Morgunblaðið - 23.02.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.02.1982, Blaðsíða 44
I 24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982 * I I I I * t t * * * * t t I I Í I Í Í Í I Í I Í * * * * t Í I I * * fc I Í Í Í Í Í Í I I Í * * t Í I I I * * t t I I I I I t I I * I I I t Innanhússmeistaramótiö í frjálsíþróttum: Mörg met féllu og spennandi keppni þrátt fyrir fjarveru 23ja landsliðsmanna I*AÐ ER EKKl haldið það frjáls- íþróttamót, að ekki séu sett ís- landsmet eða met af öðru tagi. Þetta á við um innanhússmeistaramótið í frjálsíþróttum, sem haldið var í Keykjavík um helgina. Þar voru fs- landsmet, félagsmet, persónuleg met, mótsmet og vallarmet slegin eða jöfnuð í gríð og erg. í ýmsum greinum náðist ágætis árangur, jafn- vel þótt 23 landsliðsmenn, og reynd- ar nokkrir til viðbótar, dveljist vest- an hafs eða austan við æfingar og keppni. Þá var um hörkukeppni að ræða í mörgum greinum, nýir menn létu að sér kveða, og unga frjáls- íþróttafólkið er í greinilegri framför. Svo farið sé nánar út í metin sem sett voru, þá ber fyrst að nefna jöfnun Hjartar Gíslasonar KR á Islandsmetinu í 50 metra grindahlaupi, sem hann reyndar átti sjálfur fyrir. í sömu grein jafnaði Stefán Þ. Stefánsson ÍR unglingametið, er hann í greini- legri framför í þessari grein, hefur góðan stíl og spurning hvort þetta sé ekki hans rétta grein í stað há- stökksins og langstökksins. Þá setti Kristján Harðarson Á nýtt drengjamet í langstökki, en það dugði honum aðeins i annað sætið að stökkva 7,12 metra, sem sýnir framfarir í langstökkinu, þótt ekki séu afrekin enn jafn glæsiieg og á tímum Torfa Bryn- geirssonar og Vilhjálms Einars- sonar. Jón Oddsson KR sigraði með 7,18 metra, sem er mótsmet. Guðrún Ingólfsdóttir KR og Ág- úst Ásgeirsson ÍR settu einnig mótsmet í kúluvarpi og 1500 metra hlaupi, og bætti Ágúst tíu ára gamalt vallarmet, sem hann átti sjálfur. I þeirri grein setti Viggó Þ. Þórisson FH drengjamet, og í kúluvarpinu setti Garðar Vilhjálmsson Einarssonar UÍA sveinamet. Auk alls þessa voru sett fjölmörg persónuleg met og aragrúi af félagsmetum. Samtals kepptu á mótinu 90 frjálsíþrótta- menn víðs vegar að af landinu. At- hyglisverð var frammistaða FH-inga og Austfirðinga á mót- inu, svo einhverjir séu nefndir, greinileg gróska í hafnfirsku frjálsíþróttalífi og á Austfjörðun- um. Þá var HSK með stóra og mikia sveit frjálsíþróttamanna á mótinu, greinilegur uppgangur fyrir austan fjall. Það verður að segjast eins og er, að þegar á heildina er litið, riðu Reykjavíkur- félögin ekki sérlega feitum hesti frá mótinu, vaxtarbroddurinn í frjálsíþróttum virðist úti á landi, þótt afreksmennirnir í dag séu fyrst og fremst í Reykjavíkurfé- tögunum. En lítum þá annars á úrslitin og röð efstu manna í ein- stökum greinum: 50 m hlaup karla: 1. Hjörtur Gíslason KR 5,8 2. Jóhann Jóhanns.ÍR 5,9 3. Jón Oddsson KR 5,9 4. Egill Eiðsson UÍA 6,0 50 m grindahlaup: 1. Hjörtur Gíslason KR 6,8 2. Stefán Þ. Stefáns.ÍR 6,9 3. Elías Sveinsson KR 7,1 4. Jón S. Þórðars. HSK 7,3 • Jón Oddsson KR setti mótsmet í langstökki og var skammt frá íslands- meti sínu. Ljósm. Júlíus • Kristján Haröarson dregur hvergi af sér í lang- stökki og setur drengja- met, stökk 7,12 metra. Ljósm. Júlíus Ungar og efnilegar frjálsíþróttakonur, sem unnu sinn jslandsmeistaratitilinn hvor um helgina, Bryndís Hólm ÍR og Geirlaug Geirlaugsdóttir Á. Þær eru á 16. og 17. aldursári og eiga því framtíðina fyrir sér. L]o»m Mbl. Júlíus 800 m hlaup karla: 1. Guðm. Skúlason UÍA 2:02,4 2. Sigurður Haralds. FH 2:05,5 3. Magnús Haralds. FH 2:05,5 4. Gunnar P. Jóakims.ÍR 2:07,8 5. Viggó Þ. Þóriss. FH 2:13,1 UMSE sigraði Víking UMSE gerði sér lítið fyrir og vann Víking í blakinu um helgina og styrkti þannig stöðu sína í dcildinni. Norðanmenn sýndu oft á tíðum ágætis leik og hinir hávöxnu smass- arar þcirra nutu sín til fullnustu gegn fremur lélegu liði Víkings. Að- eins þurfti þrjár hrinur til að gera út Bikarkeppni HSÍ: S Stjarnan mætir UBK EINN leikur fer fram í bikarkeppni HSI í kvöld, 2. deildarliðin Stjarnan og Brciðablik eigast við í Ásgarði og hefst lcikurinn klukkan 20.30. Stjarnan er í toppslagnum í 2. deild, UBK hins vegar i hópi neðstu liða. UBK sigraði Stjörnuna hins vegar er liðin mættust í 2. dcildarkcppninni fyrr í vetur. Og þá var leikið í Ás- garði. um leikinn og lauk þeim þannig að fyrstu hrinu vann UMSE 15-7, þá næstu 16-14 og síðustu hrinuna unnu þeir eins og þá fyrstu 15-7. Urslit annarra leikja um helg- ina urðu þau að í fyrstu deild sigr- aði Þróttur UMFL 3-0 ng eru nú Laugvetningar komnir í alvarlega fallhættu. í kvennaflokki léku KA og UBK tvo leiki fyrir norðan. í þeim fyrri sigraði KA 3-1 og fengu þar sín fyrstu stig í vetur. UBK sneri dæminu svo við í seinni leiknum og sigraði 3-1. I annarri deild karla voru leikn- ir tveir leikir og urðu úrslitin þau að Bjarni sigraði HK 3-1 og Þrótt- ur Nes. sigraði Samhygð með þremur hrinum gegn engri. 1500 m hlaup 1. Ágúst Ásgeirsson ÍR 4:09,8 2. Magnús Haralds. FH 4:13,0 3. Sighvatur D. Guðm. HVÍ 4:20,1 4. Guðni Einarsson USVS 4:28,7 5. Viggó Þ. Þórisson FH 4:28,8 6. Jóhann Sveinsson UBK 4:29,1 Langstökk: 1. Jón Oddsson KR 7,18 2. Kristján Harðar Á. 7,12 3. Stefán Þ. Stefáns.ÍR 6,63 Hástökk: 1. Unnar Vilhjálms. UÍA 2,01 2. Kristján Harðar. Á. 1,95 3. Hafsteinn Þórisson UMSB 1,95 4. Stefán Þ. Stefáns. ÍR 1,85 Þrístökk: 1. Guðm. Nikulásson HSK 13,57 2. Sigurður Einars. Á 3,21 3. Geirmundur Vilhjálms. KR 2,79 Kúluvarp: 1. Helgi Þ. Helgas. USAH 4,83 2. Pétur Guðmunds. HSK 4,07 3. Garðar Vilhjálms. UÍA 2,14 4. Gísli Sigurðsson UMSS 2,11 4x3 hringja boðhlaup: 1. Sveit UÍA 3:19,5 2. Sveit FH 3:21,1 3. Sveit ÍR 3:29,9 50 m hlaup kvenna: 1. Geirlaug Geirlaugsd.Á. 6,5 2. Sigurborg Guðmunds.Á. 6,6 3. Svanhildur Kristjánsd. UBK 6,6 4. Bryndís Hólm ÍR 6,7 50 m grindahlaup: 1. Sigurborg Guðmundsd. Á. 7,6 2. Helga Halldórsd. KR 7,7 3. Anna Bjarnadóttir UMSB 8,2 800 m hlaup: 1. Hrönn Guðmundsd. UBK 2:19,4 2. Rut Ólafsdóttir FH 2:21,7 3. Unnur Stefánsd. HSK 2:32,2 4. Rakel Gylfadóttir FH 2:38.0 Langstökk: 1. Bryndís Hólm ÍR 5,39 2. Jóna B. Grétarsd.Á 5,18 3. Linda B. Loftsd. FH 5,16 Hástökk: 1. Guðrún Sveinsd. UMFA 1,60 2. Jónheiður Steindórs. UMFA 1,55 3. íris Jónsdóttir UBK 1,55 Kúluvarp: 1. Guðrún Ingólfsd. KR 14,55 2. Helga Unnarsd. UÍA 12,18 3. íris Grönfeldt UMSB 10,80 4. Hildur Harðard.HSK 10,20 5. Margrét Óskarsd.ÍR 9,84 4x3 hringja boðhlaup: 1. Sveit FH 3:48,0 2. Sveit UBK 3:50,2 3. Sveit UMSB 3:57,1 4. Sveit ÍR 4:04,7 5. B-sveit FH 4:05,0 Guðmundur Skúlason Frá úrslitum 50 metra hlaups I sæti. Hnífjöfn keppni í 50 metra hlai á þeim var þó gerður tímamur en Jón lengst til hægri. Á mil Jóhanni og Jóni, þótt tæpir þr Tvö I - auk þritj ingameistí TVÖ íslandsmet og þrjú unglinga- met litu dagsins Ijós á Unglinga- meistaramótinu í lyftingum sem fram fór í anddyri Laugardalshallar innar um helgina. Haraldur Ólafs- son ÍBA byrjaði á því að setja ungl- ingamet í snörun, en hann keppti í 75 kg flokki. Gerði hann síðan gott bctur, setti íslandsmet í jafnhöttun og samanlögðu. Unglingametið í snöruninni hljóðaði upp á 122,5 kg, I „Þessi sigi - sagöi Guðmundur £ „ÉG HEF æft vel í vetur með Agli Eiðssyni og kom því vcl undirbúinn til leiks. Þessi sigur kemur þó þægi- lega á óvart, örvar mig frekar til dáða og ég lít björtum augum til sumarsins," sagði Guðmundur Skúlason, Reykvíkingur, sem keppir undir merkjum Austfirðinga, en hann kom, sá og sigraði á innan hússmeistaramótinu í frjálsíþróttum um helgina. Guðmundur tók þátt í 800 metra hlaupi og sigraði með glæsibrag. „Það má eiginlega segja að þetta sé mitt fyrsta frjálsíþrótta-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.