ljúgi allir fullum hálsi — og
aðeins KENWOOD SIGMA DRIVE magnarinn geti sýnt og sannað
bjögunartöluna 0.005%.
Staðreyndin er nú sú, að ef mæld er bjögun við hátalaraúttak á
magnara, geta fjölmargir þeirra mælst með bjögunartöluna 0.005% —
eins og SIGMA DRIVE magnarinn mælist með. En slík bjögunarmæl-
ing er alls ekki marktæk því nún er framkvæmd án viðtengdra hátalara
við magnarann. Ef magnarinn er hins vegar mældur í gegnum hátalara-
leiðslur að hátölurum, mælist bjögunin í KENWOOD SIGMA
DRIVE sannarlega 0.005% — þegar magnarar frá öðrum framleið-
endum sýna aðeins bjögunartöluna 0.1%. Óneitanlega er það allt
önnur tala eða um það bil 20 sinnum lakari, og það heyrist.
Kenwood KA — 800 2 x 50 RMS WATTS/0.009% THD: 4.150 kr.
Kenwood KA - 900 2 X 80 RMS WATTS/0.005% THD: 5.600 kr.
KenwoodKA-1000 2 x 100 RMS WATTS/0.005% THD: 8.300 kr.
Eins og TÚRBÓ kostaði SIGMA DRIVE miklar
rannsóknir, og eins og TÚRBÓ gefur SIGMA
DRIVE mestan kraft og beztan árangur.
FALKINN
SUDURLANDSBRAUT 8 SÍMI85884
I AUGL TEIKNISTOFA