Morgunblaðið - 23.02.1982, Blaðsíða 28
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982
Hinn fjölhæfi Alan Alda í hlutverki framagosans joe Tynan.
Kosningavéiin
malar
Kosningavélin malar
The Sedurtion of Joe Tynan.
L«‘ikstjori: Jerry Schatzberg.
Handrit: Alan Alda.
Kvikmyndatökustjórn: Aldam Hol-
ender.
Klipping: Kven Lottman.
Tónlist. Bill ('onti.
Illjódmeistari: Jim Sabat.
Kordun: Margaret Sunshine.
Við hér þekkjum máski Alan
Alda úr sjónvarpsþáttunum
MASH, þar sem þessi ágæti leikari
brá sér gjarnan í trúðsgervi. Vest-
anhafs er Alda hins vegar þekktur
meðal þeirra sem unna listum og
menningu, sem býsna fjölhæfur
leikari er einkum velur sér hlut-
verk sem á einhvern hátt lýsa
bandarísku þjóðfélagi. Uppá síð-
kastið hefur Alda ekki látið sér
nægja að leika í kvikmyndum,
heldur brugðið sér bak við vélina og
jafnvel samið kvikmyndahandrit.
Er nýjasta mynd Laugarásbíós
„The Seduction of Joe Tynan“ (sem
þýða má Joe Tynan tældur) byggð á
handriti Alda. Ekki er hægt að
segja að handrit þetta sé ýkja
frumlegt; því hve margar myndir
höfum við ekki augum barið, þar
sem vandamál bandarískra valda-
manna eru krufin? Hitt er frum-
legra hvernig Alda tekur í þessari
mynd á vandamálum, sem koma
gjarnan upp við framhjáhald.
Þannig fáum við tækifæri til að
skyggnast inní heim, ekki bara
þeirra sem í framhjáhaldinu
standa, heldur og sjáum við að til-
finningarótið sem fylgir framhjá-
haldinu gárar hugarheim allra fjöl-
skyldumeðlima. Er greinilegt að
Alan Alda er barngóður maður og
lifir ekki í hugmyndaheimi Holly-
woodgulltittlinganna.
En mynd Alda „The Seduction of
Joe Tynan" fjallar ekki eingöngu
um vandamál valdastéttarinnar
handarisku eins og þau birtast á
tilfinningasviðinu. Þar er einnig
skyggnst inní bandarísku kosn-
ingamaskínuna. Joe Tynan er
nefnilega stjórnmálamaður á upp-
leið og þá er að sjálfsögðu forseta-
stóllinn lokamarkmiðiö. Ekki gat
ég varist því að bera Tynan þennan
saman við Edward Kennedy. Svo
sláandi líkur er lífsferillinn. Þá
fannst mér eins og Alda gæti ekki
gert upp við sig í þessari mynd,
hvort hann hataði eöa elskaði
bandarísk stjórnmál eins og þau
birtast í augnablikinu. Þó fannst
mér mega greina vissan söknuð,
tengdan Kennedy-tímabilinu. Mér
fannst raunar er ég leit yfir mynd-
ina í huganum, að hún væri eins-
konar saknaðarljóð, ort um tímabil
bandarískrar sögu, þegar eldhugar
héldu um stjórnartaumana og fák-
arnir voru óþreyttir. En í myndinni
kemur líka fram virðing fyrir þeim
sem eldri eru, fyrir lífinu á frum-
og lokastigi.
Er greinilegt að Alda þráir að
festa á filmu þann þátt í samskipt-
um fólks sem ekki verður tjáður
með orðum. Því miður tekst honum
ekki nema að litlu leyti að lyfta
myndinni í slíkar hæðir. Klipping,
kvikmyndataka og lýsing, er ein-
faldlega ekki nægilega mögnuð.
Hins vegar tekst Alan Alda mæta
vel í þessari mynd að sannfæra
áhorfandann um að valdamiklir
stjórnmálamenn eru til alls vísir,
ég tali nú ekki um hafi þeir skadd-
að taugakerfi svo sem eftir slys eða
vegna náttúrulegrar æðakölkunar.
En í myndinni er öldungadeildar-
þingmaðurinn Birney lýsandi dæmi
um slíka hættu. En Birney þessi
greinir ekki mun á ensku og
frönsku. Var maður eiginlega
dauðfenginn að kallinn kunni ekki
rússnesku.
Ásta G. Björnsson
Reynihlíð - Áttræð
Ásta G. Björnsson, Reynihlíð,
Garðabæ, er 80 ára í dag. Hún
fæddist að Ragnheiðarstöðum í
Flóa 23. febrúar 1902, dóttir hjón-
anna Gunnars Þorvaldssonar og
Guðrúnar Egilsdóttur. Mjög ung
flutti hún að Miðengi í Garða-
hverfi með foreldrum sínum.
Lengst af síðan hefur hún búið hér
í Garðabæ, að undanskildum
námsárum sínum í Danmörku, en
þar lærði Ásta hjúkrunarfræði, og
þeim árum, sem þau hjón, Jóhann
G. Björnsson, sem nú er látinn, og
hún, stunduðu búskap austan
fjalls.
„Það er vandræðafólk sem ekki
kemst af við konuna uppi á lofti,"
var svarið sem við hjónin fengum
þegar við keyptum neðri hæðina í
Reynihlíð, og spurðum um vænt-
anlegan nágranna. Með þessum
orðum lýstu seljendur íbúðarinnar
Ástu Björnsson, eftir að hafa búið
í nábýli við hana árum saman.
Fyrstu hugmyndir okkar um
væntanlegan nágranna, fengnar
af þessum ummælum, voru að
konan hlyti að vera frekar þægileg
í umgengni þ.e. hlédræg og af-
skiptalítil kona. Nú nokkrum ár-
um síðar, skiljum við betur hvað
það er mikill sannleikur í þessum
orðum. Það er erfitt að lýsa Ástu
án þess að það læðist sá grunur að
lesendum, þeim sem ekki þekkja
hana, að um oflof sé að ræða, slík-
um mannkostum er hún búin. í
okkar huga er hún kona, sem
óhjákvæmilegt er að bera virðingu
fyrir frá fyrstu kynnum. Hún er
kona sem hefur alla tíð gegnt
hlutverki sínu í lífinu. hvert svo
sem það hefur verið, á hverjum
tíma, með miklum sóma. Hún er
einlægt stærst í því að gera öðrum
sem best, en er sérlega nægjusöm
fyrir sjálfa sig. Þessi lýsing okkar
á þeim mannkostum, sem við höf-
um kynnst í fari Ástu, er stutt,
vegna þess að við vitum að hún
kærir sig ekki um langar lýsingar,
í smáatriðum, því það er hennar
siður í lífinu að hafa fá orð, en
valin, um menn og málefni.
„Ásta, þú kýst að vera að
heiman i dag, og gera lítið með
þennan merkisdag í lífi þínu, þess
vegna ávörpum við þig með þess-
um hætti. Það er okkur og börnun-
um sérstök ánægja og gleði, að
hafa átt þess kost að kynnast þér
og að vera þér samferða. Um leið
og við óskum þér hjartanlega til
hamingju með daginn, óskum við
þér, börnum þínum, tengdabörn-
um og barnabörnum alls hins
besta í framtíðinni."
Hallgerður og Jón Gauti
Þórshafnartogarinn leysi
hið staðbundna atvinnuleysi
l»órshöfn, 19. febrúar.
Hinn margumtalaði Þórshafnar
togari er væntanlegur hingað í byrj-
un maímánaðar og mun þá hið stað-
bundna atvinnuleysi, sem hér hefur
verið frá því I desember, vera úr
sögunni, en frá því um miðjan des-
ember s. I. hafa verið mjög slæmar
gæftir.
Þeir bátar, sem gerðir eru út
héðan, en það er einn 36 tonna
bátur og fimm bátar frá 10 til 16
tonn, voru á línu fram í miðjan
febrúar og fiskaðist mjög lítið á
því tímabili. En í byrjun febrúar
fór Geir til netaveiða og hefur
hann fiskað þegar veður hefur gef-
ið á sjóinn. Heldur lítið hefur ver-
ið að gera s. 1. 3 mánuði fyrir
verkafólk.
Hraðfrystihús Þórshafnar er að
vinna við byggingu á saltfiskverk-
unarhúsi, en aðstaða til saltfisks-
verkunar hefur verið mjög léleg. Á
vegum sveitarsjóðs og verka-
mannabústaða er verið að byggja
átta íbúðir, tvö parhús, og eitt
raðhús með fjórum íbúðum. Verk-
taki er Kaupfélag Langnesinga og
hefur smíði íbúðanna gengið mjög
vel, en áætlað er að afhenda par-
húsin í júlíbyrjun en raðhúsin í
desember. Áætlað er að byrja á
sex íbúðum til viðbótar á þessu
ári, en vöntun á íbúðum hefur ver-
ið mjög mikil hér. Einstaklingar
hafa einnig töluvert sótt um lóðir.
Á fimmtudagskvöld frumsýndi
Leikfélag Þórshafnar ærslaleikinn
Blessað barnalán eftir Kjartan
Ragnarsson. Með helstu aðalhlut-
verk fara Martha Richter, Unnur
Árnadóttir og Jómundur Hjör-
leifsson. Leikstjóri er Sigurgeir
TVEGGJA plötu albúm med 25
vinsælustu lögum síðasta árs leit
dagsins Ijós nú í vikunni. Ber
það nafnið Næst á dagskrá og
eru lögin á plötunum tveimur
þau, sem oftast voru leikin í út-
varpi á síðasta ári. Páll Þor-
steinsson tók listann yfir vinsæl-
ustu lögin saman.
Eins og gefur að skilja koma
Scheving. Var ærslaleikurinn
sýndur fyrir fullu húsi og voru
leikendur og leikstjóri margoft
klöppuð fram í lok sýningar. Ætl-
unin er að fara með sýninguna á
Raufarhöfn og sýna hana þar a
sunnudag, ef veður leyfir.
Um sl. áramót var sett upp
skíðalyfta í landi Ytri-Brekkna á
vegum ungmennafélaganna og
hefur hún verið mikið notuð, en
hún er aðeins opin um helgar.
Þorkell
flestir af þekktustu tónlistar-
mönnum þjóðarinnar meira
eða minna við sögu á plötun-
um tveimur, sem seldar verða
á verði einnar. A meðal laga á
plötunum má nefna, Af litlum
neista, Endurfundir, Traustur
vinur, Ég fer í fríið, Seinna
meir og 20 önnur.
Vinsælustu lög síðasta árs
útgefin í tveggja plötu albúmi
BEINT FIJUG í SÓLINA OG SJOINN ÍSLENSKT LEIGUFLUG ALLA LEBÐ 1982: 6. apríl 18. apríl 11. maí 1. & 22. júní 13. júlí 3. & 24. ágúst 14. sept 5. október
M Á TVEGGJA VIKÞ I3D lAFRESTI
NICE CANNES 17lonteCcmk>\ AGAWR MAROKKO
FRANSKA RIVIERAN Af .í.A LAUGARDAGA \ ALLA LAUGARDAGA
ALÞJÓÐLEG ÞJÓNUSTA
FARMIÐASALA OG HÓTELPANTANIR
i FERÐAMIÐSTÖÐIN
AÐALSTRÆTI9
SÍM128133 11255