Morgunblaðið - 16.02.1982, Qupperneq 23
31
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBftýAR 1982
Vilhelmína Norð-
fjörð — Minning
Hinn 10. þ.m. andaðist í hárri
elli Vilhelmína Norðfjörð, Ægis-
götu 11, Akureyri. Má segja að
skammt hafi verið stórra högga í
milli hjá „manninum með ljáinn"
á því heimili, því rúmum sólar-
hring áður lést snögglega tengda-
sonur Vilhelmínu, öðlingsmaður-
inn Björgvin Júníusson. Er því
mikill harmur kveðinn dótturinni,
Isafoldu, sem svo skyndilega þarf
að sjá að baki ástkærum eigin-
manni og elskaðri móður.
Vilhelmína var eins og áður seg-
ir háöldruð kona. Hún var af aust-
firzkum ættum komin, fædd 10.
okt. 1887, en því miður er sá sem
þessar línur ritar, ekki þess um-
kominn að rekja ættir hennar eða
ævisögu. Hún giftist árið 1909
Jónatan Guðmundssyni, ættuðum
úr Fljótum, og hófu þau búskap á
Siglufirði, en áttu síðar heimili á
Hjalteyri og í Hrísey, til ársins
1939, að þau settust að á Akureyri
og eignuðust hús í Lundargötu,
þar sem heimili þeirra var til árs-
ins 1961, er Jónatan andaðist. Þau
Jónatan og Vilhelmína eignuðust
13 börn, og eina dóttur hafði hún
eignast fyrir hjónaband. Það gef-
ur að skilja, að eins og öll aðstaða
var þá, að það hefur oft verið
annasamt hjá Vilhelmínu með
stóra barnahópinn sinn og erfitt
um alla aðdrætti, því á þeim tím-
um voru engar almannatrygg-
ingar sem komu til hjálpar. Mér
hefur verið tjáð af aðilum sem
þekktu vel til, að samhliða því að
stjórna sínu stóra heimili, hafi
Vilhelmína stundað alla vinnu
sem til féll, og t.d. í fiskvinnu hafi
hún verið annáluð fyrir dugnað og
þrautseigju, og það svo að hún
hafi staðið svokölluðum land-
mönnum við línubáta fyllilega á
sporði við beitingu, aðgerð og önn-
ur störf slíku fylgjandi. Vilhelm-
ína var alla ævi ákaflega vinnufús,
iðin og dugleg og stundaði vinnu
svo lengi sem heilsa hennar leyfði
langt fram yfir þann aldur sem
venja er að fólk láti af störfum.
Ég og fjölskylda mín kynntumst
ekki Vilhelmínu fyrr en hún var
fulltíða kona og hófust samskipti
okkar með því, að hún reyndist
ómetanleg hjálparhella á heimili
okkar þar sem mikil veikindi
steðjuðu snögglega að, eða nánar
til tekið þegar hin svokallaða Ak-
ureyrarveiki gekk yfir. Síðar varð
hún leigjandi hjá okkur nokkur ár
og ávallt þá og síðar traustur og
góður heimilisvinur. Vilhelmína
var mikil sæmdarkona og yfir
henni reisn. Hún var notaleg og
hlýleg í allri framkomu og vildi
alltaf láta gott af sér leiða. Nú,
þegar ég rita þessi fátæklegu
kveðjuorð, er mér efst í huga
hversu henni var umhugað að
miðla öðrum af því litla sem hún
hafði handa á milli. í huga minn
kemur, að hin síðari ár þegar við
vorum að heimsækja gömlu kon-
una, sem var því miður alltof
sjaldan, hversu maður hreifst af
æðruleysi, hjartahlýju og trúar-
trausti þessarar gömlu lífsreyndu
konu og síðustu árin, þegar hún
var orðin því nær blind og far-
lama, þá hafði ég það alltaf á til-
finningunni að lokinni heimsókn
til hennar, að það væri ég sem
væri þiggjandinn, hún veitandinn.
Slík voru þau sterku jákvæðu
áhrif sem þessi góða kona hafði á
mann. Hún kvartaði aldrei, í
hennar huga var efst þakklæti til
forsjónarinnar fyrir allt það góða
sem henni fannst hún hafa orðið
aðnjótandi á langri ævi. Ég hygg
að um Vilhelmínu megi segja að
hún hafi að mörgu leyti verið mik-
il gæfumanneskja. Hún var hraust
til sálar og líkama allt fram á síð-
ustu ár og gat séð um sig sjálf
lengst af, en það samræmdist
mjög hennar lífsskoðunum, að
þurfa sem minnst að vera uppá
aðra komin.
Fædd 13. aprfl 1923
Dáin 8. febrúar 1982
Nú þegar ég kveð Guðnýju
mágkonu mína er margs að minn-
ast. Við giftum okkur um svipað
leyti, áttum börn á svipuðum aldri
og bjuggum fyrstu ár búskapar
okkar nálægt hvor annarri í
Reykjavík, svo ég var tíður gestur
á heimili hennar og Gunnars,
bróður míns, sem nú er látinn og
alltaf voru börnin mín og ég jafn
velkomin þangað. Síðan flutti ég
suður í Kópavogs og eftir það hitt-
umst við ekki eins oft. Alls staðar
voru þau hjónin hrókar alls fagn-
aðar hvar sem þau komu, því bæði
höfðu skemmtilega frásagnarhæf-
Síðustu árin hrakaði heilsu
Vilhelmínu mikið, og sérstaklega
háði henni að sjón hennar daprað-
ist mjög. Þá átti hún því láni að
fagna að eignast unaðsreit á heim-
ili dóttur sinnar, ísafoldar, og
tengdasonar, sem fyrr getur, ljúfl-
ingsins Björgvins Júníussonar, að
Ægisgötu 11, Akureyri. Það,
hvernig þau hjón bjuggu að gömlu
konunni og gerðu henni lífið eins
léttbært og hægt var eftir aðstæð-
um, er svo lofsvert að mig skortir
orð til þess að lýsa því á þann veg
sem vert er.
Vilhelmína var ákaflega þakk-
lát fyrir þá ástríku og alúðlegu að-
búð sem hún átti hjá dóttur sinni
og tengdasyni. Hinsvegar varð
maður þess fullkomlega meðvit-
andi, að hún var farin að þrá að fá
tausnina, eins og hún nefndi svo.
Ævin var orðin löng og myrkrið
sem hún varð að búa við hin síð-
ustu ár var henni erfitt, því hún
var sannkölluð ljóssins kona. Þeg-
ar svo er komið er dauðinn líkn.
Vilhelmína Norðfjörð er kvödd
af mér og fjölskyldu minni með
ileika og létta kímni og eins tók ég
eftir því þegar ég heimsótti Guð-
nýju á Gistiheimili RÍ og Landa-
kotsspítala, skömmu fyrir andlát
hennar, hve uppörvandi og elsku-
lega hún brosti til sjúklinganna,
sem þar voru. Guðný var lagleg,
há, grönn og spengileg og þessum
glæsileik hélt hún til hins síðasta.
Hún las mikið, hafði stálminni og
gaf því sérstaklega góð skil sem
hún las. Hún hafði gaman af tón-
list og var ánægjulegt að hlusta á
þegar Gunnar tók í fiðluna og hún
spilaði undir á píanó.
Elsku Pétur og Sigrún og fjöl-
skyldur. Við höfum misst mikið en
innilegustu þakklætis- og vinar-
kveðjum. Það mun ávallt verða
bjart yfir minningu þessarar góðu
og göfugu konu í okkar huga.
Eftirlifandi ættingjum og þá
sérstaklega dóttur hennar, ísa-
foldu, sem á við svo sáran harm að
búa, vottum við innilegustu samúð
og biðjum þeim blessunar Guðs
um alla framtíð.
Jón G. Sólnes
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendi-
bréfsformi. Þess skal einnig get-
ið, af marggefnu tilefni, að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru ekki
birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa
að vera vélrituð og með góðu
línubili.
um leið höfum við líka margs
skemmtilegs að minnast.
Sigríður P. Blöndal
Guðný Kristjánsdótt-
ir Minningarorð
9K2fi
JSB15 3f3
JSB W m
k*
Nú er Líkamsrækt JSB15 ára og við erum stolt að bjóða meiri og 7*\
fjölbreyttari þjónustu með hverju árinu.
Nýtt námskeid hefst 22. febrúar.
k Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri.
k 50 mín æfingatími með músík.
k Sturtur — sauna — Ijósböð — gigtarlampar.
k Sólbekkir — samlokur.
■k Hristibelti — hjól — róðrarbekkur o. fl.
k Stuttir hádegistímar með Ijósum. (Sólbekkir.)
k Jazztímar einu sinni eða tvisvar í viku. Góð hreyfing rir
konur á öllum aldri. „Lausir tímar“ fyrir vaktavinnufólk.
Fyrir þær sem eru í megrun:
k Matarkúrar og leiöbeiningar — vigtun og mæling.
k 3ja vikna kúrar 4 sinnum í viku.
* Opnum kl. 8 fyrir hádegi í Bolholti
Líkamsrækt JSB,
Sudurveri, sími 83730, Bolholti 6, sími 36645.
7-