Morgunblaðið - 23.02.1982, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 23.02.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982 Áróðursvél kommúnista og Pólland Þátturinn um Pólland í sjón- varpinu á dögunum var bæði vel gerður og þörf áminning. Því mið- ur vill aíltof oft fara svo.að fólk gleymir ýmsum atburðum, jafnvel stóratburðum, furðu fljótt, ef ekki er minnst á þá öðru hvoru. í því mikla magni frétta, sem daglega flæðir yfir landslýð i útvarpi, sjónvarpi og dagblöðum, fyrnist flótt yfir liðna atburði. Nýju frétt- irnar altaka hugann. Þetta vita áróðurssérfræðingar kommúnista. Og áróðursvél kommúnismans fór strax í gang. Jafnvel áður en þátt- urinn var nokkurs staðar sýndur, var byrjað að úthrópa hann, hvað hann væri ómerkilegur og illa gerður, og lýsti vel hræsni Bandaríkjamanna. Og reynt var að yfirskyggja Póllandsmálið með því að benda á slæmt ástand ann- ars staðar í heiminum. Eins og það bæti eitthvað um fyrir Pólv- erjum að aðrar þjóðir eigi við erf- iðleika að stríða. Því enda þótt herforingjastjórnir sitji að völd- um í ýmsum ríkjum heims, réttl- ætir það ekki kúgun kommúnista á pólsku þjóðinni. Og það merki- lega gerist. Menn, sem telja sig andvíga kúgun og ofbeldi, taka strax undir þennan kommúnista- áróður og vitna á síðum dagblað- anna. Alveg er makalaust, hvað sumir menn geta verið hallir und- ir lygaáróður kommúnista, og furðulegt að greindir menn skuli ekki sjá í gegnum blekkingarvef- inn og hafa vit á að forðast hann, heldur ganga með opnum augum beint í netið. Allt er gert til þess að reyna að láta fólk á Vestur- löndum gleyma ofbeldi og kúgun kommúnista í Póllandi, og öðrum löndum Austur-Evrópu, í Afghan- istan, Rússlandi, Víetnam, Kamp- útseu og annars staðar þar, sem kommúnistar hafa náð völdum. Samúð heimsins er með hinni kúg- uðu alþýðu Póllands, en ekki ofbeldisöflunum, sem kúga hana. Það er því sorglegt að nokkur maður skuli taka undir áróður ofbeldis- og kúgunarmeistaranna. Það er eins og þeir séu hin sak- lausu lömb, en kúguð alþýðan glæpamennirnir. II. febrúar 1982. Kinn að vestan. Merkja- salaá öskudag Reykjavíkurdeild RKI afhendir merki á neöantöldum stööum frá kl. 9.30 á öskudag 24. febr. Börnin fá 15% sölulaun og þrjú söluhæstu börnin fá sérstök árituð bókaverölaun. Skrifstofa Reykjavíkurdeildar RKÍ Öldugötu 4 Melaskólinn v/Furumel Skrifstofa RKÍ Nóatúni 21 Hlíöarskóli v/Hamrahlíö Álftamýraskóli Hvassaleitisskóli Fossvogsskóli Laugarnesskóli " Langholtsskóli Vogaskóli Árbæjarskóli Breiöholtsskóli Fellaskóli Hólabrekkuskóli Ölduselsskóli Þessir hringdu . . . Þrengið ekki með frekari þéttingu byggdar Austurbæingur hringdi: „Mig langar til að taka undir það sem „J.H.“ segir um skipulagsmálin hér í Reykjavík í Velvakanda þann 21. þ.m.“, sagði hann. „Það er hrein synd hvernig gengið hefur verið á opin svæði inn í borginni að undanförnu. Þeir sem eiga bíla og geta auðveldlega brugðið sér út fyrir borgina til að hreyfa sig og njóta frjálsræðis, geta á vissan hátt látið sér standa á sama þótt þrengt sé að byggðinni. En hvað um börnin sem alast upp hér í Reykjavík, þurfa þau ekki opin svæði — skipulögð og óskipulögð — til að sinna leikjum sínum og fá tækifæri til að hreyfa sig. Þó ég sé ekkert gamalmenni man ég þá tíma, að einstaklingnum var ætlað meira pláss en nú tíðkast. Vinstri meirihlutinn í Borgarstjórninni gengur að minni hyggju meira en feti of langt, er hann stendur fyrir því að fækka og rýra þau fáu opnu svæði sem við höfum hér innan borgarmarkanna. Menn ættu að hafa það í huga — vinstrimenn sem aðrir menn — að það ber að haga kerfinu eftir einstaklingun- um en ekki einstaklingunum eftir kerfinu. Þarna er um heimskulega stefnu í skipulagsmálum að ræða og ættu þeir sem þessu stjórna að sporna við og stoppa þetta sem fyrst“. Ferðafrelsi íslendinga og átthagafjötrar Þjóðviljans Ferðamaður hringdi: „Ekki alls fyrir löngu var verið að býsnast yfir því í leiðara Þjóðviljans, mig minnir að það hafi verið Kjartan sem pistilinn skrifaði, að Islend- ingar gætu leyft sér að ferðast til útlanda," sagði hann. „í þessum sama leiðara var býsnast yfir því að margir Islendingar ættu bíla!! Ég var eriendis þegar þessi til- tekni Þjóðvilji kom á þrykk og var ekki sýnt þetta fyrr en fyrir nokkrum dögum — og jafnvel þótt um Þjóðviljan væri að ræða, sem hefur velt sér upp úr ýmsu mis- jöfnu, get ég ekki neitað því að ég varð hissa. Ekki er ég viss um að fólk geri sér Ijóst, hversu harðsoð- in afturhaldsklíka þrífst innan Al- þýðubandalagsins. Þetta er klíka sem ekki myndi hika við að taka af íslenzku þjóðinni ferðafrelsið og færa hana í átthagfjötra ef hún hefði tækifæri til. Ég vona að ís- lendingar geri sér almennt ljóst hversu mikil hætta stafar af hugs- unarhætti sem þessum. En almennt um ferðalög til út- landa sem Þjóðviljinn vill útiloka með sköttum. Við íslendingar eig- um flestum þjóðum erfiðara með ferðalög. í Danmörku t.d. er hægt að stíga upp í lest og ferðast til hvaða staðar í Evrópu sem er, fyrir lítinn pening. Flugið yfir hafið verður íslendingum hins vegar alltaf dýrt, hversu þróuð sem samgöngutæknin verður. Þess vegna finnst mér að stjórnvöld ættu að halda aftur af skattgleði sinni á þessu sviði — það er nógu dýrt að ferðast frá íslandi þó ekki bætist skattar og skattaskattar þar ofaná, skattlagningin á þessi ferðalög er þegar meiri en nóg. Ég ætlast ekki til að þeir Þjóðvilja- menn skilji þetta, heldur beini ég þessu til Islendinga, sem hafa mannréttindi að hugsjón og eru tilbúnir til að verja þau.“ Saltkjöt ~l Rafknúnir hverfisteinar Sérstaklega hentugir fyrir smiði, bændur, hótel, frystihús og föndurvinnu. 21222

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.