Morgunblaðið - 23.02.1982, Side 48

Morgunblaðið - 23.02.1982, Side 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982 • Alan Brazil hefur skorað mikid af mörkum ad undanförnu. Hér er eitt þeirra í fæðingu. Southampton qefur ekkert eftir - en mörg liö fylgja liöinu eins og skuggar Southampton gefur ekkert eftir í kapphlaupinu að enska meistaratitlinum og hefur nú náð fjögurra stiga forystu í 1. deild. Liðið sigraði West Ham á heimavelli sínum á laugardaginn, ekki sérlega sannfærandi sigur, en um slíkt er ekki spurt, það er einmitt aðall meistaraliða að sigra jafn vel þegar leikið er ilia. Oll mörkin á „The Dell“-leikvanginum voru skoruð i fyrri hálfleik, Dave Armstrong náði forystunni fyrir Southampton með þrumuskoti á 11. mínútu, en aðeins fimm mínútum síðar jafnaði Rey Stewart úr víta- spyrnu sem Belgíumaðurinn Van Der Elst fiskaði. En Southampton, sem tapaði 2—5 fyrir Ipswich í vikunni, var ekki af baki dottið og á 33. mínútu skoraði Mick Channon glæsilegt mark með skaila og reyndist það sigur markið, því mörkin í leiknum urðu ekki fleiri. IJrslit leikja í 1. deild urðu annars sem hér segir: Birmingham — Aston Villa 0—1 Brighton — N. Forest 0—1 Leeds — Ipswich 0—2 Liverpool — Coventry 4—0 Man. Utd. — Arsenal 0—0 N. County — Wolverhampton 4—0 Southampton — West Ham 2—1 Stoke — Middlesbrough 2—0 Sunderland — Swansea 0—1 Tottenham — Man. City 2—0 WBA — Everton 0—0 Fólki leiddist á Old Trafford Viðureign Man. Utd. og Arsenal þótti afar leiðinleg, einkum og sér í lagi þó framlag Lundúnaliðsins, sem er í fjórða sæti deildarinnar, en hefur þó ekki einu sinni skorað mark í leik að meðaltali. Afar leið- inlegt varnarknattspyrnulið að mati enskra. 1. DEILD Stiulhamplon 27 15 5 7 49:M 9U Manchcsler l[id. 2r» 15 7 5 .18:19 4B Swansea 26 14 4 8 38:14 46 Arsenal 25 11 6 6 22:16 45 Ipswieh 22 14 2 6 41:12 44 Liverpool 24 12 6 6 44:22 42 Manehesler ( 'ily 2 6 12 6 8 40:3« 42 Totlcnham 22 12 4 6.17:22 40 lirighlon 25 9 10 6 29:25 37 Noltingham Kor. 25 10 7 8 27:10 17 Kverton 25 9 9 8 34:31 3« Nelln ( ounly 25 9 5 11 39:39 32 Sioke ( ily 25 9 5 12 30:34 32 Wesl llam 24 7 1« 7 41:35 31 Aslon \ illa 25 7 9 10 28:33 30 Wesl Hromwich 2I 7 7 7 26:23 28 Hirmingham ('ily 24 5 9 10 35:38 24 ('ovenlry 25 6 6 14 35:49 24 Leeds l 'nied 22 6 6 10 20:35 24 Wolverhampion 26 5 5 16 15:44 20 Sunderland 25 . 4 15 17:39 18 Middieshorugh 24 2 8 14 17:36 14 2. DEILD Lulon 13 15 5 3 50:25 50 Walford 25 13 7 5 41:27 46 Oldham 2H 12 10 6 3&2K 46 Hlaekhurn 2H 119 8 32:26 42 Sheffield Wed. 25 12 6 H 35:35 42 (iueen’s l'ark K. 25 12 5 9 35:25 41 Harnsiey 25 II 6 8 26:24 39 Kotherham 25 12 3 11 37:34 39 ( hetsea 25 116 8 35:35 39 I 'harlton 2X 10 9 9 37:38 39 Neweaslle 24 114?) 32:24 37 Norwirh 26 10 12 33:38 34 I/4'icesler 22 8 8 6 29:23 32 ('amhridue 25 9 4 12 27:30 31 Oerhy (’ounly 26 3 5 13 33:48 29 ()rienl 24 8 4 12 21:29 28 Hollon 26 8 4 14 23:36 28 Shreshury 23 7 6 10 22:33 27 ( bryslal Halaee 21 7 4 10 16:18 25 ('ardiff 25 7 4 14 24:36 25 (irimshy 21 4 710 23:36 19 Wrexham 23 5 4 14 2I;34 19 United sótti látlaust allan leik- inn, en George Wood í marki Ars- enal varði hvað eftir annað stór- kostlega. Var það honum að þakka og engum öðrum að Arsenal hafði annað stigið upp úr krafsinu. En áhorfendur risu úr sætum og baul- uðu á leikmenn Arsenal er þeir gengu af elikvelli. Liverpool rumskar aftur Eftir tvo tapleiki í röð vaknaði Liverpool til lífs á nýjan leik og gersigraði Coventry, sem hefur fengið á sig 9 mörk í tveimur síð- ustu leikjum sínum og er nú það lið sem flest hefur fengið á sig mörkin í 1. deild. Liverpool hóf skothríðina strax á fyrstu mínút- um og á 5. mínútu skoraði Graeme Souness fyrsta markið. Ekki var slegið slöku við, Sammy Lee bætti öðru marki við á 13. mínútu og fyrir hlé tókst Ian Rush að skora þriðja markið eftir gengdarlausa stórsókn Liverpool. 21. mark Ians Rush. Liverpool sótti áfram í síð- ari hálfleik, en leikmenn Coventry þéttum varnarmúr sinn og tókst að sleppa með skrámur til leiks- loka, aðeins eitt Liverpool-mark í viðbót, vítaspyrna sem Terry McDermott framkvæmdi og skor- aði úr. Ipswich og Swansea taka við sér Ipswich vann sannarlega goðan sigur á útivelli gegn Leeds, annar sigur liðsins í röð eftir ömuriegt tímabil og markatala umræddra tveggja leikja 7—2. Lengi vel mátti þó ekki á milli sjá, varnirn- ar voru sterkar og svo virtist sem bæði liðin væru jafn líkleg til að brjóta ísinn, Leeds síður en svo lakari aðilinn. En á 74. mínútu skoraði Alan Brazil fyrir Ipswich, sjötta mark hans í tveimur leikj- um. Eftir það var ekki aftur snúið, Leeds-liðið brotnaði og Mick Mills bætti öðru marki við áður en yfir lauk. Swansea virðist heldur hafa náð sér á strik á nýjan leik og liðið vann sinn þriðja sigur í röð er það sótti Sunderland heim og sigraði 1—0. Það var Leighton James sem skoraði sigurmark Swansea með þrumuskoti af 35 metra færi, sannarlega frábært mark að sögn AP og BBC. Markið skoraði James á 22. mínútu og síðar í leiknum átti hann annan eins þrumufleyg sem hafnaði í þverslánni. Sunder- land hefur ekki skorað í fimm síð- ustu leikum sínum og stefnir' hraðbyri í 2. deild. Aðrir leikir Tottenham hristi af sér fyrri hálfleiks-slen í síðari hálfleiknum gegn Manchester City og sigraði örugglega í leiknum. City lék afar varkára varnarknattspyrnu í fyrri hálfleiknum og Tottenham náði aldrei að sýna eitt eða neitt. En snemma í síðari hálfleik nældi lið- ið þó í víti sem Glen Hoddle sendi rétta boðleið. Síðar í leiknum bætti Hoddle við öðru mrki fyrir Tottenham, sem hafði þegar hér er komið sögu, náð algerum yfir- burðum i leiknum. Nottingham Forest hafði um- talsverða yfirburði gegn Brighton sem virðist vera að gefa eitthvað eftir eftir gott tímabil fram til þessa. Til að bæta salti í sárin, var það enginn annar en Peter Ward sem skoraði sigurmark Forest rétt fyrir leikhlé. Ward lék sem kunn- ugt er áður með Brighton, og var í miklu uppáhaldi hjá áhangendum liðsins. Hann hefur aldrei náð að sýna sínar bestur hliðar með For- est, en valdi skemmtilegan tíma til að skora eitt af örfáum mörk- um sínum fyrir Forest að þessu sinni. Notts County gersigraði Wolv- erhampton, hefur skorað 9 mörk í tveimur síðustu leikjum sínum. Ian McCulloch og Gordon Mair skoruðu fyrir NC í fyrri húlfeik og sömu menn bættu mörkum við í síðari hálfleiknum. Úlfarnir ætla greinilega stystu leið niður I 2. deild, en það er hending ef liðið svo mikið sem skorar mark nú orðið. 15 mörk í 26 leikjum eru litlir meistarataktar ... Ron Saunders, sem tók formlega við stjórninni hjá Birmingham í gær, horfði á gamla lið sitt Aston Villa, sigra nýja liðið Birmingham í mjög tvísýnum en ekki sérlega vel leiknum leik. Það var Peter Wite sem skoraði sigurmark Villa með góðu skoti í síðari hálfleikn- um. Grunnt var á hörkuna í þess- um leik eins og oft vill verða í leikjum nágrannaliða. Stoke var ekki í vandræðum með lang neðsta liðið Middles- brough og hefur Stoke nú leikið fimm leiki í röð án taps, tilkoma Sammy Mcllroy hefur styrkt liðið geysilega. Það voru þeir Brandan O’Callaghan og Lee Chapman sem skoruðu mörkin, Chapmann þá skorað 16 mörk í vetur. 2. deild: Bolton 0 — Rotherham 1 (Seas- man) Cambridge 0 — Oldham 0 Cardiff 0 — Barnsley 0 Charlton 1 (Gritt) — Wrexham 0 Leicester 1 (Peake) — Blackburn 0 Norwich 2 (Mendham, Jack) — Chelsea 1 (Walker) QPR 3 (Hazell, Fenwick, Flanag- an) — Derby 0 Sheffield W. 1 (Bannister) — Grimsby 1 (Waters) Shrewsbury 0 — Newcastle 0 Watford 1 (Rostron) — Luton 1 (Stein) • Nokkrir af máttarstólpum Southampton. Lengst til vinstri er Dave Arm- strong sem skoraði fyrra markið gegn West Ham, annar frá hægri er Mick Chammon sem skoraði sigurmarkið. Knatt- spyrnu- úrslit Kngland, .‘I. dt ild: Hrentford — Newport 2-0 Hristol (’. — l'ortsmouth 0~I Hurnley - Millwall I-i ('hesler — lluddersfield 3—1 (’heslerfield — Plymouth 2—2 Kxcter — (wllmghani 1 —1 Lincoln — Walsall I — l Oxford — ( arlisle 2-1 Preslon — Doncasler 3—1 Keading — Swindon 1-1 Wimbledon — Bristol Kovers 1—0 Knuland, 4. dcild: Darlinglon — Bury 2—3 llalifax — Hlackpool o-o llereford — Norlhampion 2-| llull — IÍartlep<»ol 5—2 Mansfieid — Aldershot 1-0 Kochdaie — ilournemoulh 0—1 Scunthorpe — Sheffield l'ld. 2—1 Skotland, úrvalsdeild: Airdrie — Aberdcen 0—3 ('ellic — l'arlirk 2-2 Dundee (í|d. — Kangers 1 — 1 Morion — Dundee 2-0 St. Nlirren — liibcrnian 2-2 Stadan er «ú þessi: ( eltic 20 135 2 42:20 31 Si. Mirren 20 10 6 4 31:21 26 Kangers 20 88 4 30:25 24 Aherdeen 19 86 5 25:19 22 Dundee I td. 19 8 5 6 28:18 21 llibcrnian 22 69 7 23:19 21 Morton 20 66 8 19:28 18 l'artick 21 3 8 10 16:27 14 Airdrie 20 46 10 25:44 14 Dundee 21 51 15 29:47 11 • Simon Stainrod QPR Keegan marka- hæstur KEVIN Keegan leiðir enn kapphlaupið að markakóngstitl- inum í 1. deildinni ensku, hann hefur skorað 22 mörk. lan Rush hjá Liverpool hefur skotist í ann- að sætið, mörkin hans eru nú orðin 21 talsins. Þriðji er nú Cyr ille Regis hjá WBA, hann hefur skorað 19 mörk og 18 stykki hvor hafa skorað þeir Terry McDermott hjá Liverpool og Al- an Brazil hjá Ipswich. I 2. deild er Simon Stainrod hjá QPR niarkhæstur með 18 mörk, Steve White hjá Luton hefur skorað 16 mörk og Garry Bannister hjá Sheffield Wed- ensday hefur skorað 15 mörk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.