Morgunblaðið - 24.10.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981
5
M]1
■ -iC
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, og Ólafur Noregskonungur við komuna í gær til Chat Noirleikhússins í Osló, þar sem þroskaheft börn
sýndu og léku Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner. sím»m»nd ah
Vigdís Finnbogadóttir í Noregi:
Heimsókninni lauk í gær
Krá Kríóu l'roppé, hlm. Mhl. í Osló.
OPINBERRI heimsókn forseta íslands hingaó til Noregs lýkur í kvöld.
Heimsókninni lýkur með því að forsetinn býður til kveðju- og þakkar
veislu á Grand Hotel. í veislunni eru á borðum íslenskur matur, fluttur
að heiman og matreiddur undir stjórn íslensks matreiðslumanns, Hilm-
ars B. Jónssonar, veitingamanns á Hótel Loftleiðum.
Ljósmvnd: Krída Proppé
Forseti íslands ásamt litlum gesti, sem kom að heilsa upp á hann í
móttöku fyrir íslendinga á Grand Hotel í Osló.
Forseti Islands tók á móti
Ólafi Noregskonungi og kon-
ungsfjölskyldunni íklædd
skautbúningi hér á Grand Hotel
klukkan rúmlega átta, en áætlað
er, að veislunni ljúki um mið-
nætti.
I morgun hófst dagurinn með
ferð forseta, fylgdarliðs og kon-
ungsfjölskyldur.nar til Hade-
lands-glerverksmiðjunnar. Þar
tók forstjóri hennar á móti for-
setanum og var Vigdísi þar
færður að gjöf fagurlega
skreyttur handunninn vasi í lok
kynnisferðar um verksmiðjuna.
Þaðan var farið með járnbraut-
arlest til Oslóar og hádegisverð-
ur snæddur um borð í lestinni.
Komið var til aðaljárnbrauta-
stöðvarinnar í Osló klukkan
rúmlega tvö og gengið þaðan
nokkur hundruð metra um mið-
borg Oslóar til Chat Noir-leik-
hússins og þar setin uppfærsla á
Kardimommubænum eftir
Thorbjörn Egner. Bar sýningin
heitið „Fólk og ræningjar úr
Kardimommubæ". Dagheimili
og skóli Rögnu Ringdals stóð að
sýningunni, en leikendur, sem
voru 30 talsins, nemendur skól-
ans, eru þroskaheft börn og
unglingar. Sýningin hreif áhorf-
endur mjög mikið og fengu leik-
endur góðar undirtektir. í lok
hennar stóð forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, upp úr
sæti sínu og kastaði blómsveig
upp á sviðið til leikaranna sem
þakklætisvotti fyrir góða
frammistöðu.
Heimsókninni lauk síðan, eins
og fyrr segir, að lokinni móttöku
forsetans á Grand Hotel. Forset-
inn dvelur í Osló um helgina í
eigin erindagjörðum, en heldur
síðan til Svíþjóðar á mánu-
dagsmorgun í opinbera heim-
sókn.
pWNKHSmiK--------
i
"VELVflKflN9l? Vm W KONfi
SEtf 6VR f NffeKLNNI W LOONU-
STY6Bf? NÚNR, 06 HÉR VlNNST
w m m w LOKfl svoNfl
mwm ^iníiOóW
SVARIDvk)
orkukreppu
og
COLT er framhjóladrifinn.
COLT er sparneytinn (eydsla 7I./100 km.).
COLT er rúmgóður.
COLT er fáanlegur 3 og 5 dyra.
MITSUBISHI
MOTOR5
Si
Komid, skoóió og reynsluakið COLT1982 frá MITSUBISHI.
Varahluta og viðgerðarþjónusta Heklu hf. er landskunn.