Morgunblaðið - 24.10.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981
15
meira og minna bundnar við fyrir-
fram ákveðin niörk yfir lengra
tímabil, jafnvel þó að um svei^y-
anlej;a meginrefjlu sé að ræða, er
hætta á.'að visst misvætji skapist í
efnahagslífinu, vegna þess, að at-
vinnustarfsemi í sífelldri þróun
þarfnast mismikilla verðþreyt-
intía. SveÍKjanleg stefna í verð-
lagsmálum er því forsenda heil-
brigðrar þróunar atvinnulífs, ef
horft er til lengri tíma.
Ríkisstjórnin stefnir að því, að
þegar betra jafnvægi hefur náðst í
þjóðarbúskapnum, verði verð;
lagskerfið gert sveigjanlegra. í
þessu skyni er nú unnið að endur-
skoðun á verðlagsstefnunni í ljósi
efnahagsþróunar á þessu ári, og
með tilliti til horfa á næstu miss-
erum.
Ríkisstjórnin hefur nú til at-
hugunar ýmis atriði, sem hníga í
átt til aukins frjálsræðis í við-
skiptum og verðlagsmálum.
Fvrir þetta löggjafarþing verð-
ur lagt frumvarp til laga um
greiðslufrest á aðflutningsgjöld-
um. Þetta hefur verið baráttumál
verslunarinnar um langt árabil,
og er að því stefnt, að nýtt skipu-
lag þessara mála taki gildi á
næsta'ári. Þetta, og fleiri atriði,
sem til athugunar eru, mun stuðla
að lægra innflutningsverði, þegar
fram í sækir.
Sjávarútvegur og
fiskvinnsla
Þorskafli íslendinga verður
meiri á þessu ári en í fyrra. Annar
botnfiskafli verður að líkindum
einnig nokkru meiri nú í ár. Hins
vegar hefur loðnuafli, það sem af
er þessu ári, verið til mikilla muna
minni en var á sama tíma í fyrra.
Heildarverðmæti þess afla, sem
á land kemur, verður að öllum lík-
indum um 2% meira en í fyrra.
Allan síðasta áratug hefur út-
gerðin, að mati Þjóðhagsstofnun-
ar, verið rekin með umtalsverðum
halla. 1 ár hefur afkoma útgerðar-
innar verið skárri en undangengin
10 ár.
Horfur eru á, að sjávarafurða-
framleiðslan verði heldur meiri í
ár en í fyrra. Afkoma hinna ýmsu
greina fiskvinnslunnar er mjög
misjöfn.
Verkun saltfisks og skreiðar er
rekin með verulegum hagnaði. Af-
koma frystingar er lakari.
Veiðar og vinnsla loðnu eiga nú
við mikla erfiðleika að etja vegna
mikils verðfalls á loðnuafurðum á
erlendum mörkuðum.
Þegar litið er á allar greinar í
heild, er afkoma fiskvinnslunnar
jákvæð.
þessu ári hefur verið fylgt í
höfuðatriðum sömu fiskveiði-
stefnu og áður.
Þessi ákvörðun var tekin að
undangengnum ýtarlegum viðræð-
um við alla hagsmunaaðila, svo og
umfjöllun í nefnd, sem m.a. var
skipuð öllum þeim mönnum, sem
gengt hafa embætti sjávarút-
vegsráðherra á síðasta áratug.
Ljóst er þó, að með einhverjum
hætti verður að tryggja betri sam-
ræmingu veiða og vinnslu en náðst
hefur með þessari fiskveiðastefnu.
Einnig verður að auka gæði fram-
leiðslunnar. Ymsar leiðir, sem
stefna í þessa átt, eru nú í athug-
un hjá sjávarútvegsráðuneytinu.
Iðnaðarmál
I iðnaðarmálum er unnið að all-
mörgum veigamiklum verkefnum.
Höfuðmarkmið þessarar vinnu
eru þrjú: Að bæta starfsskilyrði
almenns iðnaðar og auka fram-
leiðni hans. Að efla samkeppnis-
færan nýiðnað, er byggi á heima-
markaði og útflutningi. Að leggja
grundvöll að orkufrekum iðnaði,
sem byggi á íslensku forræði og
skynsamlegri hagnýtingu orku-
linda.
Aðgerðir þessar eru liður í
stefnumörkun um iðnþróun til
langs tíma, sem ríkisstjórnin fjall-
ar nú um, og verður fiutt tillaga
til þingsályktunar um iðnaðar-
stefnu á þessu þingi.
Við margháttuð vandamál hefur
verið að etja í útflutnings- og sam-
keppnisiðnaði að undanförnu, m.a.
vegna misvægis í gengisþróun er-
lendis. Unnið hefur verið að ýms-
um lagfæringum á stöðu þessa
iðnaaðr.
Ríkisstjórnin vinnur nú að at-
hugun á leiðum til að jafna
starfsskilyrði iðnaðar.
Auk þessa er nú unnið að ýms-
um aðgerðum til eflingar iðnaðin-
um. Má þar nefna áherslu á ráð-
gjöf og starfsmenntun í þágu iðn-
aðar, ráðstafanir til eflingar iðn-
aðar á landsbyggðinni, aukið
framlag til Útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins, áætlun um innlenda
endurnýjun bátaflotans, og al-
menna áherslu á rannsóknar- og
þróunarstarfsemi í þágu atvinnu-
lífsins.
Orkumál
I orkumálum eru í undirbúningi
meiri framkvæmdir en áður hefur
þekkst. Undanfarin ár hefur höf-
uðáhersla veriö lögð á að auka
hlutdeild innlendrar orku í heild-
arorkunotkun landsmanna. Þetta
hefur einkum verið gert með mikl-
um framkvæmdum við hitaveitur.
Meginviðfangsefnin í raforku-
framkvæmdum á næstunni verða:
Að ljúka virkjunarframkvæmd-
um við Hrauneyjafoss, en ,þær
ganga nú samkvæmt áætlun og
mun fyrsta vél virkjunarinnar
verða tekin í rekstur um næstu
mánaðamót, og önnur síðar í vet-
ur.
Að auka vatnsöflun til núver-
andi orkuvera og tryggja rekstur
þeirra með umfangsmiklum fram-
kvæmdum á Þjórsársvæðinu.
Að halda áfram undirbúningi og
hefja framkvæmdir við næstu
stórvirkjanir fyrir landskerfið.
Ríkisstjórnin hefur þegar aflað
sér heimildar Alþingis til fjögurra
nýrra vatnsaflsvirkjana. Þessar
virkjanir eru allar komnar á verk-
hönnunarstig.
Að Ijúka hringtengingu byggða-
lína og auka flutningsgetu og ör-
yggi raforkukerfisins. Suðaustur-
lína verður tekin í notkun í nóv-
ember nk. og stefnt er að því að
loka hringnum með lagningu Suð-
urlínu á næstu árum.
Orkustefnunefnd ríkisstjórnar-
innar vinnur nú að athugun og
undirbúningi ýmissa fram-
kvæmda á sviði orkufreks iðnaðar.
Ýmis stórbrotin verkefni fyrir ís-
lenskan iðnað munu tengjast hag-
nýtingu orkulindanna. A því sviði
verður stefnt að því að treysta
innlenda forystu og frumkvæði.
Landbúnaður
A síðasta ári var gripið til sam-
dráttaraðgerða í mörgum fram-
leiðslumálum landbúnaðarins,
sem miðuðu að því að laga fram-
leiðsiumagnið að markaðsaðstæð-
um.
Framleiðsla mjólkur hefur nú
verið löguð að þörfum innlenda
markaðarins og má tæpast drag-
ast meira saman.
Stefnt er að því, að framleiðsla
sauðfjárafurða byggist áfram að
hluta til á útflutningi, eftir því
sem markaðsaðstæöur leyfa.
Samdrætti búvöruframleiðsl-
unnar hafa fylgt ýmsir erfiðleikar
f.vrir bændur, og hefur ríkisstjórn-
in mætt þeim á ýmsan hátt, m.a.
með útvegun fjármagns umfram
lögboðnar útflutningsbætur.
Ekki er gert ráð fyrir að sérstök
fyrirgreiðsla af þessu tagi verði
viðvarandi.
Síðastliðin tvö ár hefur verið
unnið að eflingu annarra bú-
greina, einkum fiskiræktar, loð-
dýraræktar, garðræktar og yl-
ræktar, ásamt aukinni nýtingu
hlunninda og annarra landgæða.
Áfram verður haldið á þessari
braut.
Tillaga um nýja landgræðslu-
áætlun verður lögð fyrir Alþingi í
vetur.
Ríkisstjórnin hefur nú til at-
hugunar tillögur, sem miða að
lausn þeirra vandamála, sem
óvenjuleg harðindi hafa valdið í
landbúnaði á þessu ári.
Samgöngumál
Mörkuð hefur verið stórhuga
stefna í vegamálum. Þegar í fyrra
var hafið nýtt átak til þess að
auka lagningu bundins slitlags á
þjóðvegakerfið. í vor var síðan
samþykkt á Alþingi ný vegaáætl-
un, sem gerir ráð fyrir stórauknu
fjármagni til uppbyggingar vega-
kerfisins.
Framlög til vegamála hafa í
samræmi við þetta verið aukin
verulega að raungildi.
P'ram til ársins í fyrra var mest
lagt bundið slitlag á 40 km á ári,
og stundum miklu minna. í fyrra
var þetta aukið í 90 km. í ár er
gert ráð fyrir, að lokið verði við
150 km. Á næsta ári verður þetta
enn aukið. Þannig verður sá hluti
þjóðvegakerfisins, sem lagður er
bundnu slitlagi, talsvert meira en
tvöfaldaður á skömmum tíma.
Samþykkt hefur verið langtíma-
áætlun í vegamálum, sem gerir
ráð fyrir enn auknum fjárfram-
lögum til þessara mála. Lokið
verður við að leggja bundið slitlag
á 3000 km af þjóðvegakerfi iands-
manna á röskum áratug.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
gera stórátak í öryggismálum inn-
anlandsflugs.
Miklir erfiðleikar hafa verið á
síðustu misserum í millilandaflugi
Flugleiða. Eftir þá aðstoð, sem
ríkisstjórnin veitti Flugleiðum á
síðasta ári, horfir heldur bjartar
um framtíð þessa flugrekstrar.
Að frumkvæði ríkisstjórnarinn-
ar hefur verið unnið aó því að
færa viðhald á flugfiota Flugleiða
til Islands. Nokkuð hefur áunnist í
þessum málum, og verður áfram
unnið að þeim.
Mennta- og
menningarmál
I stjórnarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar eru rakin nokkur fyrirheit
um umbætur, framkvæmdir og
nýmæli á sviði mennta- og menn-
ingarmála. Að þessu hefur verið
unnið, og fyrir þetta löggjafarþing
verða lögð nokkur frumvörp til
laga um þessi mál. Þar má nefna
framhaldsskóla og skólakostnað,
Lánasjóð íslenskra námsmanna,
Sinfóníuhljómsveit íslands og
Listskreytingasjóð. Á þessu ári
hefur verið unnið af kappi að
byggingu þjóðarbókhlöðu, en um
það var gefið sérstakt fyrirheit í
stjórnarsáttmála. Byggingin er
vel á veg komin, og verður unnið
að henni áfram á næsta ári.
Þá má nefna, að starfsemi
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
hefur verið efld verulega á starfs-
tíma ríkisstjórnarinnar.
Félags og heilbrigðismál
I félags- og heilbrigðismálum er
áfram unnið að framkvæmd þeirr-
ar stefnu, sem mörkuð er í stjórn-
arsáttmálanum. Þá eru í undir-
búningi ýmis málefni, sem koma
munu til kasta Alþingis. Þar má
nefna frumvarp til laga um um-
hverfismál, sem hefur verið til
meðferðar í ríkisstjórninni að
undanförnu. Á ári fatlaðra hafa
margir málaflokkar verið til með-
ferðar á vegum sérstakrar stjórn-
skipaðrar nefndar, Framkvæmda-
nefndar alþjóðaárs fatlaðra. Þá er
til meðferðar í ríkisstjórninni
frumvarp til laga um málefni fatl-
aðra.
Árið 1982 er sérstakt ár aldr-
aðra samkvæmt ákvörðun Sam-
einuðu þjóðanna. í fjárlagafrum-
varpi er gert ráð fyrir stórátaki í
þeim efnum á næsta ári.
í samræmi við löggjöf frá síð-
asta ári um húsnæðismál, hefur
ríkisstjórnin beitt sér fyrir miklu
átaki í byggingu verkamannabú-
staða. Hundruð nýrra íbúða verða
byggðar á ári hverju í samræmi
við þessi lög. Þetta mun draga
verulega úr þeim húsnæðisvanda,
sem víða er fyrir hendi, bæði fyrir
þá sem beint njóta fyrirgreiðslu af
þessu tagi og einnig fyrir aðra, því
þetta mun létta á hinum almenna
markaði án þess að dregið verði úr
fyrirgreiðslu til almenna húsnæð-
islánakerfisins.
Útlánageta byggingasjóða ríkis-
ins mun vaxa hröðum skrefum við
þetta eða um 20% af raunvirði á
milli þessa árs og næsta. Mest er
þessi aukning í útlánagetu bygg-
ingasjóðs verkamanna en einnig
verður raunveruleg aukning í getu
Bvggingasjóðs ríkisins til þess að
annast þau verkefni, sem honum
eru falin eftir þessar breytingar.
Ofneysla vímuefna hefur um
langt skeið verið .vaxandi vanda-
mál í íslensku þjóðfélagi. Þetta
mikla vandamál snertir flestar ís-
lenskar fjölskyldur á einn eða
annan hátt.
Þjóðin öll verður hér að snúast
til varnar.
Ríkisstjórnin mun hafa for-
göngu um átak á þessu sviði.
Dómsmál
Á vettvangi dómsmála hefur
verið unnið að umbótum á löggjöf,
sem stuðlar að hraðari meðferð
dómsmála, með því m.a. að ein-
falda meðferð minniháttar mála.
Unnið verður áfram að því að
gera meðferð dómsmála greiðari
og auðvelda mönnum að ná rétti
sínum.
útanríkismál
í utanríkismálum verður fylgt
óbreyttri stefnu.
I stjórnarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar er sérstaklega kveðið á
um, að ríkisstjórnin muni beita
sér fyrir samningum við Norð-
menn til þess að tr.vggja fiskveiði-
réttindi Islendinga á Jan Mayen-
svæðinu og fullnægja vernd fiski-
stofnanna þar. Þetta hefur nú tek-
ist með tveim samningum við
Norðmenn, og verður sá síðari
undirritaður fyrir lok október.
Samkvæmt ákvæðum í stjórn-
arsáttmála hefur verið lögð sér-
stök áhersla á að taka virkan þátt
í samstarfi Norðurlandaþjóða og
efla norræna samvinnu á allan
hátt.
Lokaorð
Það sem einkennt hefur þjóöar-
búskap Islendinga á þessu ári öðru
fremur, er að betra jafnvægi og
meiri stöðugleiki hefur færst í
efnahagslífið en verið hefur um
langt árabil.
Verðbólgan hefur hjaðnað veru-
lega. Þetta hefur tekist án þess að
færa fórnir atvinnuleysis og rýrn-
andi lífskjara, sem aðrar þjóðir
hafa fært í þessari sömu baráttu.
Ríkisfjármál og peningamál eru
í betra jafnvægi en verið hefur á
síðari árum.
Viðunandi jafnvægi hefur náðst
í viðskiptum við útlönd.
Gengi gjaldmiðils hefur haldist
stöðugra en verið hefur um langt
skeið.
Þjóðarframleiðslan hefur aukist
meira en gert hafði verið ráð fyrir.
Þetta hefur tekist á einhverjum
mestu umhle.vpingatímum í al-
þjóðaefnahagsmálum.
Á næsta ári munu erfiðleikar í
efnahagsmálum heimsins og þau
slæmu viðskiptakjör, sem við höf-
um búið við á síðustu misserum,
sníða vexti framleiðslu og tekna
þjóðarinnar þröngan stakk.
Viðskiptakjör Islendinga eru nú
12—14%. lakari en þau voru á ár-
inu 1978. Ekki eru horfur á, að
viðskiptakjör batni á næsta ári, og
raunar bendir ýmislegt til þess, að
sá litli bati á viðskiptakjörum,
sem fram kom á þessu ári, muni
að miklu leyti hverfa á því næsta.
Við Islendingar getum því ekki
vonast eftir aðstoð af erlendum
toga við lausn okkar efnahags-
vandamála.
Þess í stað verðum við enn um
sinn að miða stefnuna við ókyrran
sjó í alþjóðaefnahagsmálum.
Við þessar aðstæður getum við
ekki búist við verulegri auþningu
þjóðarframleiðslu eða þjóðartekna
á næsta ári. Þó er gert ráð fyrir
því, að á næsta ári vaxi útflutn-
ingsframleiðsla okkar um 4% og
þjóðarframleiðsla um 1%.. Þjóðar-
tekjur munu vaxa minna vegna
versnandi viðskiptakjara.
Með auknum stöðugleika og
jafnvægi í enfahagsmálum erum
við að leggja grunninn að sókn til
hættra lífskjara. Þennan grunn
verðum við að treysta enn. Því
verðum við á næsta ári að sýna
áfram gætni og festu í efnahags-
og kjaramálum til þess að þessi
árangur ónýtist ekki. Því betur
sem við treystum þennan grunn,
þeim mun fyrr mun atvinnulíf
okkar blómgast og lífskjör batna.
Akureyri:
Höfðingleg
gjöf til
Fjórðungs-
sjúkrahússins
MOKGUNBLAÐINU hefur bor
izt eftirfarandi fréltatilkynning
frá Kjórðung.ssjúkrahúsinu á
Akureyri:
20. maí sl. afhenti starfsfólk
verksmiðja SIS á Akureyri
Fjórðungssjúkrahúsinu höfð-
inglega peningagjöf til minn-
ingar utn fyrrverandi for-
mann Iðju, Jón Ingimarsson.
Skyldi peningunum varið til
kaupa á haðvagni ásamt nauð-
synlegum hjálpartækjum.
Baðútbúnaður þessi er nú
kominn til sjúkrahússins og er
hann staðsettur á lyflækn-
ingadeildinni. Baðvagninn er
notaður til að baða sjúklinga
lyflækningadeildar, sem eiga
erfitt með eða geta ekki notað
venjulegt baðker. Með tilkomu
þessa baðútbúnaðar breytist
öll aðstaða til að baða las-
burða og iamaða sjúklinga
mjög til hins betra.
Það kostar
sitt að hreinsa
snjóinn af göt-
um Akureyrar
Á/ETLUN um snjómokstur á Ak-
ureyri hljóðaði upp á R5t) þúsund
krónur á þessu ári, en var í vik-
unni orðinn meira en helmingi
dýrari, því kostnaður var þá orð-
inn um 1380 þúsund krónur. Þar
af hefur snjómokstur síðustu
vikna kostað um 400 þúsund
krónur, en kostnaður við snjó-
ruðning 10 tíma á dag er áætlað-
ur 50 þúsund krónur hjá Akur-
eyrarbæ.
Þessar upplýsingar koma
fram í viðtali Dags við Harald
Gíslason, yfirverkstjóra hjá
Akureyrarbæ. 15 tæki eru not-
uð til snjómokstursins, 3 jarð-
ýtur, 3 vegheflar, 3 vélskóflur,
2 dráttarvélar og 4 vörubifreið-
ir. Ef hlutfall kostnaðar við
snjóruðning verður svipað í ár
og það var í fyrra, má ætla að
heildarkostnaður verði hátt í 3
milljónir króna.
Lögfræðiað-
stoð Orators
tekin til starfa
LÖGKKÆI)IAI)ST(H) Orators.
félags laganema, er tekin til
starfa. Kyrirspurnum verður
svarað í síma 21325 á fimmtu-
dagskvöldum, frá kl. 19.30 til
22.00.
Þar nuinu laganemar leysa
úr fyrirspurnum þeirra aðila
sem leita til Lögfræðiaðstoðar-
innar, ýmist í síma, eða ef
vandamálin eru yfirgripsmikil,
þá bréflega. Starfsemin verður
með sama sniði og í fyrra, en
þá leituðu fjölmargir aðilar til
Lögfræðiaðstoðarinnar með
sín mál. Alls leituðu 179 aðilar
til ’aganema og báru upp 2til
spi.rningu. Yoru fyrirspyrjend-
ur úr flestum starfsgreinum
þjóðfélagsins.
Alls munu átta laganemar
starfa við Lögfræðiaðstoðina,
og munu fjórir starfa á hverju
fimmtudagskvöldi. Starfandi
lögniaður í Reykjavík mun að-
stoða laganemana við útlausn-
ir fyrirspurna til að tryggja að
rétt sé leyst úr fyrirspurnum.
Laganemar vilja hvetja al-
menning til að notfa>ra sér
þessa þjónustu, sem er ókeypis.