Morgunblaðið - 16.02.1982, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982
23
11 marka tap í Keflavík:
Rússland komst
í 6—0 í byrjun
w viunnar Gíslason skilaði stöðu sinni sem hornaleikmaður með mikilli prýði gegn Rússum og skoraði fjögur falleg
mörk. Hér hefur Gunnar brotist í gegn og skorar. Ljósm. Cuðjón
Ekki heil brú í leik
íslenska landsliðsins
- 12 marka tap á heimavelli gegn Rússum
ÍSLKNSKA landsiiðið í handknatt-
leik fékk háðuglega útreið er liðið
mætti landsliði Rússlands í öðrum
landsleik þjóðanna á sunnudags-
kvöld í Laugardalshöllinni. íslenska
liðið tapaði með 31 marki gegn 19,
eftir að staðan í hálfleik hafði verið
17—9 fyrir Rússland. Það afsakar
ekki slaka frammistöðu íslenska
liðsins að við ofurefli var að etja.
Allan leikinn út í gegn var leikur
íslenska liðsins í molum. Leikflétt-
um brá varla fyrir og jafnt sóknar
sem varnarleikur var í molum. Leik-
agi var enginn í íslenska landsliðinu.
Maður kemst ekki hjá því að velta
því fyrir sér hver stefnan sé. Leikinn
er hver landsleikurinn af öðrum en
ekki virðist vera um neina fasta
stefnu að ræða hjá landsliðinu.
Spurningin virðist öllu fremur vera
hvort einhver einstaklingurinn rífi
sig upp í leikjum og standi sig vel.
Liðsheild og sterk samvinna sést
sjaldan orðið í landsleikjum. Það
verður fróðlegt að sjá landsliðið
gegn Svíum. Það afsakar ekki leik
landsliðsins íslenska að ekkert hafi
verið hægt að gera vegna þess að
mótherjarnir hafi verið svo sterkir.
Það var aðeins fyrstu 10 mínút-
ur leiksins sem einhver barátta og
mótstaða var í íslenska liðinu, eft-
ir það fór allt úrskeiðis. Rússarnir
breyttu stöðunni úr 4—3 í 12—5,
íslensku leikmennirnir skoruðu
aðeins eitt mark í 13 mínútur.
I síðari hálfleiknum var um ein-
stefnu að ræða hjá rússneska
landsliðinu og virtist um algjöra
uppgjöf að ræða hjá íslenska
landsliðinu. Og þrátt fyrir að leik-
ið væri á heimavelli var um 12
marka tap að ræða í lok leiksins.
Það er ekki hægt að fara mörg-
um orðum um leik íslenska liðsins.
Þar skaraði enginn einn framúr.
Gunnar Gíslason skilaði stöðu
sinni í horninu vel, en aðrir leik-
menn komust illa frá leiknum.
Mörk íslands: Kristján Arason
7 6v, Bjarni Guðmundsson 4,
Gunnar Gíslason 4, Þorbergur Að-
alsteinsson 2, Steindór Gunnars-
son 1 og Sigurður Sveinsson 1.
Mörk Rússlands: Karshakevic 9,
Shevtsov 4, Below 4 3v, Anpilogov
3, aðrir færri mörk.
- ÞR.
íslenska landsliðið tapaði í gær
kvöldi fyrir rússneska landsliðinu í
þriðja landsleik þjóðanna með 16
mörkum gegn 27. í hálfleik var stað-
an 17—11 fyrir Rússland.
Mjög mikill kraftur var í rússn-
eska liðinu framan af fyrri hálf-
Sagt eftir
leikinn
Þorbergur Aðalsteinsson:
— Þetta er besta landslið sem ég
hef leikið gegn. Lið þeirra er í topp-
æfingu núna þar sem þeir eru að
fara beint í heimsmeistarakeppnina.
Mér þætti ekki ólíklegt að þetta lið
sigraði í keppninni í Vestur-Þýska-
landi. Við eigum að geta miklu
meira en við sýndum í þessum leik.
Hilmar Björnsson
landsliðsþjálfari:
— Það var góð stemmning
framan af í leiknum. En síðan datt
hún alveg niður. Það var lagt upp
fyrir leikinn að hafa langar sóknir
og hanga á boltanum en það var
ekki gert. Ég hef ekki séð betra lið
en þetta rússneska landslið. Það
er með ólíkindum hversu vel lík-
amlega þjálfaðir þessir leikmenn
eru. Það mistókst svo til allt hjá
okkur. Línuspil okkar gaf þeim
bara hraðaupphlaup, og langskot
þýddi ekki að reyna. En lands-
liðshópurinn hefur sýnt á sér góð-
ar hliðar og vonandi sýnum við
okkar sterku hliðar á móti Svíum.
— ÞR.
Steve Podborski frá Kanada,
brunkóngurinn sjálfur, sigraði ör
ugglega í bruni karla í heimsbikar-
keppninni í Garmisch Parten-
Kirchen um helgina. llelstu keppi-
nautarnir að þessu sinni voru
Conradin Cathomen frá Sviss og
leiknum, og segja má að þeir hafi
gert út um leikinn strax á fyrstu
sjö mínútum fyrri hálfleiksins. Þá
skoruðu þeir sex mörk án þess að
íslensku leikmönnunum tækist að
svara fyrir sig.
Mjög mikið var um slæm mistök
í sókninni hjá íslenska liðinu í
fyrri hálfleiknum. Og það var ekki
fyrr en á áttundu mínútu leiksins
sem Þorbirni Jenssyni tokst að
skora fyrsta mark landsliðsins.
Heldur réttu leikmenn íslands þá
úr kútnum og löguðu stöðuna í
7—3. En rússneski björninn var
alltof sterkur og það fór eins og í
fyrri leikjunum tveimur, að ekkert
varð við þá ráðið.
Þrátt fyrir ágæta byrjun í síðari
hálfleiknum, sem gaf góða von um
betri tíð hjá íslenska liðinu, kom
allt fyrir ekki. Að vísu minnkaði
landinn munninn niður í fimm
mörk, 18—13, sem var minnsti
munur, en úr því seig aftur á
ógæfuhliðina. Og þegar leiknum
lauk var tapið stórt, 11 mörk.
Sigurður Sveinsson átti skástan
leik í íslenska liðinu ásamt Þor-
birni Jenssyni og Páli Ólafssyni.
Sóknarleikur íslenska liðsins var í
molum, en á köflum brá fyrir bar-
áttu í varnarleiknum og var þá
vörnin sæmilega vel leikin.
Mörk íslands:
Sigurður Sveinsson 6 3v, Þor-
björn Jensson 3, Páll Ólafsson 2,
Sigurður Gunnarsson 2, Þorgils
Óttar, Bjarni Guðmundsson, Guð-
mundur Guðmundsson og Alfreð
Gíslason 1 mark hver.
emm.
Harti Weireither frá Austurríki.
Cathomen hafnaði í 2. sæti á 1:50,81
en Weireither renndi sér á 1:50,94.
Sigurtími Podborski var hins vegar
1:50,52. Fjórði í bruninu varð að
þessu sinni Leonard Stock frá Aust-
urríki á 1:51,10.
Podborski brunaði í
markið á besta tímanum
Lengsti blakleikur sem fram
hefur farið hér á landi er
Þróttur sigraði lið ÍS 3—2
ÞRÓTTARAR MÖRÐU sigur yfir ÍS í 1. deild karla í blaki um helgina. Með
þessum sigri juku þeir enn forskot sitt í deildinni og verður nú að teljast
hæpið að nokkrum takist að koma í veg fyrir að þeir verji Islandsmeistara-
titilinn.
En víkjum nánar að leiknum. í fyrstu hrinu var nánast um einstefnu að
ræða. ÍS-menn léku mjög vel og „smössuðu" Þróttara hreinlega í kaf og
sigruðu örugglega, 15—5. í annarri hrinu fengu þeir aðeins meiri mótspyrnu
og var Þróttur lengi vel yfir, 8—7, en þá kom frábær kafli hjá ÍS. Þeir
„blokkuðu" öll „smöss“ Þróttara og sóttu mjög vel, einkum á miðjunni, og
komust í 14—8. En Þróttarar gáfust ekki upp og minnkuðu muninn í 16—15,
en ÍS tókst að lokum að sigra, 18—16, og hafði hrinan þá staðið í 30 mínútur.
Þriðja hrinan var ekki eins löng einu sinni jafna Þróttarar, 14—14.
og sú á undan eða „aðeins" í 24
mínútur, en hún var þó engu að
síður mjög spennandi. Þróttarar
komust í 6—2, en IS-menn börðust
vel, enda til mikils að vinna, og
jöfnuðu 8—8. En Þróttarar sigu
síðan fram úr og unnu 15—11.
Fjórða hrinan verður lengi í
minnum höfð, bæði vegna þess að
hún var ágætlega leikin af báðum
liðum og ekki síður vegna þess að
hún stóð í 43 mínútur og endaði
22—24. Þetta mun vera mesta
skor í einni hrinu hér á landi og
einnig lengsta hrina sem hér hef-
ur verið leikin. I þessari hrinu
komst ÍS í 5—0, en Þrótti tókst að
jafna, 5—5. ÍS komst í 10—8, en
aftur jafnar Þróttur 10—10, en ÍS
tekst að komast í 14—12 og enn
Nú töldu menn að spennan væri í
hámarki, en þar skjátlaðist þeim,
því þetta var aðeins byrjunin. Lið-
in skiptust á um að hafa eins stigs
forskot og var ÍS oftar nær því að
sigra, en allt kom fyrir ekki,
Þróttur vann þessa hrinu 24—20.
í síðustu hrinunni komust ÍS-
menn í 3—0, en Þróttur jafnaði og
komst yfir, 8—4. ÍS jafnaði síðan í
10—10 og leikurinn var í járnum,
en um síðir tókst Þrótturum að
vinna hrinuna 15—10 og þar með
leikinn. 3—2.
Bæði liðin léku nokkuð vel ef á
heildina er litið, þó voru Þróttarar
fremur daufir framan af leiknum.
Bestu menn Þróttar voru án efa
þeir Gunnlaugur Jóhannsson og
Samúel Örn Erlingsson, einnig
átti Sveinn Hreinsson ágæta
spretti. Hjá ÍS bar mest á þeim
Friðjóni Bjarnasyni, Indriða Arn-
órssyni og Sigurði Þráinssyni.
Annars léku IS-menn mjög vel,
einkum framan af leiknum, og
hefur undirritaður ekki séð þá
leika betur í annan tíma, og fyrst
ekki er hægt að fá annað stigið í
blaki, þá hefðu þeir verðskuldað
bæði. Dómari í þessum leik var
Þorvaldur Sigurðsson og dæmdi
hann með afbrigðum vel. Þess má
að lokum geta, að þessi viðureign
stóð yfir í 2 klst. og 17 mín. og
mun það vera lengsti leikur í blaki
hér á landi.
Úrslit annarra leikja um helg-
ina urðu þau, að í fyrstu deild
karla sigraði UMSE Laugdæli í
tveimur leikjum, báða 3—0. í ann-
arri deild karla krækti Bjarmi sér
í fjögur stig, þegar þeir unnu
Þrótt Nes. í tveimur leikjum, 3—0
og,3—0.
I kvennaflokki áttust við IS og
Þróttur og var það nokkuð jafn
leikur framan af. ÍS vann fyrstu
hrinuna 15—10 og þá næstu unnu
þær einnig 15—10. I þriðju hrinu
léku IS-stúlkurnar mjög vel og
sigruðu örugglega, 15—0. SUS
Flanders sigraði þrátt
fyrir slæm meiðsli
BANDARÍSKA stúlkan Holly Fland-
ers þótti koma verulega á óvart er
keppt var í bruni í heimsbikar
keppninni í Arosa í Sviss um helg-
ina. Fyrir aðeins tveimur vikum
meiddist ungfrú Flanders illa í hné,
en um helgina sigraði hún samt í
bruninu. Þetta var stór dagur fyrir
bandaríska liðið, því landi hennar
Cindy Nelson nældi sér í 2. sætið.
Eiga Bandaríkjamenn vaxandi gengi
að fagna í skíðaíþróttinni.
Sigurtíminn hjá Flanders var
1:36,52 mínútur. Góð frammistaða
hennar fram að meiðslunum hafði
tryggt henni efsta sætið í stiga-
keppninni í bruni. Sigur hennar í
Arosa varð ekki til að rýra þann
árangur. Hins vegar er Flanders
„aðeins" í 9. sætinu í samanlögðu
stigakeppninni. Tíminn hjá Cindy
Nelson í 2. sætinu var 1:36,80.
Heimsmeistarinn frá Schladming,
Gerry Sörensen varð að láta sér
lynda áttunda sætið, tími hennar
var 1:37,38.
Staðan í stigakeppni kvenfólks-
ins er sem hér segir:
1. Erika Hess, Sviss 268
2. Irene Epple, V-Þýskal. 254
3. Christine Cooper, Bandar. 156
4. Cindy Nelson, Bandar. 136
5. Ursula Konzett, Lichtenst. 122
6. Leo Sölkner, Austurr. 118
7. Edit Peter, Austurr. 118
8. Maria Epple, V-Þýskal. 92
9. Holly Flanders, Bandar. 90
10. Elisabet Chaud, Frakkl. 89
Lúðrarnir á Akranesi:
Hávaðinn yfir hættumörkum
GUÐJÓN Guðmundsson yfirlæknir
við sjúkrahúsið á Akranesi hafði
samband við íþróttasíðuna vegna
fréttar sl. laugardag um að lögreglan
hefði tekið lúðra af áhangendum
Gróttu á leik IA og Gróttu í fþrótta-
húsinu á Akranesi.
Guðjón kvaðst hafa fylgst með
umræddum leik og hefði honum
ofboðið hávaðinn í lúðrunum.
Hávaðinn hefði greinilega verið
vel yfir hættumörkum, enda nær-
staddir áhorfendur orðið að halda
fyrir eyrun. Guðjón sagði að hann
hefði talið það skyldu sína að láta
stöðva lúðrablásturinn vegna háv-
aðans og hefði hann því snúið sér
til lögreglunnar. „Hér á Akranesi
amast menn ekki við góðum
stuðningi áhorfenda, þvert á móti,
en þegar hávaðinn er orðinn
hættulegur heilsu manna verður
að grípa í taumana," sagði Guðjón.