Morgunblaðið - 22.10.1981, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
35
Minning:
Magnús Símonar-
son Stóru-Fellsöxl
Fæddur 12. október 1894
Dáinn 12. október 1981
Magnús Símonarson lést á
Sjúkrahúsi Akraness á 87. afmæl-
isdegi sínum. Hann var fæddur á
Iðunnarstöðum í Lundarreykja-
dal, sonur hjónanna Símonar
Jónssonar frá Efstabæ í Skorradal
og Sigríðar Davíðsdóttur frá Mið-
sandi á Hvalfjarðarströnd. Ættir
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATIIYGLI skal vakin á því. að
afma'lis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Hannig
verður grein, sem hirtast á í
miðvikudagshlaði. að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Grcinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið.
aí marggefnu tilefni. að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru
ekki hirt á minningarorðasíð-
um Morgunhiaðsins. Ilandrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línuhili.
þeirra eru þekktar og átti Magnús
margt merkra skyldmenna um allt
Borgarfjarðarhérað. Hann var
yngstur systkina sinna, sem nú
eru öll látin, en þau voru: séra
Bjarni prófastur á Brjánslæk,
Ingigerður, ógift, saumakona í
Reykjavík, Jón bóndi á Stóru-
Fellsöxl, Steinunn, gift Tómasi
Zoéga sparisjóðsstjóra á Norð-
firði, Herdís, gift Jónasi Snæ-
björnssyni brúarsmið og mennta-
skólakennara á Akureyri, og hálf-
bróðir þeirra, Jóhann Símonarson
bóndi á Litlu-Fellsöxl.
Þegar Magnús var á öðru ári, dó
faðir hans og flutti móðir hans ári
síðar 1897 með yngstu börnin til
Bjarna sonar síns, sem þá var ný-
tekinn við prestsembætti á
Brjánslæk á Barðaströnd. Þar ólst
Magnús upp til 19 ára aldurs, er
hann settist í Bændaskólann á
Hvanneyri og útskrifaðist þaöan
tveimur árum síðar, 1915. Næstu
árin var hann vinnumaður og
starfaði við ræktun á ýmsum bæj-
um í Borgarfirði og á Mýrum, en
fór síðan til Noregs, þar sem hann
vann í eitt sumar.
Þaðan fór hann til Danmerkur
1923 og hóf nám í íþróttaskólanum
í Ollerup. Eftir að hann útskrifað-
ist þaðan var hann íþróttakennari
við Hvítárbakkaskóla í tvo vetur,
1924—26, en réðst þá sem ráðs-
maður að Korpúlfsstöðum til árs-
ins 1930, en starfaði síðan áfram
hjá Thor Jensen í Reykjavík í
nokkur ár.
A Hvítárvöllum kynntist Magn-
ús Þórhildi Sigurðardóttur frá
Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá og
gengu þau í hjónaband árið 1929.
Þórhildur er góð kona og greind,
myndar húsmóðir og mesta
merkiskona, sem hefur verið
Magnúsi traustur lífsförunautur.
Vorið 1934 keypti hann í félagi
við Jón bróður sinn og Jón mág
sinn jörðina Stóru-Fellsöxl í Skil-
mannahreppi og hófu þeir búskap
þar sama ár. Jón bróðir hans dó
árið 1952 og Jón mágur hans árið
1972.
Magnús og Þórhildur bjuggu á
Stóru-Fellsöxl til ársins 1978, er
þau brugðu búi og fluttust á elli-
heimilið á Akranesi.
Börn þeirra eru fjögur: Sigurður
bóndi á Fellsenda, kvæntur Ólöfu
Sigursteinsdóttur frá Búrfelli í
Hálsasveit og eiga þau 3 börn. Þau
eru: Ingi Garðar rafvirki á Húsa-
vík, kvæntur Grétu Sigfúsdóttur
frá Sandhólum á Tjörnesi, þau
eiga tvö börn, Símon trésmiður á
Akureyri, kvæntur Kristínu Krist-
jánsdóttur, þau eiga tvö börn, og
Sigríður framkvæmdastjóri, sem
gift er Jóni Axel Egilssyni kvik-
myndagerðarmanni og eiga þau
tvo syni.
Magnús var glaðvær bjartsýnis-
maður og ætlaði fáum illt. Hann
var því vinsæll og naut trausts
annarra. Hann var oft valinn full-
trúi sveitunga sinna og félaga,
enda var hann félagslyndur mað-
ur. Hann var um langt skeið í
sýslunefnd Borgarfjarðarsýslu og
í stjórn Sjúkrasamlags Skil-
mannahrepps. Einnig var hann
framarlega við stofnun og rekstur
Samvinnufélags Hvalfjarðar og
lét sér annt um það félag alla tíð.
Fleira mætti telja af því tagi.
Þeir félagar gerðu góða bújörð
úr Stóru-Fellsöxl, sem var lítt
ræktuð og mögur þegar þeir hófu
þar búskap. Samvinna og sam-
komulag var ávallt mjög gott á
búinu og gestrisni var frábær hjá
þeim Þórhildi og Magnúsi.
Ég kynntist Magnúsi frænda
mínum ekki fyrr en á unglingsár-
um mínum, þegar hanr. var að
byrja búskap á Stóru-Fellsöxl,
vegna þess að við höfðum átt
heima hvor á sínu landshorni til
þess tíma. En okkur varð strax vel
til vina og hef ég ævinlega metið
hann mest minna frænda. Elsti
sonur minn var í sveit á Stóru-
Fellsöxl í mörg sumur og alltaf
var sætt færi að koma þangað í
heimsókn, ef tækifæri gafst.
Nú er Magnús allur. Blessuð sé
minning hans.
Jóhannes Zoéga
\
af öndvegisverkum
“ íslenskrar leikritunar
— eru nú aftur fáaiileg á hljómplötum
Gullna hliðið
eftlr Davíö Stefánsson
Leikstjóri: Lárus Pálsson
Tónlist: Páll ísólfsson
íslandsklukkan
eftir Halldór Kiljan Laxness
Leikstjóri: Lárus Pálsson
Á þessum upptökum af verkum tveggja af höfuöskáldum íslenskrar tungu
koma fram margir af vinsælustu leikurum þjóöarinnar fyrr og síöar.
Meö þessum hljómplötum fylgja vandaöir bæklingar meö upplýsingum um
verkin, leikstjóra, leikara og höfundana. Einnig eru upplýsinga á ensku.
Heildsöiubirgdir fyrirliggjandi
Verk þessi eru fáanleg í hljómplötuverslunum
um land allt
FALKINN
Súöurlandsbraut 8 — •fml 84870.
L.«ugav«»c|i 24 — iafmi 18870.
Auaturvori — sfmi 33360.
NIKE
Model 302 HD
1,5 tonn
Model 310 HC
10 tonn
\l C.nslM. \>I\11N\
22480
Jllorjjmtblnbiíi