Morgunblaðið - 22.10.1981, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
Kröfugerð ASÍ
72 MANNA nefnd Alþýðusambands íslands kom saman
til fundar á þriðjudag og samþykkti kröfur í komandi
kjarasamningum. Nefndin samþykkti eftirfarandi ályktun:
„Með skírskotun til þeirrar almennu kröfu félaga og sam-
banda innan Alþýðusambands íslands, að nýir kjarasamn-
ingar gildi frá 1. nóvember næstkomandi, beinir samn-
inganefndin þeim eindregnu tilmælum til aðildarfélaga að
þau afli sér heimilda til verkfallsboðunar fyrir 1. nóvem-
ber næstkomandi.“
Á fundi sínum samþykkti samninganefnd ASÍ að hvetja
félög og landssambönd til eftirfarandi kröfugerðar:
1. (.runnkaupshækkun
1.1. Almenn hækkun jjrunn-
launa verði.13%, sem komi í
áfönjíum á samninKstímanum.
2. Verðbætur
2.1. Verðbætur jjreiðist ársfjórð-
unnslega m.v. óskerta fram-
færsluvísitölu.
2.2. Hinn 1. júní 1982, 1. desem-
ber 1982 og 1. júní 1983 reiknast
sérstök launauppbót sem miðist
við það, að á næstu 6 mánuðum
vinnist upp það sem á kann að
vanta að viðmiðunarkaupmáttur
hafi náðst síðustu 6 mánuði á
undan.
3. Sérkröfur
3.1. Frá 1. nóvember 1981 taki
næturvinna við þegar að lokinni
dagvinnu á fimmtudögum. Eftir-
vinna á mánudögum — miðviku-
dögum falli niður á næstu 3 ár-
um, þannig að næturvinna taki
við í dagvinnulok.
3.2. Landssambönd og félög
semji hvert fyrir sig um sérkröf-
ur eftir því sem við á, en athugað
verði á síðara stigi, hvort rétt sé
að taka á borð sameiginlegrar
samninganefndar þær kröfur,
sem almennt eru teknar upp af
hálfu landssambanda og félaga.
4. (>ildistími
4.1. Gildistími samningsins
verði frá 1. nóv. 1981 til 1. nóv.
1983 og skal hann uppsegjanleg-
Krá fundi 72ja manna samninganefndar ASÍ á þriðjudag.
Frá fundi 72ja manna samninganefndar ASÍ. Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, t.v., og Björn Þórhallsson, varaforseti samtakanna.
ur með 1 mánaðar fyrirvara. Al-
mennir fyrirvarar síðustu samn-
inga.
4.2. Ef önnur launþegasamtök
semja um meiri kauphækkun en
almennt semst um á vettvangi
ASI, skal samningurinn vera
uppsegjanlegur með mánaðar
fyrirvara.
5. SkaUamál
Beinir skattar verði lækkaðir
á árinu 1982 með uppfærslu
skattþrepa og sérstakri hækkun
barnabóta og persónuafsláttar.
Staðgreiðslukerfi skatta verði
tekið upp um áramótin
1982—1983. Haft verði fullt sam-
ráð við verkalýðshreyfinguna
um nýtt skattkerfi og við það
miðað að skattbyrði láglauna-
fólks verði lækkuð, en heild-
arskattbyrði aukist ekki. Sér
staklega verði kannaðir möguleik-
ar á tryggingu lágmarkslauna sam-
hliða hinu nýja skattkerfi.
6. Uppsagnarfrestur
Lögum um uppsagnarfrest
verði breytt þannig að takmark-
aðar verði heimildir til uppsagna
vegna hráefnisskorts og starfs-
öryggi aukið.
7. Atvinnumál
Teknar verði upp viðræður við
ríkisstjórn um öfluga uppbygg-
ingu atvinnulífsins, þar sem m.a.
verði knúið á um ákvarðanir og
framtíðarstefnumótun varðandi
orkufrekan iðnað.
8. Málefni fatlaðra
Teknar verði upp þríhliða við-
ræður samtaka fatlaðra, Al-
þýðusambandsins og ríkisstjórn-
ar um það hvernig fötluðum
verði tryggt jafnrétti í þjóðfé-
laginu.
Tíunda þing Verkamannasambands Islands
Kveðja til Sam-
stöðu í Póllandi
GUOMUNDUR Sæmundsson, Ein-
ingu á Akureyri, flutti eftirfarandi
tillögu sem var samþykkt um árn-
aðar- og baráttukveðjur til Sam-
stöðu í l’óllandi:
„10. þing Verkamannasam-
bands Islands, haldið í Reykjavík
dagana 16.—18. október 1981,
sendir öllum félögum frjálsra
verkalýðsfélaga í Póllandi sínar
bestu árnaðaróskir. Heimurinn
fylgist með ykkur og dáist að
baráttuþreki ykkar og dug. Kröf-
ur ykkar um aukna aðild verka-
fólks að allri ákvarðanatöku og
stjórnun eru kröfur sem íslensk-
ur verkalýður berst einnig fyrir.
Megi barátta ykkar verða sem
árangursríkust. Lifi Solidarn-
osc.“
Hluti þingfulltrúa, fyrir miðri mynd er Sigfinnur Karlsson, Neskaupstað.
X *
Alyktun VMSI um atvinnumál:
Enginn skattur
á helgarvinnu
EKTIRFARANDI tillaga um að
vinna, sem unnin er í þágu út-
flutningsframleiðslu um helgar,
verði undanþegin skatti var
samþykkt á þinginu. Áður hafði
tillagan þó verið felld í kjara-
málanefnd. Fkki er kveðið á um
hvernig standa á að framkvæmd
þessarar tillögu.
Öll vinna, sem unnin er í
þágu útflutningsframleiðsl-
unnar við hverskonar fisk-
verkun, hverskonar síldar-
vinnu, móttöku og bræðslu á
loðnu frá kl. 24 á föstudags-
kvöldi til kl. 24 á sunndags-
kvöldi, skal vera undanþegin
skatti (skattfrjáls).
Áhyggjur vegna óvissu í atvinnumálum
„I. Örugg atvinna.
10. þing VMSI, haldið í Reykjavík
dagana 16.—18. október 1981, lýsir
áhyggjum sínum vegna þeirrar miklu
0vis.su sem ríkir í alvinnumálum víða
um land.
Þingið minnir á að á síðastliðnum
fjórum árum fluttust á fjórða þús-
und manns af landi brott umfram þá
sem fluttust til landsins. Því er Ijóst
að íslenskt atvinnulíf hefur ekki boð-
ið upp á þau skilyrði sem fólk gerir
tilkall til.
Nauðsynlegt er að samræma at-
vinnuuppbyggingu í landinu, svo
vaxandi mannfjöldi fái allur störf
við sitt hæfi. Stöðug atvinna fyrir
alla verður ávallt að vera megin-
markmið í stefnu ríkisvaldsins í at-
vinnumálum. Til þess að þetta
markmið náist þarf að vinna eftir
samræmdri atvinnustefnu, sem hvíl-
ir á heilbrigðu efnahagslífi. At-
vinnuöryggi er sjálfsögð mannrétt-
indi, sem verður að tryggja öllum
þjóðfélagsþegnum, hvort sem um er
að ra>ða einstaklinga með fulla eða
skerta starfsorku, meó tilliti til bú-
setu.
Gera verður þær kröfur til Alþing-
is, ríkisstjórnar og sveitarstjórna, að
stuðla verði að eflingu útflutnings-
atvinnuveganna með markvissum
stjórnunaraðgerðum, svo sem með
betri nýtingu þess fjármagns, sem
fyrir hendi er, þannig að fjármagn
verði ávallt tryggt til framkvæmda,
þegar uppbygging hefst. Á sama
hátt verður að treysta enn frekar
grundvöll samkeppnisiðnaðarins.
II. (Jrvinnsla iðnaðar
Þingið fordæmir hömlulausan
innflutning fullunninnar iðnaðar-
vöru. Skorað er á ríkisstjórn og Al-
þingi að gera enn frekara átak til
styrktar innlendri iðnaðarstarfsemi,
svo sem úrvinnslu sjávar- og land-
búnaðarafurða og annarri fram-
leiðslu.
Skorað er á alla þá aðila, er málið
varðar, að tryggja rekstur þeirra
fyrirtækja, er enn eru starfrækt,
með aukinni framleiðni og leit nýrra
markaða, þannig að takast megi að
fullnýta þau hráefni, sem fyrir hendi
eru hér á landi.
Jafnframt bendir þingið á nauð-
syn þess að landsmenn velji íslensk-
ar iönaðarvörur umfram innfluttar.
Þá bendir þingið á nauðsyn þess,
að byggingariðnaðurinn verði efldur
með hagkvæmari og betri lánum til
húsbyggjenda og auknum bygg-
ingarframkvæmdum opinberra aðila
við íbúðarbyggingar. Þingið varar
við stöðugum innflutningi fiskiskipa
og bendir á að íslénskir skipaiðnaður
á að geta tryggt eðlilegt viðhald
skipaflotans, bæði hvað varðar alla
nýsmíði og viðhald eldri skipa.
III. Nýting fiskistofna
Tryggja verður stöðugan rekstur
fiskvinnslustöðva með jafnri jiýt-
ingu fiskistofna og dreifingu fiski-
skipaflotans. Þetta skapar mögu-
leika til að afnema það misrétti, sem
starfsfólk fiskiðnaðarins býr við með
tilliti til atvinnuöryggis og upp-
sagna.
IV. Tölvumál
Launafólk verður að fá með-
ákvörðunarrétt, þegar meta skal,
hvort taka eigi upp hina nýju ör-
tölvutækni. Breytta vinnuhætti
verður að meta í Ijósi þess, hvort
erfiðum og hættulegum störfum er
fækkað og hvaða áhrif breytingarn-
ar hafa á atvinnuöryggi.
V. Orkufrekur iðnaður
10. þing VMSI skorar á ríkisstjórn
og Alþingi að marka heildarstefnu í
uppbyggingu orkufreks iðnaðar, sem
taki til allra þátta iðnaðarstarfsemi
í landinu.
Við stefnumörkun þessa verði tek-
ið tillit til fjölgunar atvinnutæki-
færa á hinum ýmsu stöðum og sér-
staklega þeirra, sem búa við einhæft
atvinnulíf.
VI. Félagslegur rekstur
Þingið bendir á nauðsyn þess, að
atvinnufyrirtæki verði í ríkara mæli
rekin á félagslegum grundvelli, enda
sýnir reynslan, að slíkur rekstur
skapar mest atvinnuöryggi og trygg-
ir besta afkomu."
Orkukostnaður
verði jafnaður
FFTIRFARANDI tillaga Vest-
firðinga um jöfnun hita- og raf-
orkukostnaðar var samþykkt á
þingi VMSÍ:
„10. þing VMSÍ vekur at-
hygli á þeim lífskjaramun sem
mismunandi hitunar- og raf-
orkukostnaður veldur. Þingið
krefst þess, að gerðar verði
rástafanir til jöfnunar á orku-
verði, þannig að ekki sé mis-
munur á kaupmætti launa-
fólks eftir búsetu þess.
10. þing VMSÍ leggur
áherslu á að slíkar aðgerðir
stuðla að jöfnun lífskjara í
landinu og felur væntanlegri
samninganefnd sambandsins
að vinna að framgangi þeirra.“