Morgunblaðið - 31.01.1982, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1982
7
HUGVEKJA
eftirsr. Œaf Skúlason dómprófast
Slysin og almættið
Slysatíðni skammdegismánað-
anna skelfir okkur. Það liggur
við, að blaðið hræði og útvarps-
fréttirnar valdi beyg. Það er allt-
af verið að segja frá einhverju
nýju, sem hefur skeð. Bíll, sem
ekið er á staur, og ung stúlka
bíður bana. Togari lendir í vél-
arbilun, rekur á land, skipverjar
týna lífi og björgunarmenn, sem
hætta sér út í dimmviðrið og
ölduganginn, fórna lífi sínu, er
þeir reyna að koma náunga sín-
um til hjálpar. Flugvél ferst og
sjónvarpið er strax komið með
mynd hennar og farþeganna inn
í stofu hjá okkur, þótt atburður-
inn gerist langt í burtu. Þyrla
sveimar yfir vatnsborðinu og
leitazt er við að bjarga þeim,
sem þar svamla í krapafullu
fljótinu. Björgunarbelti er varp-
að niður, og í hvert skipti, sem
það kemur þar að, sem fimm far-
þegar héldu sér í stél flugvélar-
innar, náði sami maðurinn í það,
en í öll skiptin rétti hann það til
næsta manns. Þegar búið var að
draga þann síðasta upp úr þeim
hópi og flugvélin kom enn til
þess að bjarga manninum, sem
svo hetjulega hafði látið aðra
komast á undan sér, þá var hann
horfinn. Vatnið hafði sigrað.
Hann fannst hvergi.
Slys úr fjarlægð, sem nútíma-
tækni færir þó alveg til okkar,
en það er líka nóg af þeim svo
nærri okkur flestum, að ekki
þarf að fara lengra en að næsta
húsi eða næstu götu til þess að
minna á þau. Og liggur það ekki
við, að það megi flokkast með
slíkum óvæntum hörmungarat-
burðum, þegar litla telpan, sem
vinafólk mitt hafði notið þess að
sjá gleðjast á síðustu jólum, lá
látin í sjúkrahúsinu, þegar nýja
árið var aðeins hálfs mánaðar
gamalt, og telpan aðeins þriggja
og hálfs árs gömul? Slikt færir
dimmu inn í tilveru allra þeirra,
sem til þekkja eða frétta af. Eða
þá fermingartelpan, sem átti að
ganga upp að altarinu fyrir
framan mig í vor, sem flýtti sér
heim í hádeginu og síðan aftur í
skólann, en varð fyrir bifreið á
hinum hættulega Bústaðavegi og
liggur nú svo alvarlega slösuð,
að enginn getur sagt til um
framhaldið í sjúkrahúsinu, á
meðan skólasystkini hennar eru
að ákveða, hvaða dag þau vilja
fermast.
Já, þau eru svo mörg slysin og
sjúkdómarnir eru svo margir,
sem krefjast þeirra fórna, að
okkur setur hljóð. Sumt iangt í
burtu og samúð okkar er fólgin í
hlýjum hugsunum, en sumt er
svo nærri, að það er eins og við
höfum sjálf orðið fyrir áfallinu,
og bænirnar eru ekki aðeins and-
varp í samúð, heldur virkar í
þátttöku. Væri það þá nokkur
furða, þótt þeir væru margir,
sem beint eða óbeint tækju undir
með lærisveinum Jesú, þar sem
þeir voru í bátnum í storminum
og óttuðust um afdrif sín, en
hann svaf sjálfur í skutnum, og
þeir sögðu ásakandi: „Hirðir þú
ekki um, að við förumst?" Það
eiga svo margir bágt, slysin
grisja fjölskyldur, sjúkdómar
höggva skarð. Vonbrigði og dap-
ur hugur. Við vitum svo víða af
þessu, og sumir þurfa ekki að
fara út fyrir veggi síns eigin
húss til þess að segja ég skil, ég
þekki, það gerðist hér. Þess
vegna heyrist þá líka víða í
margvíslegum útgáfum ásakandi
eilífðarspurningin, sem beint er
til hæða, þar sem við tengjum
hugsun Guði: „Hirðir þú ekki
um, að við förumst?" Hvaða fað-
ir lætur slíka atburði henda börn
sín, ef hann er þess megnugur að
afstýra þeim? Hver er svo kær-
leika sviptur, að hann grípi ekki
inn í og afstýri hörmungum, ef
hann er þess umkominn á nokk-
urn hátt? Ekki mennirnir, sem
blöðin hafa verið að skýra frá,
þeir sem lögðu út í brimið við
Vestmannaeyjar, eða óþekkti
maðurinn, sem lét hina fá björg-
unarhringinn og sökk svo sjálfur
úti í Washington. En Guð, lætur
hann þetta allt viðgangast?
Þetta er eilífðarspurningin, þeg-
ar maðurinn hefur verið að velta
fyrir sér þversögninni, sem virð-
ist vera í milli almættis Guðs og
hörmungaratburðanna, sem allt
er fullt af. Margar leiðir hafa
verið farnar til skýringa, allt frá
því að halda því fram, að sá, sem
skapaði, og sá, sem á kærleik-
ann, sé alls ekki hinn sami, held-
ur sé um andstæðinga að ræða,
og til þess að líta að baki at-
burða og sjá þar einhverja skýr-
ingu, sem dugir þó harla
skammt, en sætta sig við það i
uppgjöf skilningsleysisins, að
auðvitað viti Guð bezt og hann
hafi ástæður, sem okkur dyljast.
Og þá eru þeir líka til, sem sjá í
hverju slysi hendi Guðs, sem
vilji að það verði og láti það því
gerast, þótt okkur sé dulin
ástæða atburðarins.
Nú fer það vitanlega ekki milli
mála, að margt er það í huga
Guðs, sem okkur ekki einu sinni
grunar. Hans hugsanir eru ekki
okkar hugsanir, og langt er frá
því, að allir hans vegir séu okkur
eðlilegir skorningar til þægilegr-
ar yfirferðar. Og auðvelt er að
benda á ævi Jesú sjálfs því til
sannindamerkis, að Guð metur
ekki það sem gerist sömu augum
og við gerum og finnst eðlilegt.
Ekki hefðum við búið barni
okkar kross og erfiðleika marg-
víslegrar reynslu, ef við hefðum
mátt ráða. Samt gerist þetta,
gerðist hjá Jesú, sjálfum Guðs
syninum. Erfitt er það vitanlega
alltaf að álykta út frá reynslu
hans og sögu, þar sem við erum
annars vegar. Við erum ekki
eins, og ekki var okkur ætlað hið
sama hlutverk og hann fæddist
til þess að uppfylla. En dæmi
hans sýnir okkur þó eitt, sem
ekki má líta framhjá við slíkar
hugsanir. en það er það, að hvað
svo sem menn kunna að gera af
skammsýni og kærleiksskorti, þá
er Guð þess megnugur að snúa
böli í blessun og breyta óláni í
heill.
En með þetta í huga og það má
alls ekki gleymast, og sízt þegar
okkur finnst syrta hvað mis-
kunnarlausast að, þá hljótum við
líka að hafa það í huga, sem hið
framansagða bendir líka til, að
ekki er allt það, sem gerist, að
vilja Guðs, hvað þá að hann kalli
það allt fram. „Guð vill það,“
hefur oft verið hrópað af
skammsýnum mönnum, hvort
heldur var til að skýra sókn eða
afsaka vörn. Samt virðist ekki
fara hjá því, sé síðar skoðað af
hærri sjónarhóli, að slíkt var
alls ekki vilji Guðs, þótt hann
hafi títt snúið því til blessunar.
Hann sendir ekki bílinn á því
augnabliki, sem barnið stígur út
á götuna af gangstéttinni, hann
lætur ekki storminn magnast
um leið og vélarvana skipið
hrekur upp í klettana, hann refs-
ar ekki fórnfýsi með dauða. Al-
mætti Guðs þýðir ekki það, að
allt sem gerist sé honum að
skapi, og enn síður hitt, að hann
framkalli allt sem gerist og geri
áætlun fyrir hvert okkar skref.
Miklu nær sanni mun að segja
það, að margt það, sem gerist, er
í mótsögn við það, sem við vitum
um hann frá þeirri hendi, sem
bezt þekkir og bezt hefur skýrt
og sýnt, þar sem er Jesús Kristur
sjálfur.
Telpan leikur sér að brúðunni
sinni og hún lætur hana gera,
hvað sem hún vill, hvort heldur
gráta eða hjala. Henni þykir
undur vænt um dúkkuna sína, en
fullorðin mundi hún ekki vilja
skipta á henni og barninu sínu
litla, þótt oft valdi það henni
áhyggjum og svipti svefni. Guð
gerði okkur ekki að leikbrúðum
og hann lagði ekki þá braut, sem
við getum eina gengið. Hann gaf
okkur möguleika til vals og hann
gaf okkur hugsun og vilja.
Hversu oft hljótum við ekki að
valda honum vonbrigðum, já,
tárum? Og hversu margt er það,
sem gerist allt í kringum okkur,
sem hryggir hann eins og okkur?
En hann sefur ekki áhugalaus í
skutnum, og honum er ekki sama
um það, þó að við förumst. Hann
gengur til okkar, og gengur með
okkur. Veitir styrk og stuðning,
ekki sízt þegar ýmislegt það hef-
ur gerzt, sem kallar fram tár hjá
okkur og hryggð í huga hans.
Allt sem gerist er ekki að vilja
hans, en hann getur breytt böli í
blessun, og hann gerir það. Hann
er ekki frekar áhugalaus en að
kærleikurinn láti okkur loka
augum fyrir þörfum þeirra, sem
hann hafa vakið.
Við Skúlagötu
Ágæt 2ja herb. íbúð á hæö,
ca. 62 fm. Suðursvalir. Útb.
ca. 330 þús.
Við Æsufell
Snotur 2ja herb. íbúð á
hæð. Verð ca. 480 þús.
Við Njálsgötu
Lítil 2ja herb. kjallaraíbúö.
Verð 260 þús. Laus.
í Vesturbæ
Glæsileg 2ja herb. jarðhæð ■
í skiptum fyrir 3ja—4ra I
herb. íbúð.
Við Laugateig
Góð 3ja herb. kjallaraíbúð. I
Samþykkt íbúð. Sér hita- |
veita. Laus strax. Einkasala. I
Neðra-Breiðholt
Urvals 3ja herb. endaíbúð á j
3. hæð (efstu). Suðursvalir. ■
Akveðin sala. t
í Austurborginni
Glæsilegt raðhús á úrvals- !
stað í skiptum fyrir einbýlis- ■
hús. (Góð milligjöf.) *
Höfummikið af eignum til sölul
í makaskiptum.
Benedikl Ilalldórsson sdluslj. |
Hjalli Steinþórsson hdl.
Gústaf Þór Tryggvason hdl.
85788
Hafnarfjörður
3 herb. 90 fm jarðhæð í eldra
steinhúsi, ósamþykkt. Verð 270
þús.
Vesturbær
Nýleg 3ja herb. íbúö á 2. hæö,
suöursvalir.
Æsufell
3ja herb. rúmgóð íbúö á 3. hæð.
Afhending samkomulag.
Vesturberg
3ja herb. íbúð á 1. hæö. Þvotta-
hús á hæðinni. Til afhendingar 1.
júní.
Öldugata
3ja herb. íbúö á 1. hæð með sér
inngangi. Afhending samkomulag.
Frakkastígur
4 herb. ca. 100 fm ibúð i fjölbýlis-
húsi. Allt endurnýjað og ný-
standsett. Sér inngangur.
Asparfell
4ra—5 herb. íbúö á 6. hæö. Laus í
júní. Möguleiki á bílskúr.
Hulduland
4ra herb. endaibúö á fyrstu hæö.
Suöur svalir. Verð 900 þús.
Hagamelur
4ra herb. 115 fm 1. hæð i þríbýlis-
húsi. Suðursvalir. Laus nú þegar.
Álftahólar
5 herb., 125 fm ibúö á 3. hæð
ásamt bilskúr. Möguleiki á aö
taka minni ibúð upp í. Til afhend-
ingar 1. júní.
Seljabraut
Endaraöhús á þremur hæöum. Til
afhendingar nú þegar.
Langholtsvegur
150 fm efri sérhæð. ásamt 48 fm
bílskúr.
Völvufell
130 fm raöhús á einni hæð ásamt
bílskúr.
ts FASTEIGNASALAN
ASkálafell
Bolholt 6, 4. hæð.
Sölustjóri: Valur Magnússon.
Viöskiptafræöingur: Brynjólfur Bjarkan.
Langholtsvegur
— Sér hæö
6 herb. 150 fm sér hæð og ris með 60 fm bílskúr.
íbúöin skiptist í 2 stofur, 2 svefnherb. á hæðinni. í risi
eru 2 svefnherb. og 2 óinnréttuö herb.
Símar
20424
14120
Hdimuimir
Hákon Antonason 45170.
Sig. SigtÚMon 30008.
Jón Baldvinsson.
Austurstræti 7 75482.
Espigerdi — Glæsileg íbúð
Var aö fá í einkasölu úrvalsíbúð á 2 efstu hæðunum i
háhýsi við Espigerði. Á neðri hæð er: Tvær stofur,
bókaherb., eldhús með borðkrók, snyrting o.fl. Á efri
hæð er: Stór stofa, 4 svefnherb., baðherb., þvotta-
hús o.fl. Þrennar svalir. Vandaöar og miklar innrétt-
ingar. Bílastæöi í bílskýli. Teikningar til sýnis. Stór-
fenglegt útsýni. íbúð þessi er t.d. hentug fyrir fólk,
sem vill njóta næðis og útivistar, en er oröiö þreytt á
amstrinu í stórum garöi. Upplýsingar aöallega á
skrifstofunni. Opið sunnudag kl. 14—16.
Árni Stefánsson, hrl.,
Suðurgötu 4, sími 14314.
Kvöldsími: 34231.
GULLFOSS BOwi % AIRPORT
cunuo nn ucuniiD mnajc iADUAov«nkiiui ' ' '&v*
AÐALSTRÆTI9 SIMI12315
ENDUROG HENDUR — MIOBÆJARMARKAONUM
AOALSTRÆTI9 - 101 REYKJAVIK - ICELAND - TEL 27620
MIÐBÆJARMARKADNUM 021015
Markaðurinn metravai'a
SEYMA HF