Morgunblaðið - 16.02.1982, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982
41
fclk f
fréttum
Mailer fer í mál
+ Norman Mailer, rithöfundur-
inn kunni, hefur nú ákveðið að
lögsækja bandaríska dagblaðið
„New York Post“ fyrir að láta að
því liggja í fyrirsögnum á for-
síðu og í ritstjórnargreinum að
hann hafi verið hlynntur því að
Jaek nokkur Abbot yrði látinn
laus úr fangelsi. Jack þessi Abb-
ot var sakamaður sem hafði
dvalið meirihluta ævi sinnar í
fangelsi, meðal annars fyrir
morð, en skrifaði þaðan minn-
ingar sínar sem sumir hrifust af,
þar á meðal Norman Mailer. Það
atvikaðist svo, að Jack Abbot var
látinn laus, fyrir orð góðra
manna, en þrátt fyrir góðan
ásetning hafði Jack ekki verið
laus og liðugur nema í nokkrar
vikur er hann framdi sitt annað
morð á lífsleiðinni. Þá tóku ýms-
ir að spyrja: Af hverju var
manninum sleppt lausum? Ekki
hafa fengist greinargóð svör við
þeirri spurningu — nema full-
víst þykir að Jack Abbot gangi
ekki framar frjáls um stræti
Bandaríkjanna.
Barbara
Streisand
+ Þó Barbra Streisand, leik-
konan bandaríska og söngkonan,
viti ekki lengur aura sinna tal, er
það ekki að sjá á klæðaburði
hennar. Breskir blaðamenn
horfðu á hana furðulostnir þar
sem hún spókaði sig um á
Heathrow-flugvelli fyrir
skömmu. Barbra var æði
skuggaleg ásýndum, og hreint
ekki eins og milljónamæringur."
Mannkyns-
sagan — sam-
kvœmt Brooks
+ Mel Brooks heitir banda-
rískur háðfugl í kvikmynda-
gerð. Nýjasta kvikmynd hans
ber nafnið „Mannkynssaga, 1.
kafli“ og var þessi mynd tek-
in af Mel Brooks þar sem
hann greindi blaðamönnum í
Rómaborg frá efni n'”"-
myndarinn^- “J'J
Ólafur Ketilsson hf.
sækir um
Á AÐALFUNDI í hlutafélaginu
Ólafur Ketilsson hf. miðvikudaginn
10. febrúar sl. var samþykkt að
sækja um sérleyfi til fólksflutninga
á leiðunum frá Reykjavík um
Grímsnes, Laugardal, Biskupstung-
ur, Gullfoss og Geysi.
í fréttatilkynningu frá stjórn fé-
lagsins segir ennfremur:
„Aðalhluthafar í hlutafélaginu
eru Ólafur Ketilsson, Laugardals-
Grímsnes- og Biskupstungnahrepp-
ar svo og ungmennafélögin í þess-
um sveitum.
Hlutafélag þetta var stofnað
fyrir fjórum árum og gaf þá Ólafur
hreppunum þrem og ungmennafé-
lögunum 500 þús. kr. hlutabréf
sérleyfi
hverju og síðan hefur hann tvöfald-
að þessa gjöf.
Nú er að því stefnt af hálfu sveit-
arfélaganna að eignast í áföngum
meirihluta í félaginu með kaupum á
hlutabréfum, og var tillaga í þá átt
samþykkt á aðalfundinum.
Ólafur Ketilsson, sem löngu er
þjóðkunnur ökumaður, hefur nú ek-
ið á þessum leiðum f yfir 50 ár en
hyggst nú draga sig í hlé.
Voru honum á fundinum færðar
þakkir hreppanna fyrir störf sín
undanfarna áratugi svo og fyrir
höfðinglega gjöf til hreppanna og
ungmennafélaganna.
Ný stjórn var kjörin á fundinum
og er Þórir Þorgeirsson, oddviti á
Laugarvatini, formaður hennar.“
Ljósmyndarafélag íslands hefur akveðið
að bjóða landsmönnum sérstakan 25%
afslátt af öllum fjölskyldu- og portrett-
myndatökum (i lit) um eins mánaðar skeið
fré 15. febrúar — 15. marz n.k. Mun verð á
myndatökum þannig lækka úr kr. 670 niður
i kr. 500. Ennfremur verður veittur 25% af-
sláttur af öllum stækkunum i stærðum frá
24x30 cm. upp i 40x50 cm.
Notið þetta einstaka tækifæri og látið
verða af þvi að láta taka fallegar litmyndir
af öllum i fjölskyldunni.
Eftirfarandi aðilar eru félagar i
Ljósmyndarafélagi Islands:
Effect Ijósmyndir, Klapparstig 16. Reykjavik
Hannes Pálsson, Mjóuhlíð 4. Reykjavík
Ljósmyndastofa Gunnars. Suðurveri. Reyk'javík
Ljósmyndastofa Þóris. Rauðarárstig 16. Reykjavik
Ljósmyndaþjónustan Mats. Laugavegi 178. Reykjavik
Nýja Myndastofan, Laugavegi 18. Reykjavik
Stúdió Guðmundar, Einholti 2. Reykjavik
Ljósmyndastofa Ólafs Árnasonar, Akranesi
Ljósmyndastofa Stefáns Pedersen. Sauðárkróki
Ljósmyndastofa Páls, Akureyri
Ljósmyndastofan Norðurmynd, Akureyri
Ljósmyndastofa Péturs, Husavik
Vilberg Guðnason Ijósmyndari, Eskifirði
Héraðsmyndir Ljósmyndastofa, Egilsstöðum
Ljósmyndastofa Suðurlands, Selfossi
L|osmyndastota buóurnesja, KéílSvik
Ljósmynd er varanleg min