Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982 33 jNcHfJIorkðhnesi Meirihluti íbúa Formósu and- vígir sameiningu við Kína FLESTIR íbúa Formósu hæðast ad heitstrengingum stjórnar sinnar um aó endurheimta „meginlandið", og einnig eru þeir lítt hrifnir af hug- myndinni um sameiningu Kína og Formósu, eins og valdamenn í Peking hafa farið fram á að undanfornu. Jafnt stjórnarsinnar sem stjórnarandstæðingar á Formósu sýna lítinn áhuga á tillögum Peking-stjórnarinnar að Formósa verði kínverskt hérað, með eigin her og kapitalískt hagkerfi, svo og ýmis réttindi önnur sem kínverskir þegnar njóta ekki. íbúar Formósu, jafnt þeir sem flýðu frá meginlandinu 1949 og þeir sem þar bjuggu fyrir, eru lítt hrifnir af því að lúta stjórn kommúnista í Peking. Og fjölmargir menntamenn hafa látið í ljós þann ótta að undanförnu að núverandi stjórn Formósu kunni að gera ein- hverja samninga við Peking, s'em skerða mun frelsi innfæddra, sem eru miklu fleiri en flótta- mennirnir frá 1949 er stutt hafa Kuomintang-stjórnina. Hermt er að í röðum flótta- mannanna fyrrverandi sé þó eitthvað fylgi við sameiningu við Formósu og Kína, enda eiga þeir flestir ættingja og vini á megin- landinu. Innfæddir eru því hins vegar algjörlega mótfallnir, enda hafa þeir ekki þurft að lúta stjórn annarra frá því 1895 er Formósa var nýlenda Japana. Óttast hefur verið, að hinn aldraði forseti, Chiang Ching- kuo, sem er 71 árs, kunni að lin- ast og fallast á samninga við Kína. Hins vegar hafa embætt- ismenn látið í ljós þá skoðun, að yfirvöld á Formósu muni seint fallast á samningaviðræður við ráðamenn í Peking, þar sem ljóst sé öllum, að það mundi kljúfa íbúa eyjunnar í tvær fylkingar. Það er einnig sagt, að yfirvöld á Formósu hafni sjálfkrafa öll- um tilboðum ráðamanna í Pek- ing, þar sem það mundi kippa undirstöðunum undan efna- hagslífi landsins. Mikið fjár- magnsstreymi hefur verið til Formósu seinni ár og hefur hag- sæld aukist þar gífurlega, en ef eigendum fjármagnsins þætti sjálfstæði landsins stofnað í hættu, mundu þeir hverfa á brott hið snarasta, að sögn fróðra manna, og þannig mundi efnahagur Formósu leggjast í rúst. Þá hefur stór hluti sérfróðra manna og langskólagenginna íbúa Formósu svokallað „grænt kort“ sem veitir þeim rétt til að setjast að í Bandaríkjunum. Þetta fólk mundi tvímælalaust flytjast á brott ef líkur væru á að Formósa félli í hendur komm- únistum í Peking. Það er almenn skoðun á Form- ósu, að eyverjar hafi ekkert að vinna og öllu að tapa á því að sameinast meginlandi Kína. Þá vekur það furðu og vissa gremju, að yfirvöld í Peking skuli hafa snúið sér til banda- rískra yfirvalda með tilboð sín frekar en að koma þeim á fram- fáeri við ráðamenn í Taipei. Sú skoðun ríkir meðal eyjaskeggja, að með þessu séu ráðamenn í Peking að reyna að láta svo líta út sem þeir séu sáttfúsir en ráðamenn á Formósu þverúðar- fullir. Jafnframt séu þeir að reyna með þessu að hafa áhrif á Bandaríkjastjórn með það að augnamiði að hún endurskoði af- stöðu sína til Formósu. Sérfræðingur í málefnum Formósu sagði nýverið, að ef Kuomintang-stjórnin breytti af- stöðu sinni til sameiningarmál- anna, ætti hún ekki langa líf- daga eftir. Og ef efnt yrði til kosninga mætti við því búast að það yrði innfæddur eyverji sem yrði næsti forseti landsins. - N.Y.T. Frá hinum árlega borgarafundi sem haldinn var í samkomuhúsinu í Garði sl. fimmtudag. Sveitarstjórinn, Stefán Ómar Jónsson, í ræðustól. Ljósm. Amór. Garður: Fasteignaskattar hækka um 75% (iardi, 15. janúar. í GÆRKVÖLI)! var árlegur borg- arafundur um fjárhagsáætlun fyrir Gerðahrepp 1982. Helztu tekjuliðir eru útsvar kr. 5,6 millj., aðstöðu- gjald 1 milljón, framlag úr jöfnunar sjóði 1 milljón og fasteignaskattar upp á 800 þúsund. Stærstu útgjalda- liðir cru ýmis lögboðin gjöld 1 millj- ón, til fræðslumála 1 milljón og stjórnunarkostnaður hreppsins. Þá er í áætluninni gert ráð fyrir að Gerðaskóli verði stækkaður á árinu og eiga að fara í það verk- efni 900 þúsund krónur, 800 þús- und krónur í niðursetningu sund- laugar og grunn að búningsklef- um. Þessi sundlaug er úr plasti og liggur ósamsett niður í Lönguvit- leysu, en það er áhaldahús hrepps- ins. Það kom fram í máli Sævars Guðbergssonar oddvita að ekki er áætlað að sundlaugin komist í gagnið á þessu ári, ekki nema not- endur vilji hátta sig úti í guðs- grænni náttúrunni. í nýbyggingu gatna og holræsa er áætlað að fari 750 þúsund kr. og 790 þúsund í vatnsframkvæmdir. Mestar urðu umræður um hækkun fasteignaskatta en ákveð- ið hefir verið að hækka stuðulinn úr 0,5% í 0,625. Oddviti upplýsti að hækkun fasteignaskatta milli ára myndi verða 75%. Þá munu vera uppi hugmyndir um að endurmeta allar fasteignir í Garð- inum og er talið að fasteignaskatt- ar muni stórhækka 1983. Arnór í fullum gangi HRIKALEG VERÐLÆKKUN Afsláttur 60-80% Fatnaður á börn og fullorðna skór — skrautvörur og ýmsilegt fleira Stórútsölumarkaóurinn Kjörgarði, kjallara. Komdu og gerðu súperkaup á súperfatnaði EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU 0PIÐ TIL KL. 9 í KVÖLD rSl Vorumarkaðurinn hf. Ármúla 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.