Morgunblaðið - 13.02.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRUAR 1982
Guðjón Jónsson, vitavörður Urðavitans Þorbjörns, skimar eftir vita sínum, horfnum af sínum stað.
Urdaviti á Heimaey hvarf
IÍRÐAVITI austur á Nýjahrauni í
Vestmannaeyjum hvarf í óveðrinu
um síðustu helgi, en vitinn hefur
gengið undir nafninu Þorbjörn frá
eldgosinu í Kyjum, en Þorbjörn á
Kirkjubæ var helzti bóndi Vest-
mannaeyja þegar gosið skall á.
Gamli Urðavitinn fór undir
hraun á fyrstu dögum eldgossins,
en yzt á hömrum nýja hraunsins
var reistur annar viti sem þurfti
þó að færa fyrir nokkrum árum
vegna breytinga á austurhömrun-
um. En í fárviðrinu sem gekk yfir
um sl. helgi varð vitinn hafinu að
bráð og jafnframt gjörbreyttist
allt landslag á stóru svæði þarna
í veðrahamnum. Verður nú ráð-
inn bráður bugur að því að reisa
vita á Austurströndinni þarna,
því skipaferðir eru tíðar austan
við Eyjar.
- j jn TT' u
Þessa mynd tók Sigurgeir í Eyjum fyrir skömmu af Urðavitanum
„Tobba“, en hann hvarf í óveðrinu um sl. helgi.
Fjögur félög á Vest-
fjörðum boða til verk-
falls 22. febrúar nk.
ísafjörður:
Prófkjörslisti sjálf-
stæðismanna ákveðinn
l.saHrði. II. fi'brúar.
í DAG, fimmtudag, gekk uppstill-
inganefnd frá framboði sjálfstæð-
ismanna vegna sameiginlegs próf-
kjörs stjórnmálaflokkanna á Isa-
firði, sem haldið verður 27. og 28.
febrúar nk.
Prófkjörslistinn er fullskipaður
með 12 þátttakendum, en kjósend-
ur geta bætt inná allt að sex nöfn-
um við atkvæðagreiðsluna. Þessir
eru á listanum: Anna Pálsdóttir
meinatæknir, Árni Sigurðsson rit-
stjóri, Brynjólfur Samúelsson
byggingameistari, Emma Rafns-
dóttir húsmóðir, Geirþrúður
Charlesdóttir skrifstofumaður,
Guðmundur H. Ingólfsson gjald-
keri, Guðmundur Marinósson
skrifstofumaður, Hans Georg
Bæringsson málarameistari, Ingi-
mar Halldórsson framkvæmda-
stjóri, Pétur Geir Helgason yfir-
fiskmatsmaður, Valgerður Jóns-
dóttir kennari og Þórólfur Egils-
son rafverktaki.
Hinir flokkarnir hafa enn ekki
birt prófkjörslista sína, en frest-
urinn til þess rennur út að kvöldi
föstudagsins 12. febrúar. Úlfar.
Lögbannsmálið
yar sett í dóm
TVÖ verkalýðsfélög á Vestfjörðum,
á Isafirði og Suðureyri, hafa boðað
til vinnustöðvunar 22. febrúar
næstkomandi takist samningar ekki
áður. Þá munu verkalýðsfélögin á
Bolungarvík og Flateyri hafa ákveð-
ið að boða til verkfalls þennan dag,
en verkalýðsfélög annars staðar á
Vestfjörðum hafa ekki boðað til
verkfalls. Félagar í þessum verka-
lýðsfélögum starfa flestir við fisk-
vinnslu, en þess má geta, að sjó- ________________________________________________________________________
menn vestra styðja þessar aðgerðir „ .{ « ij n , ciTT ■ h i n* <■ ■
ekki. Félög á Vestfjörðum öfluðu sér Eyjólfur lsteld torstjori SH um loðnumarkaðmn 1 Japan:
verkfallsheimilda í október og nóv-
ember er samningar voru lausir.
í gær var haldinn árangurslaus
samningafundur Alþýðusambands
Vestfjarða og félags vinnuveit-
enda undir stjórn Guðlaugs Þor-
valdssonar, ríkissáttasemjara.
Annar fundur hefur verið boðaður
fyrir hádegi í dag. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins hef-
ur á samningafundum undanfarið
einkum verið rætt um samning til
þriggja mánaða.
Hvorugur aðili hefur gefið eftir
á samningafundum undanfarið og
þó svo að verið sé að ræða samn-
ing til skamms tíma, bendir nú
allt til verkfalls á fyrrnefndum
stöðum á Vestfjörðum um næstu
helgi. Útgerðarmenn á Vestfjörð-
um hyggjast láta togarana sigla
með aflann komi til verkfalls.
MUNNLEGUR rnámutningur fór
fram á fimmtudag í löghannsmálinu,
sem samgönguráðuneytið höfðaði
gegn Bifreiðastöð Steindórs, og var
málið sett í dóm. Búist er við dóms-
niðurstöðu á mánudag. Viðar Már
Matthíasson lögfræðingur flutti mál-
ið fyrir hönd núverandi eigenda
stöðvarinnar, og Jón Þorsteinsson
fyrir ráðuneytið, en hann er einnig
lögmaður Bifreiðastjórafélagsins
Frama.
„Við munum á mánudag af-
henda samgönguráðherra undir-
skriftalistana, þar sem um 10 þús-
und manns lýsa yfir stuðningi við
okkur í deilunni við samgöngu-
ráðuneytið," sögðu talsmenn bif-
reiðastjóra hjá Bifreiðastöð
Steindórs í samtali við Morgun-
blaðið.
Londonfrakt
í gegnum
Luxemborg
SVEINN Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði í samtali við Mbl.,
að verkfallsaðgerðir á Heathrow-
flugvelli í London, hafi hindrað
vöruflutninga hingað til lands und-
anfarna daga.
— Við höfum sent tvo hlað-
menn með vélunum að undan-
förnu, en það hefur ekki tekizt að
afhlaða vélarnar vegna þess, að
þeir sem standa fyrir þessum
verkfallsaðgerðum, hafa lagt bíl-
um og stórum vinnutækjum fyrir
vöruafgreiðslurnar.
— Vegna þessa ástands höfum
við nú gert ráðstafanir til að
senda þær vörur sem bíða í gegn-
um Luxemborg. Vörurnar eru
fluttar á stórum flutningabílum
yfir til Luxemborgar og ég á von á
því, að allar vörur, sem bíða komi
hingað til lands um helgina, sagði
Sveinn Sæmundsson ennfremur.
Aðspurður sagði Sveinn, að ef
framhald yrði á þessum aðgerð-
um, yrði vöruflutningunum beint í
gegnum Luxemborg.
Kváðust þeir verða varir við
mikinn stuðning almennings við
málstað sinn, þessar tíu þúsund
undirskriftir hefðu komið á ör-
stuttum tíma, og alveg án allrar
skipulegrar vinnu við söfnun
þeirra.
Kleppsspítali og
Kópavogshæli:
Um 200 manna
hópur ekki
mætt í vinnu
síðustu daga
ALLT ER enn við það sama í deilu
ófaglærðs starfsfólks á Kleppsspít-
ala og Kópavogshæli við ríkið, en á
hádegi á fimmtudag yfirgaf um 200
manna hópur á þessum stöðum
vinnustaði sína og ætlar ekki að
mæta til vinnu fyrr en samningar
hafa tekizt. Verkfall þetta er ólög-
legt. ,
I gær voru um 20 ófaglærðir
starfsmenn við vinnu á Klepps-
spítala, en enginn þeirra lýsti yfir
stuðningi við þessar aðgerðir með
undirskrift eins og 100 vinnufélag-
ar þeirra gerðu. Á Kópavogshæli
mætti hluti starfsmanna til vinnu
í gær, en þar rituðu 104 undir
stuðningsyfirlýsingu við þessar
aðgerðir.
Patreksfjörður:
Sameiginlegt
prófkjör
Patrvksfírði. 12. febrúar.
ÁKVEÐIÐ hefur verið sameiginlegt
prófkjör Sjálfstæðisflokksins, Al-
þýðuflokksins og Framsóknar
flokksins hér á Patreksfirði. Verður
það hinn 14. marz næstkomandi.
Alþýðubandalaginu var enn-
fremur boðin þátttaka í sameig-
inlegu prófkjöri, en því var hafnað
af forvígismönnum þess. — Pá||
„Veiðibannið hér kemur í veg fyrir sölu á
miklu magni af hrognum og frystri loðnu“
Refur í heimsókn
líoriííirci rum. \-K.vjiirjalliihrcppi, 12. folir.
OSKEMMTILEGUR gestur, refur,
var aó sniglasl hér við hæinn á dög-
unum. Aðeins einu sinni áður hefur
refur sést hér á slóðum. Þar var
fyrir mörgum árum og var hann að
velli lagður.
Sigurður Sigmundsson, verk-
stjóri hjá Rafveitunni, sá refinn
við veginn fyrir ofan Hólmsbæi
og stefndi hann í suður í átt að
Borgareyrum. Jörð var auð og því
ekki hægt að rekja slóð hans.
Rebbi sleppur því væntanlega í
þetta skipti.
Misveðrasamt hefur verið hér í
vetur, austan rok eða suðvestan
éljagangur. Þó hafa komið hér
margir góðir dagar í vetur.
— Markús
„ÞAÐ ER mikil eftirspurn eftir
frystri loðnu og loðnuhrognum í Jap-
an um þessar mundir og hefur verð
hækkað frá í fyrra. Það er einfald-
lega veiðibannið hér heima, sem
kemur í veg fyrir að við seljum mik-
ið magn af þessum afurðum til Jap-
ans í vetur. Hins vegar er rætt um að
Japanir kaupi 500 tonn af frystum
þroskhrognum frá íslandi í vetur,“
sagði Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna í samtali við Morgunblaðið, en
hann er nú nýkominn heim frá Jap-
an, eftir að hafa rætt við kaupendur
þar um kaup á loðnu og loðnuhrogn-
um frá íslandi.
„Ég var langt kominn með að
gera samning við Japanina, þegar
mér bárust fréttir um ástand
loðnustofnsins og því þurfti ég að
hætta við samningsgerðina, en
málin standa þannig að Japanir
viija eindregið gera við okkur
samning um kaup. Að vísu eiga
einhverjir bátar eftir að fiska ör-
lítið af því, sem þeim er heimilt og
hafa eigendur þeirra skipa áhuga
á að frysta loðnuna og. selja til
Japans.
Það er mjög slæmt ef engin
loðnuhrogn verða fryst hérlendis í
vetur, því þá förum við illa með
kaupendur og neytendur í Japan.
Hrognin fara í verksmiðjur í Jap-
an og ef þær fá ekki hrogn til að
vinna úr, er um rothögg fyrir Jap-
ani að ræða.Norðmenn geta að
vísu komið þarna til bjargar að
einhverju leyti, en engu að síður er
þetta mjög slæmt fyrir okkur,
ekki síst þar sem markaður í Jap-
an fyrir loðnuhrogn og einnig
frysta loðnu fer vaxandi," sagði
Eyjólfur ísfeld.
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá, þá hefur tonnið á frystri loðnu
í Japan hækkað úr 1275 dollurum í
1375 dollara frá því í fyrra.
Að sögn Eyjólfs ísfeld, ræddi
hann við Japani um kaup á öðrum
sjávarafurðum frá Islandi, en það
sem kemur í veg fyrir frekari kaup
Japana á íslenzkum sjávarafurð-
um er hinn hái flutningskostnaður
tii Japan frá íslandi.