Morgunblaðið - 13.02.1982, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
Yfirlýsing frá Geð-
læknafélagi ísiands
Á íundi í Geðlæknafélagi ís- tilfellum árangur. Undan þessari deild með rimlum fyrir gluggum
lands 4. febrúar 1982 var sam-
þykkt eftirfarandi yfirlýsing, sem
óskast birt í blaði yðar.
Undanfarnar vikur hefur átt sér
stað umræða á opinberum vett-
vangi um vistun og meðferð geð-
veikra voðamanna. Með því að þar
hefur víða gætt misskilnings og
vanþekkingar á forsendum máls-
ins, þykir Geðlæknafélaginu hlýða
að birta nokkrar leiðréttingar og
athugasemdir.
I blaðagreinum hefur oft verið
gefið í skyn að geðveikir menn séu
almennt hættulegri en annað fólk
og líklegri til að vinna voðaverk.
Rannsóknir hafa hins vegar leitt í
ljós, að geðveikir fremja hlut-
fallslega færri afbrot en aðrir
þegnar þjóðfélagsins.
Lagaleg skilgreining á ósakhæfi
geðveikra manna er mismunandi í
ýmsum löndum, t.d. á Norðurlönd-
um, og hafa því skapast ákveðnar
hefðir um vistun og meðferð slíkra
voðamanna í samræmi við inntak
laganna í hverju landi fyrir sig.
Hér á landi úrskurðar rannsókn-
ardómari hvaða afbrotamenn
skuli sæta geðrannsókn m.t.t.
sakhæfis eða ósakhæfis, og miðast
slík rannsókn við ákvæði 15.
greinar almennra hegningarlaga
frá 1940, en þar stendur orðrétt:
„Þeim mönnum skal eigi refsað
sem sökum geðveiki, andlegs van-
þroska eða hrörnunar, rænuskerð-
ingar eða annars samsvarandi
ástands, voru alls ófærir á þeim
tíma er þeir unnu verkið til að
stjórna gerðum sínum.“
Hugtakið ósakhæfi takmarkast
í þessari lagagrein við svo gagn-
gera truflun eða ágalla á sálarlíf-
inu, að við geðrannsókn er einung-
is hægt að úrskurða ósakhæfa þá
einstaklinga, sem haldnir eru al-
gerri sturlun og fá ekki stjórnað
gerðum sínum. Þeir geðsjúkdómar
og andlegir ágallar, sem leiða til
svo alvarlegs vanhæfis, eru jafnan
komnir á varanlegt stig og til-
raunir til lækninga bera í fæstum
Hótel Borg
staðreynd verður ekki flúið,
hversu mikið sem menn vilja
leggja sig fram um meðferð.
Osakhæfir voðamenn eiga að
sjálfsögðu rétt til að njóta að-
hlynningar eins og aðrir geðsjúkl-
ingar, faglegrar tilsjónar lækna
og tilhlýðilegrar hjúkrunar. Engu
að síður hljóta þeir að skipa sér-
stakan flokk geðsjúklinga, og
kemur þar aðallega tvennt til:
1. Þeir hafa verið dæmdir til ör-
yggisgæslu og teljast þar með
hættulegir samborgurum sínum.
2. Þeir hafa unnið voðaverk sem
í eðli sínu vekja hrylling í hugum
manna.
Vistun ósakhæfra voðamanna á
Kleppsspítala eða geðdeildum
annarra sjúkrahúsa, mundi hafa í
för með sér algjöra röskun á þeim
frjálslegu háttum um meðferð og
aðbúnað, sem sjúklingar hafa þar
notið í vaxandi mæli á undanförn-
um árum, og tekið hefur tíma og
fyrirhöfn að koma í framkvæmd.
Öryggisgæslan mundi breyta
sjúkrahúsinu í eins konar fangelsi,
þar sem óhjákvæmilegt væri að
vista þessa sjúklinga á lokaðri
og öðrum öryggisútbúnaði. Mundi
slík einangrun ákveðins hóps
sjúklinga orka þvingandi á þá
sjálfa og skapa óhug meðal ann-
arra sjúklinga á spítalanum svo og
aðstandenda þeirra. Þótt þessir
sjúklingar séu ekki afbrotamenn í
lagalegum skilningi, þá hafa þeir
unnið voðaverk sem ekki verða
aftur tekin eða bætt, og vera
þeirra innan einangrunardeildar á
stofnuninni mundi ala á enn meiri
fordómum í garð geðsjúklinga al-
mennt, og eru þeir nógir fyrir.
Vegna sérstöðu ósakhæfra voða-
manna, og einkanlega m.t.t. ör-
yggisgæslunnar, þar sem verndun
þegnanna vegur meira en læknis-
fræðileg sjónarmið, virðist sú til-
högun raunhæfust að vista þá á
sérstökum geðdeildum í tengslum
við fangelsi.
F.h. stjórnar Geðlæknafélags
íslands,
Jakob Jónaason
Sigmundur Sigfússon
SPE RRY^VlCKERSj
' l POWE R AND MOTION H
CONTROL SYSTEMS |
f Frumsyning sunnudag kl. 20.30.
| 2. sýning fimmtudag kl. 20.30.
Miðapantanir allan sólarhringinn.
J
Háþrýstidælur, mótorar,
ventlar og stjórntæki í
vökvakerfi til sjós og
lands.
Einkaumboð á íslandi.
Atlas hf
ARMÚLA 7 SÍMI 26755
6)cfriolansa\(lú(^ uri nn
Zlaina
Dansað í Félagsheimilí
Hreyfils í kvöld kl. 9—2.
(Gengiö inn frá Grensásvegi).
Hljómsveit Jóns Sigurössonar og söngkonan Krist-
björg Löve. Aðgöngumiðar í síma 85520 eftir kl. 8.
Aðalfundur
Eldridansaklúbbsins Eldingar veröur í Hreyfilshús-
inu sunnudaginn 28. febrúar nk. og hefst kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar. Stjórnin.
Avallt um
helgar
Mikið fjör
IEIKHÚS fi
sfl KJPLLHRinn ö
Opiö til kl. 03.00.
*
Kjallarakvöld aðeins fyrir matargesti.
Miðar seldir milli kl. 14 og 16 fimmtud.
föstud. Spiluð þægileg tónlist.
Boröapantanir eru í síma 19636.
Spariklædnaöur eingöngu leyföur.
Opiö fyrir almenning eftir kl. 10.
og
, F RONSK
MATAR
VIKA
13.-20.febrúar
T~"i' & i Y~r -i í
▼ ▼ ♦ ♦ 1
Franskur matráðsíwneistari,
fransfcr skemmúkraftar. Borðapantanir í sinvam: 22321 og 22322.
HÓTEL LOFTLEIÐIR