Morgunblaðið - 16.02.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982
19
Mestu verðhækkanir
í Rúmeníu í áratugi
flugturninn á National vita af ísn-
um sem þeir sáu hlaðast upp á
vængjum þotunnar, eins og flug-
menn annarra flugvéla gerðu.
„Það er um sentimetra íslag á
þessum væng,“ sagði Pettit og
þrátt fyrir að reglur banni flugtak
undir slíkum kringumstæðum óku
þeir þotunni í flugtaksstöðu. Pett-
it stjórnaði flugvélinni og sagði
þegar þeir komu út á flugbrautina:
„Það er krap á brautinni, viltu að
ég geri eitthvað sérstakt af þeim
sökum, eða á ég bara að láta
vaða?“ „Það er þá ekki nema þú
hafir eitthvað sérstakt í huga,“
svaraði Wheaton flugstjóri. Pettit
lýsti því þá hvernig hann hygðist
framkvæma flugtakið, en hann
klykkti út með að segja: „Það fer
annars eftir hversu hræddir við
erum.“
Þegar þotan öslaði niður eftir
flugbrautinni sótti kvíði að Pettit
þegar hann leit á mæla er áttu að
sýna kný hreyflanna. „Guð,“ sagöi
hann, „líttu á þetta. Þetta virðist
ekki vera eins og það á að vera.“
„Jú, jú, þetta er allt í lagi,“ sagði
flugstjórinn. „Ég held þetta sé
ekki alveg rétt. Og þó, kannski. Ég
veit það ekki,“ sagði Pettit.
Um síðir lyfti þotan sér. Sau-
tján sekúndum seinna, þegar
stjórntækin gefa merki um að
ofris sé í nánd, reynir flugstjór-
inn, Wheaton, að tala þotuna á
loft: „Áfram, áfram með þig og
upp. Það er varla að hún klifri."
Fimm sekúndum seinna gerði
Pettit sér grein fyrir því sem
verða vildi og sagði: „Larry, við
erum að hrapa Larry." „Já, ég veit
það,“ tautaði Wheaton flugstjóri,
en hann hafði ekki lokið setning-
unni þegar heyra mátti á segul-
bandsupptökunni fyrstu málm-
hljóðin, til merkis um árekstur við
brúna yfir Potomac.
Húkarost, 15. fobrúar. Al*.
HÆKKANIR á verði undirstöðufæðu-
tegunda og vindlinga tóku gildi í Rúm-
eníu í dag, mánudag. Þetta eru taldar
mcstu verðhækkanir í sögu landsins
frá stríðslokum.
Flokksmálgagnið Scinteia segir að
verð á 220 vörutegundum hækki að
meðaltali um 35 af hundraði. Þar með
hafa orðið verðhækkanir í þremur
austantjaldsríkjum í þcssum mánuði
— verð hefur einnig hækkað í Póllandi
og Tékkóslóvakíu. Skuldir við útlönd
munu nema 10,8 milljörðum dala.
í Rúmeníu hækkar verð á kjöti,
hrísgrjónum, sykri, osti, hveitimjöli,
eggjum, matarolíu, kartöflum, baun-
um, vindlingum, víni og fleiri vöru-
tegundum. Langt er síðan orðrómur
um verðhækkanir komst á kreik,
vegna stöðugs orku- og matvæla-
skorts og lélegs efnahagsástands,
eins hins versta í Austur-Evrópu.
Kjötverð hækkar að meðaltali um
64%. Eitt kíló af úrbeinuðu kjöti
hækkar úr 40 leum (um 35 ísl. kr.) í
60 lei (um 53 kr.). Verð á hrísgrjón-
um hækkar um 87% og salamipylsur
hækka um 55%.
Eitt kíló af sykri hækkar úr níu
leum (um 8 kr.) í 14 lei (um 11 kr.).
Verð á kókó hækkar um 100% (í um
130 kr.) og eitt kíló af kaffi hækkar
um 32% í 220 lei (um 200 kr.).
Formleg skömmtun á sykri og
matarolíu var tekin upp í haust og
ekki hefur verið látið uppi hvenær
henni verður aflétt. Rafmagns-
skömmtun var tekin upp í síðasta
mánuði og dregið úr annarri þjón-
ustu. Landbúnaður hefur árum sam-
an setið á hakanum vegna örrar
iðnvæðingar, en nú á að búa betur að
bændum og lögð er áherzla á þörf á
aukinni kolaframleiðslu og auknum
orkusparnaði.
Laun voru hækkuð um 25 millj-
arða lea (2,25 milljarða dala) í síð-
ustu viku og Rúmenum var sagt að
þeir yrðu að leggja harðar að sér til
ársins 1985 þegar núverandi Fimm-
ára-áætlun rennur út.
Síðustu verðhækkanir fylgja í
kjölfar gífurlegs „sálræns" undir-
búnings, sem ríkið hefur staðið fyrir.
Borgurum hefur verið sagt að nýja
verðið verði að lokum þeim sjálfum,
eða „velfarnaði" þeirra, fyrir beztu.
U-BIX Ijósritunawélar,
einhver þeirra hentar þínu fyrirtœki!
Skrifstofuvélar hf. bjóða nú upp á 5 gerðir Ijósritunarvéla og geta þannig fullnægt þörfum allra
þeirra, sem þurfa á Ijósritunarvélum að halda.
U-BÍX 90
Er minnsta Ijósritunarvélin í
U-bix hópnum. Hún erætluð
þeim notendum sem ekki taka
mjög mörg Ijósrit. U-bix 90
skilar afbragðs Ijósritum hvort
sem er á venjulegan pappír,
bréfsefni eða löggiltan skjala-
pappír. Pappírsstærðin erfrá
A4 til B4.
U-BÍX100
er sérstaklega heppileg þar
sem mikið er um stór verkefni.
Vélin þolir mikið álag, enda er
hún ein mest selda vélin í
heiminum af þessari stærð.
U-bix 100 Ijósritar á venju-
legan pappír, bréfsefni og lög-
giltan skjalapappír í stærð-
unum A5 - A3 og skilar allt að
15 Ijósritum á mínútu.
U-BÍX 200 RD
hefur möguleika á að minnka
frumrit bæði um 30% og 50%.
T.d. A3 niður í A4 eða tölvulista
niður í A4. U-bix 200 RD er
afkastamikil og skilar 30 Ijós-
ritum af stærðinni A4 á mínútu
og tekur pappírsstærðir frá A5
til A3.
U-BÍX 200 RDS
Eins og U-bix 200 RD er U-bix
200 RDS með minnkun og
skilar 30 A4 Ijósritum á mínútu.
En til viðbótarer raðari, sem
getur raðað saman í 15 eintök
allt að 50 blaðsíðum. Raðarinn
sparar þannig mikinn tíma
þegar Ijósrita þarf gögn eins
og skýrslur eða álitsgerðir
sem eru margar blaðsíður að
lengd.
U-BÍX 450 RAS
Sjálfvirk og afkastamikil Ijós-
ritunarvél, fáanleg með frumrita-
matara, 20 hólfa raðara, 30% og
50% minnkun afrita. Pappírs-
bakkar fyrir allt að 2000 blöð.
Tekur 45 afrit A4 á mínútu.
U - bix90
U-bix 100
U - bix 450 RAS
Öllum vélunum fylgir, að sjálfsögðu, okkar þekkta viðhaldsþjónusta.
U - bix 200 RD
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
%
&
Hverfisgötu 33 — Sími 20560 — Pósthólf 377
Reykjavík