Morgunblaðið - 23.02.1982, Side 16
16
MOM&líKBkAÆHÐ, ÞRIÐJUDAGUR. 23. KBBRÚAR 1982
Garðabær:
Menningarvika
í Fjölbrautum
VIKUNA 22. til 26. febrúar stendur
yfir menningarvika í Fjölbrautum
við Garðaskóla. Vika þessi hefur
verið fastur liður í starfsemi skólans
frá því er hann var stofnaður haustið
1978.
Ýmislegt verður þar á dagskrá,
svo sem hæfileikakeppni, uppá-
komur, fyrirlestrar og leikrit.
Rinnig mun standa yfir handa-
vinnu- og ljósmyndasýning, þar
sem almenningi gefst kostur á að
kynna sér vinnu nemenda.
Þeir, sem vilja kynna sér skól-
ann og starfsemi hans, eru hjart-
anlega velkomnir.
(Menningarvikunefnd
Kjölbrautum (iarðahkóla)
Kynningar- og merkjasölu-
dagur Rauða krossins
ÖSKUDAGURINN er að venju
kynningar og merkjasöludagur
Kauða kross íslands.
í frétt frá Reykjavíkurdeild
RKÍ segir, að ágóða merkjasöl-
unnar á morgun verði varið til
stofnunar dagvistunarheimilis
fyrir aldraða á vegum RKÍ, sem
nú er í athugun.
I fréttinni segir einnig m.a.,
að í síðustu viku hafi kvenna-
deildin afhent Gigtarfélagi ís-
lands peningaupphæð til kaupa
á tækjum og öðrum nauðsynleg-
um búnaði fyrir gigtlækninga-
stöðina í Ármúla 5.
Kvikmyndasýning
Alliance Francais
KVIKMYNDAKLIJBBUR Alliance
Francaise sýnir kvikmyndina
„Nous ne vieillirons pas ens-
emble“ (Við munum ekki eldast
saman), sem er kvikmynd gerð árið að Laufásvegi 12.
Gallerf Langbrók:
Fatnaður sem myndverk
MÁNUDAGINN 22. febrúar hefst
kynning í Gallerí Langbrók, þar sem
Sigrún Guðmundsdóttir sýnir barna-
fatnað, sem unninn er á nýstárlegan
hátt. Eins konar þróun forms og litar
yfir í Bík.
Verkin á þessari Langbrókarkynn-
ingu eru hluti af sýningu „íslensk
nytjalist" sem haldin var í Fred-
rikshavn og Tönder í Ilanmörku ný-
lega. Kynningin mun standa yfir til
4. mars.
99
Hálft í hvoru“
um Vesturland
VÍSNASÖNGHÓPURINN „Hálft f
hvoru“ mun í næstu viku ferðast um
Vesturland á vegum Menningar og
fræðslusambands alþýðu, og Verka-
lýðssambands Vesturlands.
Þetta er í annað skipti, sem
„Hálft í hvoru“ fer slíka reisu, því
á síðasta ári var farið um Suður-,
Austur- og Norðurland eystra.
Auk þess sem hópurinn syngur á
vinnustöðum, heldur hann sjálf-
stæða kvöldhljómleika á nær öll-
um viðkomustöðum og verða þeir,
sem hér segir: Á Ólafsvík 22. febr.,
í Grundarfirði 23. febr., í Stykkis-
hólmi 24. febr., í Búðardal 25. febr.
og í Borgarnesi 26. febr.
Auk þess eru í galleríinu verk
annarra Langbróka til sýnis og sölu,
bæði textfll, keramfk og graffk.
Ferðamiðstöðin kynnti kaupsýslumönnum kaupstefnuna í hófi fyrir skömmu. Á myndinni má sjá frá hægri íslaugu
Aðalsteinsdóttur, verzlunarfuíltrúa þýzka alþýðulýðveldisins, og Guðjón Styrkársson, forstjóra Ferðamiðstöðvarinn-
Ljósm.: ÓI. K.M.
ar.
1972. Leikstjóri er Maurice Pialat,
en aðalleikendur eru Marlene Job-
ert og Jean Yanne. Sýningin verður
miðvikudagskvöld klukkan 20.30,
Ferðamiðstöðin h/f
með einkaumboð fyrir
kaupstefnuna í Leipzig
Ferðamiðstöðin h/f, ferðaskrif-
stofa, hefur nú tekið við einkaum-
boði fyrir Kaupstefnuna í Leipzig.
Eins og kunnugt er, hafa vor og
haustsýningar í Leipzig verið lengi
meðal fjölsóttustu alþjóðlegu vöru-
sýninga í heimi og um irabil mikið
sóttar af íslendingum.
Ferðamiðstöðin h/f hefur
sérhæft sig í skipulagningu ein-
staklings- og hópferða á vöru-
sýningar um allan heim, útvegar
hótel, sýningarskrár og aðgöngu-
miða á sýningar og hefur umboð
fyrir ýmsar stærstu vörusýn-
ingar í Evrópu.
Auk þessarar sérhæfðu þjón-
ustu annast Ferðamiðstöðin h/f
alla alhliða ferðaþjónustu, svo
sem skipulagningu ferða fyrir
hópa og einstaklinga, útvegun
hótela, sölu farseðla o.þ.h.
Ennfremur er meðal nýjunga
hjá Ferðamiðstöðinni h/f sólar-
ferðir á frönsku rivieruna og ít-
ölsku blómaströndina (Riviera
dei Fiori) og einnig til Korsíku og
Sikileyjar í gegnum Luxemborg,
en Ferðamiðstöðin h/f hefur
söluumboð fyrir Luxair hér á
landi.
Vorsýning Kaupstefnunnar í
Leipzig 1982, sem stendur yfir
dagana 14.—20. marz, er nú í
undirbúningi og hefur Ferða-
miðstöðin h/f tryggt flug og gist-
ingu fyrir væntanlega þátttak-
endur. Einnig afgreiðir Ferða-
miðstöðin h/f aðgangskort að
sýningunni, sem gilda jafnframt
sem vegabréfsáritun til Þýzka al-
þýðulýðveldisins.
Akranes:
Opin vika í fjöl-
brautaskólanum
INNLENT
VIKUNA 21.—27. febrúar verður
hin árlega Opna vika í Fjölbrauta-
skólanum á Akranesi. Verður þá
brugðið út af hinu hefðbundna
skólastarfi og nemendur og kenn-
arar fást við ýmis verkefni sem
falla utan kennslugreina.
Dagskráin þessa viku er saman
sett af nefnd kennara og nemenda
og blandast saman fræðsla, listir
og skemmtan. Skólann heimsækja
fjölmargir fyrirlesarar sem fjalla
SamvinnuferðirLandsýn bjóða sama verð hvaðan sem er af landinu í sólarlandaferðir:
Þennan kostnað hlýtur að þurfa
að greiða með einhverju móti
- segir Steinn Lárusson
Ferðaskrifstofan Úrval hefur í
mörg undanfarin ár óskað eftir
slíkum fargjöldum fyrir þá farþega
sem fara utan af landi í sólarlanda-
ferðir, en Flugieiðir hafa ekki talið
sig geta orðið við því, enda hefur
félagið ekki fengið eðlilega hækk-
un innanlandsfargjalda og það
hlýtur einnig að þurfa að hugsa um
aðra farþega sína, þá sem greiða
fullt fargjald í almennu áætlunar
flugi til útlanda, sagði Steinn Lár
usson, framkvæmdastjóri Úrvals
og formaður Félags ferðaskrif-
stofa, er Mbl. bar undir hann það
tilboð Samvinnuferða-Landsýnar
að gefa farþegum sínum, hvar á
landinu sem þeir búa, kost á sömu
fargjöldum í sólarlandaferðir. Hef-
ur skrifstofan samið við Arnarflug
um flutninga í þessu skyni.
Einnig má telja það útilokað
fyrir Flugleiðir að semja á þenn-
an hátt við eina ferðaskrifstofu
en sleppa öðrum, sagði Steinn
ennfremur. — Ég fæ ekki skilið
hvernig forstjóri Samvinnu-
ferða-Landsýnar getur haldið
fram að þessi aukakostnaður
komi hvergi fram þegar gera má
ráð fyrir að hann sé milli 600 og
1000 kr. á hvern farþega sem
fluttur er utan af landi til
Reykjavíkur. Þennan kostnað
hlýtur að þurfa að greiða með
einhverju móti.
Eg býst við að aðrar ferða-
skrifstofur hljóti að rannsaka
hvernig við þessu skal bregðast,
hér geta verið verulegir hags-
munir í húfi og slíkt tilboð gæti
haft áhrif á farþegafjölda ann-
arra ferðaskrifstofa. Aðrar
ferðaskrifstofur geta ekki setið
auðum höndum þegar slíkt sam-
keppnisvopn er annars vegar, því
milli 20 og 25% viðskiptavina
ferðaskrifstofa koma utan af
landi, sagði Steinn Lárusson að
lokum.
um óskyld efni svo sem vinnueft-.
irlit og öryggismál, Suður-Amer-
íku, Grænland, fóstureyðingar og
byggingalist. Farnar verða fjöl-
margar kynnisferðir og nemendur
vinna að verkefnum sem tengjast
námsgreinum í eðlisfræði, tölvu-
fræði, íþróttum, félagsfræði, raf-
tækni og heilbrigðisgreinum.
Þessa daga stendur yfir í skól-
anum málverkasýning Hjálmars
Þorsteinssonar listmálara sem
sýnir 26 olíumálverk og 22 vatns-
litamyndir, kvikmyndasýningar
verða þar sem sýndar verða mynd-
ir frá Listahátíð, bókmenntakvöld
þar sem rithöfundarnir Magnea J.
Matthíasdóttir og Hafliði Vil-
helmsson koma fram. Þá verður
boðið upp á leiksýningar, tónlist-
arvöku og skemmtikvöld með
blönduðu efni. Á miðvikudag,
öskudag, verður íþróttahátíð skól-
ans. Dagskrá opnu vikunnar er
opin almenningi og verða upplýs-
ingar þar að lútandi í blaði Ópnu
vikunnar sem borið verður í öll
hús á Akranesi.
Á fimmtudag hyggjast nemend-
ur blanda geði við aldraða á Akra-
iiesi og fyrirhuga heimsókn á
Dvalarheimilið Höfða jafnframt
sem öldruðum verður sérstaklega
boðið í skólann.
Opnu vikunni verður síðan
skellt í lás með geysifjörugu balli
nemenda á föstudagskvöld, sem
verða væntanlega vel upplýstir
um lífið og tilveruna.
(Kréttatilkynning)