Morgunblaðið - 22.10.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
23
Iranir setja
Amnesty skilyrði
Srhmidt
Schmidt
fer hvergi
Beirúl, 21. okl. Al'.
ÍRANSKA stjórnin kunngerdi í
dag að hún hefði sett rulltrúum
Amnesti Int. átta skilyrði fyrir því
að leyfi fengist til að koma til
Iran. Fyrstu skilyrðin voru að
Amnesty Int. fordæmdi opinber-
lega árásir ísraela á SuðurLíban-
on, bandaríska íhlutun í El Salva-
dor, Egyptalandi og Saudi-Arab-
íu, að því er sagði í fréttum ír
anska útvarpsins. Tekið var frant
að samtökin yrðu að færa sönnur
á það með því meðal annars að
ganga að þessum skilyrðum, að
þau væru ekki leikbrúður Banda-
ríkjamanna.
Amnesty Int. tilkynnti í sl.
viku að þau myndu freista þess
að senda nefnd til Teheran til
að fá Khomeini erkiklerk og
menn hans til að hætta fjölda-
aftökum í landinu.
I fréttum íranska útvarpsins
var tekið fram að gengju sam-
tökin að þessum skilyrðum og
nokkrum fleirum væri þeim
velkomið að senda fulltrúa til
íran. í sömu frétt var notað
tækifærið til að hvetja til að
Sovétmenn hyrfu tafarlaust á
hrott með allt sitt herlið frá
Afganistan.
Bonn, 21. oklóbcr. Al*.
HELMUT Schmidt, kanzlari
Vesturbýzkalands, sagði í viðtali
við Suddeutsche Zeitung í morg-
un, að hann hcfði ekki í hyggju
að láta af störfum í bráð né
lcngd, þó að hann hefði gengizt
undir hjartauppskurð og væri því
allt tal um hugsanlcgan eftir
mann ótímabært með öllu. Sagð-
ist hann vænta þess að sitja í
emba'tti sínu út kjörtímahilið að
minnsta kosti, en því lýkur 1984.
Umræður hafa verið um að
Schmidt myndi láta af kanzl-
araembættinu vegna sjúkleika.
Var gerð á Schmidt aðgerð
fyrir skömmu og gangráði
komið fyrir vegna óreglulegs
hjartsláttar. Kanzlarinn
kvaðst vera hinn hressasti og
ekki væri nokkur ástæða til að
ætla að hann væri ekki hæfur
til að gegna starfi sínu sem
fvrr.
Lést eftir 12 ár
M hjartaskiptum
llt»fóal>t»ri'. 20. októbcr. Al*.
DOROTHY Fisher, sem hvað lengst
hefur lifað allra hjartaþega, lést í
Höfðaborg í SuðurAfríku í gær,
mánudag, 12 árum eftir að aðgerðin
var gerð á henni.
Fisher gekkst undir aðgerð á
Groote Schuur-sjúkrahúsinu í
Höfðaborg í apríl 1969 og það var
dr. Christiaan Barnard, sá frægi
læknir, sem skipti um hjarta í
henni. Hún hafði lifað lengst
slíkra sjúklinga í Suður-Afríku og
næst á eftir franskri konu að
nafni Emmanuel Vitria, sem fékk
annað hjarta í Marseille árið 1968.
Fisher var fimmtug þegar hún
lést.
Dorothy Fisher lifði eðlilegu lífi
í þessi 12 ár þrátt fyrir minnihátt-
ar veikindi, en í gærkvöldi veiktist
hún skyndilega og lést í sjúkrabíl
á leið á sjúkrahúsið.
Sprengingin í Antwerpen:
Enginn sökudólgur fundinn
Anlworpon, Bdgíu, 21. oklólKT. Al*.
LÖGREGLAN í Antwerpen sagði í
dag, að rannsókn á sprengingunni í
Gyðingahverfi borgarinnar, hefði
enn ekki leitt í Ijós hverjir stæðu
að baki sprengingunni.
Ljóst er að 2 konur biðu bana.
ERLENT
þrír eru í lífshættu, níu eru al-
varlega slasaðir og 36 eru enn á
sjúkrahúsi til rannsókna. Sjötíu
og einn fékk að fara heim af spít-
ölum í dag. Óopinberar heimildir
sögðu að eingöngu þrír eða fjórir
viðkomandi væru Gyðingar.
Belgíska stjórnin hafði heitið að
efla öryggisráðstafanir á þessum
slóðum vegna þess að þar hefur á
stundum verið ókyrrt, en þær
ráðstafanir voru ekki komnar til
framkvæmda.
Israelsk blöð fullyrtu í morgun
reiðulega að PLO-samtökin
stæðu að baki sprengjutilræðinu,
enda réðust samtökin jafnan að
vopnlausum saklausum borgur-
Diana hneykslar
umhverfissinna
l.ondon, 21. oklólM'r. Al*.
FORM/ELANDI brezkra umhverf-
isverndunarsamtaka sagðist
hneykslaður og vonsvikinn vegna
fregna um að Diana prinsessa
hefði í síðustu viku sært dádýr er
hún var við veiðar á Balmoral-
landareigninni í Skotlandi.
Samkvæmt blaðafregnum var
Diana við veiðar á sveitarsetrinu
síðastliðinn mánudag og hæfði
hjört. Hermdu fregnirnar að
hjörturinn hefði særst en ekki
fallið og hefði starfsmaður í
Balmoral síðar sært dýrið til
ólífis.
Formælandi félagsskaparins,
Course, kvaðst hneykslaður á að
Diana væri komin í „félag
manna með drápsgleði, er væru
á góðri leið með að gera út af við
villt dýr á Bretlandseyjum“.
Af hálfu konungshirðarinnar
var staðfest að prinsessan hefði
Diana
verið við veiðar umræddan dag,
en því hafnað að henni hefði
mistekist að fella hjörtinn.
Tveir skotnir
í Munchen
Munchcn, 21. oklóhcr. Al*.
LÖGREGLUMENN skutu til
bana tvo öfgasinnaða hægri-
menn, tóku þrjá til viðbótar
höndum og gerðu upptæk vopn
og skotfæri sem mennirnir
höfðu í fórum sínum. Tveir
lögreglumenn særðust í skot-
bardaganum. Lögreglustjóri
Múnchen sagði að mennirnir
tveir hefðu verið félagar í
hægrisinnuðum öfgasamtök-
um, sem kalla sig Sósíalista-
hreyfingu alþýðu og verka-
manna í Þýzkalandi.
Baskaskærulið-
ar drepnir
San Scbaslian, Baskalandi, 21. okl. Al*.
ÞJÓÐVARÐLIÐAR skutu í dag á
bifreið sem ekki sinnti stöðvun-
arskyldu við eftirlitsstöð í
Baskalandi og létust tveir af
sþremur sem í bílnum voru. Grun-
ur leikur á að þeir látnu hafi ver-
ið ETA-skæruliðar, en þau sam-
tök hafa nú drepið yfir 350
manns á þessu ári í Baskalandi,
flestir hafa verið lögreglumenn
eða varðliðar. í fréttum segir að
mikið af vopnum og sprengiefni
hafi fundizt í bílnum.
Mannræningjar
skiluðu bráð sinni
San Salvador, 21. októbcr. Al*.
SKÆRULIÐAR í El Salvador
létu í dag lausan þekktan kaup-
sýslumann, sem var rænt fyrir
fimm mánuðum og hefur ekkert
heyrzt frá honum síðan. Engin
samtök tóku á sig ábyrgð á
mannráninu en lausnargjald, 4
milljónir Bandaríkjadollara, var
greitt fyrir hann, en allt kom
fyrir ekki. Maður þessi, Teofile
Siman, var ágæta vel á sig kom-
inn en hann hefur ekki rætt við
blaðamenn um veruna hjá
mannræningjunum.
Frábær húsgögn
hagstæðu verði
Lútuð borðstofuhúsgögn úr massifri furu, 3 geröir at borðstotu-
borðum, 2 gerðir af stólum, 4 gerðir af skápum, skatthol o.fl.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
VALHÚSGÖGN
ÁRMÚLI 4 SÍMI82275
HELO - Sauna
Höfum ávalt fyrirliggjandi Saunaofna og klefa á mjög
hagstæöu veröi.
Benco,
Bolholti 4, sími 21945.