Morgunblaðið - 24.10.1981, Síða 19

Morgunblaðið - 24.10.1981, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981 19 Qlafur Ragnar Grfmsson: Sovétríkin fjarlægi SS-20 eldflaugarnar JC-dagurinn f dag: Bókamerkjum dreift til 7500 barna Þegar Morgunblaðið og sovésk sendinefnd taka höndum saman í frásögnum er kannski eðlilegt að útkoman verði nokkuð brengluð. Aldrei slíku vant helgar blaðið í gær sovéskri sendinefnd, sem hér hefur verið, frétt á baksíðu og heila innsíðu. Sjálfsagt verður Novosti ánægt með þessa nýju aðstoð Morgunblaðsins við útbreiðslu á áróðrinum. Hinsvegar finnst mér miður skemmtilegt að vera „fórn- arlamb" þessara óvæntu Sovét- Mogga samvinnu, einkum þar eð túlkun beggja er öll í hæpnara lagi. A baksíðu Morgunblaðsins er í 'fyrirsögn sagt frá því að sovéskir „friðarnefndarmenn" hafi „átt gagnlegar viðræður við Ólaf R. Grímsson" og í aðalinngangi frétt- arinnar segir að Kústnesov rit- stjóri hafi lýst stuðningi við mál- stað bresku friðarhreyfingarinnar. Inn í blaðinu er svo heilsíðu frá- sögn Björns Bjarnasonar þar sem þessi saga fær nánari útlistun. Fyrst Morgunblaðið og hin sov- éska sendinefnd hafa tekið sig saman um að skýra frá þessum fundi, báðum í hag en á minn kostnað, er rétt að fræða lesendur blaðsins um það sem fram fór þeg- ar hin sovéska sendinefnd óskaði eftir viðræðum við mig. I stuttu máli þá lagði ég aðaláherslu á það í viðræðunum að rökstyðja nauðsyn þess að Sovétríkin fjarlægðu SS-20 eldflaugar sínar frá Evrópu. Rakti ég rök friðarhreyfinganna í Vestur- Evrópu gegn SS-20 kjarnorkuvopn- um Sovétríkjanna og lýsti á hvern hátt kjarnorkuhervæðingaráætlun Sovétríkjanna væri í andstöðu við hina nýju friðarhreyfingar í Evr- ópu. Sovésku gestirnir vörðu hinsveg- ar SS-20 áætlunina. Hafði Georgi Storua aðallega orðið í þeim deilum en hann starfar við utanríkis- og hermálastofnun í Moskvu. Storua flutti af mikilli kunnáttu svipuð rök til stuðnings kjarnorkuvígbún- aði Sovétríkjanna og bandarískir hermálasérfræðingar nota til stuðnings bandarískum kjarnorku- vígbúnaði. Minnti málflutningur hans mjög á margar greinar sem Björn Bjarnason hefur skrifað í Morgunblaðið til stuðnings kjarn- orkuhervæðingu Bandaríkjanna nema þar sem Björn Bjarnason segir „Bandaríkin" notaði Georgi Storua „Sovétríkin" og öfugt. Tjáði ég Storua að lokum að sláandi væri hve röksemdarfærsla hans væri lík varnarræðum vina Bandaríkjanna. Það er því sérstaklega ánægjulegt að þeir Björn Bjarnason skuli hafa hist því að þessir tveir hafa ótrú- lega margt sameiginlegt. -stutt athugasemd vid hinna nýju Sov- ét-Mogga samvinnu Sú sovéska sendinefnd sem hér hefur verið undanfarna daga á ekk- ert sk.vlt við hinar nýju friðar- hreyfingar í Vestur-Evrópu. Hún er hinsvegar í tengslum við starf- semi heimsfriðarráðsins sem hefur um áratugi verið hluti af áróð- ursstarfi Sovétríkjanna. Það er því rangt sem Kusnetsov sagði á blaða- mannafundinum að hinn sovéski félagsskapur styddi kröfur CND hreyfingarinnar í Bretlandi. Kraf- an um að sovésku SS-20 eld- flaugarnar verði fjarlægðar eru meðal helstu stefnumála bresku friöarhreyfingarinnar og kemur fram í hinu breska kjörorði barátt- Ólafi Ragnari Grímssyni sárnar greinilega að hafa orðið rós í hnappagati sovésku „friðarnefnd- arinnar", sem hér dvaldist og átti við hann „gagnlegar viðræður" að eigin sögn. Minnir aðstaða Ólafs Ragnars óneitanlega nokkuð á þá stöðu, sem Haukur Már Haralds- son komst í, þegar vitnað var í hann í Prövdu og Ísvestíu. Lýsti Haukur Már, sem er formaður „ís- lensku friðarnefndarinnar", því þá yfir, að heimildarmaður Tass á Is- landi samstarfsmaður sinn við Fréttir frá Sovétríkjunum, Alex- ander Agarkov, færi með rangt mál. Síðan hefur Alexander Agar- kov ekki sést hér á landi og von- andi fælir grein Ólafs Ragnars Grímssonar sovéskar „friðar- nefndir“ frá landinu - en kannski þarf Ólafur Ragnar að munn- höggvast við Prövdu og Ísvestíu eftir heimkomu „friðarnefndar- innar“, þótt hann hafi ekki gert athugasemdir við skrif skoðana- bróður síns Belski ofursta, sem birtust í málgagni sovéska hers- ins, Rauðu stjörnunni. Það er jafnan viðkvæði þeirra manna, sem skipa sér í þá fylk- ingu, er Ölafur Ragnar Grímsson segist eiga samleið með í Evrópu og sovésku „friðarnefndarmenn- unnar „No Cruise Missiles — No SS-20s“. Sovéska sendinefndin, sem hér var, varði hinsvegar SS-20 áætlunina í þeim viðræðum sem hún átti við mig. Ég mótmælti SS- 20 eldflaugaáætluninni. Breska friðarhreyfingin mótmælir SS-20 áætluninni og allar helstu frið- arhre.vfingarnar í Vestur-Evrópu mótmæla SS-20 áætluninni. Hin sovéska „friðarnefnd“ á því ekkert skylt við hinar nýju hreyf- ingar í Vestur-Evrópu, þótt það þjóni hinum sérkennilegu og sam- eiginlegu hagsmunum Sovétríkj- anna og Morgunblaðsins að gefa slík tengsl í skyn. Hinar nýju evr ópsku friðarhreyfingar eru í farar brnddi baráttunnar gegn kjarnorku- eldflaugaáaúlun Sovétríkjanna. Sov- éska nefndin varði þessa kjarn- orkueldflaugaáætlun á sama hátt og Morgunblaðið ver kjarnorkueld- flaugaáætlanir Bandaríkjanna. irnir" sögðust hafa mikið sam- band við, að þeir segjast sjá djöf- ulinn hjá bæði Sovétmönnum og Bandaríkjamönnum. Hlutleysi þeirra felst í því, að siðferðis- styrkinn vantar til að gera upp á milli einræðis og lýðræðis. Með því að skýra lesendum sínum frá því, er hinir sovésku „friðarnefnd- armenn" sögðu á blaðamanna- fundinum í MÍR-salnum, er Morg- unblaðið orðið að bandamanni Sovétstjórnarinnar og samtímis sérstakur málsvari. Bandaríkja- stjórnar. Afstaða Ólafs Ragnars Grímssonar til þess, sem birtast má í fjölmiðlun, hefur svo sann- arlega breyst mikið frá því hann taldi ekkert sjálfsagðara en frétt- astofa hljóðvarpsins leitaði eftir því hjá Center for Defence In- formation, hvort kjarnorkuvopn væru ekki áreiðanlega á Keflavík- urflugvelli, en eins og fram hefur komið er einmitt þessi sama stofn- un aðalheimild sovésku „friðar- nefndarinnar" um bandarískan vopnabúnað. I vor blöskraði stjórn Ronald Reagans svo mjög yfirgangur sov- éskra útsendara í bandarískum fjölmiðlum, að hún svipti Georgi Arbatov, forstjóra Stofnunar um I DAG, 24. okt., halda JC-félögin í Reykjavík sinn árlega JC-dag. Að þessu sinni var valið verk- efni í tengslum við hjólreiðar barna, sem farið hafa vaxandi undanfarið. Jafnframt er hjól- reiðamönnum nú heimilt, lögum samkvæmt, að hjóla á gang- stéttum. Gefið hefur verið út bókamerki með mynd af hjóli, sem búið er þeim öryggisbúnaði, sem hjól þarf að hafa. Auk þess fylgja myndinni nokk- ur varnaðarorð. Bókamerkjum þessum hefur málefni Bandaríkjanna og Kan- ada í Moskvu, vegabréfsáritun og vísaði honum þar með úr landi til að koma í veg fyrir þátttöku hans í sjónvarpsþætti. Af grein Ólafs Ragnars Grímssonar má ráða, að hann aðhyllist starfshætti Ronald Reagans að þessu leyti og vonandi tekst honum það sama og Hauki Má Haraldssyni hefur tekist gagn- vart samstarfsmanni sínum Agar- kov að halda sovéskum „friðar- nefndum" sem lengst frá landinu. Og svo megum við auk þess búast við því, að eftir „gagnlegar við- ræður“ sínar við Ólaf Ragnar Grímsson, sem sovésku „friðar- nefndarmennirnir“ töldu rækilega merktan, muni þeir krefjast þess, að allar SS-20 eldflaugar Sov- étmanna verði rifnar þvi þær eru á skotpöllunum, en engin áætlun eins og hann gefur í skyn - og segi menn svo að viðræður stórvelda beri ekki árangur, þegar rétt er á málum haldið. Sú fullyrðing Ólafs Ragnars Grímssonar, að ég sé orðinn málssvari Sovétríkjanna, er ekki svara verð, og hann þarf ekki að óttast samkeppni frá mér í því efni. Bj.Bj. verið dreift til 7.500 barna í barnaskólum Reykjavíkur og Seltjarnarnesi. (KréUalilkynnini;.) Stykkishólmur: JC-dagur helg- aður umferð- armálum Slvkki.shólnii, 2.‘l. oklólu r. A MORGIIN, 24. október, er hinn ár- legi JC-dagur haldinn um allt land. JC-félagar í Stykkishólmi hafa ákveðið að helga daginn umferðarmálum undir kjörorðinu „JákvaUt hugarfar". Fjölskyldufundur verður haldinn í dag klukkan 14.00—16.00 í félags- heimilinu. Lögreglumenn af staðn- um flytja fyrirlestra um umferð- armál. Þá verður kvikmyndasýning, sem fjallar um akstur í myrkri, og önnur, sem fjallar um notkun bíl- belta. — Árni Leiðrétting EIN smáleiðrétting vegna eins atriðis í frétt Morgunblaðsins af blaðamannafundi með fulltrúum íslensku og sovésku friðarnefnd- anna. Þar virðist einhver mis- skilningur hafa átt sér stað milli okkar Björns Bjarnasonar, blaða- manns Morgunblaðsins. I fréttinni er eftir mér haft, að einu skipulagslegu tengsl islensku friðarnefndarinnar séu við Heims- friðarráðið, sem er laukrétt, en í framhaldi af því segir svo, og er enn eftir mér haft, að í nefndinni séu aðeins sjö einstaklingar. Kannski hef ég ekki verið nægi- lega skýrmæltur á fundinum, en ég ætlaði í öllu falli að segja sjö félagsmenn íslensku friðarnefnd- arinnar væru félagar í H eimsfrið- arráðinu, sem einstaklingar. Fé- lagsmenn íslensku friðarnefndar- innar eru mun fleiri, en segja má að þessir sjö einstaklingar séu fulltrúar hennar og reiknast að- ildargjald okkar að Heimsfriðar- ráðinu út frá fjölda þessara full- trúa. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Haukur Már Haraldsson, form. Islensku friðarnefndarinnar. Lýðræði eða einræði - án útúrdúra mu Akranes — H.P.-húsgögn Reykjavík nm húsgagnasýningar á morgun sunnudag í íþróttahúsinu Akranesi og H.P.-húsgögnum, Ármúla 44 OPIÐ FRÁ 1-6 xmn Einstaklega athyglisverö og eiguleg húsgögn fm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.