Morgunblaðið - 16.02.1982, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982
7
Nýtt — Nýtt
frá Þýskalandi og Sviss. Pils, peysur, blússur, kjól-
ar.
Glugginn, Laugavegi 49.
HELGI JÓNSSON - LEIGUFLUG - AIRTAXI
REYKJA ViK URFL UGVELLI
Simi: (91-)10880(91-) 10858
Leiguflug
milli landa og
innanla.'ids
Þessir menn
eru tíma-
skekkja
„Dálítið er því dapur
legt, med slíkar horfur við
sjóndeildarhring og þegar
farið að gæta, að þá skuli
stjórnendur Reykjavíkur
borgar allt í einu rjúka til
og vilja malbika og steypa
yfir frátekin útivistarsvæði
borgarbúa framtíðarinnar.
llafa að hugsjón að búa til
þétta húsaborg, útrýma
grænu blettunum í hverf-
unum, og ganga á afþrey-
ingarsvæðin, jafnvel I>aug-
ardalinn og Elliðaársvæðið.
Kru þeir ekki dálítil tíma-
skekkja?
Borgarbúar eru sýnilega
ekki hrifnir. Jafnvel al-
mennir alþýðubandalags-
menn, scm þó eiga frum-
kvöðlana er beita sér af al-
efli að þessu, virðast ekki
vilja meira af svo góðu.
Létu það í Ijós í vali manna
á llsta sinn til næstu borg-
arstjórnarkosninga. Aðeins
21 vildi í forvalinu að Sig-
urður Ilarðarson, formað-
ur skipulagsnefndar, sem
harðast gengur fram í þess-
ari stefnu, yrði þar á lista
og gæti fcngið tækifæri til
að hafa áhrif á stjórnun
borgarinnar næsta kjör
tímabil. Eftir seinni um-
ferðina er hann í Pjóðvilj-
anum ekki nefndur, þar
sem getið er 10 í efstu sæt-
unum, þ.e. þeirra sem við
sömu aðstæður og nú, yrðu
aðal- og varafulltrúar.
Stefna formanns og skipu-
lagsnefndar fær ekki einu
sinni hljómgrunn f hans
eigin flokki. Samt ætla nú-
verandi kollegar hans þar
á bæ, svo og meðreiðarsv-
einar úr hinum tveimur
meirihlutaflokkunum, að
keyra þetta af þvfiíkum
krafti ofan í mannskapinn,
að allt kapp er lagt á að
úthluta byggingarlóðum á
viðkvæmum útivistarsvæð-
um — þótt þau séu ekki
tilbúin — fyrir kosningar,
svo ekki sé hægt að endur
skoða málið þótt borgarbú-
Eitt af því sem farið hefur hvað mest í taugar á þeim
borgarbúum, sem varðveita vilja útivistarsvæði innan
borgarmarka, skrúðgarða og gróðurreiti, er skipulags-
stefna vinstri meirihlutans í borgarstjórn. Óánægjan nær
langt inn í raðir forystuflokksins, Alþýðubandalagsins.
„Aðeins 21 vildu í forvalinu Sigurö Harðarson, formann
skipulagsnefndar, sem harðast gengur fram í þessari
stefnu,“ segir Elín Pálmadóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi í
nýlegri blaðagrein.
ar kjó.si. Var ekki einhver
kelsari sem lék á fiðlu
mcðan borgin hans
brann?“
Fúi, mygla,
mýs og
skjalavarzla
Sigurlaug Bjarnadóttir
spurðizt nýlega fyrir um
húsnæðismál Þjóðskjala-
safns, sem verður 100 ára í
ár. Ilún sagði m.a. að þau
mál, sem snerta opinbera
skjalavörzlu, væru komin í
fuílkomið öngþveiti, bæði
að því er varðar skipulag
og húsna'ði. Með stór
auknu pappírsflóði á veg-
um ríkis, sveitarfélaga og
stofnana á þess vcgum,
væru embættisstofnanir að
yfirfyllast af skjölum. Allt
samræmi vanti í röðun
skjala í embættum, sem
hafa svipað verksvið, s.s.
hjá sýslumanna- og bæjar
fógetaembættum, sjúkra-
húsum, prestsembættum,
bönkum o.fl. Eitt allra
brýnasta verkefnið er þó,
að mati skjalavörzlunefnd-
ar, að tekin sé upp nú þeg-
ar skipuleg grisjun emb-
ættisgagna, því verði fleygt,
sem ekkert varðveizlugiídi
hafi frá sögulegu eða
menningarlegu sjónarmiði,
hinu haldið til haga með
sómasamlcgum hætti.
Sigurlaug lét að því
liggja að víða safnist upp
haugar af ónýtu pappírs-
rusli, hvar innan um séu
ýmis verðmæti, sem oft á
tíðum fari hreinlega í súg-
inn við mjög léleg geymslu-
skilyrði, „þar sem fúi,
mygla og mýs fari sínu
fram". Um leið eru þau
náttúrlega algjörlega óað-
gengileg þeim aðilum, scm
vildu eiga aðgang að þeim
til heimildasöfnunar eða
rannsókna. í þessari mis-
brestun á flokkun skjala
og skilum lögum sam-
kvæmt munu ráðuneytin
sjálf ekki hafa hreinan
skjöld, „og svo er hitt“,
sagði Sigurlaug, „að !>jóð-
skjalasafnið er komið í al-
gjört þrot með húsnæði til
að taka við skjölum. Því er
ein af mcginkröfum skjala-
vörzlunefndar, að bætt
verði úr húsnaðisþörf
safnsins“.
Eitthvað rætist úr hús-
næðisniálum safnsins, sem
mun eiga að fá núverandi
húsna'ði I^ndsbóka-
safnsins, ef það flytur í
hina nýju l’jóðarbókhlöðu,
en nokkur ár kunna líða
unz hún verður tilbúin.
Skjalavörzlunefnd hefur
skilað ítarlegri úttekt og
tillögugerð. Hvorttveggja
er í skjala-„vörzlu“ við-
komandi ráðuneytis og bíð-
ur cndanlegrar ákvörðun-
ar, eins og fleira.
Bolungarvík:
Fólksflótd vegna hins háa orkuverðs
Itolungarvík, II. fehrúar.
Á FUNDI sínum nýlega fjallaði bæjar
ráð Bolungarvíkur um málefni sem
mjög brennur á mönnum hér og e.t.v.
víðar, en það er jöfnun orkuverðs.
Gerði bæjarráð af því tilefni sam-
þykkt þar sem óskað er eftir umræðu-
fundi eða ráðstefnu um þau mál. En
það er að sjálfsögðu von Bolvíkinga
að við þessum tilmælum bæjarráðs
verði orðið, því það er ekki laust við
að farið sé að gæta fólksflótta úr
byggðarlaginu suður vegna mismunar
í þessum efnum. Samþykkt bæjarráðs
Bolungarvíkur var svohljóðandi:
Bæjarráð Bolungarvíkur lýsir yf-
ir áhyggjum sínum vegna hins háa
orkuverðs sem Vestfirðingum er
gert að greiða. Þrátt fyrir marg-
ítrekuð tilmæli og samþykktir
sveitarstjórnarmanna á Vestfjörð-
um til stjórnvalda um að staðið
verði við fyrirheit um jöfnun orku-
verðs um land allt hefur lítt miðað í
þá átt. Bæjarráð beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til stjórnar
Fjórðungssambands Vestfirðinga,
að hún beiti sér nú þegar fyrir sér-
stökum umræðufundi eða ráðstefnu
um jöfnun orkuverðs. Til fundarins
verði m.a. boðið þingmönnum kjör-
dæmisins, iðnaðarráðherra, full-
trúum sveitarfélaganna ásamt öðr-
um þeim aðilum er stjórnin telur
rétt að sitji fundinn.
Gunnar
I
Ritsafn GuÓmundar Daníelssonar
1
Guðmundur DanicíSSC", frásagnameistari í 48 ár.
Ritsafn Guðmundar Daníelssonar er 10 bækur. Öll verkin eru frá
árunum 1948-1970 og sum þeirra hafa verið ófáanleg um hríð.
í ritsafninu eru skáldsögumar Blindingsleikur, Musteri óttans,
Hrafnhetta, Húsið, Turninn og teningurinn , Sonur minn Sinfjötli
og Spítalasaga, skáldverk utanflokka í bókmenntunum.
Einnig ferðasagan Á langferðaleiðum, veiðisagan Lands-
hornamenn - sönn saga í há-dúr ogsmásagnasafnið Tapaö stríð.
Viðfangsefnin eru margvísleg og tekin fjölbreytilegum tökum, en
þróttmikill stíll og hröö og lifandi frásögn eru samkenni á öllum
verkum Guðmundar Daníelssonar.
Ritsafninu fylgir ellefta bindiö með ritgerð dr. Eysteins
Sigurðssonar um verk Guðmundar; og skrá um útgáfur, ritdóma og
heimildir þeirra, sem Olafur Pálmason hefur tekið saman.
Góð bókmenntaverk í vönduðum búningi.
5 :) 5 ® i) i) 3)?
S S> ® *
e
2» Zf **** *** kkt
!«» * ***» *<» ;
lögbetg Bókaforlag
Þinghdtsstræti3, simi: 21960
I