Morgunblaðið - 16.02.1982, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
34. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982
Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Olíuborpallur hverfur
í hafíð með 84 menn
Olíuborpallurinn Odero Ocean
Ranger, sem hvarf í hafið í gær í
ofsaveðri austur af strönd Ný-
fundnalands med 84 menn inn-
anborðs. Þyrlur og skip leita nú
þeirra, sem hugsanlega hafa get-
ad hjargað sér í hjörgunarbát, en
á því voru ekki taldar miklar lík-
ur. Ocean Ranger var einn af
stærstu olíuborpöllum í heimi.
APsímaim nd
Si. Johns, Nýrundnalandí, 15. IVhrúar. Al*.
OLÍUBORPALLl undan strönd
Nýfundnalands hvoifdi í dag í
miklu óveðri og hurfu með hon-
um í hafið 84 menn. Þeim hafði
áður verið skipað að yfirgefa
pallinn í sérstökum björgunar
bátum, sem þar eru hafðir til
taks, en óveðrið og allt að 15
metra ölduhæð munu hafa
komið í veg fyrir tilraunir
þeirra til þess. Björgunarskip
og þyrlur eru nú á staðnum og
má sjá úr þeim lík mannanna
velkjast í sjónum en ógjörning-
ur er að ná þeim fyrir veðurofs-
anum.
Olíuborpallurinn, Odeco Ocean
Ranger, var 281 km í hafinu austur
af St. Johns á Nýfundnalandi en
ofsaveður er nú á þeim slóðum.
Fyrr í dag, þegar pallurinn var tek-
inn að hallast, var mönnunum skip-
að að yfirgefa hann í björgunarbát-
um en skömmu síðar rofnaði allt
Þrennt var handtekið
með byssu eftir komu
Páls páfa til Nígeríu
l.ai»os, 15. fuhrúar. Al*.
LÖGREGLAN í Lagos í Nígeríu
handtók vopnaðan mann á helsta
íþróttaleikvanginum í borginni
skömmu áður en l’áll páfi flutti
þar messu sl. föstudag og þrjár
vopnaðar manneskjur voru hand-
teknar í gær, sunnudag, á flugvell-
inum í Kaduna í norðurhluta
landsins. Þessar fréttir eru hafðar
eftir Fréttastofu Nígeríu en lög-
reglustjórinn í I.agos segist hins
vegar ekkert kannast við málið.
Fréttastofan, stm er ríkisrekin,
segist hafa það eftir heimildum
innan lögreglunnar, að vopnaði
maðurinn í Lagos hafi verið
handtekinn þegar hann reyndi að
brjótast með valdi inn á leikvang-
inn og að við leit á honum hafi
fundist skammbyssa og skotfæri.
Þremenningarnir í Kaduna, tveir
karlmenn og ein kona, voru hand-
teknir þremur stundum eftir að
páfi fór þaðan og fór lögreglan
þar eftir ábendingu leigubíl-
stjóra, sem hafði séð skamm-
byssu í fórum fólksins.
Eins og fyrr segir vill lögreglu-
stjórinn í Lagos ekki kannast við
þessar fréttir og í sama streng
tekur talsmaður Vatikansins,
Romeo Pancirolli, sem er í för
með páfa í átta daga ferð hans
um Afríkulönd, en það er hans
fyrsta utanför eftir að reynt var
að ráða hann af dögum í maí á
síðasta ári.
Sjá „Páfa vel tekið í
Nígeríu" á bls. 18.
Ungar skólastúlkur taka hér á móti Páli páfa þegar hann kom í gær til
háskólans í Ibadam í VesturNígeríu en þar er Yoruba-ættflokkurinn
fjölmennur. Páfa hefur verið fagnað ákaflega þar sem hann hefur komið
í NígerÍU. AP’síinamynd
samband við þá. Þegar björgunar-
skip og þyrlur komu svo á vett-
vang var pallurinn horfinn en akk-
erisbaujurnar sögðu til um hvar
hann hafði verið. Einnig sáust í
sjónum þrír björgunarbátar frá
olíuborpallinum en enginn maður
var í þeim. Á pallinum voru til
björgunarbelti fyrir alla, sem þar
voru, en ekki er vitað hvort menn-
irnir höfðu tíma til að setja þau á
sig.
Talsmaður leitar- og björgunar-
mannanna sagði, að ölduhæðin, allt
að 15 metrar, og óveðrið gerðu það
að verkum, að ekki væri hægt að ná
til líkanna í sjónum þó að til þeirra
sæist úr skipunum. Á slysstaðnum
eru nú tvær þyrlur, sem höfðu verið
sendar til að flytja mennina frá
pallinum, og tvö skip og von var á
öðrum þremur skipum.
Talsmaður Mobil-olíufélagsins,
sem var með borpallinn á leigu,
sagði, að hann hefði verið við bor-
anir úti fyrir ströndum Nýfundna-
lands í hálft annað ár og verið á
þessum stað síðan í nóvember. Á
olíuborpallinum störfuðu 10 Banda-
ríkjamenn og 74 Kanadamenn.
Fullyrt er, að engin hætta sé á að
olía fari að streyma út úr holunni,
sem verið var að bora. Mesta slys af
þessu tagi varð fyrir tæpum tveim-
ur árum þegar íbúðarpallinum Al-
exander Kjelland hvolfdi 320 km úti
af Noregsströnd en þá fórust 123
menn.
Pólland:
Herstjórnin herðir
tökin eftir óeirðir
N arsjá. 15. fehrúar. Al’.
HERT var mjög á herlögun-
um í Póllandi í dag, mánu-
dag, samtímis því sem opin-
berir fjölmiölar réðust af
offorsi á þá, sem hefðu uppi
mótmæli og stæðu fyrir
óeirðum eins og það var
orðað. Einnig var getið nýrra
dreifimiða þar sem kallað
var á „dauða yfir hinum
rauðu“ og fullyrt, að borgara-
styrjöld væri óumflýjanleg í
Póllandi.
Auknar öryggisráðstafanir nú
koma í kjölfar mótmælanna um
helgina þegar hundruð manna
flykktust út á götur í Poznan, iðn-
aðarborg í Vestur-Póllandi, og
gerðu hróp að stjórnvöldum í
landinu og kröfðust afnáms her-
laganna. Um 200 voru handteknir
og er talið að dómar hafi nú þegar
verið kveðnir upp yfir mörgum
þeirra. Fréttir frá borginni Lublin
herma, að þar hafi lögreglan gert
óvirka sprengju, sem komið hafði
verið fyrir við bensínstöð rétt hjá
skrifstofum kommúnistaflokksins
i borginni.
Stjórnarmálgagnið, Trybuna
Ludu, réðst í dag mjög harkalega
á kaþólsku kirkjuna í landinu og
sagði suma þjóna hennar vera með
„ögrandi yfirlýsingar og pólitíska
afskiptasemi, sem eykur á spenn-
una“. Blaðið var einnig mjög harð-
ort í garð þeiVra, sem stæðu fyrir
mótmælum og dreifingu flugmiða
þar sem jafnvel væri hvatt til
þess, að kommúnistar væru drepn-
ir og fólk búið undir borgarastvrj-
öld.
Vonir Lakers fara dvínandi
l.ondon, 15. fohrúar. Al'.
ÁÆTLANIR Sir Freddie Lakers
um að hrinda af stokkunum nýju
flugfélagi í apríl nk. ásamt auð-
jöfrinum Roland Rowland biðu
mikinn hnekki í dag þegar flug-
málayfirvöld sögðu, að „langan
tíma“ tæki að fjalla um umóknir
I.akers um leyfi til að fljúga á
ákveðnum flugleiðum.
Flugleyfi Laker-félagsins ganga
úr gildi nk. miðvikudag vegna
gjaldþrotsins en Laker hefur lýst
því yfir, að hann ætli að sækja um
endurnýjun þeirra til að geta haf-
ið rekstur nýs flugfélags. Sl. föstu-
dag hótaði hann því svo að hætta
við allt saman ef þessi endurnýjun
drægist úr hömlu.
Talsmaður breskra flugmálayf-
irvalda sagði hins vegar í dag, að
þar til málefni Lakers hefðu verið
könnuð niður í kjölinn væri ekki
vitað hvort unnt reyndist að
endurnýja flugleyfin eða hvort
hann yrði að sækja um þau að
nýju. „Hvor leiðin, sem farin verð-
ur, mun verða afar tímafrek,"
sagði hann og benti á, að ef önnur
flugfélög mótmæltu endurnýjun-
inni til Lakers, sem telja mætti
fullvíst, yrði til að koma um-
fangsmikil athugun og yfirheyrsl-
ur.
Sir Freddie sagði í viðtali í gær,
sunnudag, við The Sunday Tele-
graph, að hann hefði misst allar
eigur sínar við gjaldþrotið. Hér
áður fyrr hefðu persónulegar eig-
ur hans verið metnar á tæpa 130
milljarða ísl. kr., en nú næmu þær
í mesta lagi 300.000 kr.
í Poznan hefur umferð einka-
bíla verið bönnuð og einnig
skemmtanir eða aðrar samkomur
vegna mótmælanna um helgina. í
Varsjá er orðrómur á kreiki um að
þar hafi sprengja sprungið um
helgina, í hverfi þar sem búa emb-
ættismenn stjórnarinnar. Engin
staðfesting hefur fengist á þessari
frétt en haft er eftir erlendum
fréttamönnum að lögregla og her-
menn leiti gaumgæfilegar en áður
á fólki og í bílum þess, einkum þar
nálægt sem erlendir fréttamenn
hafast við.