Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982 27 Opinberri heimsókn ungverska utanríkisráðherrans lokið OPINBERRI heimsókn utanríkis- ráðherra Ungverjalands, Frigyes l‘uja, og konu hans, sem hófst síð- astlióinn fostudag lauk i sunnu daginn. Utanríkisráðherrann átti við- ræður við Ólaf Jóhannesson utanríkisráðherra or skiptust þeir á skoðunum en ekki var greint frá því sem þeim fór á milli. Einnig ræddi ráðherrann við Gunnar Thoroddsen forsæt- isráðherra og heimsótti forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, að Bessastöðum. Ungverski ráðherrann og frú hans skoðuðu söfn og mannvirki hér á landi. Meðal annars var þeim boðið í miðdegisverð á vegum Reykja- víkurborgar, sem snæddur var í Höfða, og er meðfylgjandi mynd tekin þar fyrir utan. A myndinni má meðal annars sjá ungverska utanríkisráðherrann, Frigyes Pyja, og Ólaf Jóhannesson utan- ríkisráðherra. Kennarar vilja tryggingu vegna slysa í starfi „SI.ASIST kennari eða starfsmaður skóla vid skóla sinn eða verði fyrir líkamsárás, skulu greiddar fullar bætur vegna meiðsla eða þjáninga sem hann verður fyrir af þeim sök- um.“ Svo hljóðar m.a. krafa Kenn arasambands íslands, sem þeir hafa reynt á undanförnum árum að koma inn í aðalkjarasamning BSRB og fjár málaráðuneytisins, með litlum árangri þó. Að sögn Valgeirs Gestssonar, formanns Kennarasambands ís- lands, er varla hægt að tala um árásir á kennara sem sérstakt vandamál hér á íslandi. Þó hefur það komið fyrir en þá áttu í hlut utanaðkomandi krakkar, eða krakkar sem ekki voru í viðkom- andi skóla. Skeði það á skóladans- leik þar sem krakkarnir vildu kom- ast inn, en var neitað um aðgang. Þá kom í ljós að ef kennari verður fyrir slysi í starfi, er hann ekki IryRtíður fyrir því. Kennarar hafa eins og aðrir rík- isstarfsmenn tryggingu sem tekur til dauða eða varanlegrar örorku, en að sögn Valgeirs orkar það nokkuð tvímælis með slys á vinnu- stað hvort að sá sem valdi sé skaða- bótaskyldur, eða þá ríkið. Það hef- ur aldrei verið dæmt í slíku máli og finnst því ekkert fordæmi fyrir því. Ríkisstarfsmenn hafa farið fram á mun tryggari slysabætur og hefur verið í kröfugerð BSRB ósk um verulegar bætur á tryggingakafla allsherjarsamningsins. Segir Val- geir að mikið vanti upp á að t.d. kennarar séu vel tryggðir í starfi. Aðspurður um hvort það færi vaxandi hér á íslandi að nemendur réðust á kennara sína sagðist Valg- eir ekki hafa neinar tölur um slíkt, en endurtók að slíkar árásir væru svo fáar að þær teldusl ekki vanda- mál hér á landi. Leirinn notað- ur óblandaður VEGNA frétta, í Mbl. síðast í desetn- ber um leirvinnslu í Búðardal hafði Kolbrún Björgólfsdóttir samband við Mbl. og bað um eftirfarandi til árétt- ingar: Vegna ummæla í blöðum um að mér hafi ekki verið kunnugt um að hlutir hafi ekki verið unnir úr ís- lenskum leir vil ég taka fram að ég veit um framtak Guðmundar Ein- arssonar frá Miðdal, en þar var um blandaðan leir að ræða. Við vinnslu leirmuna hjá Dalaleir er einungis notaður óblandaður leir og verður fróðlegt ef hægt verður að nota ís- lenska leirinn óblandaðan til vinnslu, en þannig hefur hann ekki verið notaður áður. Akureyri: Kostnaður við snjómokst- ur ’81 um 2 milljónir króna KOírTNAÐIJR við snjómokstur á Akureyri árið 1981 var kominn upp í tvær milljónir króna um áramót, en á fjárhagsáætlun Akurcyrarbæjar var kostnaðurinn við snjómokstur ’8I áætlaður 650.000 krónur. Ilefur kostnaðurinn því rúmlega þrefaldast miðað við hvað hann var áætlaður í fyrstu. Að sögn Helga Bergs bæjar- stjóra á Akureyri hefur snjóað meira í bænum en dæmi eru til undanfarin ár og var það síðast 1975 sem snjóaði eitthvað í líkingu við það sem af er þessum vetri. Tekist hefur að halda flestum göt- um bæjarins slarkfærum. Bærinn hefur yfir að ráða að jafnaði tveimur ámoksturstækjum og tveimur heflum, en snjómokstur- inn hefur verið drýgri en ella því ekki hefur einungis verið mokað þegar snjóað hefur heldur einnig þegar hlánar aftur. Sagði Helgi að snjómoksturinn færi ekki svo illa með fjárhag bæj- arins en blóðugast við kostnaðinn væri að þegar bæjarfélög væru að berjast við að halda sínum götum Nafn manns- ins sem lést Maðurinn sem lést í bruna í Hafnarfirði á fimmtudag, hét Þor- steinn Jónsson. Hann var 55 ára gamall, fæddur 1.12. 1926. opnum, þá hagnaðist ríkið mest á því. Þannig fengi ríkið, sagði Helgi, sennilega álíka mikið i sölu- skatt af snjómokstrinum og Akur- eyrarbær áætlaði að færi í snjó- moksturinn ’81, eða 650.000 krón- ur. „Það væri óneitanlega skemmti- legra að sjá þessa peninga fara í eitthvað skemmtilegra en snjó- moksturinn," sagði Helgi Bergs bæjarstjóri á Akureyri að lokum. Akureyri: 60 gráðu heitt vatn á Glerár- dalssvæðinu llitavcita Akurcyrar hcfur að und- anfornu vcrið að vinna við boranir eftir hcitu vatni í Glerárdal rétt fyrir ofan Akureyri. Boraðar hafa verið fjórar tilraunaholur f allt, til að at- huga með orku svæðisins og fundist hafa á því 15 til 20 sekúndulítrar al um 60 gráðu heitu vatni. í samtali við Mbl. sagði Helgi Bergs bæjarstjóri á Akureyri að hann byggist við að Glerárdals- svæðið yrði virkjað í framtíðinni og að vatn þaðan yrði farið að hita upp hús á Akureyri að áliðnum mars. r NUEfí ÞAÐKOM/Ð tækifæriö sem þú beiöst eftir. Við bjóöum þér Bedford körfubíl, árg. '70/71 — ný-sþrautaðan og ný-upggeröan — fyrir 102.350 kr. Jú, þú last rétt. Hann kostar aðeins 102.350 kall m/söluskatti! Þar meö er sagan þó ekki öll sögö. Viö bjóöum þér nefnilega einstaklega góða greiösluskilmála: 33% útborgun (33.775 kr.) og eftirstööarnar á 12 mánuöum. Körfuútbúnaðurinn heitir Simon 28. Hann lyftir 170 kg allt upp i 8,5 metra vinnuhæð PRLmn/on & vnuyon u* Klapparstlg 16 - Slmi 91-277*5 Útsala* útsala hjá verksmiöju* Útsala Kvenbuxur — Pils — Blússur — Karlmanna- og barnabuxur o.fl. o.fl. Opiö 9—18. Geriö góö kaup. Verksm.salan Skeifan 13, suðurdyr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.