Morgunblaðið - 31.01.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1982
47
röðuðust upp vegna atvika og ég er
ennþá sömu skoðunar, en sitthvað
kemur fleira til og meðal annars
sá möguleiki að þrykkja raka
prentsvertu af dagblöðum yfir í
olíupastel, þetta kom upp, var ekk-
ert sem ég vissi af, og þá opnuðust
margir nýir og spennandi mögu-
leikar. Þetta var ef til vill leikur,
en frá því að þrykkja dagblöð þró-
aðist þetta og hélt áfram að raðast
upp af smáum einingum og vinnan
var fólgin í því að þessi uppröðun
stæðist í mynd. Maður á kost á
ýmsu í myndverkið, myndum og
málefni iíðandi stundar og þá er
þetta orðin spurning um skrán-
ingu á deginum í dag. Það sem
mér finnst í rauninni efnislegt
innihald þessarar sýningar er
myndrit af atburðum líðandi
stundar.
Þannig flétta ég saman grafík,
málverk eða litun og teikningu. Að
auki er um að ræða klippimyndir,
en ég set gjarnan mjög litlar slík-
ar einingar inn í myndflötinn.
Gjarnan tek ég dagblöðin glóðvolg
úr pressunni og fjölskyldan kemst
ekki alltaf í blöðin. Stundum hef
ég farið í prentsmiðjur blaðanna
ef ég hef fengið pata af mynd eða
málefni sem mér lízt á að nota og
stundum hef ég af sama tilefni
keypt mörg eintök af sama blað-
inu.“
Myndirnar urðu
duglegri
„Kg hyggst halda áfram að gera
myndrit af líðandi stund og ég
verð að viðurkenna að ég fann
fyrir ýmsum spennandi hlutum
síðustu tvo mánuðina, mér fannst
ég vera farinn að sjá árangur og
þegar ég staldra við og sé sýning-
una uppkomna, staðfestir það
grun minn um að ég hafi verið á
réttri leið til þess að ná lengra.
Framundan eru önnur verkefni
um sinn en ég reikna með að taka
upp þráðinn ekki seinna en á
miðju ári, ég læt húsið ekki standa
lengi ónotað. Síðustu myndirnar
voru orðnar duglegri, dökku
myndirnar, enda lagði ég í þær
meiri vinnu og einlægni."
Að hafa sjálfur
gaman af
„Það að vinna að þessum mynd-
um með öðru starfi þykir álíka til
fyrirmyndar í listheiminum eins
og að mála fyrir sýningu. Maður
ætti helzt ekki að eiga fjölskyldu,
en hafa það djöfullegt. Ég hef hins
vegar alltaf tekið sjálfan mig
hæfilega alvarlega og það stendur
ekki til að gera þar bragarbót. Mér
finnst skemmtilegt að fá tækifæri
til þess að fikta í mörgu, ekki
mörgu í einu, en að fá að koma
víða við eins og sagt er, stinga
niður penna í myndlistinni þegar
tilefni og tækifæri gefst. Þetta eru
aðeins örfáir litlir dagar sem mað-
ur lifir og ég hef gaman af því að
fá að spreyta mig á mörgum svið-
um. Þegar mín verður minnzt síð-
ar eins og svo fallega er gert um
horfið hold, þá held ég að það væri
réttlátasti dómurinn að ég sjálfur
hefði haft dálítið gaman af þessu,
það er sanngjarnast, allt er þetta
lítill leikur, gerður fyrir mann
sjálfan. Framlag til íslenzkrar
menningar er ekki með, þar þarf
aðra og greindari menn tií en mig,
þetta er leikur."
Lítil hagamús
í heimsókn
„Það kom sérstæður gestur á
sýninguna til mín í dag, lítil haga-
mús kom inn úr kuldanum, ákaf-
lega vinaleg. Hún fór hljóðlega,
trítlaði um salinn og kíkti til allra
átta. Að lokinni hringferð þakkaði
ég henni fyri komuna. Hún hefur
líklega skiiið miklu betur það sem
úti er eftir að hafa komið hingað
inn, kannski hún lifi vetur af út á
það.“
Bragi Ásgeirsson
fjallar um sýningu Eg-
íls á blaðsíöu 51 í
blaðinu í dag.
Systkini
finnast
eftir
40 ára
aðskilnað
Washincton, 29. janúar. Al’.
MANYA Kornblit lifdi af hörm-
ungarvist í Ausrhwitz, fangabúð-
um nazista, en hún var sannfærð
um að ('haim bróðir hennar hefði
dáið fvrir 40 árum í þeim hinum
sömu búðum. í síðustu viku komst
hún svo á snoðir um að bróðir
hennar er á lífi og hún fer flugleið-
is til fundar við hann í Knglandi nú
um helgina. Manya Kornblit sagði
að bróðirinn hefði haldið að hún
hefði látizt í Auschwitz, svo að það
væri stórkostiegt kraftaverk að
þau skyldu nú hittast eftir að hafa
ekki sézt í 40 ár, þá I4 og 15 ára.
Kjördóttir Manyu Kornblit,
Joan, sagði fréttamönnum að
hún og maður hennar hefðu ver-
ið að skrifa bók um Manyu og
mann hennar og ellefu aðra sem
lifðu af fangabúðaveruna í út-
rýmingarbúðum nazista. Þau
hefðu ferðazt til Póllands, Aust-
urríkis, Þýzkalands og ísraels til
að viða að sér efni í bókina. Fjar-
skyldur ættingi kjörföðurins,
sem hafði lifað af og þau ræddu
við í Israel, sagðist halda að
Chaim hefði komizt lífs af, þar
eð viðkomandi hafði fengið bréf
frá honum 1945 eða 1946, póst-
lagt í Skotlandi. Eftir það gekk
tiltölulega greiðlega að hafa upp
á bróðurnum. Manya var spurð
hvað hún héldi hún myndi segja
við hann þegar þau hittust eftir
öll þessi ár: „Ætli ég standi ekki
eins og þvara og horfi á hann?
Ég veit ekki hvað ég gæti sagt,
annað en að þetta sé uppfylling
míns stærsta draums," sagði
hún.
Bómullarefni.
Bútasaums-
pakkningar.
Bútasaumsblöð.
Bútasaumssnið.
Bútasaumsmót.
Bútasaumsnámskeið.
VIRKA
Klapparstíg 25—27,
sími 24747.
ÚRVAUDER
ISKEIFUNNI
Eigum mikiö úrval af sænskum
borðstofuhúsgöngum í Rókókó-
stíl.
Smiðjuvegi 6 Sími 44544
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
K ALGLYSIR LM ALLT LAND ÞEGAR
K ALGLYSIR I MORGL NBLAÐINU
Stærðir á Dieselvélum:
Gerö: Din HP Þyngd m/gír
D 7 6 HP 68 kg.
D 12 10 HP 109 kg.
D 35 30 HP 240 kg.
D 50 45 HP 294 kg.
D 150 136 HP 430 kg.
Viö bjóöum BMW Dieselvélar í bátinn. BMW vélarnar eru léttar og gangþýöar, enda
framleiddar af J3MW í V-Þýskalandi, einum þekktasta og vandaöasta vélarframleiðanda í
heimi. BMW gæðin eru heimskunn.
Kynntu þér BMW bátavélarnar.
Gæöin koma ekkert á
óvart, en þaö gerir
veröiö, sem er mjög
hagstætt.
BMW í
bátinn.
Vélar & Tæki hf.
TRYGGVAGATA 10 BOX 397
REYKJAVlK SÍMAR: 21286 - 21460
Gerð D 150 er með skutdrifi og hentai
mjög vel fyrir hradskreiöa báta.
Getum ennþá afgreitt vélar fyrir
vorið.
Díesd BÁTAVÉLAR