Morgunblaðið - 13.02.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.02.1982, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ftitstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6 sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 6 kr. eintakiö. Sigurstranglegur listi Menn þurfa ekki að fletta mörgum tölublöðum af Morgunblað- inu þessa daga til að sjá, að allir flokkar eru í óða önn að ganga frá framboðslistum sínum vegna sveitarstjórnakosninganna í vor. Misjöfnum aðferðum er beitt eftir byggðarlögum og flokkum. Sérstaka athygli hlýtur að vekja, hve margir bjóða sig fram til trúnaðarstarfa í bæjarfélögum sínum undir merki Sjálfstæðis- flokksins, þar sem flokkurinn efnir til prófkjörs. Einnig staldra menn við þá staðreynd, hve dræm þátttakan er til dæmis í forvali Alþýðubandalagsins. Ein helsta ástæðan fyrir því, að kommúnistar gengu til samstarfs í núverandi ríkisstjórn var von þeirra um að geta komið höggi á Sjálfstæðisflokkinn — stuðlað að úlfúð og óeiningu innan flokksins. Ef mið er tekið af undirbúningi flokk- anna undir sveitarstjórnakosningarnar er auðséð, að þessi aðför kommúnista að Sjálfstæðisflokknum hefur með öllu mistekist. Sjálfstæðismenn fylkja breiðu liði en kommúnistar eru í flokks- legri kreppu, þar sem lítil valdaklíka togast á um fáein hundruð atkvæða. Eina athvarf valdahópsins innan Alþýðubandalagsins eru nú þau háu embætti, sem fulltrúar hans skipa í þjóðfélaginu fyrir tilstilli framsóknarmanna og örfárra þingmanna Sjálfstæðis- flokksins. Og enn berja kommúnistar sér á brjóst og segjast öllu ráða í borgarstjórn Reykjavíkur. Sjálfumgleði þeirra á þeim vett- vangi er svo mikil, að þeir líkja framsóknarmönnum og krötum, stuðningsmönnum sínum, við „flökkuhunda", sem loksins hafi fundið skjól hjá Alþýðubandalaginu. Það er til marks um skipulegan undirbúning sjálfstæðismanna undir sóknarsigur í Reykjavík, svo að vitnað sé í hvatningarorð Alberts Guðmundssonar, að þeir eru fyrstir stjórnmálaflokkanna til að leggja fram framboðslista sinn í Reykjavík. í lok nóvember fór fram prófkjör um skipan listans, um 6000 manns tóku þátt í því, 6 efstu menn hlutu bindandi kosningu, kjörnefnd fékk það verkefni að raða í hin 36 sætin á listanum. I því efni hafði nefndin frjálsar hendur en eins og menn sjá, ef þeir bera saman listann og úrslit prófkjörsins, tók kjörnefnd ríkt tillit til þess, hvernig atkvæði hinna 6000 sjálfstæðismanna féllu. Ólafur B. Thors, formaður kjör- nefndar, komst svo að orði, þegar hann kynnti listann á fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík á fimmtudag, að hann væri sigurstranglegur. Undir þau orð skal tekið, kjörnefndin sýndi áræði, þegar hún með samþykki frambjóðenda breytti röð þeirra og fékk til setu í 11. sæti listans Katrínu Fjeldsted, lækni, sem ekki hafði tekið þátt í prófkjörinu. Það kom glöggt fram á fulltrúaráðsfundinum, hve vel var að verki staðið hjá kjörnefnd. Fáeinir fundarmenn lögðu þar til, að sem næst yrði farið úrslitum prófkjörsins. Þegar til átti að taka, koðnaði þessi tillöguflutningur niður, þar sem engir frambjóðenda vildu ljá tillögunni lið og sögðust styðja niðurstöðu kjörnefndar- innar. Davíð Oddsson, fyrsti maður á borgarstjórnarlista sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, komst svo að orði í barátturæðu, eftir að tillaga kjörnefndar hafði verið samþykkt samhljóða, að það væri tálvon hjá vinstri mönnum, áð glundroðakenningin væri dauð og grafin eftir 4 ára meirihlutastjórn þeirra. Þvert á móti mætti færa fyrir því fjölmörg rök, að á þessum árum hafi kenningin verið staðfest. Nefndi Davíð Oddsson þrjú dæmi: öll stjóm borgarinnar er þyngri í vöfum en áður, meiriháttar mál fletjast út eða deyja drottni sínum í reiptogi vinstri manna og fjármálastjórnin felst í því einu, að vinstri krumlan hrifsar æ meira fé úr vasa borgaranna. Það var samdóma álit þeirra mörgu manna, sem tóku til máls á fundi sjálfstæðismanna á fimmtudaginn, að flokkur þeirra hefði byrinn með sér. Reynslan sýndi fólki, að vantrú vinstri manna á einstaklingnum, frumkvæði hans og dugnaði, spillti lífskjörum og minnkaði lífsgæði. Því aðeins verður snúið af óheillabraut vinstri stefnunnar, að sjálfstæðismenn standi saman. Kommúnistum og fylgifiskum þeirra er ljós hættan af hinu sameinaða afli Sjálfstæð- isflokksins, í sveitarstjórnakosningunum þarf að sýna þeim svart á hvítu, að þetta afl er jafnvel meira en oft áður. Niðurstaða fundar- ins um framboðslista sjálfstæðismanna í Reykjavík lofar góðu um framhaldið. Kleppur og Kópavogshæli Þegar þeir Svavar Gestsson, heilbrigðisráðherra, og Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, voru að berjast fyrir því að kom- ast í ráðherrastólana, hikuðu þeir ekki við að egna til átaka á vinnumarkaðinum, jafnt löglegra sem ólöglegra. Þessir ráðherrar eru því í glerhúsi, þegar þeir setja nú upp sparisvipinn yfir kröfum ófaglærðs starfsfólks á Kleppsspítala og Kópavogshæli og vitna til laga og reglna. Hvers vegna er mönnunum um megn að vera samkvæmir sjálfum sér? Skeiðarárhlaupið Fegursta veður var í Öræfasveitinni þegar Morgunblaðsmenn flugu yfir Skeiðará og Skeiðarársand, en ófært var hins vegar að Grímsvötnum og ekki unnt að fljúga þang- að. Rennslið í Skeiðará var í gær komið upp í 2,040 teningsmetra á sekúndu, en búist er við að hlaupið í ánni fari rénandi upp úr helginni. I.jósm. Mhl. Kri.-'ljan K. Kinarssnn. Þar sem Skeiðará kemur undan jöklinum var eins um að litast og í suðupotti. Kolgrá áin frussast út og upp undan jöklinum eins og hún komi beint upp úr jörðinni á þessum stað í svonefndu Hamragili. Skeiðará rennur yfir svæði sem eru tugir ferkflómetra að stærð, en svæðið sem hún rennur yfir á þessari mynd Kristjáns Einarssonar Ijósmyndara Mbl. er tæpir 50 ferkílómetrar. í forgrunni myndarinnar eru varnargarðarnir sem ganga út undan Skaftafellsbrekkum og Skaftafellsfjöllin tróna í bakgrunni myndarinnar, Hamra- gilsaxlir og Skerhóll til vinstri, Blátindur fyrir miðju og framundan honum Litli- Bláhnúkur og Stóri-Bláhnúkur til hægri. Þá sker Bæjarstaðaskógur sig úr fónninni. Brýrnar yfir Skeiðará hafa staðið af sér vatnavextina í ánni, sem bókstaflega flýtur yfir allt svæðið sem sést á þessari mynd Kristjáns Einarssonar Ijósmyndara Morgunblaðsins. Stuðlað verði að auknum innflutningi frá Portúgal Morgunblaðinu barst í gær eftir farandi frétt frá Sölusambandi ís- lenzkra fiskframleiðenda: „Sölusamband íslenzkra fisk- framleiðenda samdi nýlega við ríkisfyrirtækið Reguladora í Portúgal um sölu á 31.500 til 41.250 tonnum af saltfiski, en inn- an þessa ramma er magnið í vali seljanda. Heildarverðmæti þessa samn- ings, eins og líklegt er að hann verði nýttur, er liðlega 103.000.000 Bandarikjadala eða um 1 milljarð- ur nýkróna á núgildandi gengi. Söluverð í þessum samningi er um 5% lægra í Bandaríkjadölum en í samsvarandi samningi fyrir tæpu ári. Frá því sölusamningar voru gerðir á síðasta vori hefur gengi Bandaríkjadals hækkað mjög verulega og hefur það gert mark- aðsstöðu íslendinga erfiða á öllum mörkuðum, þar sem keppt er við lækkandi gengi t.d. norskrar og danskrar krónu. - segir m.a. í frétt frá SIF, sem samið hefur um sölu á um 40 þúsund tonnum af saltfiski til Portúgal í ár Auk þessa nýja samnings, sem hér um ræðir er enn eftir að af- greiða um 5.000 tonn upp í samn- ing síðasta árs. Til Portúgal voru flutt 38.400 tonn á árinu 1981. Sala Islendinga til Portúgal hef- ur aukist mjög á síðustu árum og er Portúgal ár eftir ár meðal mik- ilvægustu viðskiptalanda okkar. Innkaup íslendinga frá Portú- gölum hafa lengst af verið lítil, en Portúgalir hafa sýnt því fullan skilning, að fámenn þjóð, sem ís- lendingar, geti ekki náð að jafna þann halla, sem á viðskiptum er á fáum misserum, en þéir leggja mjög mikla áherslu á, að íslend- ingar geri sér grein fyrir því, að innkaup frá Portúgal verði að aukast. Þess gætir því miður í vaxandi mæli í viðskiptum þjóða að litið sé á yiðskiptajöfnuð landanna. I viðskiptum sínum við aðrar fisksöluþjóðir hafa Portúgalir krafist veiðiréttinda í landhelgi eða beinna vöruskipta. Portúgal hefur verið og verður okkur mjög mikilvægt markaðs- land og við erum þeim líka mikils virði, en þeir ætlast til þess, að við sýnum þeim verulega í verki, að við metum mikils saítfiskkaupin. Vel hefur þegar verið gert í ýmsum viðskiptum, en ekki er á neinn hallað þó að oliukaup séu ein til nefnd. Vafalaust veldur það innflytj- endum erfiðleikum að bregða út af hefðbundnum innkaupasambönd- um, sem mörg hver eru í löndum, sem lítið af okkur kaupa. Engum dettur heldur í hug að hér verði á snögg breyting, en full- yrða má, að það er í þágu íslenzks fiskiðnaðar og sjávarútvegs og um leið landsmanna allra að stuðlað sé að auknum viðskiptum þessara þjóða. Því skorar SIF á alla, sem á ein- hvern hátt eru tengdir málefnum innflutningsverzlunar á íslandi að kanna sem ítarlegast þá mögu- leika, sem eru til staðar í Portúgal og hvetur íslenzka neytendur að sýna portúgölskum vörum áhuga. Samninginn gerðu fyrir hönd SÍF Þorsteinn Jóhannesson, stjórnarformaður, stjórnarmenn- irnir Sigurður Einarsson, Vest- mannaeyjum og Dagbjartur Ein- arsson, Grindavík, Sigurður Har- aldsson, skrifstofustjóri og Frið- rik Pálsson, framkvæmdastjóri." Listasafn alþýðu: Yfirlitssýning á yerkum Vigdísar Kristjánsdóttur vefjarlistakonu í DAG verður opnuð í Listasafni al- þýðu yfirlitssýning á verkum Vigdís- ar Kristjánsdóttur vefjarlistakonu, en nú er ár liðið frá andláti hennar. Það er safnið sem stendur fyrir sýningunni, en Hrafnhildur Schram listfræðingur hefur valið verkin og annast uppsetningu í samvinnu við Þorstein Kristjáns- son, bróður Vigdísar, og Rann- veigu Sigurðardóttur og Unni Guðjónsdóttur, systradætur henn- ar. Á sýningunni eru 28 myndvefn- aðarverk og 10 vatnslitamyndir, auk frumdrátta að myndvefnaði. Þá hefur vefstól hinnar látnu listakonu verið komið fyrir í sýn- ingarsalnum, en meðan á sýningu stendur verður litskyggnuþáttur Hrafnhildar Schram um listferil Vigdísar Kristjánsdóttur sýndur í kaffistofu safnsins. Yfirlitssýningin verður opin kl. 14—22 daglega og stendur hún til 7. mars. Þorsteinn Kristjánsson, Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Guðjónsdóttir við vefstól Vigdísar Kristjánsdóttur. (I.jósm. Kinilía). Vigdís Kristjánsdóttir — Hún var fædd 1904 og lézt 11. febrúar 1981. Prófkjör helgarinnar: Kosið á 6 stöðum víðsvegar um landið SAMEIGINLEG prófkjör verða í Kefla- vík og Njarðvíkum um þessa helgi, prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík og forval hjá Alþýðubandalaginu á Ak- ureyri, Kópavogi og Selfossi. I Keflavík er sameiginlegt prófkjör Sjálfstæðisfiokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Fer það fram laugardaginn 13. febrúar og sunnu- daginn 14. Kosið verður í húsi Iðn- sveinafélags Suðurnesja, Tjarnar- götu 7, klukkan 10 til 19 báða dagana. Rétt til þátttöku hafa allir Keflvík- ingar 18 ára og eldri. I kjöri fyrir Sjálfstæðisflokkinn eru Bergur Vernharsðson, Einar Guðberg, Garðar Oddgeirsson, Hall- dór Ibsen, Helgi Hólm, Hjörtur Zak- aríasson, Hrafnhildur Njálsdóttir, Ingibjörg Hafliðadóttir, Ingólfur Falsson, Kristinn Guðmundsson, María Valdimarsdóttir, Sigurður Garðarsson, Sigurlaug Kristinsdótt- ir, Svanlaug Jónsdóttir, Tómas Tóm- asson, Þorgeir Halldórsson og Þor- steinn Bjarnason. í kjöri fyrir Alþýðuflokkinn eru Gottskálk Olafsson, Guðfinnur Sig- urvinsson, Guðrún Ólafsdóttir, Gunnar Jónsson, Hannes Einarsson, Hreggviður Hermannsson, Ingvar Hallgrímsson, Jóhanna Brynjólfs- dóttir, Jón Ólafur Jónsson og Ólafur Björnsson. í kjöri fyrir Framsóknarflokkinn eru Arnbjörn Ólafsson, Birgir Guðnason, Drífa Sigfúsdóttir, Friðrik Georgsson, Guðjón Stefánsson, Hilm- ar Pétursson, Kristinn Danivalsson, Kristján Kristjánsson, Oddný Matta- dóttir, Sigurbjörg Gísladóttir, Sig- urður Þorkelsson, Valdimar Þor- geirsson, Valur Margeirsson og Þóra Steina Þórðardóttir. í Njarðvík er sameiginlegt prófkjör allra flokka. Kosið verður laugardag og sunnudag frá klukkan 10 til 19 í félagsheimilinu Stapa báða dagana. Þátttökurétt hafa Njarðvíkingar 18 ára og eldri. í framboði fyrir Sjálfstæðisflokk- inn eru Áki Granz, Alfreð Alfreðs- son, Guðbjartur Greipsson, Halldór Guðmundsson, Helga Óskarsdóttir, Ingi Gunnarsson, Ingólfur Bárðar- son, Jónína Sanders, Júlíus Rafnsson, Magdalena Olsen, María Svein- björnsdóttir, Ólafur Pálsson, Sigríð- ur Aðalsteinsdóttir og Sveinn Eiríks- son. í kjöri fyrir Alþýðubandalagið eru Ester Karvelsdóttir, Lína María Ara- dóttir, Oddbergur Eiríksson, Þórar- inn Þórarinsson og Orn Oskarsson. í kjöri fyrir Alþýðuflokkinn eru Eðvald Bóasson, Erna Guðmunds- dóttir, Guðjón Helgason, Gunnólfur Árnason og Grímur Karlsson. í kjöri fyrir Framsóknarflokkinn eru Bragi Guðjónsson, Einar Aðal- björnsson, Gunnar Ólafsson, Gunn- laugur Óskarsson, Ingigerður Guð- mundsdóttir, Margrét Gestsdóttir, Ólafur Eggertsson, Ólafur Guð- mundsson, Ólafur Hannesson, Ólafur Þórðarson, Sigurjón Guðbjörnsson og Steindór Sigurðsson. Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykja- vík verður 13. og 14. þessa mánaðar. Kjörstaðir verða Sigtún við Suður- landsbraut fyrir þá, sem búa austan Snorrabrautar og Iðnó fyrir þá, sem búa vestan Snorrabrautar. Kjörfund- ur verður opinn frá klukkan 13 til 19 í dag og klukkan 10 til 19 á morgun, sunnudag. Rétt til að greiða atkvæði hafa allir Reykvíkingar, sem náð hafa 18 ára aldri og eru ekki flokks- bundnir í öðrum stjórnmálaflokkum. Þeir sem gefið hafa kost á sér eru: Bjarni P. Magnússon, Bragi Jóseps- son, Marías Sveinsson, Sigurður Guð- mundsson, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Skjöldur Þorgrímsson og Snorri Guð- mundsson, öll í 1. til 6. sæti listans, Grétar Nikulásson í 2. til 6. sæti, Guðríður Þorsteinsdóttir og Jón Hjálmarsson í 3. til 6. sæti, Guð- mundur Haraldsson í 4. til 6. sæti og Ásta Benediktsdóttir í 5. til 6. sæti. Fyrri hluti forvals Alþýðubanda- lagsins á Selfossi fer fram í dag, laugardag og síðari umferðin laug- ardaginn 20. þessa mánaðar. Kjör- tími er frá klukkan 13 til 20 báða dagana. Forvalið fer fram að Kirkju- vegi 7, Selfossi. Utankjörstaðarat- kvæðagreiðsla fer fram að Lambhaga 19. Aðeins félagar í Alþýðubandalag- inu hafa þátttökurétt. Engin ákveðin nöfn eru í framboði til fyrri umferð- ar. Fyrri hluta forvals Alþýðubanda- lagsins í Kópavogi lýkur í dag. Und- anfarna viku hafa félagar í Alþýðu- bandalaginu fengið send kjörgögn, en þeir sem ekki hafa fengið þau geta vitjað þeirra á skrifstofu flokksins. I dag verður skrifstofan opin til 21 og verða atkvæði síðan talin. Engin ákveðin nöfn eru í framboði í fyr’I umferð forvals. Síðari umferð forvals Alþvðu- bandalagsins á Akureyri fer fram í Lárusarhúsi í dag, laugardag og á morgun, sunnudag. Þátttökurétt hafa aðeins flokksbundnir Alþýðubanda- lagsmenn á Akureyri. Kjörtími er frá 14 til 18 báða dagana. í kjöri eru Geirlaug Sigurjónsdóttir, Gísli Ólafsson, Gunnar Helgason, Helgi Guðmundsson, Hilmir Helgason, Ingibjörg Jónsdóttir, Katrín Jóns- dóttir, Margrét Blöndal Björnsdóttir, Páll Hlöðvesson og Sigríður Stefáns- dóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.