Morgunblaðið - 23.02.1982, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 23.02.1982, Qupperneq 15
I. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEIJIUJAR 1982 Niðurgreiðslan hærri en útsöluverð á smjöri og íslenzkum kartöflum Hvert eitt kfló af smjöri kostar neytandann nú krónur 56,50, en þá er búið að greiða þetta sama smjörkfló niður um 57 krónur. Hvert kfló af kartöflum, í 5 kflóa poka, kostar nú 4,11 krónur út úr verzlun, en niðurgreiðslan á kartöflukflóið er hins vegar krónur 4,14. Morgunblaðið leitaði í vikunni til Guðmundar Stefánssonar hjá Fram- leiðsluráði landbúnaðarins og fékk hjá honum eftirfarandi upplýsingar um niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum. Verð á einum lítra af mjólk, í lausu, er 5,72 krónur samkvæmt verðlagsgrundvelli, en það er það verð, sem bóndinn fær fyrir mjólkurlítrann. Vinnslu- og heildsölukostnaður er 1,69 krón- ur, síðan fara 28 aurar í millisvæðaflutningsgjöld, verð- jöfnunargjald og neytenda- og jöfnunargjald þannig að ónið- urgreitt heildsöluverð á hverj- um mjólkurlítra, í lausu, er 7,69 krónur. Við það bætast síðan 12 aurar, sem eru svonefnd verð- tilfærsla og þá er heildsöluverð- ið orðið 7,81 króna. Heildsölu- verðið er niðurgreitt um 3,14 kronur og er því 4,67 krónur. Ofan á þetta heildsöluverð leggjast 42 aurar í umbúðagjald og 61 eyrir í smásöluálagningu á mjólk í 1 1 pakka. Smásöluverðið til neytandans er því 5,70 kíon- Grunnverð á 1 kílói af smjöri, þ.e. mjólkin og vinnslan , er 104,03 krónur. Ofan á það leggj- ast 2,08 krónur í neytenda- og jöfnunargjald og óniðurgreitt heildsöluverð er því 106,11. Þá koma 57 krónur í niðurgreiðslu til frádráttar og eftir standa 49,11 krónur. Smásöluálagning- in á smjörkílóinu er 7,39 krónur og útsöluverð á hverju smjör- kílói verður því 56,50 krónur. Óniðurgreitt heildsöluverð á 1. verðflokki kindakjöts í heilum skrokkum er 52,58 krónur. Niðurgreiðslan á hvert kíló er 17,05 krónur þannig að niður- greitt heiidsöluverð verður 35,80 krónur. Smásöluálagning er 4,25 krónur og smásöluverðið því 40,05 krónur. Heildsöluverð á kílói af lærissneiðum er hið sama eða 35,80 krónur, en smá- söluálagningin er 25,90 krónur. Útsöluverðið er því 61,70 krón- ur. Fyrir hvert kíló af kinda- kjöti í 1. verðflokki fær bóndinn 40,59 krónur. Fyrir hvert kíló af 1. flokks kartöflum í 5 kílóa poka fær bóndinn 5,74 krónur, en ofan á þá upphæð leggjast neytenda- jöfnunargjald, heildsölukostn- aður, geymslugjald og vextir, samtals 89 aurar og óniðurgreitt heildsöluverð fer upp í 6,63 krónur fyrir kílóið. Niður- greiðslan er 4,14 krónur og heildsöluverðið verður því 2,49 krónur. Ofan á það leggjast 0,91 króna í pökkunarkostnað og 71 eyrir i smásöluálagningu, þann- ig að hvert kíló af kartöflum í 5 kílóa poka kostar 4,11 kronur og 5 kílóa poki því 20,55 krónur. Svo enn sé haldið áfram og dæmi tekið um nautakjöt, 2. verðflokk, sem er algengastur á markaðnum, þá er óniðurgreitt heildsöluverð á hverju kílói, miðað við heila eða hálfa skrokka, 52,70 krónur. Niður- greiðsla á hvert kíló er 10,40 krónur og niðurgreitt heildsölu- verð því 42,30 krónur. Smásölu- álagningin er 4,30 krónur og smásöluverðið því 46,60. fyrmf1«kfani*n$í ímpr Hlutur bóndans Óniðurgr. smáaöluverð Niður greiðsla l'Uiöluverð Lítri af mjólk 5,72 8,84 3,14 5,70 Kfló af kindakjöti 40,59 57,10 17,05 40,05 Kfló af smjöri 113,50 57,00 56,50 Kfló af kartöflum 5,74 8,15 4,14 4,11 Kfló af nautakjöti 42,35 57,00 10,40 46,60 „Hraðát 82“: Bfll í verðlaun Veitingastaðurinn Góðborgarinn og Sunddeiid Ármanns munu, dag- ana 28. febrúar til 28. mars, gangast fyrir keppni sem nefnd verður „Hraðát 82“. Keppnin er í því fólgin að sporð- renna þremur Góðborgurum, ein- um skammti af frönskum kartöfl- um og einu Coke-glasi á sem skemmstum tíma. Sá sem bestum tíma nær hlýtur Suzuki-bíl í verð- laun. Þá munu verða veitt auka- verðlaun á meðan á keppninni stendur. Keppni þessi er hugsuð sem fjáröflun fyrir sunddeild Ar- manns. Hafnarfjörður: Nýr leik- skóli í suð- urbænum í undirbúningi er nú í Hafnarfirði að reisa nýjan leikskóla í suðurhluta bæjarins. Hefur skipulagsnefnd ver ið falið að staðsetja skólann, en til byggingarframkvæmda á, í ár, að verja 600 þús. kr. skv. fjárhagsáætl- un. Gert er ráð fyrir að leikskóli þessi geti tekið til starfa árið 1983. Næsta sumar er fyrirhugað að leikskóli St. Jósefssystra við Suð- urgötu hætti starfsemi sinni og tjáði bæjarritari Mbl. að sú ákvörðun hefði líklega nokkur áhrif á tímaáætlun við fram- kvæmdirnar. Sagði hann hafa ver- ið leitað eftir því við forráðamenn leikskólans að dregið yrði að leggja hann niður. brjrtur verðbó/gumúrinn -besta kjarabótin! Munið að varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki. LADA SAFÍR kr. 79.100.- LADA CANADA kr. 87.400.- LADA SPORT kr. 129.800.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.