Morgunblaðið - 19.01.1982, Side 10

Morgunblaðið - 19.01.1982, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982 Sjötugur í dag: ívar Guðmundsson aðalræðismaður Ekki kæmi mér á óvart, þótt ívar teldi MorKunblaðsárin bestu árin í lífi sínu. Ég þekkti raunar aðeins sjö þau fyrstu, en þá unn- um við saman, en sjálfur starfaði ívar á þriðja tug ára á blaðinu, lengst sem fréttastjóri þess. Fyrstu árin voru húsakynni Morgunblaðsins, skrifstofur og af- greiðsla, allt talið, þar sem nú er Parísarbúðin í Austurstræti 8. En aðeins nokkrum árum síðar var ritstjórn Morgunblaðsins búin að leggja undir sig alla efri hæðina í Austurstræti 8, milli Austur- strætis og Austurvallar. Má af því marka, að nokkuð var aðhafst á þessum árum. Blaðið stækkaði, kaupendum fjölgaði (einhvern tíma um þær mundir var mér sagt að uppiag blaðsins væri þá 12 þús., í 40 þús. manna borg, með stopul- um samgöngum út um landið, enda blaðið Isafold, upplag 5 þús., sent í sveitirnar) og nýjungar voru teknar upp. í þeim hópi, sem þá vann á ritstjórn Morgunblaðsins, voru aðallega fjórir menn, rit- stjórarnir Valtýr Stefánsson og Jón Kjartansson og við blaða- mennirnir tveir, ívar og sá sem þetta ritar (Árni Óla sá um Les- bókina). Þótt heita ætti i orði kveðnu að verkaskipting væri á milli þessara manna, þá er samt auðsætt, í ekki stærri hópi, að all- ir voru allt í öllu, inniendum frétt- um, erlendum, stjórnmálafréttum, myndatöku, umbroti o.fl. o.fl. En jafn augljóst er líka, að slíkur hópur, sem byrjaði vinnu að morgni dags og hætti aldrei fyrr en eftir miðnætti, stundum löngu eftir miðnætti, hlaut að kynnast innbyrðis vel og náið, nánar kannski en almennt tíðkast. Hér á ofan bættist sameiginlegt áhuga- mál, blaðamennskan, og það sem einkennir alla blaðamenn, það takmark umfram allt að vera fyrstir með fréttirnar. Sérsvið ívars (ef hægt er að tala um sérsvið) var allt sem varðaði inniendar fréttir, íþróttir og jafn- vel myndataka. Sérstaklega er mér minnisstóeð venjuleg kódak- mynd, sem Ivari tókst á stolnu augnabliki að taka af þeim tveim saman, Óiafi Thors og Jónasi frá Hriflu, á bakka Almannagjár. Upp úr því hefst talið um „hægra brosið", sem allir kannast við, sem muna þá tíma. „Hægra brosið" fór þó ekki að draga arnsúg fyrr en Árni frá Múla, leiðaraskrifari blaðsins, hafði fjallað um það. Austurstræti var á þeim árum miklu meiri og skemmtilegri lífæð Reykjavikur heldur en það er nú. Og óhætt er að fullyrða, að á þessu tímabili hafi allir, sem um strætið fóru, kannast við unga manninn ofan úr Fischersundi, sem upp úr þurru hafði gerst biaðamaður og lagt síðan drjúgum lið við að gera hálfgert sveitablað að nútíma- blaði. Ivar var lífið og sálin í starfi okkar á Mogganum og það í svo ríkum mæli, að Valtýr sá einu sinni ástæðu til að skýra hann upp og kalla hann Vivax, manninn með lífsfjörið. Sjálfur sá Ivar síð- an um að gera Vivax-nafnið frægt á síðum Morgunblaðsins. Við er- um ekki mörg á lífi, sem tókum þátt í gleði og sigrum þessara gömlu Morgunblaðsára. Auk okkar ívars man ég eftir Tótu Hafstein, sem sá um kvennasíðu blaðsins, og Sigurði Bjarnasyni sendiherra, sem oft gekk til liðs við okkur, þótt hann væri að öðru leyti við nám. Ég ætla að taka mér bessaleyfi og óska ívari heilla í nafni okkar allra. Hann má gjarnan vita, að þessi gömlu gleðiár gleymast ei. Pétur Ólafsson Magnús E. Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka Islands: Allir telja þörf á auknum bílastæðum í miðborginni - nema núverandi borgarstjórnarmeirihluti „KAUPMANNASAMTÖK íslands hafa á undanförnum árum mótmælt öll- um tilraunum borgaryfirvalda til þess að fjarlægja stöðumæla við Laugaveg. Þessi tilraun meirihluta borgarstjórnar gengur þvert á skoðun allra fyrir tækjanna sem stunda atvinnurekstur við Laugaveg, svo og fjölmargra stofn- ana, sem gert hafa athuganir varðandi málið,“ sagði Magnús E. Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka íslands, í samtali við Mbl. — Eins og kunnugt er, sam- þykkti borgarstjórn fyrir skömmu að fjarlægja alla stöðumæla frá Klapparstíg og niður úr. — Vegna þessarar ákvörðunar borgarstjórnar höfum við boðað „VIÐ FUNDUM tvær mjög stórar torfur. Önnur hélt sig fast við hafnar- garðinn í Þorlákshöfn og var austur undir Kyrarbakka og reyndust þar vera um 100 þúsund (onn. ilin torfan hélt sig við Þjórsárósa og okkar mæl- ingar sýndu að hún var 150 þúsund tonn. Kg tel að mcginhlutinn af síld- inni hafi haldið sig þarna og því teljum við stofninn nú vera 250 þúsund tonn. í fyrra þegar stofninn var mældur á fjörðum Austanlands var hann 235 þúsund tonn,“ sagði Jakob Jakobsson, n.skifræðingur þegar Morgunblaðið ra-ddi við hann í gær, en Jakob hefur nú lokið útreikningum á stærð ís- lenzka sumargotstofnsins. Jakob sagði að auk þess sem síldin héldi sig nú á allt öðrum slóðum en í fyrra, væri ástandið ólíkt, að því leyti, að meira væri um stóra síld í stofninum en þá, og ennfremur væri til fundar alla kaupmenn við Laugaveg nk. miðvikudag, en auk þeirra hefur verið boðið á fundinn Sigurjóni Péturssyni, forseta borgarstjórnar, Sjöfn Sigur- björnsdóttur, Kristjáni Bene- minna af smásíld á ferðinni en þeir hefðu átt von á. „Samkvæmt mælingum okkar, þá reiknum við með að hrygningar- stofn sumargotsíidarinnar verði um 200 þúsund tonn í vor og verður það í fyrsta skipti í mörg ár, sem hann nær þeirri stærð. Stærstur reyndist hrygningarstofninn vera 300 þúsund tonn og markmið okkar er að stofn- inn nái þeirri stærð. Ef við fáum góða árganga, þá verður þess ekki langt að bíða að hrygningarstofninn nái þeirri stærð. Eftir það teljum við óhætt að veiða 60—70 þúsund tonn af 3Íld á ári,“ sagði Jakob. Hann sagði að enn yrði lítið sem ekkert vart við ísienzku vorgotssíld- ina og mætti segja að hún væri svo til útdauð, en hér fyrr á árum var vorgotsíldin mun mikilvægari í síld- veiðum Islendinga en sumargotsíld- in. diktssyni og Davíð Oddssyni, borgarráðsmönnum. Það eru í raun allir, nema nú- verandi borgarstjórnarmeirihluti, sem telja mikla þörf á auknum bílastæðum og sérstaklega aukn- ingu stöðumæla í miðborg Reykja- víkur til lausnar umferðarvandan- um. Því höfum við mótmælt þess- um fyrirhuguðu aðgerðum mjög harðlega. Þessi samþykkt er í raun ekkert annað en fyrsta skref- ið í þá átt að fjarlægja alla stöðu- mæla af Laugavegi til þess að þóknast Strætisvögnum Reykja- víkur. Borgaryfirvöld verða að skilja, að Laugavegurinn er fjölfarnasta gönguleið á íslandi, jafnframt því að vera mesta verzlunargata landsins. Almenningur hefur því mikilla hagsmuna að gæta í þessu máli. Þá má auðvitað geta þess.að kaupmenn og aðrir sem reka at- vinnufyrirtæki við Laugaveg greiða mjög háa fasteignaskatta og vilja því fá þjónustu frá borg- inni í staðinn, sem meðal annars felst í því að sjá fyrir bílastæðum og stöðumælum við götuna. Kaupmannasamtökin hafa gert tímamælingar á ferðum SVR niður Laugaveg og sýna þær, að vagnarnir verða ekki almennt fyrir töfum vegna umferðar einka- bíla á Laugaveginum. Kaupmannasamtökin hafa bent á, að það þurfi aukna löggæzlu við Laugaveg til þess að liðka fyrir umferð og koma í veg fyrir ólög- legar bifreiðastöður. Annars er Laugavegsmálið einungis smá- hluti af umferðarvandamáli mið- borgarinnar og breytingar á um- ferðinni um Laugaveg er engin lausn á því vandamáli, en nú hafa yfirvöld stungið dúsu upp í hags- munaaðila með því að boða sam- keppni um skipulag „kvosarinnar" svokölluðu," sagði Magnús E. Finrtsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna að síð- ustu. Sfldarstofninn mældist 250 þúsund tonn: „Hrygningarstofn- inn verður 200 þúsund tonn í vor“ segir Jakob Jakobsson fiskifræðingur Brandenborgarkon- sertar í Gamla bíói Tónlist Jón Ásgeirsson Það var almenn skoðun að hvergi væri betri hljómburður í hérlendum tónleikasal en Gamla bíói. Þrátt fyrir þá staðreynd reyndist hljómleikahald erfitt, bæði vegna aðstæðna á sviðinu og að á bestu tímum til hljóm- leikahalds þurfti leigutaki oft að kaupa upp heila kvikmyndasýn- ingu. Nú hefur svo skipast vegna breytinga, að Gamla bíó er ákjósanlegt til hljómleika- halds og líklegt að í sambýli við uppfærslur á óperum verði hægt að halda þar að minnsta kosti kammertónleika og ein- leikstónleika. Ef smíðaður yrði útbúnaður til að loka hljóm- sveitargryfjunni og þannig stækka sviðið verulega, mætti halda tónleika með mjög fjöl- mennu liði flytjenda. Fjórir af sex Brandenborgarkonsertum Bachs voru fluttir af kamm- ersveit og átti Guðný Guð- mundsdóttir, konsertmeistari, hugmyndina að þessum tón- leikum og fékk til liðs við sig stjórnandann Gilbert Levine og hljóðfæraleikara, aðallega úr Sinfóníuhljómsveit íslands. Tónleikar þessir hafa nokkra sérstöðu, því þarna var verið að reyna Gamla bíó sem hljómleikahús eftir þær breyt- ingar sem íslenska óperan lét gera á húsinu. Óhætt er að fullyrða, að Gamla bíó er frá- bært hljómleikahús, þó rétt sé að reyna það enn frekar fyrir mismunandi tónlistarflutning, bæði söngtónlist og hljóðfæra- tónlist. Tónleikarnir hófust á 6. konsertinum, lágfiðlukon- sertinum. Hann er að mestu samleikur tveggja lágfiðla með örlitlum ígripum hjá gömbu og selló. Mark Reedman og Helga Þórarinsdóttir léku lágfiðlu- raddirnar og var margt fallega gert hjá þeim, þó heildarhlj- ómurinn væri nokkuð mattur. Annað viðfangsefnið var 5. konsertinn, en í honum er með fiðlusveitinni flauta, sóló-fiðla og einleikssembal (cembalo concertato). Seinni partur fyrsta þáttar er sembalsóló sem Helga Ingólfsdóttir lék mjög vel. I öðrum kaflanum léku Manuela Wiesler, Guðný Guðmundsdóttir og Helga Ing- ólfsdóttir þríleik, en þessi „afettuoso“-kafli er eitt af því fallegasta ritað af meistara Bach. Eftir hlé var leikinn 1. kon- sertinn og lauk tónleikunum með þeim fjórða. Fyrsti kon- sertinn er saminn fyrir strengi, tvö horn, þrjú óbó og fagott. Hornleikarar voru Jos- eph Ognibene og Jeanne Ham- ilton og var leikur þeirra mjög góður. í síðasta tríóinu leika hornin með óbóunum og til að finna að, hefðu hornin mátt vera aðeins sterkari. Adagio- kaflinn var nokkuð laus í sér og samleikur litlu fiðlunnar (violino piccolo) og óbósins ekki sannfærandi, þrátt fyrir góðan leik Kristjáns Stephen- sen. Fjórði konsertinn er einna vinsælastur Brandenborgar- konsertanna, en hann er sam- inn fyrir strengi, sólófiðlu og tvær flautur. Sólótríóið var í höndum Guðnýjar Guð- mundsdóttur, Manuelu Wiesl- er og Jóns Sigurbjörnssonar og var samspilið milli Manuelu og Jóns víða mjög fallegt. Mest mæddi þó á Guðnýju, sem lék á köflum frábærlega vel. í heild voru tónleikarnir góðir og haldnir á réttum tíma, enda var aðsóknin óvenjugóð. Auk þeirra sem fyrr hafa verið nefndir, léku Auður Haralds- dóttir, Gréta Guðnadóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Stephen King, Carmell Russill, Isidor Weiser, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og Jennifer King á strengi, og Janet Wareing, Daði Kolbeinsson og Haf- steinn Guðmundsson á blást- urshljóðfæri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.