Morgunblaðið - 27.11.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.11.1981, Blaðsíða 1
Föstudagur 27. nóv. 1981 Bls. 33-64 Heimsókn í tilraunaverksmiðju Rannsóknastofn- unar fiskiðnaðarins Við fréttum að þarna ein- hversstaðar væri búið að koma fyrir tilraunaverksmiðju á vegum RF og fengum að heimsækja stofnunina. I ganginum á annarri hæðinni hanga stór veggspjöld og við renn- um augum yfir þau áður en við hittum dr. Jónas Bjarnason for- stjóra stofnunarinnar að máli, en hann gegnir þeirri stöðu í stað dr. Björns Dagbjartssonar sem er í leyfi. Á einu veggspjaldinu er rak- in saga stofnunarinnar og segir þar að hægt sé að rekja rætur til ársins 1934, er starfsemi Rann- sóknastofu Fiskifélags Islands hófst. Fiskifélagið rak síðan rann- sóknastofuna til ársins 1965, er hún var gerð að sjálfstæðri ríkis- stofnun. Stofnunin heyrir undir sjávarútvegsráðuneytið. Þarna má einnig sjá línurit yfir þróun fjár- magns, starfsliðs og fjölda að- sendra sýna yfir 10 ára tímabil, en stór hluti af starfsemi stofnunar- innar hefur ætíð verið fólginn í efna- og gerlamælingum á aðsend- um sýnum auk eiginlegra rann- sóknarverkefna. Á línuritunum má sjá að fjöldi aðsendra sýna hefur stóraukist, en starfsmanna- fjöldi hins vegar staðið hlutfalls- lega mjög í stað. Þessi þróun hefur orðið á kostnað rannsóknarverk- efna. Skipulag starfsemi Rannsóknastofnunar fískiðnaðarins Stofnunin skiptist aðallega í þrjár deildir: Tæknideild, efna- fræðideild og gerladeild. I efna- fræðideild fara fram rannsóknir á orsökum vinnsluerfiðleika og framleiðslugalla og úrbætur þar á. Einnig rannsóknir á efnamengun sjávarafurða og nýtingu fiskúr- gangs. Þar er veitt þjónusta við fiskiðnaðinn með rannsóknum á efnasamsetningu og gæðum hrá- efnis og útfluttra sjávarafurða og haft eftirlit með rotvörn bræðslu- hráefnis. í gerladeild fara fram rann- sóknir á geymsluþoli, virkni rot- Mbl. hristján. Humarkraf tur úr humarúrgangi Vid Skúlagötuna stendur hús, sem við fyrstu sýn lætur ekki mikið yfir sér. Flestir kannast líklega við það vegna þess að þar er útvarpið til húsa. í þessu húsi eru þó fleiri stofnanir, eins og t.d. Hafrannsóknastofnunin og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, sem staðsett er svo fjarri systurstofnunum sínum Kannsóknastofnun landbúnaðarins og byggingariðnaðarins, sem báðar eru í Keldnaholti í Mosfellssveit. Útvarpið leigir reyndar sitt húsnæði af Rannsóknastofnun sjávarútvegsins, sem er eigandi hússins. Þegar inn er komið og litið er út um bakgluggana má sjá ótal ranghala og viðbyggingar sem hýsa ýmislegt sem engan grunar að húsið búi yfir framanfrá séð. Tilraunaeldhúsið. A hillunum má sjá ýmsar krydd tegundir sem notaöar eru viö gerö nýrra sósuteg unda. Jónas Bjarnason forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. varnarefna, geymsluaðferðum, sýklamengun vatns, hráefna og fullunninnar vöru. Þar fara einnig fram rannsóknir á aðsendum framleiðslu- og útflutningssýnum. Yfirverkfræðingur stofnunarinn- ar er Arnesen, en deildarstjóri gerladeildar er dr. Grímur Valdi- marsson og dr. Alda Möller er deildarstjóri efnafræðideildar. Þriðja deildin er svo tæknideild, en þar er deildarstjóri Sigurjón Arason. Tæknideild sér um rann- sóknir á nýtingu úrgangs frá fisk- vinnslu og vinnsluþróun á van- nýttum fisktegundum. Þar eru einnig gerðar athuganir á flutn- ingi og geymslu hráefnis og þróun tækjabúnaðar og vinnslurása fyrir fiskiðnaðinn og gerð úttekt á fisk- vinnsluvélum. Deildin sinnir einn- ig upplýsinga- og ráðgjafarþjón- ustu m.a. við lausn vinnsluörðug- leika og aðsteðjandi vandamála. Tilraunaeldhús En nú er Jónas kominn og við fáum samfylgd hans um stofnun- ina. Við göngum í gegnum margar tilraunastofur, sem allar eru full- ar af alls kyns tilraunaglösum og tækjum, niður stiga og þá kemur betur í ljós hvað allir ranghalarn- ir og viðbyggingarnar sem sáust út um bakgluggann hafa að geyma. „Hér er t.d. fyrirlestrar- salur,“ segir Jónas er við göngum í gegnum einar af mörgum dyrum þarna niðri. „Og hérna fundar- herbergi" og við lítum inn í sal fullbúinn fundarhúsgöngum, sem hvaða gæðahótel sem er gæti verið státið af að hafa innan sinna veggja. Skammt þar frá eru aðrar dyr sem liggja inn í eldhús eitt mikið og stórt. Angandi matarlykt kemur á móti okkur. „Nú hefur Úrgangsefni sem eftir verða þeg- ar litar- og bragöefni hafa veriö skilin frá. hann Árni eitthvað verið að brasa," segir Jónas og á þar við Árna Jónsson. „Hann er hér hæstráðandi til sjós og lands og vinnur m.a. að tilraunum með sósuframleiðslu í lagmeti." Á hill- unum má sjá fjöldan allan af krukkum og krúsum með hinum ýmsu bragð- og kryddtegundum. I eldhúsinu er líka dósalokunarvél og niðursuðutæki, sem notuð eru við þessar tilraunir. Við göngum nú fram í sal einn mikinn þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja. Tilraunaverksmiðja Tilraunaverksmiðjan er þiljuð af í hluta salarins og við fáum Sig- urjón Arason til að segja okkur frá henni. „Tilraunaverksmiðjan ^var tekin í notkun í fyrra," segir Sigurjón. „Tilraunir voru þá gerð- ar með eimingu á meltu og þang- lausnum. Framleidd voru nokkur kíló af meltuþykkni og þang- þykkni var framleitt fyrir þör- ungavinnsluna og var hluti þess úðaþurrkaður. Meltuframleiðsla á sér nokkuð langa sögu, en meltur eru unnar úr fiskúrgangi svo sem slógi og úrgangsfiski, og verða til þegar meltingarvökvar leysa upp vefi í fiskholdi eða öðrum prót- einríkum vöðvum. Menn hafa lengi velt fyrir sér hvernig nýta mætti það mikla magn sem til fellur við slægingu á bolfiski hér- lendis, bæði í verstöðvum og um borð í veiðiskipum. Á síðustu ár- um þefur verið lögð áhersla á að nýta slógið til fóðurmjölsfram- leiðslu, en í dag eru flutt inn um 85 tonn af fóðurbæti, með aukinni meltuframleiðslu væri hægt að koma í veg fyrir mikið af þeim innflutningi. Nú er fyrirhugað að athuga möguleika á að nýta grá- sleppu í meltuframleiðslu. Ná- grannaþjóðir okkar framleiða mikið af meltunni, Danir t.d. um 60.000 tonn árlega. Núna erum við aðallega að gera tilraunir á nýt- ingu humarúrgangs." Við göngum inn í verksmiðjuna, en stjórnborð hennar er haft utan skilrúmsins af öryggisástæðum, þar sem eldfim efni svo sem ísó- propanol eru notuð í tilraunirnar. I verksmiðjunni má sjá stóran tank. „Þessi tekur um 2000 lítra," segir Sigurjón, „í hann er settur hakkaður humarúrgangur, hausar og klær sem hingað til hefur alltaf verið hent. Isópropanol er síðan sett saman við, lögurinn látinn standa og síðan er þetta leitt eftir slöngum yfir í tilraunaverksmiðj- una sem hér sést,“ og hann bendir á nokkuð sem líkist undarlegu víra- og rörasafni í einu horninu. „Þarna er þykknið eimað þar til rauður þykkur lögur fæst, en í honum eru öll litar- og bragðefni humarsins. Ætlunin er að selja þetta til súpuframleiðenda. Við höfum lengi verið að prófa okkur áfram með framleiðslu fiskkrafts, tilraunir til framleiðslu hófust hér 1973, í fyrra voru kolmunni og spærlingur notaðir sem hráefni og er þeim athugunum haldið áfram í ár. I fyrra voru einnig gerðar til- raunir með framleiðslu á rækju- krafti úr rækjuúrgangi, og nú standa sem sagt yfir tilraunir á humarkrafti. Þegar búið er að vinna litar- og bragðefnin úr humrinum verður til svona grá- leitur úrgangur," og Sigurjón sýn- ir okkur fulla skál af slíku. „Hérna við hliðina er svo klefi þar sem tilraunir hafa verið gerðar með inniþurrkun á skreið. Hér má til dæmis líta líkan af þurrkhúsi, þetta líkan er einn hundraðasti af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.