Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982 50 ára afmæli FÍH: Hátíðarhöld í heila viku með lifandi tónlist um alla borg Félag íslcnskra hljómlistarmanna verður fimmtíu ára 28. febrúar nk. og í tilefni þessara tímamóta verður efnt til veglegrar afmælishátíðar, sem standa mun yfir í heila viku. l»ar verður rifjuð upp saga félagsins í máli og myndum og lifandi hljóðfæraleik undir kjörorðinu „lifandi tónlist um alla borg“ á hverjum degi, frá mánudeginum 22. febrúar og fram á sunnudaginn 28. febrúar. Verður eitthvað um að vera í borginni þessa daga, sem minnir á starf íslenskra hljómlistarmanna í hálfa öld. Að sögn Birgis Gunnlaugsson- ar, formanns hátíðarnefndar, hófst undirbúningur hátíðarinn- ar í október sl., en hin stórhuga hugmynd að svo veglegum hátíð- arhöldum hefði þó verið að brjótast um í mönnum í heilt ár. Dagskráin er nú að mestu full- mótuð og þar muni leggja hönd á plóginn stór hluti allra félags- manna, sem enn geta tekið lagið. Birgir sagði að sjónvarpið myndi taka upp alla dagskrána til varð- veislu og yrði þar um að ræða ómetanlega heimildarmynd um íslenskt tónlistarlíf síðustu fimmtíu árin. Á hátíðinni verður gamla kaffihúsatónlistin endurvakin þar sem leikið verður á Borginni þriðjudag, miðvikudag og fimmtudagogá Esjubergi föstu- dag, laugardag og sunnudag, en tónlistin verður flutt á þessum stöðum um eftirmiðdaginn. Þá verða tónleikar á Broadway frá mánudagskvöldi fram á föstu- dagskvöld, þar sem rifjuð verður upp þróun dægurlagatónlistar- innar. Á mánudagskvöld verður þróunin síðustu tíu ár rakin, á þriðjudagskvöld Bítlatímabilið þar sem Hljómar frá Keflavík munu m.a. koma fram í hinni upprunalegu mynd. Á miðviku- dagskvöld verður rennt í gegnum dægurlagatónlistina frá 1952—1968 þar sem fram koma flestir þeirra sem gerðu garðinn frægan á því tímabili og á fimmtudagskvöld tímabilið 1942—1952. Fyrstu tíu árin í sögu félagsins verða svo rakin á tónleikum í Broadway á föstu- dagskvöldið. Auk þess sem hér hefur verið nefnt, mun verða efnt til útitón- leika á Lækjartorgi á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag, þar sem leikin verð- ur hornatónlist, pönk og jass. Auk þess verða jasstónleikar á Sögu, mánudags-, þriðjudags- og miðvikudagskvöld. Hátíðartónleikar verða í Há- skólabíói á laugardag þar sem sinfóníuhljómsveitin og tveir karlakórar koma fram undir stjórn Páls P. Pálssonar, en sin- fóníuhljómsveitin verður auk þess með tónleika í Háskólabíói á fimmtudagskvöld þar sem frumflutt verður nýtt íslenskt tónverk. Af öðru sem bryddað verður upp á í tilefni afmælisins má nefna að 168 félagsmenn í FÍH munu heimsækja allar sjúkra- stofnanir á höfuðborgarsvæðinu og skemmta með söng og hljóð- færaslætti og auk þess verður skemmtun fyrir lamaða og fatl- aða í sal Öryrkjabandalagsins á laugardaginn 27. febrúar. Þá verður hátíðardagskrá í útvarp- inu á sunnudaginn. Björn R. Einarsson mun ekki láta sitt eftir liggja á hátíðinni, en hann mun stjórna 19 manna hljómsveit og auk þess koma fram með hina þekktu Borgarhljómsveit sína frá sjötta áratugnum. Til að auðvelda utanbæjar- mönnum að sækja hátíðina hef- ur verið samið við innanlands- deild Flugleiða um sérstakar pakkaferðir á hátíðina, en miðar verða seldir fyrirfram í húsa- kynnum FIH að Laufásvegi 40 og hjá innanlandsdeild Flug- leiða, og hefst miðasala 15. febrúar. Auk Birgis Gunnlaugssonar skipa hátíðarnefndina Ragnar Bjarnason, Grettir Björnsson, Helga Hauksdóttir og Gunnar Egilson. Formaður FÍH er Sverrir Garðarsson. Hljómar frá Keflavík verða í hópi þeirra hljómsveita sem koma fram á Broadway. Fyrstu nemendur úr framhaldsnámi Bankamannaskólans útskrifaðir KYKSTI nemendur úr framhalds- námi bankanna, sem er ný braut innan Bankamannaskólans, voru út- skrifaðir við hátíðlega athöfn í hús- næði Útvegsbankans þann 14. janú- ar síðastliðinn. Að sögn skólastjórans, Þorsteins Magnússonar, voru það 10 nemend- ur sem útskrifuðust að þessu sinni. Ilér er um tveggja vetra nám að ræða og kennt á hverjum degi 2—4 FRAMBOf) peninga var afar mikið á nýliðnu ári, fyrst og fremst vegna óvcnjumikilla erlendra lána og aukins peningalegs sparnaðar. Setti þetta svip sinn á ýmsar meginstærðir, svo sem aukningu grunnfjár um 91%, út- lána innlánsstofnana um 71% og pen- ingamagns og sparifjár um 73%. Þess- ar upplýsingar er að finna í llagtölum mánaðarins, riti hagdeildar Seðla- banka íslands fyrir janúarmánuð. — Að nokkru leyti eru þessar töl- ur áætlaðar, þar sem upplýsingar um inn- og útlán ná aðeins til nóv- emberloka. Hins vegar liggja þegar fyrir haldgóðar upplýsingar um ýmsa liði úr reikningum Seðlabank- ans um áramótin, þar á meðal lausafjárstöðuna hjá innlánsstofn- unum, en þróun hennar var með óvenjulegum hætti á árinu. Framvinda peningamála var að ýmsu leyti hagstæð framan af ári. Innlánamyndun varð mikil, gjald- eyrisstaða bankanna fór batnandi og lausafjárstaðan einnig. Sér- stakri sveigjanlegri bindiskyldu innlánsfjár var komið á í júní til að koma í veg fyrir óhóflega útlána- klukkustundir á dag í vinnutíma nemendanna. Eftirtaldar námsgreinar eru kenndar í framhaldsnáminu: bankahagfræði, bankalögfræði, bankabókhald, bankarekstur, bankaenska svo og tölvufræði, skipulagsfræði og viðskiptafræði. Þeir nemendur sem útskrifuðust nú í fyrsta sinn úr framhaldsnám- inu stunduðu nám sitt eftir venju- aukningu innlánsstofnana og varð- veita þann árangur, sem náðst hafði varðandi lausafjárstöðu. Yfir sumarmánuðina var lausa- fjárstaðan hagstæðari en gengur og gcrist á þeim árstíma, t.d. var hún í ágústlok 324 milljón krónum betri en ári fyrr. Næstu þrjá mánuði tóku útlán hins vegar að aukast örar en þau höfðu gert og fór vöxtur þeirra þá langt fram úr aukningu innlána. Þróun lausafjárstöðu snerist því mjög til hins verra og olli erfiðleik- um hjá mörgum innlánsstofnunum. Í lok nóvember var lausafjárstaðan í heiid 153 milljónir króna, eða að- eins 70 milljón krónum hærri en ári fyrr. I árslok var hún orðin 274 milijónir króna, sem er 45 milljón- um króna lægra en í upphafi ársins. Sem hlutfall af heildarinnlánum var hún um 8% í upphafi ársins, en um 4% í árslók að því er ætia mátti. Hlutfallið er mun lægra en svo, að innlánsstofnanir geti mætt algeng- um sveiflum á peningarmarkaðin- um án þess að taka yfirdráttarlán hjá Seðlabankanum á háum vöxt- um. Hlýtur því að draga mjög úr útlánagetunni um sinn. legu bekkjaskipulagi en í framtíð- inni verður tekið upp svokallað einingakerfi, þannig að nemendur geta tekið fyrir ákveðin fög án þess að Ijúka náminu í heild sinni. I framhaldsnámi eru nú milli 40—50 bankamenn. Það eru bankarnir sjálfir, sem ákveða hvaða nemendur fari í þetta nám og yfirleitt er hér um að ræða reynda, eldri starfsmenn með staðgóða undirstöðumenntun að sögn Þorsteins Magnússonar skólastjóra. Sagði Þorsteinn ennfremur, að með þessu námi væri verið að und- irbúa bankastarfsmenn gagngert til að taka við ábyrgðarstöðum og væri námið því fræðilegra en námskeið, sem haldin eru fyrir nýliða i Bankamannaskólanum. Við athöfnina afhenti skóla- stjórinn prófskírteini og þeir sem efstir urðu hlutu viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Helga Jónsdóttir starfsmaður Lands- bankans hlaut hæstu einkunn eða 8,67, sem eru 219 stig af 250 mögu- legum stigum. Annar varð Egill Sveinsson einnig starfsmaður í Landsbankanum, en hann hlaut einkunnina 8,44 og þriðji í röðinni varð Ingigerður Einarsdóttir starfsmaður í Útvegsbankanum, hlaut hún einkunnina 8,40. Skólastjórinn Þorsteinn Magn- ússon hélt því næst ræðu, þar sem hann rakti aðdraganda og eðli hins nýja framhaldsnáms og um leið þakkaði hann nemendum sín- um góða viðkynningu og atorku- semi í námi. Fleiri tóku til máls en það voru þeir Benedikt Guðbjartsson for- maður skólanefndar Banka- mannaskólans, Albert Guðmunds- son, formaður bankaráðs Útvegs- banka íslands, Lúðvík Jósefsson, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands. Þá afhenti Hannes Páls- son skólanefndarmaður Banka- mannaskólans Gunnari Blöndal fyrsta skólastjóra Bankamanna- skólans bók í tilefni af sextugs- afmæli hans, en Gunnar var skólastjóri á árunum 1959—1979 eða í tæpan aldarfjórðung. Mjög dregur úr útlánagetu innlánsstofnana: Geta ekki mætt al- gengum sveiflum á peningamarkaði - nema því aðeins að taka yfirdráttar- lán hjá Seðlabanka á háum vöxtum Hinir nýútskrifuðu nemendur ásamt skólastjóra. Efri röð frá vinstri: Kjartan Ingvarsson, Jens V. Oskarsson, Indriði Jóhannsson, Róbert Þórðarson, Þórarinn Þorbjörnsson, Egill Sveinsson, Gunnar H. Helgason. Neðri röð frá vinstri: Helga Jónsdóttir, Þorsteinn Magnússon, skólastjóri, Jóna T. Viðarsdóttir og Ingigerður Einarsdóttir. Benedikt Guðbjartsson, formaður skólanefndar Bankamannaskólans heldur ræðu. Sitjandi frá vinstri eru Adolf Björnsson, félagsmálafulltrúi Útvegsbankans, Albert Guðmundsson, formaður bankaráðs Útvegsbanka íslands, og Lúðvík Jósepsson, formaður bankaráðs Landsbanka íslands. Hannes Pálsson, skólanefndarmaður Bankamannaskólans, afhendir Gunnari Blöndal fyrsta skólastjóra Bankamannaskólans bók í tilefni sextugsafmælis hans. Ljósm. ÖI.K. Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.