Morgunblaðið - 23.02.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.02.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982 3 Þorvaldur í Sfld og fisk opnar sýning- arsal þar sem Lífs- hlaupið er geymt Á EFRI hæð húsnæðis Þorvaldar Guð- mundssonar í Síld og fisk að Dals- hrauni 9B í Hafnarfirði er Lífshlaup Kjarvals nú geymt, að sögn Þorvaldar. Þorvaldur er að láta ganga frá hæð- inni, sem verið hefur ónotuð frá því að húsið var byggt, og sagði hann í sam- tali við Mbl. að hann hygðist leigja hæðina út til sýningarhalds, en enginn almennur sýningarsalur væri nú í Hafnarfirði. Aðspurður sagðist hann enga ákvörðun hafa tekið um hvort listaverkið Lífshlaup Kjarvals yrði þar til sýnis. „Það er enginn sýningarsalur i Hafnarfirði í dag. Þetta verður al- mennur sýningarsalur, sem allir sem með þurfa geta fengið ieigðan, hvort sem þeir eru með málverkasýningu eða eitthvað annað. Ég get engu svarað um það hvort ég sýni Lífs- hlaupið þarna. Almenningur fær einhvern tíma að sjá það, en ég þori ekkert að segja um það enn þá. Til að byrja með er verið að ganga frá þessu sem sýningarsal til almennra nota, en ég reikna ekki með að salur- inn verði tilbúinn fyrr en eftir nokkra mánuði," sagði hann að lok- um. Salurinn sem Þorvaldur ætlar að leigja út sem sýningarsal og Lífshlaup Kjarvals er nú geymt, vandlega innpakkað. Nú er aö næla sér í Fáðu þér SAAB99með framhjóla- drifi og þú flautar á ófærð eftir það. TOGCUR HE SAAB UMBODIÐ BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530 í nokkurn tíma höfum við ekki get- að fengið þann fjölda af SAAB 99 sem við hefðum þurft. Þetta hefur orðið til þess að biðlistar hafa myndast. En nú þarf enginn að bíða lengur því það eru 28 SAAB 99 bílar árgerð 1982 á leiðinni til landsins, og 200 væntanlegir á næstu tveimur mánuð- um. Nú er því að taka við sér, og tryggja sér bíl. Verð á SAAB 99 eru sem hér segir: SAAB 99 SAAB 99 2ja dyra 4ra dyra kr. 148.600 kr. 158.400 Innifalið í verði: Ryðvörn-skráning- -fullur bensíntankur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.