Morgunblaðið - 31.01.1982, Qupperneq 38
38
^MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1982
t
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa,
SIGMUNDAR SIGFÚSSONAR,
flugumferöarstjóra,
Ljósheimum 6,
veröur gerð frá Fríkirkjunni i Reykjavík þriðjudaginn 2. febrúar
kl. 13.30.
Þeir sem vildu minnast hans, vinsamlegast látiö Styrktarfélag van-
gefinna njóta þess.
Brynhildur Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Sigmundsdóttir,
Guðmundur St. Sigmundsson, Elvíra Viktorsdóttir,
Kristján S. Sigmundsson, Guðrún H. Guölaugsdóttir,
Sigmundur Sigmundsson, Sigurbjörg Vignisdóttir,
Elín Ósk Guðmundsdóttir.
t
Systir mín, móöir, tengdamóöir, amma og langamma,
SIGFRÍDUR SIGURDARDÓTTIR,
frá Patreksfiröi,
Torfufelli 29, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 2. febrúar 1982,
klukkan 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afbeönir, en þeir sem vildu
minnast hinnar látnu eru beönir aö láta Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaöra njóta þess.
Jóhanna Siguröardóttir,
Erla Jennadóttir Wiium, Kristján Wiium,
Vilhelm G. Kristinsson, Ásgerður Ágústsdóttir,
Sigfríöur Inga Wiium, Kjartan Bjarnason,
Margrét Sigrún Wiium, Stefanía Gunnlaug Wiium,
Jenný Hugrún Wiium, Elín Ósk Wiium,
og barnabarnabörn hinnar látnu. ________
t
Dóttir okkar, unnusta mín, systir og mágkona,
ÍRIS SIGMARSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Kóþavogskirkju, þriöjudaginn 2. febrúar, kl.
10.30.
Sigmar Grétar Jónsson, Gróa Sigfúsdóttir,
Guðmundur Rafn Guömundsson,
Brynhildur Sigmarsdóttir, Bragi Sveinsson,
Jónina Halla Sigmarsdóttir, Guðmundur Blöndal.
t
Útför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
KJARTANS S. NORÐDAHL
frá Úlfarsfelli,
Hjaltabakka 18, Reykjavík,
veröur gerö frá Fossvpgskirkju, miövikudaginn 3. febrúar
kl. 13.30.
Baldur Norðdahl,
Bragi Norödahl,
Freyja Norðdahl,
Vignir Norðdahl,
Ása Norðdahl,
Þórunn Guðmundsdóttir,
Ingunn Norðdahl,
Þóröur Guðmundsson,
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Bragi Erlendsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum af alhug, samúö og viröingu sýnda viö andlát og útför,
EINARS EYJÓLFSSONAR,
kaupmanns.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Jón Þórir Einarsson,
Sigriður Einarsdóttir,
Ingólfur V. Einarsson,
Edda Einarsdóttir,
Einar Einarsson,
Sigríöur Einarsdóttir,
Jensína Hjálmtýsdóttir,
Róbert Sverrisson,
Caroline Einarsson,
barnabörn, systur og mágar.
t
Þökkum auðsynda samúö og vinsemd við andlát og útför fööur
okkar, tengdafööur, afa og langafa,
JÓHANNESAR ÓLA SÆMUNDSSONAR,
Lönguhlíð 2, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum viö ungmennafólögum í Reyni Árskógs-
strönd, og öðrum er sýndu hinum látna viröingu.
Fjóla Jórunn Jóhannesdóttir, Benedikt Sæmundsson,
Sólveig Una Jóhannesdóttir, Frímann Guðmundsson,
Sigrún Björk Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa, langafa og bróöur,
BJARNA GUÐMANNS JÓNASSONAR,
Eyjólfsstööum,
Vatnadal.
Jenný Rebekka Jónsdóttir,
Ingibjörg Bjarnadóttir, Ingvar Steingrimsson,
Jón Bjarnason, Kristín Lárusdóttir,
Jóhanna Bjarnadóttir,
afabörn, langafabörn og systkini hins látna.
Minning:
Jóhannes Oli
Sœmundsson Akureyrí
Fæddur 10. júlí 1906
Dáinn 17. janúar 1982
Jóhannes Óli Sæmundsson,
fyrrverandi skólastjóri og náms-
stjóri, lést í Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 17. janúar sl. Fáum
dögum áður hitti ég hann hressan
og glaðan og kenndi hann sér
einski meins.
Hann fæddist í Stærra-Árskógi
á Árskógsströnd 10. júlí 1906 og
hann var til moldar borinn við
Stærra-Árskógskirkju 22. janúar
sl. fjölmenntu gamlir sveitungar
til þeirrar kveðjustundar.
Foreldrar Jóhannesar Óla voru
hjónin Sigríður Jóhannesdóttir
Jónssonar Reykjalíns prests á
Þönglabakka og Sæmundur
Tryggvi Sæmundsson frá Látrum
á Látraströnd, sem bæði var
kunnur af sjálfum sér, sem farsæll
skipstjóri og ennfremur af ævi-
sögu sinni, Virkum dögum, sem
Guðmundur Hagalín skráði. Var
sveinninn sjöunda barn foreldra
sinna. Hann naut móður sinnar
skamma hríð því hún andaðist
sumarið 1908.
Af systkinahópnum, börnum
Sigríðar og Sæmundar, eru þessi
látin auk Jóhannesar Óla: Sig-
mundur, Guðrún og Elín. Lifandi
eru: Þórhallur, fyrrum bæjarfó-
geti á Akranesi, Jón skipstjóri í
Reykjavík, Guðmundur, starfs-
maður hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur og Ingileif, húsmóðir
á Blönduósi. Hálfbróðir, samfeðra,
er Gestur, búsettur á Akureyri.
Þegar Sæmundur skipstjóri
varð ekkjumaður, 1908, ákvað
hann að leysa upp heimilj sitt.
Nýlega gift hjón á Árskógsströnd,
þau Jósteinn Jónsson, ættaður frá
Hallgilsstöðum og Jórunn Mar-
grét Kristjánsdóttir frá Birnunesi,
tóku Jóhannes Óla í fóstur og
reyndust honum vei og vel héldu
þau hópinn á meðan þeirra naut
allra við. En brátt kom að því öðru
sinni að drengurinn varð fyrir
ástvinamissi. Tveggja ára missti
hann móður sína og fjórtán ára
missti hann Jóstein fóstra siiin.
Nú kom það fram og síðar enn
betur, að Jóhannes Oli var hinn
röskasti unglingur og hann reynd-
ist fóstru sinni hinn besti sonur á
meðan bæði lifðu.
Fyrst höfðu þau Jósteinn og
Jórunn búið í Ytra-Kálfsskinni, þá
í Syðra-Kálfssksinni, nokkur ár,
en þá byggðu þau sér bæ þar rétt
hjá og nefndu Hátún og bjuggu
þar öll á meðan lifðu, en þau Jó-
hannes Óli og Jórunn fóstra hans
þar til hún lést, á aðfangadag jóla
1929.
En það sama ár lauk Jóhannes
ÓIi prófi við Kennaraskóla Islands
og byrjaður barnakennslu á Ár-
skógsströnd sem fullgildur kenn-
ari, en áður en hann hóf nám sitt í
Kennaraskólanum hafði hann tek-
ið að sér kennslustörf í heimasveit
sinni og farist það á þann veg, að
það varð uppörvun.
Kennara- og skólastjórastarafið
á Árskógsströnd varði rúman ald-
arfjórðung, en þá flutti hann til
Akureyrar, byggði sér húsið Lön-
guhlíð 2 í Glerárhverfi og átti þar
heima til dauðadags. Námsstjóri
varð hann á Austurlandi 1955 og
gegndi því starfi til ársins 1962.
Ennfremur var hann fyrsti skóla-
stjóri Þelamerkurskóla, gegndi því
starfi í eitt ár, en nokkur ár var
hann til viðbótar kennari í Gler-
árskóla. Samtals varð kennara-
starfið því mjög langt og ég hygg
að þar hafi hann verið á réttri
hillu, og að störf hans hafi borið
og beri enn góðan ávöxt hjá hinum
mikla fjölda nemenda hans.
Fljótlega eftir að Jóhannes Óli
flutti til Akureyrar stofnaði hann
fornbókasöluna og bókaútgáfuna
Fögruhlíð og starfrækti bókasöl-
una síðan og efndi á síðustu árum
til eftirtektarverðra bókauppboða
öðru hverju.
Eflaust eru ýmsar fágætar og
dýrmætar bækur í verslun hans,
en auk þess átti hann mjög vandað
og mikið safn bóka, er hann lagði
rækt við til fjölda ára, enda var
hann bókavinur og las mikið.
Fræðsludeildarstjóri Kaupfé-
lags Eyfirðinga var Jóhannes ÓIi
um skeið. I mörgum félögum var
hann um sína daga og jafnan mjög
áhugasamur og í forystusveit.
Ekki nenni ég þau félög öll upp að
telja, en þó hlýt ég að minnast
dugnaðar hans og fórnfýsi í
Ungmennafélaginu Reyni á Ár-
skógsströnd. Þar var hann flestum
áhugasamari og formaður félags-
ins var hann í heilan áratug. Með-
al áhugamála hans þar og ætíð
Flísar og
baðskápar
á gamla verðinu
Ávallt eitthvað nýtt í ^
Nýborg;
ÁRMÚLA23 SÍMI 8-67-55
Húsgögn
Rýmingarsala
Seljum húsgögn með 5—50%
afslætti næstu
daga að Smiðjuvegi 8
Opið
sunnudag 2—5.
Kópavogi.
NýborgF
Húsgögn. Sími 78880.
Smiðjuvegi 8, Kópavogi.