Morgunblaðið - 27.11.1981, Síða 14
HVAD ER AD GERAST UM HELGINA?
4 6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981
Sýning á silfur-
munum i anddyri
Norrœna hússins
'Laugardaginn 28. nóv. verður opnuð í and-
dyri Norræna hús-sins sýning á silfurmunum
(vösum, skálum, Tötum og öskjum), sem
danski silfursmiðurinn og leturgrafarinn
John Rimer hefur gert.
Sýningin ber heitið Silfur og sagnakvæði,
en John Rimer hefur grafið í silfurmunina
drápur og kvæði úr íslendingasögunum, m.a.
úr Egils sögu Skalla-Grímssonar, Laxdælu,
Gunnlaugs sögu ormstungu, Grettis sögu og
Kormáks sögu.
John Rimer hefur haldið sýningar víðs
vegar um heim og hlotið styrki, m.a. ferða-
styrk úr sjóðnum Danmark-Amerika og
starfsstyrk frá Statens Kunstfond.
Þessi sýning er farandsýning og er
Norræna húsið fyrsti viðkomustaðurinn,
en héðan fer sýningin til Gautaborgar,
Osló, Stokkhólms og Kaupmannahafnar.
Sýningin er opin daglega kl. 9—19 og
verður til 19. des. Aðgangur er ókeypis.
Blásarakvintett
í Akureyrarkirkju
Laugardaginn 28. nóv. kl. 20.30 mun
málmblásarakvintett skipaður blásurum
úr Sinfóníuhljómsveit íslands halda tón-
leika í Akureyrarkirkju. Leikin verða verk
frá ýmsum tímum og m.a. verður frum-
flutt verk eftir Jón Asgeirsson. Kvintett-
inn skipa þeir Lárus Sveinsson og Jón Sig-
urðsson á trompett, Joseph Ognibene á
horn, William Gregory á básúnu og Bjarni
Guðmundsson á túpu. Föstudaginn 27. nóv.
munu þeir félagar heimsækja skóla á Ak-
ureyri, kynna hljóðfærin og leika fyrir
nemendur.
Afmœlissýning
íslensku plast-
módelsamtakanna
Sunnudaginn 29. nóvember verða ís-
lenzku plastmódelsamtökin með sýningu
og landskeppni í Kristalsal Hótels Loft-
leiða. Sýningin er haldin í tilefni tíu ára
afmælis samtakanna og hefst kl. 11 árdeg-
is. Á henni verður margt athyglisverðra
módela og verður keppnin í 7 flokkum auk
þess sem besta módel sýningarinnar hlýt-
ur farandbikar. Verðlaunaafhendingin fer
svo fram kl. 2. Einnig verða slidesmynda-
sýningar á hverjum heilum tíma og enn
fremur gefst gestum kostur á að velja at-
hyglisverðasta módel sýningarinnar. Sýn-
ingunni lýkur svo kl. 21.00.
Trómet- blásara-
sveit í Mennta-
skólanum við
Hamrahlíð
Trómet-blásarasveitin heldur hljóm-
leika í sal Menntaskólans við Hamrahlíð á
sunnudaginn kl. 5 sd. Á efnisskrá eru fyrir
hlé styttri verkefni eftir J.S. Bach, Gabri-
eli, Hándel, Mozart og Jón Ásgeirsson, en
eftir hlé verður flutt aðalverkefni tónleik-
anna, sem er svíta austurríska tónskálds-
ins Kurt Weill fyrir blásarasveit sem
byggð er á hinni kunnu músík hans við
Túskildingsóperu Brechts. Stjórnandi á
hljómleikunum er Þórir Þórisson, en auk
blásarasveitarinnar koma einnig fram
með samleiksatriði þeir Sigurður Flosason
á altó-saxófón og Friðrik Karlsson, gítar.
Trómet-blásarasveitin er stófnuð í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti haustið 1979
en er nú skipuð nemendum hinna ýmsu
framhaldsskóla á Reykjavíkursvæðinu
sameiginlega. Sveitin er nýlega komin úr
hljómleikaferð til Húsavíkur í boði Tón-
listarskólans þar, en í þeirri ferð lék hún
einnig í ýmsum skólum í Þingeyjarsýslu og
hélt hljómleika í Menntaskólanum á Akur-
eyri. Aðgangur að hljómleikunum á
sunnudaginn er ókeypis og eru nemendur
framhaldsskólanna sérstaklega boðnir
velkomnir.
Aðventukvöld í
Kristskirkju
Félag kaþólskra leikmanna gengst fyrir að-
ventukvöldi í Kristskirkju í Landakoti næst-
komandi sunnudag, 29. þ.m., kl. 20.30.
Dagskrá kvöldsins verður á þessa leið:
Séra Ágúst K. Eyjólfsson flytur ávarp,
Ragnar Björnsson leikur á kirkjuorgelið,
karlakórinn Fóstbræður syngur, Anna
Júlíana Sveinsdóttir syngur einsöng og
Lárus Sveinsson leikur á trompet. Auk
þess verður lesinn kafli úr Maríu sögu, svo
og jólaguðspjallið.
Islenskar Mál-
freyjur með
kynningarfund
íslenskar Málfreyjur halda kynningarfund
í Slysavarnafélagshúsinu Hafnarfirði laug-
ardaginn 28. nóvemher klukkan 2. e.h.
„Alþjóðasamtök Málfreyja", (Internat-
ional Toastmistress Clubs) eru eitt af fjöl-
mennustu félagasamtökum heims, sem
starfa eingöngu á fræðilegum grundvelli. í
samtökunum eru um 29 þúsund félags-
menn af ýmsum þjóðernum og stéttum.
Undirstaða þeirrar þjálfunar sem þessi
félagsskapur býður upp á er að byggja upp
einstaklinginn, þannig að hann sé betur
undir það búinn, að takast á hendur þau
verkefni sem bíða hans á lifsleiðinni, hvar
og hvenær sem er.
Harmonikkuunn-
endur í Glœsibœ
Félag harmonikkuunnenda heldur sinn
síðasta skemmtifund fyrir jól, en sú breyt-
ing verður á að hann verður "ú í Veitinga-
húsinu Glæsibæ milli klukkan 15.00 og
17.00 á sunnudag.
Leikfélag Selfoss:
„Fjölskyldan“
á Seltjarnarnesi
Leikfélag Selfoss sýnir „Fjölskylduna"
eftir Claes Andersen í félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi kl. 21.00 á föstudag. Næsta
sýning er í Selfossbíói á laugardag kl. 16.00
og er sérstaklega ætluð áhugafólki um
áfengisvarnir og áfengismál því umræður
verða um þau mál eftir sýningu. Leikstjóri
er Ásdís Skúladóttir.
„Skoskt háfjalla-
kvöld„ á Esjubergi
„Skosk háfjallakvöld" standa yfir þessa
helgi á Esjubergi á Hótel Esju, en þar
verður frameiddur skoskur matur og tón-
list leikin af tveimur Skotum, sem eru
reyndar hjón. Þau spila og syngja skoska
söngva. Þau koma fram kl. 19.30 á laug-
ardags- og sunnudagskvöld og verða áfram
út næstu viku.
Heitt súkkulaði
með rjóma
og smákökur
Verslunin Blóm og Ávextir, bæði í Aust-
urstræti og Hafnarstræti, er með kynn-
ingu á jólalitunum í ár á aðventukrönsum
og jólaskreytingum. Á sunnudaginn verð-
ur svo boðið upp á heitt súkkulaði með
rjóma og heimabakaðar smákökur í versl-
ununum.
Mál og menning
kynnir nýjar
bækur sínar
Mál og menning verður á laugardaginn kl.
15.00 með bókakynningu á nýjum bókum
sem forlagið gefur út í ár. Fer kynningin
fram í Norræna húsinu og verða eftirfarandi
atriði á dagskrá:
— Böðvar Guðmundsson syngur lög af
plötu sinni Það er engin þörf að kvarta.
— Ingibjörg Haraldsdóttir les úr þýð-
ingu sinni á Meistaranum og Margarítu
eftir Mikhaíl Bulgakof.
— Olafur Haukur Símonarson les úr
væntalegri bók sinni Almanak jóðvinafé-
lagsins.
— Sigurður A. Magnússon les úr bók
sinni Möskvar morgundagsins.
— Vésteinn Lúðvíksson les úr smá-
sagnasafni sínu I borginni okkar, sögur og
ævintýri frá kostulegri tíð.
— Vilborg Dagbjartsdóttir les úr ný-
útkomnu ljóðasafni sínu, Ljóð.
— Þorgeir Þorgeirsson les úr þýðingu
sinni á Kvennagullinu í grútarbræðslunni
eftir William Heinesen.
Sunnudaginn 29. nóvember kl. 15.00 verð-
ur svo dagskrá fyrir börn í Norræna hús-
inu. Þá verður lesið úr nýjum barnabókum
og sýndar litskyggnur af myndum í
myndabókum Máls og menningar.
„Jóhanna af Örk“
í Nemendaleikhúsinu
Nemendaleikhúsið sýnir Jóhönnu frá
Örk í Lindarbæ föstudags- og sunnu-
dagskvöld kl. 8.30. Síðustu sýningar. Miða-
sala frá klukkan 5 sýningardaga í Lind-
arbæ.
Alþýðuleikhúsið:
Aukasýning á
Stjórn-
leysingjanum
Alþýðuleikhúsið sýnir í Hafnarbíói um
helgina gamanleikinn „Illur fengur" eftir
Joe Orton og er það þriðja sýning sem
verður sýnd á föstudagskvöld kl. 20.30 en
það er einnig sýnt á sunnudagskvöldið kl.
20.30. „Sterkari en Súpermann“ verður
sýnt á föstudaginn kl. 16.00 og sunnudag
kl. 15.00. „Elskaðu mig“ verður á laugar-
dagskvöldið kl. 20.30 og síðasta aukasýn-
ing verður á gamanleiknum „Stjórnleys-
ingi ferst af slysförum" laugardagskvöld
kl. 23.30.
Á laugardaginn kl. 17.00 sýnir Leikfélag
Keflavíkur „Rauðhetta" í leikgerð Auaní
Achwarz í Hafnarbíói.
Píanóleikur á
veitingastaðnum
Arnarhól
Guðmundur Ingólfsson spilar á píanó í
„Koníaksalnum" á veitingastaðnum Arn-
arhól. Það er ekki dinnermúsík sem hann
spilar heldur allrahanda lög. Leikur hans
hefst kl. 18.00 og er um helgar og er ekki
einungis fyrir matargesti.
Almennur um-
rœðufundur um
barnabókmenntir
Mánudaginn 30. nóv. mun Félag bók-
menntafræðinema við Háskóla íslands gang-
ast fyrir almennum umræðufundi um barna-
bókmenntir. Vfirskrift fundarins er: „Hver er
tilgangur barnabóka? Afþreying — Innræt*
ing — Áróður?"
Frummælendur verða: Silja Aðal-
steinsdóttir, Ólafur Jónsson og Guðrún
Helgadóttir.
Að loknum framsögum verða almennar
umræður. Fundurinn verður haldinn í
stofu 201, Árnagarði kl. 20.30.
Fundur þessi verður með sama sniði og
umræðufundir félagsins síðastliðinn vetur
en þeir fjölluðu um Gúanótexta og
Kvennabókmenntir og vöktu nokkra at-
hygli. Öllum er heimill aðgangur.
Kópavogsleikhúsið:
„Aldrei er friður“
„Aldrei er friður", eftir Andrés Indriðason
á laugardagskvöld kl. 20.30 og sunnudag
kl. 15.00 í Kópavogsbíói en þetta er gaman-
leikur fyrir alla fjölskylduna.