Morgunblaðið - 16.02.1982, Side 40
Síminn á afgreíðslunni er
83033
^ JfloT£imWaí>ií>
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
o vx>xmX> Xn t> i t>
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRUAR 1982
Verðbóta-
vísitala hækk-
ar um 7,51%
SA.MKVÆMT upplýsingum
Mbl. hefur vcrðbólavísitala með
t'ildistöku l.marz nk. verið
reiknuð út og er hækkunin
7,51%, sem vill segja, að öll al-
menn laun í landinu munu
hækka um þcssa tölu l.marz
n.k.
Samkvæmt þessu hefur
verðbótavísitala hækkað um
39,12% á einu ári, eða febrúar
til febrúar, með gildistöku
l.marz til l.marz, en til sam-
anburðar má geta þess, að á
sama tímabili hefur láns-
kjaravísitala hækkað um
45,58%, eða febrúar til febrúar
úr 215 stigum í 313 stig.
Þá hækkaði vísitala bygg-
ingarkostrvaðar úr 626 stigum
í janúar 1981 í 909 stig í janú-
ar 1982, eða um 45,21%.
Ríkisstjórnin ákvað á sínum
tíma í sambandi við efna-
hagsráðstafanirnar, að greiða
framfærsluvísitöluna niður
um í námunda við 3 prósentu-
stig. Því til viðbótar koma svo
skerðingarákvæði Ólafslaga,
sem komu að nýju inn í út-
reikning á verðbótum á laun,
eftir að hafa fallið út á síðasta
l.josm.: Maunus (.jslason.
^ j
1 w
Fljúga með fiskflök til
1 Boston á Boeing 747
I nnið að pökkun á fi.skflökunum í
frvstihúsi Isbjarnarins í gær.
I.jósm.: Ml>l. Kmilía.
SOLUMIÐSTOÐ hraðfrystihús-
anna og Coldwater í Bandaríkj-
unum hafa aftur hafið flutninga
á ferskum fiskflökum til Banda-
ríkjanna, en þessir flutningar
lágu niðri á meðan á verkfalli
sjómanna stóð, og í dag fer þota
Samkomulag á Vestfjörðum:
Baldur á ísafirði ekki
aðili að samkomulaginu
SAMNINGAR voru undirritaðir í
gærkvöldi á ísafirði um klukkan 20
milli Alþýðusambands Vestfjarða og
félags vinnuveitenda á Vestfjörðum,
en samningamenn verkalýðsfélags-
ins Haldurs á ísafirði skrifuðu ekki
undir og hefur fundur verið boðaður
í félaginu á morgun.
Samningarnir voru undirritaðir
eftir að yfirlýsing barst frá Gunn-
ari Thoroddsen, forsætisráðherra.
„Eg skil þessa yfirlýsingu sem
fyrirheit um, að unnið verði að
jöfnun orkuverðs, fyrst og fremst
með jöfnun húshitunar í huga, og
með tilliti til jöfnunar búsetu og
þá m.a. jöfnun flutningskostnað-
ar,“ sagði Karvel Pálmason í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi.
Samkomulag ASV og vinnuveit-
enda er í meginatriðum byggt á
kjarasamningum ASÍ og VSI. Það
felur í sér 3,25% grunnkaups-
hækkun og gilda samningarnir til
15. maí. Því breytast engar launa-
tölur við þetta samkomulag, þar
sem vinnuveitendur á Vestfjörð-
um höfðu áður ákveðið einhliða að
greiða þá hækkun, sem um samd-
ist í heildarkjarasamningum ASÍ
og VSÍ.
Til viðbótar eru ýmis ákvæði
tekin upp, t.d. er varðar benzín-
afgreiðslumenn og ekki voru í
samningum fyrir vestan. Þá fær-
ist vinna við ræstingu úr 7. flokki
í 8. launaflokk, sé hún unnin í
tímavinnu, en sé hins vegar um
uppmælingu að ræða miðast laun-
in við 7. flokk. Þá eru ákvæði um
að áunnin réttindi starfsmanna
haldist óbreytt ef um endurráðn-
ingu verður að ræða innan 2ja ára,
en var áður innan eins árs. Þá eru
sérákvæði um vinnu við lestun og
losun skipa og vinnu í mötu-
neytum. Loks fylgir samningum
yfirlýsing um, að athuguð verði
skipan orlofsmála, þar sem rætt
er m.a. um, að orlof þurfi ekki
endilega að fara í gegnum póst-
gíró.
af gerðinni Boeing 747 með 40
tonn til Bandaríkjanna.
Frá því í byrjun febrúar
hafa farið fjórar sendingar af
ferskum flökum með þotum
Flugleiða hf. og í dag fer
„júmbó“-þota Flying Tiger
með 40 smálestir af ferskum
flökum eins og fyrr segir. Þá
er áætlað að önnur „júmbó“-
þota Flying Tiger fari vestur
um haf á fimmtudag með 40
smálestir.
Það sem af er þessum mán-
uöi hafa SH og Coldwater því
flutt á annað hundrað smá-
lestir af ferskum fiskflökum
til Bandaríkjanna. Mest eru
það karfaflök, sem flutt eru
vestur um haf með flugvélum
og hafa þau komið frá frysti-
húsum á Faxaflóasvæðinu.
Svínavatnshreppur:
Hreppsnefndin sam-
þykkti nýju drögin
Alburt vann og
tók forystuna
Bandaríkjamaðurinn Lev Al-
burl tók í gærkvöldi forystu á
Keykjavíkurskákmólinu, er hann
lagði Helga Olafsson að velli í
skemmtilegri skák.
Alburt hefur hlotið 5 vinn-
inga. Helgi er þó ekki langt
undan með 4'/2 vinning og Jón
L. Árnason er með 4 vinninga.
Staðan í gærkvöldi var nokkuð
óljós vegna biðskáka. Sjöunda
umferðin hefst klukkan 16.30 í
dag að Kjarvalsstöðum.
Sjá nánar á miðopnu.
Meirihluti hreppsnefndar Svína-
vatnshrepps samþykkti ný samn-
ingsdrög um virkjun Blöndu á fundi
sínum á laugardag. Miklar deilur
voru uppi á fundinum og gekk
minnihluti ncfndarinnar af fundi í
mótmælaskyni við samþykkt meiri-
hlutans. Þrír nefndarmanna voru
samþykkir drögunum en tveir á
móti.
„Þau samkomulagsdrög sem
samþykkt voru á laugardag eru
mjög breytt frá því í desember og
má segja, að í raun sé um allt ann-
að samkomulag að ræða. Ég held
að langflestir telji nýju drögin
verulega til bóta, og á þeim for-
sendum veittum við samþykki
okkar,“ sagði Ingvar Þorleifsson á
Sólheimum í-samtali við Mbl. í
gær, en hann á sæti í hreppsnefnd.
Fyrirhugað var að viðræðu-
nefnd Rafmangsveitna ríkisins og
iðnaðarráðuneytisins héldi í
morgun norður, til viðræðna um
breytt samningsdrög við hrepps-
nefndir Seiluhrepps og Lýtings-
staðahrepps í Skagafirði og er
sveitarfundur fyrirhugaður í
kvöld í Seiluhreppi og mun nefnd-
in mæta á fundinn.
íslenska liðið
ekki til
arabalandanna
Allt bendir nú til þess að fyrir
huguð ferð íslenska landsliðsins í
knatspyrnu til Kuwait, Qatar og
Samcinuðu furstadæmanna í lok
þessa mánaðar sé farin út um þúf-
ur. Til stóð að leika sex landsleiki
í knattspyrnu gegn þjóðum þess-
um.
Stjórnarmenn KSÍ staðfestu í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að skeyti hefði borist frá um-
ræddum aðilum í gær. Kom þar
fram að Kuwait og Qatar voru
hætt við fyrirhugað lands-
leikjahald. Engar skýringar
voru gefnar. Þeir stjórnarmenn
sem Mbl. ræddi við töldu að
ferð þessi væri þar með úr sög-
unni. Sjá nánar um málið á
blaðsíðu 21.
Kleppur og Kópavogshæli:
Hluti starfsfólks
hefur snúið aftur
til vinnu sinnar
MILLI 40 og 50 starfsmenn Kópa-
vogshælisins af þeim 80 er lögðu niður
vinnu þar sl. fimmtudag til að lcggja
áherslu á kröfur um kjarabætur, hafa
nú aftur snúið til vinnu sinnar. Eru því
cnn liðlcga 30 manns frá vinnu.
Þá hafa einnig nokkrir starfs-
manna á Kleppi snúið til vinnu á ný.
Trúnaðarmenn Starfsmannafélags
ríkisstofnana hafa lýst yfir stuðn-
ingi við kröfur og baráttu gæslu-
manna innan SFR og Sóknar á
Kleppsspítala og Kópavogshæli.
Einnig eru félagar ASI og BSRB
hvattir til að ráða sig ekki í störf
þeirra meðan á verkfallinu stendur.
Eyjólfur Melsted aðstoðarfor-
stöðumaður Kópavogshælis kvaðst
vonast til að fólkið myndi allt skila
sér innan tíðar, en fjarvera þess
hefði þau áhrif að aðrir starfsmenn
yrðu að taka aukavaktir og fækkað
hefði verið starfsmönnum á vöktun-
um. Á Kópavogshælinu eru nú 182
vistmenn og sagði Eyjólfur ekki hafa
verið um það hugsað að reyna að
senda einhverja vistmenn heim,
sumir ættu ekki ættingja, aðrir ætt-
ingjar hefðu enga aðstöðu til að ann-
ast þá og ekki sagði hann heldur vit-
að hvort farið yrði að huga að ráðn-
ingu nýs starfsfólks. Stjórnarnefnd
ríkisspítalanna tók þá afstöðu fyrir
helgina að bíða um sinn og athuga
hvort viðkomandi stéttarfélögum
tækist ekki að ná samkomulagi við
starfsfólkið.
Sambandið fer út í bygg-
ingu fiskeldisstöðva
SAMBAND íslenzkra samvinnu-
félaga hefur nú í bígerð að reisa
fiskeldisstöðvar á fleiri en einum
stað við landið og er fyrirhugað að
framkvæmdir við byggingu stöðv-
anna hefjist á næstu mánuðum.
Samkvæmt þeim heimildum,
sem Morgunblaðið hefur aflað sér,
ætlar Sambandið að fá fleiri fyrir-
tæki til að taka þátt í byggingu
fiskeldisstöðvanna, en ein þeirra
mun eiga að vera á Norðurlandi og
önnur við Suðurland.
Sambandsmenn munu hafa
áhuga á að reyna til fullnustu
hvort fiskeldi eigi einhverja fram-
tíð fyrir sér á Islandi, og meðal
annars með það í huga er ætlunin
að reisa fleiri en eina stöð.