Morgunblaðið - 22.10.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
„Ekki hefði ég .. “
Árný Björnsdóttir skrifar:
„Ég er að byrja að verða leið á
þessu blessaða veikindatali í
sambandi við drykkjumenn. Ég
held að það kyndi dálítið undir
katlinum hjá þeim blessuðum.
Sem sagt, þeir eru svo veikir.
Flestir eru þægilegir og nær-
gætnir við veikt fólk.
Meðan hann
var „veikur“
Ég er svo ólánsöm að eiga
„veikan" eiginmann, hef átt hann
í 20 ár og er farin að þekkja á
skinnið. Því miður, kannski, hafði
ég ekki kynnst stælunum fyrr en
í hjónabandinu blessuðu. Ólst
einfaldlega ekki upp við fyrir-
brigðið. Hefði ég haft núverandi
reynslu í upphafi hjónabands,
hefði ég ekki í mörg ár látið
manninn minn segja mér að ljúga
við dyr og í síma að hann væri
ekki heima, þegar hann lá í koju-
fyllerí í marga daga. Ekki hefði
ég heldur látið viðgangast að
börnin mín tvö gerðu slíkt hið
sama um leið og þau gátu svarað
í síma og opnað hurð. Ekki hefði
ég farið Trauðug á „skemmtanir"
En viti menn: Blessaður mað-
urinn minn tók símann, talaði við
einn „góðan vin“ sem reddaði
tveimur snarlega á staðinn. Hann
var bæði glottandi og storkandi
þegar hann hampaði flöskunum
framan í mig. Þetta þótti mér
langskrítnast og mótsagnakennd-
ast við „veikindi" hans. Yrðum
við ekki undrandi ef við sæjum
t.d. sykursýkisjúkling hampa
sykurkassa framan í vin sinn og
segja sem svo: Heyrðu góði, þú
ræður nú ekki yfir mér, ég hef
nógan sykur.
Búin, takk
Aðeins vil ég nú koma að lækn-
ingu á þessari dularfullu veiki.
Hún virðist stundum vera skjót-
fengin. Dæmi héðan úr þorpinu:
Heimilisfaðir nokkur hafði alla
tíð kvalið heimilisfólk sitt með
drykkjufýsn sinni og látum sem
henni fylgja. Einkasonurinn tek-
ur síðan upp iðju pabbans þegar
honum fannst tími sinn kominn.
Og hvað gerist? Hættir ekki sá
gamli snarlega eins og hendi væri
veifað. Já, eftir öll þessi ár lækn-
aðist bara maðurinn í einu vet-
fangi. Mikið væri annars gaman
að geta læknað sjálfan sig svona
með honum í mörg ár, manni sem
lamaði andlegt og líkamlegt þrek
mitt með neikvæðu og andstyggi-
legu fylleríisröfli. Ekki hefði ég
þrælað mér gegndarlaust út við
að vinna hans verk, þegar hann
var „veikur". Meðal annars þrífa
skít og drasl í öllum hans vistar-
verum, til þess að allir sem vildu
gætu séð hvað „sjeffinn“ væri
myndarlegur og snyrtilegur í sér.
Yrðum við ekki undrandi?
En áfram með „veikina".
Eitt sinn gerðist ég svo djörf að
taka eina bokku í mína vörslu frá
eiginmanninum. Var hann þá og
fjöldi manns búinn að gera út af
við mig og börnin hér á heimilinu
með drykkjulátum allan þann
dag, og fannst mér allt í lagi að
hjálpa „veika“ fólkinu að minnka
við sig.
allt í einu (ég er nefnilega orðin
veik fyrir nokkru — í alvöru).
Nokkur dæmi þekki ég sem sýna,
að þegar drykkjumaðurinn er
orðinn veikur í alvöru (kransæða-
stífla, lifrarveiki, magasár o.fl.),
getur hann snarlega hætt að
drekka. Sem sagt upprunalega
veikin búin, takk.
Og svo er það bruggið.
Hjá mínum „sjúklingi" lengir
það svo ansi mikið túrana. Hver
törn stendur allt upp í þrjár vik-
ur, því fyrst er það brennivínið og
síðan tekur bruggið við. Mér er
það kunnugt að gamli „landinn"
okkar flæðir yfir hér um slóðir,
jafnt á sveitabæjum og í þorpum
hér í sýslunni. Má brugga?
Ekki lengra að sinni. Vildi að-
eins vekja athygli á þessu bless-
aða veikindatali um nautnasjúka
og sjálfselska monthana."
Sjómanna-
frádrátt-
urinn úr
sögunni
- sem sérstök viðurkenn-
ing á starfi sjómanna
E.KJ. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Fyrir allmörgum árum ákváðu
skattayfirvöld að sjómenn
skyldu fá sérstakan skattafrá-
drátt, sjómannafrádrátt, sem
nam ákveðinni lækkun á brútt-
ótekjum til skatts fyrir hverja
skráningarviku. Var þetta um-
talsverð kjarabót og hefir efa-
laust greitt fyrir samningagerð
á sínum tíma.
Fyrir tveimur árum kom svo
nýtt form á skattaskýrslu, og er
þar ennþá dálkur fyrir sjó-
mannafrádrátt. En þar var
fleira. Þar var einnig tíupró-
sentreglan. Og sjómannafrá-
drátturinn fellur inn I þá reglu,
sé hún notuð, og er þar með úr
sögunni sem sérstök viðurkenn-
ing á starfi sjómanna.
Nú vil ég biðja þig, Velvakandi
góður, að leita svara við því,
hvort hér er um ákvörðun fjár-
málaráðherra að ræða eða hvort
þetta stafar af vangæslu þeirra
sem hönnuðu skattaskýrsluna.
Við teljum okkur sömu sjó-
mennina, hvort sem við notum
10% regluna í skattaframtali
eða ekki.“
Undrumst gáleysið
Kttiaaaa °t Aatar skrifa.
„V'elvakandi
Við vonum *ð þú sért vakamji
núna, Velvakandi. því okjutr
langar til að koma á framfwri
eftirfarandi athugaaemd: St»-
við tvser galvaakar ungar atúlk-
ur leið um Síðumúlann. Tók þá
akyndilega að snjóa en eina og
ailir vita akipaat veður löngum
fljótt I lofti i íalandi. Leituöum
við þá akjóla undan .atórhrið-
Síðumúlanum. þar sem m.a. j
Heilbrigöiaeftirlit rikiaina er til \
húaa. Þeaai bygging er við Síðu-
múla 13. Tókum viö þá eftir því
að útidyrnar lágu aðeina aö atöf-
um þó að amekkláainn v*ri á og
Þessir hringdu . . .
Ekki eingöngu gá-
leysi um að kenna
Bergur Jónsson rafmagnseftir-
litsstjóri hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Ég hringi
vegna athugasemdar í dálkum
þínum frá tveimur stúlkum sem
höfðu komið hingað í Síðumúl-
ann að opinni hurð í anddyri.
Mig langar fyrst og fremst til að
koma á framfæri þökkum til
stúlknanna fyrir að láta vita, því
að þær skildu eftir orðsendingu
inni í húsinu, eins og fram kemur
í bréfi þeirra. Astæða þess að
þetta hefur hent er nú m.a. sú að
hurðin sem þarna um ræðir féll
ekki lengur að stöfum nema með
sérstakri aðgæslu og hefur verið
svo síðustu daga. Við brýndum
fyrir fólki í húsinu að gæta þess
vandlega að hurðin lokaðist, en
hér er mikill umgangur og ekki
aðeins á skrifstofutíma. Fjórar
stofnanir eru hér til húsa og
margir sem hingað koma á ýms-
um tímum vegna þess að þeir eru
á bakvöktum eða þurfa að vinna
að einhverjum verkefnum utan
vinnutíma. Og eins og þarna hef-
ur skeð, gleyma menn sér stund-
um. Iðnaðarmennirnir eru ekki
alltaf til taks strax og á þeim
þarf að halda, en það er búið að
gera við þetta núna. Ég vildi nú
bara taka þetta fram um leið og
ég færði stúlkunum þakklæti
okkar og til að skýra fyrir þeim
að hér var ekki eingöngu gáleysi
um að kenna.
Abyrgdarhluti ad
fullyrda nokkud
Ragnar llafliðason hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Fólkið sem lenti í bílslysinu í
Hafnarfirði talar um að það
muni ekki nota bílbelti í framtíð-
inni og fullyrt er að illa hefði
farið ef þau hefðu verið notuð í
þessu tilfelli. Mér finnst það
ábyrgðarhluti að fullyrða nokkuð
í þessa átt. Það mætti líka
spyrja: Hefði stúlkan yfirleitt
misst meðvitund ef hún hefði
verið í belti, eða slasast að öðru
leyti?
P1l|II|'
átyWJí
tí
Auðvelt
fyrir hvern
sem er.
Tilboð Skráó
okkar verð
Svínakólelettur 117,00 149,00
Svínahryggur. nýr 107,00 137,00
Hamborgarhryggur 125,00 147,00
Nýr svinabógur 63,70 76,00
Nýr úrb. svinabógur 77,00 90,60
Nýtt svínslæri 1/1 og V4 66,30 70,40
Urbeinuð ný svinslæri 89,70 124,70
Nýtt gott svinahakk 79,00 106,70
Úrbeinaður nýr
svínakambur 93,40 102,50
Odýra baconið í bitum 53,00 99,70
Odýra baconið i sneiöum 58,00 129,70
Svinalundir 144,00 144,00
'h svinaskrokkar, tilbúnir
i frystinn. Aðeins pr. kg
ca. 25—30 kg þyngdin 53,00 61,50
Athugið:
Urbeinum ailt kjöt út i frystinn tyrir aðeins 5,00
kr. pr. kg. Pakkað inn og merkt.
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.S.8MII
Glæsilegar viðarþiljur úr
eik, aski, furu og oreg-
on-pine.
BJORNINN
Skúlatún
2b
50
Reykja
mi
Vegg
klæð
í ótrúlegu úrvali.
Verö frá kr. 28.- m2
- og loft-
ningar
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU