Morgunblaðið - 22.10.1981, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
„Tvær sögur um tunglið“
IÐUNN hefur Refiö út Tvær
sögur um tungliö eftir Vil-
borgu Dagbjartsdóttur með
teikninRum eftir Gylfa
Gíslason. Þetta eru • sögur
fyrir lítil börn sem eru að
byrja að lesa. Fyrri sagan
heitir Alli Nalli og tunglið og
hin síðari Góða gamla tungl-
ið mitt. og fjallar sú saga
um Rósu Stínu. — Báðir
höfundar eru löngu kunnir
fyrir sögur og myndir
handa börnum og Vilborg
Dagbjartsdóttir hefur áður
samið sögur um Alla Nalla.
Gylfi Gíslason hefur
myndskreytt barnabækur
og gert sviðsmyndir við
barnaleikritið Ovita sem
Iðunn hefur gefið út tvíveg-
is.
— Tvær sögur um tunglið
er liðlega fimmtíu blað-
síðna bók. Prenttækni
prentaði.
þernhard laKdal
KJÖRGARDI
Vatt-
kápur
í glæsilegu
úrvali.
Litir: Hvítt, grátt, grænt,
blátt, rautt.
Verð frá kr. 580.-
Vegna Hauks og Harðar
Myndlíst
Bragi Ásgeirsson
Sumir listamenn virðast hafa
flestum öðrum dyggari stuðn-
ingsmenn og aðdáendur, er
gjarnan láta ljós sitf skína um
ágæti þeirra í lesendabréfum
dagblaðanna og fyrtast mjög ef
þeim finnst á hlut viðkomandi
gengið. Tvíburabræðurnir
Haukur og Hörður fara sann-
arlega ekki varhluta af slíkum
einlægum aðdáendum, sem
svara jafnvel fyrir þá þegar
eðlilegra væri að þeir sjálfir
ættu hlut að máli. Af tilviljun
rakst ég á orðsendingu til mín í
Mbl. á dögunum og mun hún
vera frá sama pennaglaða
manni er mjög hneykslaðist á
framkomu sýningarnefndar við
þá bræður vegna fjarlægingar
verka þeirra á Haustsýningu
FÍM, svo sem einnig gat að lesa
hér í blaðinu.
Þótt ég sé ekki vanur að svara
lesendabréfum og leiði þau yfir-
leitt hjá mér vegna oft á tíðum
ógrundvallaðra fullyrðinga þá
vil ég gera hér undantekningu
þar sem um alvarlegt mál er að
ræða er marga varðar og þá
einnig viðgang Haustsýninga
framtíðarinnar. Ég vil taka það
fram hér, að ég er ekkert hand-
bendi sýningarnefndar og tel að
hún eigi að þola gagnrýni og
einnig að skylda hennar sé að
svara fyrir sig ef hún telur á sig
hallað.
Ég staðhæfði ekkert í grein
minni en upplýsingar mínar um
tildrögin að fjarlægingu
verkanna fékk ég frá einum
sýningarnefndarmeðlima og
taldi ég ekki ástæðu til að draga
sannleiksgildi þeirra í efa. Það
væri líka í hæsta máta alvar-
legt ef ábyrgir aðilar strá um
sig röngum fullyrðingum um
jafn viðkvæmt mál. Því, að
myndirnar væru í hættu þar
sem þær voru staðsettar, áttu
allir að geta gert sér grein fyrir,
sýningarnefndin jafnt sem þol-
endurnir og hefur hvorugur að-
ilinn minnsta vott afsökunar.
Hafði ég orð á því er ég leit
myndirnar að 99,9% möguleik-
ar væru á því að hér færi
eitthvað úrskeiðis og að ég gæti
með engu móti skilið sýningar-
nefnd.
Ég þekki hér nægilega inn á
vettvanginn til að hafa efni á
slíkum framslætti og ég hélt að
allir vissu, að fyrsta regla sýn-
ingarnefnda stórsýninga er, að
taka ekki á móti verkum sem
hætta er á að verði fyrir
hnjaski. Er hér um að ræða
mál, sem viðkomandi ættu helst
að gera grein fyrir opinberlega
en síður þeir, er verða að
treysta á fullyrðingar málsað-
ila. Því tel ég þetta alfarið mál
Hauks og Harðar, svo og sýn-
ingarnefndar þannig að hér sé
um rétta aðila að ræða um
áframhaldandi umræður hafi
þeir áhuga á því. Visa því mál-
inu frá mér ...
í Dagblaðinu er Guðmundur
nokkur Bogason að býsnast yfir
því, að ekki skyldu listrýnendur
fjölmenna til að fylgjast með
hreyfilistarsýningu bræðranna.
Því er til að svara hvað mig
áhrærir, að ég hef ekki til þessa
talið mér skylt að fjalla einnig
sérstaklega um hvers konar
hjáhliða upptroðslur á meðan á
myndlistarsýningum stendur.
Skiptir hér' ekki máli hvað um
er að ræða; barið á trommur,
lúðrablástur, kórsöngur, ball-
ettdans eða þessi svonefnda
hreyfilist. Þykir mér einhvern-
veginn, sem verkin á sýningun-
um eigi alfarið að geta staðið
undir nafni án allra slíkra til-
færinga. Það kæmi sennilega
mörgum spánskt fyrir sjónir ef
allir þátttakendur Haustsýn-
inga færu skyndilega að hoppa
og skoppa fyrir framan og í
kring um verk sín eða dansa
trylltan stríðsdans. Hins vegar
er hverjum og einum frjálst að
marka sýningum sínum þann
ramma er þeir vilja.
Sunnan
vindur
Ný tólf laga
hliómplata meðOrvari
Kristjánssyni, og nu eru
honum til aðstoðar
Tómas Tómasson, Asgeir
Óskarsson og Þor°u^
Árnason sem utsetti og
stiórnaði upptöku.
Létt og Ijút tonlist
sem gleður mannsins
hjarta.
Orvar
Kristjánsson
FALKINN