Morgunblaðið - 24.10.1981, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981
9
íslandskynningar í
Noregi og Svíþjóð
I TILKKNI af opinberri heimsókn
forseta Island til Noregs og Svíþjóð-
ar mun Utflutningsmidstöð idnaðar
ins, Feróamálaráð, Samband bú-
vörudeild og Flugleiðir standa fvrir
„Islandskynningum** í Osló og
Stokkhólmi, og fer sú fyrri fram á
Grand llótel í Osló laugardaginn 24.
október, en sú síðari á Grand Hótel
í Stokkhólmi miðvikudaginn 28.
október.
Kynningarnar, sem eru í formi
móttöku, eru fyrst og fremst
haldnar fyrir viðskiptavini ís-
lenskra fyrirtækja, sem versla
með vörur frá Islandi og hafa á
boðstólum þjónustu frá Islandi.
Þá hefur og verið boðið miklum
fjölda blaðamanna.
Á báðum stöðunum verður gest-
um boðið upp á íslenskan mat,
sem sérstaklega hefur verið send-
ur út í tilefni af þessum kynning-
um. Fimm íslenskar sýningar-
stúlkur munu sýna og kynna það
nýjasta í ullarfatnaði frá íslandi.
Fyrir hönd íslensku fyrirtækj-
anna munu sendiherrar íslands í
viðkomandi löndum taka á móti
gestum og ávarpa samkvæmið.
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, mun heiðra samkvæmið
með nærveru sinni.
í tengslum við þessar kynningar
verður kynning á íslenskum ull-
arfatnaði i samvinnu við norska
Rauða krossin, en í Stokkhólmi
verða kynningar í stórverslunun-
um N.K. og PUB.
Jólakort FEF komin út
Jólakort Félags einstæðra
foreldra eru komin á mark-
aðinn. Kru að þessu sinni
gefnar út þrjár nýjar gerðir,
tvær með harnateikningum
og þriðja kortið gerði Sigrún
Kldjárn.
Þá eru endurprentaðar
þrjár tegundir sem hafa
lengi verið ófáanlegar og
mikið spurt um. Jólakortin
eru sem fyrr unnin í
Kassagerð Reykjavíkur.
Þau eru til sölu á skrif-
stofu FEF í Traðarkots-
sundi 6, hjá ýmsum bóka-
verzlunum í Reykjavík og
úti á landi og mörgum fé-
lögum í FEF.
Jólakortið eftir
Sigrúnu Kldjárn.
Útskurdur, tóvinna
og myndvefnaður
HKLGINA 24. og 25. október verða síðustu dagar sýningar Heimilisiðnað-
arskólans að Kjarvalsstöðum.
Á laugardaginn kl. 16—18 verða útskurður, tóvinna og myndvefnaður
kynnt, en almennur vefnaður kl. 20—22. Á sunnudaginn verður mynd-
vefnaður kynntur kl. 16—18 og útskurður og hekl kl. 20—22.
Fræðslufundur í dag:
Haustverk
og vetrarum-
búnaður í
trjágarðinum
SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykja
víkur heldur fræðslufund í dag,
laugardag, kl. 2 í Fossv ogsstöð-
inni.
Þar verður m.a. fjallað um
haustverk og vetrarumbúnað í
trjágarðinum. Sýndar verða
skjólgrindur og uppbinding
trjáa, frágangur runna o.fl. Þá
verður líka sagt frá söfnun
berja og meðferð trjáfræs og
berja, sýnd geymsla og sáning
þess.
Skógræktarstöðin verður til
sýnis. Leiðbeinendur um trjá-
rækt og skógrækt verða til við-
tals og svara spurningum.
A fundinn eru allir boðnir og
velkomnir. (Kríttalilkynninií.)
Seyðisfjörður:
Lokið lagningu 2. áfanga
dreifikerfis hitaveitunnar
Sevðisfirdi, 10. október.
ÞKSSA dagana er verið að Ijúka við
lagningu dreifikerfts 2. áfanga llita-
veitu Seyðisfjarðar og hefur þá verid
lögð hitaveita í um 200 hús. Raf-
magnsveitur ríkisins selja hitaveitunni
vatn, sem er síðan hitað upp með
svartolíu og rafskautskatli. Nú er búið
að tengja öll stærri húsin í bænum og
unnið er að tenginu íhúðarhúsa.
Steypustöð Seyðisfjarðar hefur
lagt dreifikerfið og hefur verkið
gengið ágætlega í sumar. Dreifi-
kerfið sem er tvöfalt er hannað af
Verkfræðistofu Austurlands, sem
einnig hefur séð um eftirlit með
verkinu. Það er ljóst að húseigendur
verða eflaust fegnir að losna við
kynditækin úr húsum sínum, enda
kemur í staðin fyrir þau 80 stiga
heitt vatn beint inn í húsin. Sveinn
Sýning í dag og sunnudag
Sýning fyrir almenning veröur í dag og sunnu-
dag kl. 2—5 á fullbyggöu kanadísku timbur-
húsi aö Reykjabyggð 7 — Mosfellssveit (sjá kort).
Framtíðarhús, Templarasundi 3.
Símar 11614 og 11616.
„Kanadísku framtíðartimburhúsin"