Morgunblaðið - 23.02.1982, Page 40

Morgunblaðið - 23.02.1982, Page 40
Síminn á afgreiöslunni er 83033 Jflor0unXiIfi&it> ptidT0)f«vX>XalisX) Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982 Reykjavíkurborg: Leigan á kartöflugörð- um hækkuð um 425% Á FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavíkurborgar fyrir árið 1982 var felld niður fjárveiting til rekstrar matjurtagarða í borginni. Var búið að áætla 283.200 kr. til að veita garðræktendum í kartöflugörðum sömu þjónustu og áður. Er Björn Friðfinnsson fjármálastjóri borgarinnar var spurður hverju þetta sætti, sagði hann að nú væri ætlast til þess að leiga á görðunum yrði hækkuð nægilega til þess að þeir stæðu undir sér. í fyrra höfðu 1254 Reykvíkingar reiti í kartöflugörðum borgarinn- ar, þar sem þeir ræktuðu kartöflur á 21,70 hekturum lands, að því er Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri, upplýsti. Var kartöfluuppskeran um áttföld í fyrra og því ræktaðar um 4000 tunnur, sem voru til bú- drýginda á heimilunum. Sagði Hafliði að Reykjavikur- borg hefði hingað til veitt þessum garðeigendum ýmsa þjónustu, séð um jarðvinnslu, að vegakerfið um garðana væri fært, girðingar í lagi, skurðum haldið opnum, séð um merkingar, hreinsun á svæð- inu og eftirlit. Þegar garðrækt- endur ættu nú að borga þetta allt sjálfir, yrði hækkunin á leigunni að verða 425%. Þannig hækkar leigan á 100 ferm, minnstu skik- unum, í 180 kr. og 300 ferm skik- unum í 270 kr. Margar fjölskyldur notuðu garðræktina til útivistar, sagði Hafliði. Stór hluti af garðrækt- endum væri aldrað fólk, sem kæmi alla daga, ef veður leyfði og væri að dútla þarna, en þeir yngri kæmu svo til hjálpar við að taka upp og flytja uppskeruna burt. En einnig væru heilu fjölskyldurnar þarna mikið saman við matjurta- ræktunina. Upphaflega hafði ver- ið byrjað á þessari starfsemi í kreppunni, þegar Dagsbrún og verkamenn þrýstu mjög á um að fá garðlönd, t.d. í Aldamótagörð- unum. Síðan hefði borgin alltaf hvatt til og aðstoðað garðrækt- endur og nú ekki síður vegna tómstunda- og útivistarstarfsemi. Sagði Hafliði að hætt væri við að grundvöllurinn væri farinn undan þessu ef allt ætti að greiða að fullu. Þeir urðu í þremur efstu sætunum á Reykjavíkurskákmótinu, frá vinstri: Alburt, Abramovic og Gurevich. Auk peningaverðlauna fengu þeir blóm og lopapeysur. (Ljósm. Kristján Örn). Reykjavíkurskákmót- id árviss atburður? Reykjavíkurskákmótinu lauk síðastliðinn sunnudag með sigri Lev Alburt, en hann er landflótta Sovétmaður, sem nú býr í Banda- ríkjunum. Sem fyrstu verðlaun hlaut hann 6 þúsund dali eða um 60 þúsund krónur. Dr. Ingimar Jónsson, forseti Skáksambands ís- lands, sagði á sunnudag að það yrði rætt í stjórn SÍ á næstunni hvort ekki bæri að halda Reykja- víkurskákmót árlega, en þau hafa verið haldin annað hvert ár síðan 1964. Margt manna fylgdist með skákmótinu, sem haldið var að Kjarlvalsstöðum, og skákunn- endur fá tækifæri um næstu helgi til að fylgjast með lands- keppni í skák. Þá verður teflt gegn Svíum og er keppnin liður í Evrópukeppni landsliða. I ís- lensku sveitinni verða Friðrik Ólafsson, Guðmundur Sigur- jónsson, Jón L. Arnason, Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson, Haukur Angantýsson, Jóhann Hjartarson og Ingvar As- mundsson. Sjá nánar bls. 46—47. Mistök á Keldum: Blárefur brenndur áður en hann var rannsakaður ÞAU MISTÖK urðu á rannsókna- stofu Háskólans á Keldum, að blá- refur, sem skotinn var við Víkinga- vatn í Kelduhverfi í byrjun febr., var settur í brennsluofn áður en hann var rannsakaður, svo nú er ekki hægt að vita hvort hann kom af refa- búi eða hvort hann var villtur. Það var Sigurjón Bláfeld Jóns- son, loðdýraræktarráðunautur Búnaðarfélags Islands, sem hafði óskað eftir að blárefurinn yrði krufinn og aldursgreindur. Sagði hann í samtali viö Mbl. að það væri ótrúlegt að svona lagað gæti gerst og kenndi það um mannleg- um mistökum. Ljósm. Mbl. Kmilía. Afmœlishátíð blásin á LÍJDRASVEITIN Svanur blés fyrstu tónana á afmælishátíð Fé- lags íslenzkra hljómlistarmanna á Lækjartorgi í gær. Hátíðin mun standa til 27. febrúar með fjöl- breyttum tónleikum og skemmtun- um. í gær var jazz á dagskrá og rifjuð var upp tónlist áranna 1972—’82. í dag klukkan 15 verð- ur kaffihúsamúsik á Borginni og popptónleikar á Lækjartorgi klukkan 16. Jazz-tónleikar verða á Hótel Sögu klukkan 21 og klukkan 19 hefst skemmtun á Broadway, þar sem rifjuð verður upp tónlist áranna 1962—’72. Þar koma Hljómar m.a. fram. Þá munu félagar í FÍH heimsækja ýmsar sjúkrastofnanir. Stálvík selur ósamsett- an togara til S-Ameríku STÁLVÍK hf. í Garðabæ er nú að Ijúka við að skera niður efni í 20 metra langan rækjutogara, sem fyrirtækið selur úr landi ósamsettan. Verk þetta er unnið í skurðarvél, sem tengd er nýrri tölvutækni og hefur tekið um hálfan mánuð að skera stálið í þennan rækjutogara. Stálvík framkvæmir þetta verk samkvæmt samningi við danskt fyrir tæki, sem selur síðan togarann ósamesttan til Guiana í SuðurAmer íku. Að sögn Jóns Sveinssonar, forstjóra Stálvíkur, má búast við að takist þessi samvinna vel, geti náðst samningar uni fleiri slík skip. Þetta skip, sem verið er að ljúka við að skera stálið í, er hið fyrsta, sem Stálvík framkvæmir með þessum hætti. Togarinn sundurskorinn eða ósamsettur er seldur dönsku fyrirtæki. Samninginn kvað Jón Sveinsson byggjast á nýrri tölvutækni, sem Stálvík hefði tekið í notkun og er samtengd sérstakri skurð- arvél. Jón kvaðst vonast til að framhald gæti orðið á þessari samvinnu, en reynslan af þess- um fyrsta rækjutogara myndi skera úr um það, hvort fram- hald yrði, talsvert myndi það og ráðast af því, hvernig gengi að koma togaranum saman í Gui- ana. Það hefur tekið Stálvík hálfan mánuð með hinni nýju tölvutækni að merkja og skera stálið í togarann. Allt netaefni í vörpurnar keypt frá Hampiðjunni - segir Jens Eysteinsson hjá Fishery Products á Nýfundnalandi „VIÐ AUGLÝSTUM eftir íslendingi til starfa, því hér á Nýfundnalandi eru ekki margir raenn, sera hafa mikla reynslu, í útgerð togara,“ sagði Jens Eysteinsson framkvæmdastjóri hjá risaútgerðarfyrirtækinu Fishery Products í St. Johns á Nýfundnalandi í samtali við Morgunblaðið. Um helgina auglýsti Fishery Products eftir útgerðarstjóra í Morgunblaðinu, en fyrirhugað er að viðkomandi hafi aðsetur í bænum Catalina á norðaustur Nýfundnalandi. Fishery Products er eitt stærsta útgerðarfyrirtæki Kanada en í þess eigu eru nú 44 togarar. Jens Eysteinsson hefur starfað hjá Fishery Products í nokkur ár. Rekstur togaranna byggist á fimm frystihúsum í eigu fyrirtækisins í jafnmörgum bæjum á Nýfundna- landi. Nýverið var tekinn í notkun togari, sem byggður er í Marystown á Nýfundnalandi og er togarinn teiknaður af Jóni Hafsteinssyni skipaverkfræðingi í Reykjavík. Sagði Jens, að þessi togari bæri af, bæði hvað varðaði aflabrögð og eins styrkleika og er hann eini togari fyrirtækisins sem fer inn í ísinn við Labrador til veiða. Þá sagði Jens, að allt netaefni í vörpurnar væri keypt frá Hampiðj- unni í Reykjavík og væri svo komið að flest útgerðarfyrirtæki í Kanada notuðu trollefni frá Hampiðjunni, enda bæri það af öðrum trollefnum hvað styrkleika og endingu varðaði. Jens sagði að útgerðarstjórinn, sem ráðinn yrði til Catalina ætti að bera ábyrgð á rekstri togaranna, sem væru gerðir út þaðan. Laun væru mjög góð og ef vel gengi væri greiddur sérstakur bónus ofan á fastalaunin. Togarar Fishery Products hafa aflað mjög vel að undanförnu og hef- ur aflinn verið 40 til 50 tonn af þorski á dag og sagði Jens, að ekki væri óalgengt að togararnir fengju 20—30 tonn af þorski í klukkutíma hali.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.