Morgunblaðið - 19.01.1982, Qupperneq 26
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982
Blómlegt starf hjá
U mgmennasambandi
V-Skaftafellssýslu
Komið á árshátíð USVS f Vfk f Mýrdal
f>ær sáu um veizlumatinn í eldhúsinu.
(jiuðni Kinarsson.
Vígfimt lið í spurningakeppni milli félaga.
Halló ...
Grein: Árni Johnsen
Myndir: Ragnar Axelsson
Ungmennasamband
VesturSkaftafellssýslu
hélt fyrir skömmu árs-
hátíð sína með miklu
fjölmenni á hátíðarsam-
komu í Vík í Mýrdal.
Formaður Ungmenna-
sambands USVS, Guðni
Einarsson, setti hátíðina
og rakti nokkuð starf
sambandsins á árinu.
Síðan fóru fram
skemmtiatriði meðan
snætt var og að loknu
borðhaldi var stiginn
dans af miklum þrótti
fram á rauða nótt.
I byrjun þessa árs lagði
Ungmennasambandið kapp
á að undirbúa og skipu-
leggja þátttöku í landsmóti
UMFÍ. Sá undirbúnings-
nefndin einnig um að afla
fjár til að standa straum af
kostnaði vegna þátttökunn-
ar. M.a. dvaldi 20 manna
hópur í viku í æfingabúðum
á Laugarvatni undir stjórn
Vigfúsar Helgasonar
íþróttakennara og árangur
af miklum undirbúningi lét
ekki á sér standa því liðlega
20 manna galvaskt lið mætti
á Landsmótið og stóð sig
með prýði.
Þá var einnig mikið um að
vera innan sýslunnar. Tveir
íþróttaþjálfarar störfuðu á
sambandssvæðinu sl. sumar
og unglinga- og héraðsmót
voru haldin, keppt var í
knattspyrnu á Suðurlands-
móti og einnig má nefna af
ýmsu sem framkvæmt var;
kaup á 100 ferm. samkomu-
tjaldi, prentun stórra burð-
arfána og fána á borð.
Fjölbreytt starfsemi
ungmennafélagshreyfingar-
innar kostar mikið starf og
mikið fjármagn, en stór
hópur fólks hefur verið til-
búinn til þess að leggja á sig
mikla vinnu til framgangs
starfi hreyfingarinnar, en á
meðan íþrótta- og ung-
mennafélagshreyfingin nýt-
ur ekki meiri stuðnings og
viðurkenningar af opinberri
hálfu er ekki að vænta
árangurs í þessu mikilvæga
starfi nema með elju og
fórnfýsi margra félaga, en
allt slíkt íþróttastarf er
mikilvægt mannlífi í byggð-
um landsins, þótt margir
vildu gjarnan hafa meiri
tíma í almennt félagsstarf.
Hátíðin hófst með sameiginlegu borðhaldi.