Morgunblaðið - 13.02.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
29
Vantrúaður á að frjálshyggjan berjist
fyrir frelsi venjulegra einstaklinga
- segir Birgir Björn Sigurjónsson, höfundur nýrrar bókar um Frjáishyggjuna
Blm.: Birgir, hver er
ástæðan fyrir því að þú fórst
að skrifa bók um frjáls-
hyggjuna?
Birgir: Það eru nú margar
ástæður fyrir því. Mér
blöskraði stefnuleysið sem
hefur lengi einkennt ís-
lenska hagstjórn, auk þess
sem yfirgangur erlendra
fyrirtækja í skjóli frjáls-
hyggjunnar hefur valdið mér
áhyggjum um framtíð og
sjálfstæði þjóðarinnar. Svo
eru þeir líka svo iðnir við að
skrifa, þessir frjálshyggju-
menn, og boða trú sína eins
og fagnaðarerindi, að mér
þótti orðið brýnt að vega á
móti þeirri einstefnu.
Blm.: Og hvernig tekur þú
á þessum málum í bókinni?
Birgir: Bókin er þannig upp
byggð, að fyrstu kaflarnir
lýsa forsendum frjáls-
hyggjuhagfræðinnar eins og
þær hafa verið settar fram
af fremstu hagfræðingum
hennar. Mér virðast ungir ís-
lenskir frjálshyggjumenn
ekki vera of vel heima í hag-
fræðilegri hlið frjálshyggj-
unnar; skrif þeirra heyra yf-
irleitt frekar undir pólitík en
hagfræði. Eg reyni að svara
mörgum fullyrðingum
frjálshyggjumanna með
fræðilegum rökum og talna-
gögnum. í seinni hluta bók-
arinnar ræði ég meðal ann-
ars þá hættu sem íslenskum
iðnaði og útgerð stafar af
erlendri ásælni. En frjáls-
hyggjan er raunverulega
hættuleg sjálfstæði íslensks
iðnaðar. Það eru ekki allir
sem skilja það.
Sænsk gagnrýni?
Blm.: Þú hefur starfað sem
kennari við háskólann í
Stokkhólmi. Er gagnrýni þín
að sænskri fyrirmynd?
Birgir: Það er útbreiddur
misskilningur á íslandi að
Svíar séu vinstrisinnaðir.
Ástæðan er sú að þeir hafa
ekki verið stórveldunum eins
leiðitamir í utanríkisstefnu
sinni og margar aðrar þjóð-
ir. En heima fyrir og einkum
í háskólanum á frjáls-
hyggjuhagfræðin miklu fylgi
að fagna. Þegar sænskir
hagfræðingar útlista hvern-
ig eigi að leysa efnahags-
kreppuna, hafa þeir minni
áhyggjur af atvinnu fólks og
lífsafkomu heldur en arð-
semi fjármagnsins. Þannig
að maður hefur auðvitað
Út er komin bókin
Frjálshyggjan eftir
Birgi Björn sigurjóns-
son, hagfræðing. Bókin
er rúmlega 250 bls. að
stærð og er útgefandi
bókaforlagið Svart á
hvítu. Hér fer á eftir
viðtal við höfund bók-
arinnar.
BIRGIR BJORN SIGURJÖNSSON
FlUÁtS’
HYGTiJ^
3S25K3&
á íslandI.
• Ríkisbáknið — fyrtr hvem?
• Áhreriö — ertend á»ælnl?
• Hagfraeðtngar Stjómmálamenn?
• Frjálshyggjuþjoðfelagtö -
framtiðarþjóðfélagið?
Bókarkápa.
Birgir Björn Sigurjónsson, hag-
frædingur.
dregið ýmsar ályktanir af
umræðunum þarna. Annars
var ég einu sinni fylgjandi
frjálshyggjunni sjálfur, —
þegar ég var Vökumaður í
Háskóla íslands. Þá taldi ég
hana miða að því að standa
vörð um frelsi þjóðar og ein-
staklinga, og var jafnframt
andvígur hernum og stóriðju
í erlendri eigu. í dag er ég
vantrúaður á það að frjáls-
hyggjan berjist fyrir frelsi
venjulegra einstaklinga.
Hún er sniðin fyrir þá ríku
og að sama skapi andstæð
hinum fátæku.
Blm.: Fyrir þá ríku?
Birgir: Já; ef þú skoðar
þetta í alþjóðlegu ljósi, út
frá milliríkjasamskiptum og
hagsmunum auðhringanna.
Á Islandi eru það t.d. aug-
ljósir hagsmunir innlends
iðnaðar að kveða niður
frjálshyggjudrauginn.
Frelsi einstaklingsins
Blm.: Fyrir hverja ertu að
skrifa þessa bók?
Birgir: Fyrst og fremst er
ég auðvitað að skrifa þetta
fyrir allan almenning; ég álít
að menn séu orðnir þreyttir
á málflutningi ungra frjáls-
hyggjumanna. í aðra rönd-
ina reyni ég að höfða til
fólks sem hefur lesið hag-
fræði og hefur eins og mér
fundist mikilvægt að halda
frelsi einstaklingsins í
heiðri. Ég vil útskýra fyrir
því fólki merkingu hugtaks-
ins frjálshyggja eins og það
birtist í frjálshyggjuhag-
fræðinni með því að beita
hagfræðilegum rökum, því
umræðan um frelsi má ekki
kafna í lýðskrumi og lodd-
araskrifum. í vissum skiln-
ingi er ég þannig að skrifa
fyrir þá sem frjálshyggju-
menn hafa þegar frelsað svo
þeir viti hvers konar frelsi
frjálshyggjan heitir þeim.
„Draumur" frjálshyggjunn-
ar gæti breyst í martröð, ef
hann rætist. EG
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
-w-yyv—ryv-
húsnæöi
óskast
Rekstrarframtöl
Aöstoö viö gerö rekstrarfram- j
tala.
Leiöarvisir sf. símar
29018 og 16012.
Skrifstofuhúsnædi
30 fm skrifstofuhúsnæöi óskast |
til leigu, fyrir endurskoöenda- i
skrifstofu. Helst i nágrenni |
Heima- eöa Vogahverfis. Uppl. i |
sima 39908 og 37195.
þjónusta
-A-JlA.A A
Svona á aö telja fram til
skatts 1982
Rit sem gilda allt áriö og fæst i
bokabuöum og blaöasöluturn-
um. Agóöi af ritinu rennur til
öldrunarmála.
Fyrirgreiösla
Leysum út vörur úr banka og
tolli meö greiöslufresti. Lysthaf-
endur leggi inn nöfn til Mbl.
merkt: „Fyrirgreiösla — 7861".
Innflytjendur
Get tekiö aö mér að leysa út
vörur Umsóknir sendist augiýs-
ingad. Mbl merkt: ,T — 8252".
IOOF 8 = 1632144: M.a.
Félag Kaþólskra
leikmanna
heldur aöalfund sinn i Stigahliö
63 manudaginn 15. febrúar kl. |
20.30. Venjulega aöalfundar- 1
störf
Stjórn FKL
Fíladelfía
Börn, æskufólk velkomiö i
sunnudagaskólann. Njarövík-
urskóli kl. 11. Grindavikurskóli
kl. 14. Sýnum fallegar litskugga-
myndir. Muniö svörtu börnin.
Kristján Reykdal.
Heimatrúboðið Óöins-
götu 6a
Almenn samkoma á morgun
sunnudag kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Elím, Grettisgötu 62,
Reykjavík
A morgun. sunnudag, veröur
sunnudagaskóla kl. 11.00 og al-
menn samkoma kl. 17.00. Veriö
velkomin.
Krossínn
Æskulyössamkoma i kvöld kl.
20.30 aö Auöbrekku 34. Kópa-
vogi. Allir hjartanlega velkomnir.
V/RKA
Klapparstig 25—27.
simi 24747
Námskeiö í bútasaumi
Eftirmiðdaga. hefjast 15/2 kl.
5—8 mánudaga og 18/2 kl.
5—8 fimmtudaga.
Kvoldnamskeid. hefjast 22/2 kl.
8—11 mánudag, 24/2 miö-
vikudag og 25/2 fimmtudag.
Framhaldsnámsketð í búta-
saumi, hefjast þriöjudaginn 23/2
kl. 8—11
Hnýtmgar. hefjast fimmtudag
25/2 kl. 8—11.
□ Gimli 59821527 — 1 Frl
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferöir
sunnudaginn 14. febr.:
1. kl. 10 f.h. Ferö aö Geysi og
Gullfossi. Feröafélagiö hefur
fengiö ieyfi hjá Geysis-nefnd,
til þess aö setja sápu i hverinn
og framkalla gos. Ath.: Feröa-
félagiö efnir aöeins til þessar-
ar einu feröar aö Geysi. Verö
kr. 150.
2. Kl. 13 — Skiöagönguferö í
Ðláfjöll. Verö kr. 50. Frítt fyrir
börn i fylgd fulloröinna Fariö
frá Umferöarmiöstööinni,
austanmegin Farmiöar viö
bil. Feröafélag Islands.
ÚTIVISTARFERÐIR
Sunnudagur 14. febr.
1. Kl. 10.00: Gullfosi í klaks-
böndum — Gjótandi Geyair.
Verö 150 kr. Fararstjóri Kristján
M Baldursson.
2. Kl. 11.00: Grindaakörö —
Bollar.
Skiöa- og gönguferó. Ekiö i
Kaldarsel og gengió þaóan.
Verö 50 kr. Fararstjóri Þorleifur
Guömundsson.
3. Kl. 13.00: Helgafell — Vala-
hnúkar.
Gengiö fra Kaldarseli. Verö 50
kr Fararstjóri Steingrimur Gaut-
ur Kristjánsson.
I allar feröirnar er lagt af staö fra
BSI aó vestanveröu. i ferö 2 og 3
er folk tekió við kirkjugaróinn i
Hafnarfirói.
Utivist.
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Félag sjálfstæöis-
manna í Langholti
heldur fund 15. febrúar kl. 8.30.
Fundarefni: Er pólitísk innræting stunduö í
skólum landsins?
Frummælandi: Haraldur Kristjánsson nemi.
Akureyri Akureyri
Prófkjör
sjálfstæöismanna
Auglyst er eftir framboöum til prófkjörs vegna komandi bæjarstjórn-
arkosninga Frambjööandi skal vera félagi í einhverju sjálfstæóisfe-
laganna a Akureyri og hafa meömæli minnst 25 og mest 50 félags-
bundinna sjálfstæöismanna og má hver maöur mæla meö 5 mönnum
mest. Framboöum skal skilaó til formanns kjörstjórnar, Ragnars
Steindórssonar hrl., Espilundi 2, jyrir miönætti, fimmtudaginn 18.
febrúar nk.
Kjörstjómin.
Hafnarfjörður
Sjálfstæóiskvennafelagiö Vorboöi heldur
fund i Sjálfstæóishúsinu, mánudaginn 15.
februar kl. 20.30.
Fundarefni:
Aö taka afstöóu og fylgja henni eftir.
Framsögumaöur: Inga Jóna Þoröardóttir.
Kaffiveitingar Allar sjalfstæöiskonur eru
hvattar til aö mæta og taka meö ser gesti.
Stjórnin.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU