Morgunblaðið - 19.01.1982, Side 15

Morgunblaðið - 19.01.1982, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982 ------------------------------ !.•; í.ii i . - vinar, ráðskonu, eða, eins og oftast er, venslamanns. Stundum skiptir stór systkinahópur með sér verk- um um að annast fatlaða móður eða veikan föður. En alltaf er sú hætta á ferðum að kerfið bregðist, venslamaður veikist eða fjölskyld- una þrýtur úthald við þessa linnu- lausu umönnun og kiknar undan þessu álagi. Oft er það að fatlaðir neyðast til að yfirgefa heimili sín langtímum saman, eða fyrir fullt og allt, vegna þess að einhver nákominn sem annaðist um þá, þoldi ekki áreynsluna og brást. Aðstoð, í eina til tvær stundir á dag, þegar sá fatlaði þarfnast hennar, getur gert gæfumuninn. Það kann að hljóma einkennilega á dögum hverfishjúkrunarkvenna, félags- ráðgjafa, iðjuþjálfa, heimilisað- stoðar, heimsendra máltíða skuli enn vera ófyllt skarð í heilbrigð- iskerfinu. En samt er það stað- reynd. Vel þjálfaður, traustur sjúkraliði (care attendant) grípur ekki inn í, heldur fyllir upp í skörð í ofangreindri þjónustu og getur ráðið úrslitum um það hvort hinn fatlaði fær að dvelja áfram á heimili sínu. Gagnvegaþjónustan hefur sann- að hæfni sína í því að útvega sjúkraliða handa fötluðum. Sveigjanleiki er helsta einkenni þjónustunnar. Allir aldursflokkar geta notið umönnunar til langs eða skamms tíma og á þeim tíma dags sem best hentar. Verulegur hluti þjónustunnar fer fram fyrir kl. 9 á morgnana og eftir kl. 5 síðdegis, skv. fastri áætlun — á tímum dags þegar oftlega er ekki völ á annarri umönnun. A allra síðustu vikum hefur margoft komið í ljós að Gagnvega- þjónusta hefur ráðið úrslitum. Dæmi: 1. Félagsráðgjafi hafði heyrt um störf undirbúningsnefndar að Gagnvegum og spurðist fyrir um hvort starfsemin kæmi brátt til framkvæmda. Hann hafði starfað með fjölskyldu þar sem dóttir fer- tug að aldri þjáðist af flogaveiki. Vitað var að móðirin þurfti á sjúkrahús stuttan tíma í senn á næstu árum og faðirinn gæti ekki sinnt dótturinni sökum hjarta- kvilla. Félagsráðgjafinn hefur árangurslaust reynt að útvega heimahjúkrun fyrir dótturina og er í nánum tengslum við fjölskyld- una. Gagnvegir hefðu getað skipu- lagt nauðsynlega aðstoð við fjöl- skylduna eftir þörfum og þannig gert dótturinni kleift að dvelja áfram á heimili sínu. 2. Daginn sem frú Pat Osborne, formaður Landssambands Gagn- vega, ávarpaði undirbúnings- nefndina var maður nokkur lagður inn á slysadeild héraðssjúkra- hússins í Peterborough. Hann kvaðst hafa miklar og þungar áhyggjur af fatlaðri konu sinni heima. Málið var rætt fram og aft- ur og niðurstaðan varð sú að eina ráðið væri að útvega spítalapláss fyrir konuna þar til maðurinn gæti aftur sinnt henni heima þeg- ar hann hefði náð bata. Gagnvegir hefðu getað leyst þennan vanda og konan hefði ekki þurft að fara að heiman. Upphaf Gagnvega var þannig að sjónvarpsþátturinn „Crossroads" studdi með fjárframlögum til- raunastarfsemi í Rugby-borg. Raunin varð sú að heilbrigðisyf- irvöld héraðsins veittu starfsem- inni stuðning og nú eru starfandi 16 Gagnvegastöðvar, sem stjórnað er frá aðalskrifstofu sem einnig miðlar upplýsingum og reynslu. Allar stöðvar heyra undir Lands- samtök Gagnvega sem er skráð góðgerðastofnun með eftirtalin markmið: 1. að þjálfa og útvega sjúkraliða. (a) til að létta undir með fjöl- skyldum og styðja við hinn fatl- aða. (b) til að draga úr þörf fyrir spitaladvöl fyrir fatlaða þegar erfiðleikar koma upp í fjöl- skyldunni. 2. að styrkja og auka, en koma ekki í staðinn fyrir, þá hjúkrun- arstarfsemi sem fyrir er, og hafa náið samstarf við aðrar stofnanir. 3. að veita örugga og vandaða þjónustu. Cagnvegir í Peterborough Sumarið 1978 heyrði meðlimur í samtökum fatlaðra í Peterbor- ough um Gagnvegi og skýrði félög- um sínum frá því. Málið var rætt ítarlega á mörgum fundum og úr varð að 22 félög tengd samtökum fatlaðra auk heilbrigðis- og fé- lagsmálastofnunar lýstu yfir ein- huga stuðningi við Gagnvega- starfsemina. Snemma árs 1979 var skipuð undirbúningsnefnd með að- ild fulltrúa frá Heilbrigðis- og fé- lagsmálastofnun, auk einkafélaga, til að vinna að stofnun slíkrar starfsemi í Peterborough. Nefndin miðar tillögur sínar við Peterbor- ough-svæðið, sem telur um 117.000 íbúa. 1‘örfin fyrir (.agnvegi í Peterborough Nefndin bjóst ekki við að geta metið þann fjölda venslamanna lamaðs fólks sem býr við streitu. Því var reynt að gera sér grein fyrir því hve margt fatlað fólk byggi á svæðinu. Við athugun kom í ljós að 218 sjúklingar voru skráð- ir til meðferðar, sumir þeirra höfðu verið fatlaðir um skamman tíma þegar könnunin var gerð. Samtök MS-(Multiple Scleros- is)sjúklinga í Peterborough telur 65 meðlimi á svæðinu. Þessir með- limir. eru haldnir hinum ólækn- andi sjúkdómi á ýmsum stigum og allir munu þeir þurfa á umönnun að halda nú þegar eða seinna. Gagnvegir telja líklegt að 70% MS-sjúklinga gangi í samtökin. Samkvæmt því er áætlað að um 95 manns séu haldnir sjúkdómnum. Skv. opinberum skýrslum munu um 625 manns á svæðinu vera háðir stöðugri umönnun vensla- manna og vina. Undirbúningsnefndin gerði könnun á úrtaki læknaskýrslna yfir 8500 sjúklinga. Þar kom fram að í 20 tilfellum var um alvarlega streitu að ræða meðal vensla- manna sem önnuðust fatlaða á heimili. í allmörgum tilfellum var um bráða andlega ofþreytu að ræða. Með viðmiðun af þessu má ganga út frá að á svæðinu séu 275 fjölskyldur í brýnni þörf fyrir að- stoð Gagnvega. Niðurstöður þessara kannana voru mörgum undrunarefni sem starfa að hjúkrunar- og heilbrigð- ismálum. Kom það þeim mjög á óvart hversu margt fatlað fólk er á svæðinu. Því miður vantar við- líka kannanir hérlendis og verð ég því að byggja á hinum erlendu niðurstöðum. Tillögur um (>agnvegaþjónustu Undirbúningsnefndin byggir til- lögur sínar á fyrirmyndum í öðr- um landshlutum og hefur leitað ráða hjá forstjóra landsamtak- anna. I hópnum er framkvæmda- stjóri, sem starfar 20 stundir á viku við daglega stjórnun, og sjúkraliðar sem hafa breytilegan vinnutíma eftir því sem þörf kref- ur. Framkvæmdanefnd hefur um- sjón með starfinu í heild og í henni eiga sæti fulltrúar frá heil- brigðis- og félagsmálastofnunum auk sjálfboðafélagssamtaka. Gagnvega hópurinn er því óháður opinberum stofnunum en hefur náið samstarf við þær. Þetta fyrir- komulag hefur reynst mjög vel annars staðar í landinu einka- nlega vegna þess að þá er heimilt, að fjárhagsstuðning og aðra að- stoð megi þiggja frá hvaða aðilja sem er. Reynslan sýnir að þegar Gagn- vegaþjónustu hefur verið komið á fót berst fjárhagsaðstoð frá góð- gerðastofnunum og ýmsum einka- félögum. Starfshópurinn þarf á skrifstofu að halda til bréfaskrifta og gagnavörslu. En það skal fram tekið að allar Gagnvegastofnanir hafa afar lágan stjórnunarkostn- að og mikill meirihluti fjármagns rennur beint til starfseminnar, þ.e. aðhlynningar. Þetta er að hluta að þakka eðli starfshópsins og hinni miklu góðvild sem jafnt opinberar sem einkastofnanir hafa alltaf auðsýnt samtökunum. Lagt er til að tilnefndur verði framkvæmdastjóri og valdir 6 sjúkraliðar eins fljótt og auðið er og er ætlast til að þeir starfi að jafnaði 15 stundir á viku. Ekki verður þörf á að ráða starfslið til skrifstofuvinnu þar sem hæfur maður úr hópi fatlaðra hefur boðist til að starfa að launa- greiðslum og sjá um skrifstofu- störf í sjálfboðavinnu. Vitað er um aðra sem boðist hafa til að annast þessi störf á sama grundvelli. Kostnaðaráætlun er að finna í viðauka 1. Það er með ásetningi að miðað er við kostnaðarliði í sterl- ingspundum vegna óstöðugleika í gengisskráningu okkar. Eftirlit Enda þótt leynd skuli hvíla yfir persónulegum högum skal þó veita heilbrigðisstofnunum og félags- málastofnunum tölulegar upplýs- ingar ef óskað er. I hverjum mánuði verða gerðir upp reikningar og sendir forstjóra landsamtakanna til endurskoðun- ar. Niðurstaða Ljóst er að mikill fjöldi fatlaðra er á svæðinu og í mörgum tilvik- um búa fjölskyldur þeirra við mikla streitu vegna stöðugrar um- önnunar sem þær veita. Þótt fatl- aðir njóti margvíslegrar aðstoðar frá hinum ýmsu stofnunum eru samt gloppur í þjónustunni t.d. skortir nokkuð á að hægt sé að veita aðhlynningu á öllum tímum dags. Gagnvegir auka þjónustuna og gera hana fjölbreyttari og sveigjanlegri. Þjónusta Gagnvega dregur einnig úr ásókn í rými á stofnunum og spítölum. Einkan- lega minnkar ásókn í elliheimili. Skýrslur Gagnvega sýna að 51% starfsins er helgað fólki sem kom- ið er yfir 65 ára aldur. Þetta er athyglisvert þar sem fjöldi þeirra sem komast yfir áttræðisaldurinn eykst afar hratt. Gagnvegir nýta til fullnustu sjálfboðavinnu. Þannig starfa samtökin með afar lágum stjórn- unarkostnaði. Kostnaðarliðir í viðauka 1 munu sennilega lækka eftir því sem kerfið þróast. Samtökin veita mjög brýna þjónustu með tiltölu- lega litlum tilkostnaði. Hingað til hefi ég aðeins fjallað um þátt Gagnvega, en hinn þáttur- inn, er ég gat um í inngangi mín- um og eðli málsins vegna, hlýtur að skarast við ár fatlaðra og er í reynd í verksviði Gagnvega. Þar á ég við ár aldraðra, sem nú er í garð gengið. Vandamál tengd við- fangsefnum aldraðra hérlendis hljóta að fara ört vaxandi með til- liti til ört hækkandi lífaldurs okkar Islendinga, sem mun vera með þeim hæsta í heimi þar sem íslenskir karlmenn ná nú að með- altali 74 ára aldri og konur yfir 80 ára meðalaldri. Málefni fatlaðra og aldraðra hljóta að skarast að meira eða minna leyti í ýmsum þáttum. Þar vil ég nefna sameiginlega þörf fyrir viðltka húsnæði og á ég þar við húsnæði utan stofnana eða vistheimila. Þar sem bæði hinum fatlaða og aldna er gert auðvelt að komast út og inn ásamt með bún- aði innanhúss og utan með marg- víslegum hætti hæfir jafnt ungum sem öldnum. Þetta kalla Bretar Hospital at Home og ég hefi leyft mér að kalla hjúkrun á heimili. Ég mun í næstu grein minni fja.lla um með hvaða hætti þau mál standa í áðurnefnd- um nágrannalöndum okkar og vænti að fá rúm í blaðinu til að gera þeim málum skil. Að lokum vil ég árétta og leggja ríka áherslu á að ég er ekki á nokkurn hátt að kasta rýrð á marga þá ágætu þætti er hér á Islandi hafa verið gerðir fötluðum og öldnum til aðstoðar, sem mest- megnis hafa miðað að stofnunum, elliheimilum og sjúkrahúsum, sem í svo mörgum tilfellum eru alveg óhjákvæmileg lausn. En ef við eigum hér lausn, þar sem báðir aðilar geta notið tilveru og lífdaga í hinu venjulega bland- aða samfélagi, þá ber okkur að stefna á þá leið. Sigfús J. Johnsen Hjólastóllinn hafður með í bflnum. Viðauki 1 Kostnaðaráætlun fyrir Gagnvegi Allar áætlanir eru byggðar á verðlagi í sept. 1979. Stofnkostnaður Skrifstofubúnaður og vélar (keypt notað, ef hægt er) 1 skrifborð 1 borð 1 skjalaskápur 1 skrifstofustóll 6 venjul. stólar 1 sími 1 ritvél Ýmislegt Kostnaður alls Rekstrarkostnaður Skrifstofukostn. Húsaleiga Bréfsefni, burðargj. o.fl. Símakostn. Ræsting Hiti og ljós Tryggingarkostn. Skrifstofukostn. 35 15 25 15 41 50 100 15 296 (sjá aths. 1) Fyrsta ár Allt árið £ 900 £ 900 £ 100 £ 100 (aths. 2) £ 200 $ 250 £ 125 £ 150 £ 70 £ 80 £ 20 £ 20 £ 1500 (sjá aths. 1) £ 1415 Aths. 1. Hér er gert ráð fyrir að skrifstofa sé tekin á leigu og búnaður keyptur sem að ofan greinir. Ekki er gert ráð fyrir stuðningi opinberra stofnana. Aths. 2. Hér er reiknað með stuðningi frá öðrum en heilbrigðis- og félagsmálastofnunum. Rekstrarkostnaður (frh.) I.aunakoslnaður (sjá Framk væmdastj óri Sjúkraliðar Kostn. v/starfsliðs Kostn. alls aths. 3) Fyrsta ár Allt árið Laun £ 2750 £ 2750 bílakostn. £ 500 £ 500 laun £ 4875 £ 6500 bílakostn. (4) £ 100 £ 100 vinnuföt £ 100 £ 100 £ 9725 £ 11850 £ 11140 £ 13350 Aths. 3. Miðað er við laun í Bretlandi 1979/’80. Aths. 4. Reiknað er með að það taki þrjá mánuði að þjálfa starfsfólk til hinna ýmsu starfa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.