Morgunblaðið - 31.01.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1982
45
r
N.N.
Ég er nýskilin og fyrrum eig-
inmaður minn hefur hærri tekj-
ur en ég. Fær hann frádrátt á 2
börn okkar? Við teljum fram
sameiginlega þetta ár, en spurn-
ing er hvernig á að telja fram
varðandi börnin?
Svar:
Hjón, sem slíta hjúskap eða
samvistum, verða annaðhvort að
telja fram saman fram að skiln-
aði eða sambúðarslitum og sitt í
hvoru lagi frá því, eða að telja
fram sitt í hvoru lagi fyrir allt
árið. Barnabætur skiptast til
helminga milli foreldra fram að
samvistarslitum, en frá þeim
degi greiðast þær til þess for-
eldris, sem hefur börnin hjá sér.
Steingrímur Sigurðsson, Stíflu-
seli 1, Reykjavík:
Hvað þarf miklar tekjur til að
fá hátekjuskatt?
Svar:
Af tekjuskattsstofni sem er
hærri en kr. 135.000 greiðist 50%
skattur, sem er hæsta skattþrep.
LV.:
Varðandi skólafrádrátt. Gef-
inn er upp frádráttur fyrir 6
mánaða nám, en má ekki telja
meiri frádrátt, allt upp í 9 mán-
uði á ári hverju?
Svar:
Hámarksfrádráttur vegna
náms er kr. 10.875 miðað við 6
mánaða nám og heimilast ekki
frekari frádráttur þótt nám sé
stundað lengur en það á árinu.
ASÍ ítrekar mót-
mæli gegn pólsku
herstjórninni
Rúmar f‘jórai milljón-
ir hata safnast Pól-
landssöfnuninni
í ÁLYKTIIN miðstjórnar Alþýðu-
samhands Islands, sem þegar hefur
verið afhent sendiráði Póllands í
Reykjavík, áréttar ASÍ afstöðu sína
og krefst þess, að herlög verði afnum-
in í Póllandi, pólitískum fóngum
verði sleppt og frjálsum verkalýðsfé-
lögum leyft að starfa. ASÍ ítrekar
stuðning sinn við hin óháðu verka-
lýðssamtök, Solidarnosc, „sem ótví-
rætt eru hinn raunsanni fulltrúi
pólskrar alþýðu. Vandamálin verða
ekki leyst nema lýðréttindi séu virt
og vilji fólksins fái að ráða", eins og
segir í ályktun ASÍ um I’ólland.
Víða um heim er dagurinn í dag,
30. janúar, alþjóðlegur stuðnings-
dagur verkalýðshreyfingarinnar
við Solidarnosc og kröfuna um að
starfsemi samtakanna verði leyfð á
nýjan leik og leiðtogum hennar
sleppt úr fangelsi. Hér á landi
verður ekki um sérstakan Pól-
landsdag af hálfu ASÍ að ræða í
dag. ASI efndi hins vegar til mót-
mælafundar á Lækjartorgi þegar
14. desember síðastliðinn og gengst
fyrir Póliandssöfnun ásamt Hjálp-
arstofnun kirkjunnar og Kaþólsku
kirkjunni á íslandi.
Segir í upplýsingum frá ASÍ, að
sú söfnun stefni í heimsmet hvað
snertir upphæð miðað við mann-
fjölda, en rúmar fjórar miiliónir
króna hafa safnast í Póllandssöfn-
unina hér á landi og í upplýs-
ingabréfi ASI kemur ennfremur
fram, að það sé meira fé en nokk-
urn tíma áður hafi safnast í slíkri
almennri fjársöfnun. Hluti fjárins
fer til verkefna í Afríku á vegum
Hjálparstofnunar, en meginhlut-
inn til pólskrar alþýðu. Fyrsta
sendingin héðan; 40 tonn af mat-
vælum, fatnaði og ullarteppum, fer
1. febrúar til Noregs og þaðan á
bílum til Póllands.
I ályktun ASÍ segir m.a; „í rúm-
an mánuð hafa Pólverjar búið við
herlög, starfsemi verkalýðssamtak-
anna verið bönnuð og félagsmenn
Solidarnosc sitja þúsundum saman
í fangelsum.
íslendingar hafa sýnt afstöðu
sína í verki. Strax daginn eftir að
herlög voru sett mótmælti íslenzkt
verkafólk gerræði pólskra stjórn-
valda og lýsti stuðningi sínum við
pólskan almenning með því að fjöl-
menna á útifund Alþýðusambands-
ins á Lækjartorgi. Stuðningur ís-
lendinga hefur enn verið áréttaður
með öflugri og almennri þátttöku í
Póllandssöfnuninni, sem enn
stendur yfir.
Fundur Solidarnosc-manna, sem
voru utan Póllands þegar herlög
voru sett, hefur hvatt til þess, að
hinn 30. janúar mótmæli verka-
lýðsfélög um heim allan ofbeldi
pólsku herstjórnarinnar. Af þessu
tilefni áréttar Alþýðusamband ís-
lands afstöðu sína.“
Fáðu lyklana hjá ókkur!
BÍLALEIGA
R 25718
LOFTLEIDA
Vid kynnum VW Jetta
með sérstöku kostaboði S
Bilaleiga Loftleiða hefur nú íengið nýja VW Jetta bíla
írá Heklu hf. í flotann til viðbótar við Golf og Mishubishi bílana.
JETTA er einn skemmtilegasti bíllinn, sem hœgt er að fá
leigðan - rúmgóður, lipur og fullkominn.
í því tilefni bjóðum við Jetta bílana á sérstöku kynningar-
verði: 323 krónur* á sólarhring.
Ekkert kílómetragjald.
Tilboðið stendur aðeins til febrúarloka. Reynið nýju Jetturnar
áður en verðið hœkkar!
‘Söluskattur er ekki inniíalinn.